
Íslensk tunga

Hvernig væri að þýða tölvuleiki?
Fyrir örfáum dögum bárust þær fréttir frá Frönsku akademíunni, sem hefur það hlutverk að rækta franska tungu, að ákveðið hefði verið að banna ýmis tökuorð sem tengjast tölvuleikjum og nota í staðin frönsk heiti.

Sannfærð um að Ísland hefði unnið Eurovision og ákvað að læra íslensku
Bresk kona sem hefur einsett sér að læra tungumál þeirrar þjóðar sem vinnur Eurovision hverju sinni ákvað að læra íslensku eftir að keppninni var aflýst árið 2020. Hún telur að Daði og Gagnamagnið hefðu verið líklegust til sigurs það árið. Hún hefur þegar lært ítölsku og hollensku en segir íslenskuna hafa verið meiri áskorun.

„Við megum ekki nota tungumálið til að mismuna fólki“
Prófessor emeritus í íslensku fagnar því að til standi að breyta orðalagi bóklegra ökuprófa en það hefur verið gagnrýnt harðlega undanfarið, meðal annars af ökukennurum sem segja vísvitandi villt um fyrir próftökum með flóknu orðalagi og gamaldags setningagerð.

Kveikjum neistann hjá ólæsri bókaþjóð
Að geta lesið sér til gagns er grunnfærni í lífinu, lykillinn að námi, þekkingarleit og þekkingarþróun hvers einstaklings.

Ná ekki að breyta enskuskotnum umbúðum Nóa kropps
Sælgætisframleiðandinn Nói Síríus nær ekki að breyta enskuskotnum umbúðum á sumarútgáfu af Nóa kroppi þar sem búið er að dreifa nánast öllu takmörkuðu upplagi þess í verslanir. Málfræðingur við Háskóla Íslands gerði athugasemd við að umbúðirnar væru að hluta á ensku.

„Fulltrúar erlendu stórfyrirtækjanna tókust bara á loft“
Forseti Íslands segir lífsreynslu útaf fyrir sig að hafa fundað með Apple, Microsoft og Amazon vestanhafs síðustu daga. Helstu sérfræðingar Íslendinga í máltækni eru hluti af sendinefnd, sem á að sannfæra stórfyrirtækin um að bjóða upp á samskipti við símana - á íslensku.

Ræðir íslensku við Apple, Amazon og Microsoft
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, hélt í gærkvöldi til Kaliforníu í Bandaríkjunum þar sem hann leiðir íslenska sendinefnd á fund bandarískra stórfyrirtækja í tækniiðnaði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá embættinu.

Bein útsending: Máltækni í atvinnulífi og samfélagi
Atvinnulífsráðstefna Almannaróms og Samtaka atvinnulífsins verður haldin klukkan 14:30 til 16:30 í dag í Silfurbergi í Hörpu.

Aron notar rödd „Karls“ til að tjá sig á hverjum degi
Hinn níu ára gamli Aron Gauti Arnarsson er með fjórlömun, sem er tegund af Cerebral Palsy, sem er algengasta tegund hreyfihömlunar barna. Móðir hans segist hafa mikla trú á íslenskum leikjaiðnaði og veðjar á að lausnir á því sviði muni koma til með að bæta líf barna með fötlun til muna.

Ég styð ókeypis íslenskunám
Ég styð ókeypis íslenskunám fyrir fólk af erlendum uppruna sem sest að á Íslandi. Ég flutti til Íslands þriðjudaginn 29. apríl 2003.

Íslenskunám á vinnutíma fyrir starfsfólk
Viðreisn í Kópavogi telur að það séu sameiginlegir hagsmunir sveitarfélagsins og starfsmanna sem vinna í leik- og grunnskólum bæjarins að styðja við íslenskunám þeirra með því að bjóða upp á íslenskukennslu á vinnustað á starfstíma fyrir þau sem slíkt vilja þiggja.

Vill að fólk hætti að leiðrétta „mér langar“ og „það var barið mig“
Töluverð hugarfarsbreyting hefur orðið á meðal íslenskra málfræðinga á undanförnum áratugum. Þær einkennast af stórauknu umburðarlyndi gagnvart málbreytingum, því sem áður voru kallaðar málvillur.

Þriðjungur grunnskóladrengja geti ekki lesið sér til gagns: „Þetta er hrópandi“
Kennarar segja að þriðjungur drengja geti ekki lesið sér til gagns við útskrift úr grunnskóla. Læsi og orðaforði grunnskóla- og leikskólabarna fari ört versnandi. Nauðsynlegt sé að grípa inn í.

Skandall að mikilvæg tól sem hjálpa íslenskunni hafi verið á bak við lás og slá
Ungur forritari sem var orðinn langþreyttur á að þurfa að greiða fyrir aðgang að Snöru tók málin í sínar hendur stofnaði fría orðabók á netinu. Hann segir skandal að stjórnvöld hafi ekki gert þetta fyrr.

Kraftur íslenskrar tungu
Ég er ein af þeim sem fæ í eyrun þessa dagana þegar ég hlusta á útvarpsþætti í umsjón fólks sem slettir „obvíusslí“ eða „absolútlí“ og fleiri enskuslettum sem eru nánast að kaffæra umræðuna.

