
Frakkland

Vilja svipta Le Pen frelsinu og kjörgengi í fimm ár
Saksóknarar í París hafa farið fram á að Marine Le Pen, leiðtogi Þjóðfylkingarinnar í Frakklandi, verði dæmd í fimm ára fangelsi og útilokuð frá því að bjóða sig fram í opinbert embætti í fimm ár.

Málaferli og verktakadrama seinkar framkvæmdunum á höllinni í Frakklandi
Í síðasta þætti af Gulla Byggi var haldið áfram að fylgjast með stærsta verkefninu í sögu þáttanna. Um er að ræða höll sem arkitektinn Björn Björnsson fjárfesti í á dögunum. Höllin var byggð árið 1435 í Frakklandi.

Þjóðarleiðtogar kasta kveðju á Trump
Þjóðarleiðtogar heimsins og aðrir leiðtogar eru byrjaðir að kasta kveðjum á Donald Trump og hrósa honum fyrir væntanlegan sigur hans í forsetakosningunum í Bandaríkjunum. Þeirra á meðal eru Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, og Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands.

Réttað yfir átta vegna afhöfðunar kennara í París
Réttarhöld gegn átta manns sem ákærðir hafa verið á grunni hryðjuverkalaga vegna afhöfðunar kennara sem sýndi nemendum sínum mynd af Múhameð spámanni hófust í París í dag. Nokkur ungmenni voru sakfelld vegna málsins í fyrra.

Greip tækifærið og nýtur Parísar í botn
Lögfræðingurinn Marta Matthíasdóttir er búsett í París um þessar mundir og var það ákveðin skyndiákvörðun hjá henni. Hún er þar í viðbótar meistaranámi í lögfræði og nýtur þess sem Parísarborg hefur upp á að bjóða. Blaðamaður ræddi við hana um lífið úti.

Meirihluti Frakka telur lýðræðið ekki virka
Flestir svarendur skoðanakönnunar í Frakklandi sögðust telja að lýðræðið virkaði ekki og fjórðungur sagði að það væri ekki besta stjórnskipulagið sem völ væri á. Meira en helmingur svarenda sagði að það þyrfti „sterkt vald“ til að halda uppi lögum og rétti í landinu.

„Hvernig gastu boðið þessum mönnum inn í svefnherbergið mitt?“
Gisèle Pelicot mætti fyrir dóm í Avignon í morgun og hóf mál sitt á því að ávarpa eiginmann sinn fyrrverandi, sem hefur játað að hafa nauðgað eiginkonu sinni og boðið öðrum mönnum að brjóta á henni í um áratug.

Fyrirburinn talinn í Belgíu
Drengurinn Santiago, átján daga gamall fyrirburi sem tekinn var af sjúkrahúsi í París í fyrrakvöld er talinn hafa verið fluttur til Belgíu. Foreldrar drengsins tóku hann af sjúkrahúsi en sökum þess að hann er fyrirburi er talið að hann geti ekki lifað lengi án aðhlynningar heilbrigðisstarfsmanna.

Sautján daga fyrirburi tekinn af sjúkrahúsi í París
Lögreglan í París hefur lýst eftir sautján daga gömlum fyrirbura sem tekinn var frá sjúkrahúsi í borginni í gær. Foreldrar drengsins liggja undir grun og eru þau talin hafa tekið barnið af sjúkrahúsinu seint í gærkvöldi.

Vígahópum vex ásmegin: Stór hluti Sahelsvæðisins í hættu
Óreiða ríkir á stórum hlutum Sahelsvæðisins í Afríku. Átök eru víða og hafa þau komið verulega niður á fólki sem býr þar og er hætta á að óreiðan muni dreifa úr sér á komandi mánuðum og árum með tilheyrandi ódæðum, óstöðugleika og fólksflótta.

Viðstaddir í Strassbourg fengu smjörþefinn af pólitískri ólgu á Íslandi
Stuðla ætti að frekari sameiningu íslenskra sveitarfélaga, veita Reykjavík sérstaka stöðu sem höfuðborg og bæta samskipti sveitarfélaga og ríkis, samkvæmt niðurstöðum nýrrar úttektar Evrópuráðsins. Til stóð að innviðaráðherra ávarpaði sveitarstjórnarþing ráðsins í Strassbourg morgun en viðstaddir fengu í staðinn smjörþefinn af þeirri óvissu sem ríkir í íslenskum stjórnmálum.

Kynferðisofbeldið sýnt í dómsal
Lágvaxinn, fölur maður á bláum nærbuxum og í svörtum sokkum gengur að rúmi, þar sem kona liggur, næstum nakin, á hliðinni. Án fyrirvara byrjar maðurinn að nauðga konunni.

Stóð af sér vantrauststillögu
Vantrauststillaga franskra þingmanna á hendur Michel Barnier, forsætisráðherra Frakklands, var felld á þinginu í gær. Emmanuel Macron Frakklandsforseti skipaði Barnier forsætisráðherra í sumar en fyrir liggur að meirihlutastuðningur við Barnier er afar viðkvæmur á þinginu.

Skelltu sér í rússíbana með James Franco á tískusýningu ársins
Fatahönnuðurinn Hildur Yeoman er nýkomin heim úr ævintýralegri ferð til Parísar þar sem hún þræddi tískusýningar franskra tískuhúsa, skellti sér í rússíbana með stórstjörnum, hitti Kylie Jenner og tók púlsinn á helstu straumum tískunnar um þessar mundir.

Fjórtán ára ráðinn til að hefna fyrir morðið á fimmtán ára
Yfirvöld í Marseille á Frakklandi segja átök glæpahópa um fíkniefnamarkaðinn í borginni vera að ná til afar ungra einstaklinga, sem séu ráðnir af hópunum til að fremja ofbeldisbrot.

