
Akstursíþróttir

Hamilton úr leik á þriðja hring
Hinn sjöfaldi heimsmeistari Lewis Hamilton er úr leik í bandaríska Formúla 1 kappakstrinum en hann endaði út af brautinn og pikkfastur í sandi eftir aðeins þrjá hringi.

Fyrsti Íslendingurinn sem vinnur: Þú trúir þvi ekki hversu ánægður ég er
Auðunn Guðmundsson skrifaði söguna í gær þegar hann tryggði liði sínu, Team Thor, sigur í LMP3 kappakstrinum í Le Mans Cup en þetta var lokakeppni tímabilsins og fór fram í Portimao í Portúgal.

Íslenskur ökumaður fagnaði sigri í Le Mans keppninni
Íslenski ökumaðurinn Auðunn Guðmundsson fagnaði sigri í Le Mans aksturskeppninni í dag, sem heitir á ensku 2024 Michelin Le Mans Cup.

Tapsár Jordan lögsækir NASCAR
Michael Jordan hefur lögsótt bandarísku aksturskeppnina NASCAR eftir langvinnar deilur. Lögsóknin er sögð geta haft sögulegar afleiðingar, og breytingar í för með sér.

Annað Schumacher-brúðkaup gæti verið í vændum
Dóttir Michaels Schumacher gekk í það heilaga um helgina og áður en langt um líður gæti sonur hans líka verið á leið í hnapphelduna.

Schumacher sást meðal fólks í fyrsta sinn í ellefu ár
Fyrrverandi Formúlu 1 ökuþórinn Michael Schumacher var viðstaddur brúðkaup dóttur sinnar á Mallorca á Spáni um helgina og sást þar meðal fólks í fyrsta sinn í ellefu ár.

Hamilton opnar sig um þunglyndi og einelti: „Hafði engan til að tala við“
Sjöfaldi Formúlu 1 heimsmeistarinn Lewis Hamilton hefur frá unga aldri glímt við þunglyndi samhliða því að reyna skapa sér nafn og skara fram úr í mótorsportheiminum. Í opinskáu viðtali við The Times talar Hamilton um baráttu sína við þunglyndi og opnar sig um einelti sem hann varð fyrir í skóla.

Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB
Liam Lawson hefur leyst Daniel Ricciardo af hólmi hjá RB það sem eftir lifir tímabils í Formúlu 1.

Þrír ákærðir fyrir að reyna að fjárkúga fjölskyldu Schumacher
Saksóknari í Wuppertal hefur ákært þrjá menn fyrir að reyna að kúga fé út úr fjölskyldu Michaels Schumacher, fyrrverandi heimsmeistara í Formúlu 1.

Mætti tárvotur í viðtal og óviss um framhaldið
Singapúr kappaksturinn í gær er að öllum líkindum sá síðasti á Formúlu 1 ferli Ástralans Daniel Ricciardo, ökuþórs RB liðsins. Hann mætti tárvotur í viðtal eftir að hafa lent í 18.sæti í gær.

Refsing fyrir að blóta gæti flýtt fyrir því að Verstappen hætti
Max Verstappen, þrefaldur heimsmeistari í Formúlu 1, segir að það að honum hafi verið refsað fyrir að blóta á blaðamannafundi gæti flýtt fyrir því að hann hætti í íþróttinni og snúi sér að öðrum akstursíþróttum.

Norris nálgast Verstappen eftir sigur í Singapúr
Lando Norris á McLaren vann öruggan sigur í kappakstrinum í Singapúr, átjándu keppni ársins í Formúlu 1.

Norris á ráspól í Singapúr
Lando Norris hafði betur gegn sínum helsta keppinaut í baráttunni um heimsmeistaratitil Formúlu 1 og hefur leik í kappakstur helgarinnar á ráspól. Max Verstappen, margfaldur heimsmeistari, kemur þar á eftir.

Eðla rölti inn á brautina á æfingu
Óboðinn gestur setti strik í reikning ökumanna á æfingu fyrir kappaksturinn í Singapúr í Formúlu 1.

Heimsmeistaranum refsað fyrir notkun blótsyrðis
Ríkjandi heimsmeistari ökuþóra í Formúlu 1, Hollendingurinn Max Verstappen hjá Red Bull Racing, mun þurfa að sinna samfélagsþjónustu eftir að hafa blótað á blaðamannafundi mótaraðarinnar fyrir keppnishelgi Formúlu 1 í Singapúr sem er nú hafin.