Furðar sig á öryggisleiðbeiningum sem eru einungis á ensku
Prófessor emeritus í íslenskri málfræði furðar sig á því að lífsnauðsynlegar upplýsingar við hlið nýs hjartastuðtækis í Háskóla Íslands séu einungis á ensku en ekki íslensku.

Örnefnanefnd mælir með þremur nöfnum á sameinuðu sveitarfélagi
Örnefnanefnd telur að þrjár af þeim tillögum sem bárust nefndinni til umsagnar um nafn á sameinuðu sveitarfélagi Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar, falla best að nafngiftahefð í landinu. Það eru nöfnin Suðurþing, Laxárþing og Goðaþing.

Áminning um auðlindir
Manstu hver þú varst áður en heimurinn sagði þér hver þú værir? Áður en bíómyndirnar lögðu drög að draumum þínum og samfélagsmiðlar komu á tilfinningalegu kvótakerfi í hausnum á þér til að úthluta athygli þinni til erlendra stórfyrirtækja? Manstu hver þú varst áður en undirmeðvitund þín varð að bandarískri nýlendu?

„Leghafi“ ágætt orð en Katrín ætlar ekki að hætta að segja „kona“
Tímarnir breytast og mennirnir — eða einstaklingarnir — með.

Er læsi lykill að menntun?
Læsi er ekki eingöngu grundvöllur menntunar heldur einnig lýðræðis og félagslegs réttlætis. Læsi má skilja víðum skilningi, s.s. textalæsi, miðlalæsi og tilfinningalæsi. Rannsóknir sýna að kunnátta og færni til að skilja prentaðan texta og tjá sig í rituðu máli skipti miklu og stuðli að farsælli skólagöngu og samfélagsþátttöku.

Létu skort á öldruðum sauðfjárbændum ekki á sig fá
Fólkið á bak við TVÍK, tæknivædda íslenskukennarann, vill umbylta tungumálakennslu og hjálpa fleirum að þora að tala íslensku. Teymið skipar Gamithra Marga, Safa Jemai og Atli Jasonarson en þau unnu nýverið nýsköpunarkeppnina Gulleggið.

Guðrún hjálpar Microsoft Edge að tala íslensku
Íslenskum talgervli hefur verið bætt við Microsoft Edge vafrann sem les nú upp íslenskan texta. Vonast er til að nýja virknin muni meðal annars gagnast blindum, sjónskertum og nemendum sem kjósa að hlusta á námsefni.

TVÍK hlaut Gulleggið 2022
Teymið á bak við TVÍK, eða tæknivædda íslenskukennarann, vann Gulleggið 2022, elstu frumkvöðlakeppni landsins.

Viðtengingarháttur í útrýmingarhættu
Viðtengingarháttur er á gríðarlegu undanhaldi í íslensku og gæti hreinlega verið horfinn úr íslensku á þessari öld. Svo virðist sem lestur og áhorf barna á enskt efni hafi hraðað þessari þróun.

Söfnuðu ríflega 1,3 milljónum raddsýna
Ríflega 1,3 milljónir raddsýna söfnuðust í Lestrarkeppni grunnskólanna sem lauk í gær. Um er að ræða tvöföldun milli ára en alls tóku 118 skólar þátt og lögðu 5.652 manns sínum skóla lið í keppninni.

Vilja lesa fleiri en 776 þúsund setningar
Stefnan er að lesa fleiri en 776 þúsund íslenskar setningar inn í snjalltæki í þriðju Lestrarkeppni grunnskólanna sem hófst í Smáraskóla í dag, en sá setningafjöldi er metið frá því í fyrra.

Sjálfstæðisflokkurinn þarf aðeins að stoppa
Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims hefur áhyggjur af sjálfstæði Íslands og segir að honum hafi til að mynda litist afskaplega illa á þriðja orkupakkann á sínum tíma. Sjálfstæðisflokkurinn þarf að doka við og spyrja sig fyrir hvað hann stendur, segir útgerðarmaðurinn.

Vinnubrögð sem enginn ætti að sjá
Þórarinn Eldjárn er tvímælalaust einhver ástsælasti höfundur þjóðarinnar. Rithöfundarferill hans fer að teygja sig upp í fimmtíu árin og í ár, á fjörutíu ára afmæli fyrsta smásagnasafns hans, Ofsögum sagt, gefur hann út sitt áttunda smásagnasafn, Umfjöllun.

Guðmundur kaupir þrjú þúsund bækur
Forstjóri Brims segir fyrirtæki landsins ekki gera nóg til að efla íslenskukunnáttu starfsfólks síns. Hann er uggandi um stöðu tungumálsins og var að enda við að gefa eina stærstu bókagjöf á Íslandi um langt skeið.

Arnar Eggert fékk Lítinn fugl
Dagur íslenskrar tónlistar var haldinn hátíðlegur víða um land í dag með ýmsum hætti en í Iðnó við tjörnina var haldin stutt hátíðarsamkoma að þessu tilefni þar sem veittar voru viðurkenningar tileinkaðar deginum og heiðursverðlaun dagsins, kennd við Lítinn fugl.