Engum verði vísað út við myndbirtingu
Formaður dómstólsins í Avignon í Frakklandi hefur dregið til baka ákvörðun sína um að vísa fjölmiðlafólki úr dómsal þegar myndefni verður sýnt við réttarhöld í máli Dominique Pélicot. Hvorki fjölmiðlafólki né almenningi verði vísað út við myndbirtingar.

Draumur Lilju rættist á tískuvikunni í París
„Þetta er algjör draumur að rætast,“ segir Lilja Birgisdóttir, einn af stofnendum ilmverslunarinnar Fischersunds. Hún og hennar teymi fögnuðu tískuvikunni í París á dögunum í virtu versluninni Dover Street parfums market þar sem ilmvötn Fischersunds fóru í sölu.

Laufey og Júnía í fremstu röð í París
Ofurtvíburarnir Laufey Lin og Júnía Lin eru miklir heimsborgarar og stöðugt á faraldsfæti. Laufey kláraði nýverið langt tónleikaferðalag með síðasta stoppi á stórri tónlistarhátíð í Maryland og fagnaði með því að fljúga til höfuðborgar hátískunnar og hitta systur sína á tískuviku í París.

Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð
Dominique Pelioct, sem byrlaði eiginkonu sinni ólyfjan og fékk tugi manna til að nauðga henni um árabil, er til rannsóknar vegna fimm annarra mála og þar á meðal eins morðs. Málin þykja keimlík einni nauðgunartilraun sem Pelicot hefur játað og morði sem hann hefur verið ákærður fyrir.

Landsliðsskórnir komnir á hilluna
Markamaskínan Antoine Griezmann hefur tilkynnt að hann hafi spilað sinn síðasta landsleik fyrir Frakkland.

„Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“
Helga Guðrún Hrannarsdóttir verður í desember fyrsti Íslendingurinn til að ljúka námi í tískumarkaðsfræði og -samskiptum frá ESMOD, elsta tískuháskóla Frakklands. Undanfarin þrjú ár hefur hún upplifað drauminn í hátískuborginni París.

Segir tortímingu eða uppgjöf Hezbollah einu lausnina
Bezalel Smotrich, fjármálaráðherra Ísrael, hefur hafnað tillögum Bandaríkjamanna og Frakka um þriggja vikna hlé á átökum milli Ísrael og Hezbollah.

Vinna að þriggja vikna vopnahléi á milli Ísrael og Hezbollah
Frakkar og Bandaríkjamenn vinna nú að því í sameiningu að semja um 21 daga vopnahlé á milli Hezbollah samtakanna og Ísrael. 72 létust í árásum Ísraela á Líbanon í dag og hundruð særðust. Alls eru um 600 látin í árásunum. Fyrr í dag var greint frá því að mögulega ætlaði Ísrael í landhernað í Líbanon.

Ríkisstjórn mynduð í Frakklandi
Emmanuel Macron Frakklandsforseti hefur skipað nýja ríkisstjórn undir forystu forsætisráðherrans Michel Barnier. Hann tók við embætti forsætisráðherra fyrir tveimur vikum en stjórnarkreppa hefur verið í landinu frá því að gengið var til kosninga í sumar.

Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“
Formaður dómstólsins í Avignon í Frakklandi lýsti því yfir í gær að ef frekari myndbönd verði sýnd af mönnum nauðga Gisele Pelicot sofandi, verði fjölmiðlafólki vísað úr salnum. Verjendur fimmtíu sakborninga í málinu kröfðust þessa og vísuðu til „mannlegrar virðingar“ skjólstæðinga þeirra en Gisele var sjálf mótfallinn því að fjölmiðlafólki yrði vísað út.

Sýndu fyrstu myndböndin í dómsal
Þrjú af þeim fjölmörgu myndböndum sem Dominique Pelicot tók af því þegar hann eða tugir annarra manna nauðguðu eiginkonu hans, Gisele, voru sýnd í dómsal í Frakklandi í gær. Það var eftir að einn hinn fimmtíu manna sem hafa verið ákærðir í málinu sagðist ekki hafa nauðgað Gisele.

Felldu tugi og brenndu forsetaflugvélina
Vígamenn sem tengjast Al-Qaeda gerðu í vikunni umfangsmikla árás í Bamako, höfuðborg Malí. Þar eru þeir sagðir hafa banað rúmlega sjötíu manns auk þess sem þeir brenndu herflugvélar og einnig forsetaflugvél Assimi Goita, ofursta, sem leiðir herforingjastjórn Malí.

Vitorðsmaður viðurkennir að hafa gert það sama og Pelicot
Vitorðsmaður Dominique Pelicot, sem er ákærður fyrir að byrla eiginkonu sinni Gisele ólyfjan og fá tugi manna til að nauðga henni ítrekað á tíu ára tímabili, sagði fyrir dómi í Frakklandi í dag að hann hefði einnig byrlað konu sinni og fengið menn til að nauðga henni.

Skutlaði syni sínum til dagmömmu en hefur ekki sést síðan
Franska lögreglan hefur auglýst eftir frjálsíþróttakonunni Odile Ahouanwanou en hennar hefur verið saknað síðan á þriðjudaginn í síðustu viku.

„Ég er nauðgari eins og hinir mennirnir hér inni“
Dominique Pelicot, sem byrlaði eiginkonu sinni Gisele ólyfjan og fékk tugi manna til að nauðga henni yfir tíu ára tímabil, bar vitni í réttarhöldunum gegn honum og hinum mönnunum í dag. Þar viðurkenndi hann að hafa nauðgað konu sinni og ítrekaði að hann og hinir fimmtíu mennirnir sem hefðu verið ákærðir í salnum væru nauðgarar.