FIA tók fyrir kvörtun Red Bull og hefur kveðið upp dóm sinn
Alþjóða akstursíþróttasambandið (FIA) hefur úrskurðað afturvænginn, sem bíll McLaren skartaði um síðastliðnu helgi í Azerbaijan, löglegan eftir að keppinautar breska liðsins í Formúlu 1 kröfðust þess að vængurinn yrði skoðaður nánar.

Lando Norris enn vongóður þrátt fyrir gulu flöggin
Lando Norris í liði McLaren er enn vongóður um árangur í Aserbaísjan kappakstrinum þrátt fyrir að leggja af stað í sextánda sæti, vegna erfiðleika í undanrásunum í gær.

Bein útsending: Úrslitin ráðast á Íslandsmótinu í Rallýcrossi
Fimmta og síðasta umferð Íslandsmótsins í Rallýcrossi fer fram á akstursíþróttasvæði AÍH í Kapelluhrauni í dag og hefst keppni núna klukkan ellefu. Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu frá keppninni hér neðar í fréttinni.

Vill vinna titilinn á eigin forsendum
Lando Norris, ökumaður McLaren í Formúlu 1, segist vilja vinna heimsmeistaratitilinn með því að keyra hraðar og betur en Max Verstappen, ríkjandi heimsmeistari og ökumaður Red Bull.

Biðja Piastri um að styðja Norris í baráttunni um titilinn
Andrea Stella, liðsstjóri Formúlu 1 liðs McLaren hefur staðfest að liðið muni setja hagsmuni Lando Norris, annars af aðalökumönnum liðsins, fram yfir hagsmuni liðsfélaga hans Oscar Piastri út yfirstandandi tímabil. Er þetta gert til þess að gefa Norris sem mesta möguleika á því að skáka Hollendingnum Max Verstappen í baráttu ökuþóranna um heimsmeistaratitilinn.

Hvalreki fyrir Aston Martin í Formúlu 1
Risafréttir bárust úr heimi Formúlu 1 núna í morgun því Bretinn Adrian Newey hefur verið ráðinn til Aston Martin.

Bein útsending: Bikarmótið í torfæru
Torfæruklúbburinn heldur bikarmót í torfæru í dag og er hægt að fylgjast með keppninni í beinni útsendingu á Vísi.

Norris sá fyrsti til að vinna Verstappen í hollensku tímatökunum
Lando Norris, ökumaður McLaren, verður á ráspól þegar hollenski kappaksturinn fer af stað á morgun.

Motul torfæran fór fram á Akureyri
Vísir var með beina útsendingu frá Motul torfærunni, 5. umferð Íslandsmótsins í torfæru 2024 sem fer fram á torfærusvæði Bílaklúbbs Akureyrar.

Bruna yfir hálendið á buggy-bíl: „Þetta er með því skemmtilegasta sem ég hef gert“
Þolaksturskeppnin Can-Am Hill Rally hófst í gær. Þrjátíu keppendur munu yfir helgina aka 490 kílómetra leið yfir hálendi Íslands á fjallajeppum og buggybílum.

Nýliðarnir sanka að sér dýrmætri reynslu
Hið nýja Formúlu 1 lið Audi er farið að taka á sig mynd og hefur þýski bílaframleiðandinn sankað að sér reynsluboltum úr mótaröðinni upp á síðkastið fyrir frumraun sína í Formúlu 1

Eftirsóttur Sainz fer til Williams eftir tímabilið
Koma Lewis Hamilton til Ferrari þýðir að ekki var ljóst hvar Carlos Sainz myndi sinna atvinnu sinni á komandi á tímabili. Það hefur loks fengist svar við því en hann mun keyra fyrir annars slakt lið Williams á komandi tímabili í Formúlu 1.

Russell dæmdur úr leik og Hamilton fagnar sigri í Belgíu
Mercedes-mennirnir George Russell og Lewis Hamilton komu fyrstir í mark í belgíska kappakstrinum í Formúlu 1 í dag.

Yuki Tsunoda færður aftur um 60 sæti í ræsingu
Yuki Tsunoda, ökumaður Honda, mun ræsa aftastur í belgíska kappakstrinum í dag eftir að hafa verið færður aftur um 60 sæti í refsingarskyni.

Verstappen fljótastur en ræsir ellefti
Heimsmeistarinn Max Verstappen var langfljótastur í dag þegar tímatökur fóru fram fyrir Belgíukappaksturinn í Formúlu 1 sem fram fer á morgun. Hann ræsir þó úr ellefta sæti þar sem hann tekur út refsingu.