
Landspítalinn

Landspítalinn telur heimildir lögreglu ekki hafnar yfir allan vafa
Landspítalinn telur aðgerðir lögreglu á spítalanum varpa ljósi á mikilvægi þess að skýra hvaða heimildir stjórnvöld hafi til að fara inn á sjúkrastofnanir og sækja þangað veika einstaklinga til brottflutnings úr landi.

Ráðherrar VG fóru fram á að brottvísun Yazans yrði frestað
Ráðherrar Vinstri grænna fóru fram á að mál Yazans Tamimi yrði rætt í ríkisstjórn. Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra fyrirskipað í kjölfarið að brottvísun hans frá landinu yrði frestað. Þetta herma heimildir fréttastofu.

Yazan á leiðinni aftur á Landspítalann
Yazan Tamimi, ellefu ára fjölfatlaður drengur frá Palestínu, var ekki fluttur af landi brott til Spánar í morgunsárið eins og til stóð. Samkvæmt heimildum fréttastofu er Yazan á leiðinni aftur á Barnaspítala Hringsins.

„Ég óttast að það taki ekkert við á Spáni“
„Lögregla telur það ekki vera sitt vandamál og íslensk stjórnvöld, þrátt fyrir ítrekaða hvatingu og beiðnir, hafa ekki viljað óska eftir tryggingum eða loforðum frá spænskum stjórnvöldum um hvað taki við á Spáni.Þannig að ég óttast að það taki ekkert við á Spáni.“

Yazan vakinn á sjúkrabeði og á leið úr landi
Ellefu ára gamall fjölfatlaður drengur frá Palestínu var vakinn á sjúkrabeði sínu í Rjóðrinu seint í kvöld af lögreglu. Til stendur að fljúga með hann úr landi í fyrramálið ásamt fjölskyldu hans.

Vond tilfinning að geta ekki treyst á þjónustu bráðamóttökunnar
„Ég á ekki til orð yfir þessari þjónustu. Ég er svo reið að barnið mitt þurfi í alvöru að þola svona framkomu. Þetta er barnið mitt. Ég á að vera örugg að þegar ég mæti með hana til læknis. Er þetta í alvöru tilfinningin sem ég á að hafa gagnvart spítalanum okkar? “segir Sylvía Haukdal sem leitaði með níu ára gamla dóttur sína á bráðamóttöku Landspítalans á dögunum, eftir að dóttir hennar brotnaði á fæti.

Þurfum að hafa varann á einkavæðingu í heilbrigðisþjónustu
Sérfræðingur segir Íslendinga þurfa hafa varann á hvað varðar einkavæðingu í heilbrigðisþjónustu. Formaður BSRB segir vanfjármögnun stjórnvalda meðal annars skýra langa biðlista eftir aðgerðum.

„Krefjandi“ að semja við einkaaðila um bakaðgerðir
Heilbrigðisráðuneytið segir undirbúning og samningsgerð við einkaaðila um bakaðgerðir krefjandi vegna þess að aldrei hafi verið samið um þær áður. Ætlunin er að nýta reynsluna af samingum ríkisins við einkaaðila um liðskiptaaðgerðir.

„Fólk fer hreinlega grátandi frá mér“
Sjúklingar þurfa að reiða fram rúma milljón króna til að komast í bakaðgerð hjá einkaaðilum. Verið er að búa til stéttaskiptingu í heilbrigðisþjónustu að sögn forstjóra og læknir segir fólk stundum bresta í grát þegar það heyrir verðið.

Vill halda Borgarspítalanum opnum þegar að nýi spítalinn opnar
Jón Magnús Kristjánsson, bráðalæknir og fyrrverandi yfirlæknir bráðamóttöku Landspítala, vill að hætt verði við að loka spítalanum í Fossvogi þegar Nýi-Landspítalinn opnar við Hringbraut. Spítalinn verði aftur að Borgarspítala og aðgengilegur til dæmis heimilislæknum sem þurfi að vísa sjúklingum í bráða innlögn á höfuðborgarsvæðinu.

Tímabært að stækka bráðamóttökuna á Landspítalanum
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra segir tímabært að stækka bráðamóttökuna á Landspítalanum. Íslendingum hafi fjölgað hratt síðustu ár og móttakan ekki haldið í við þá þróun. Þá segir hann einnig til skoðunar að taka álag af bráðamóttöku með sérstakri smáslysamóttöku.

Nær dauða en lífi á bráðamóttökunni
„Mér finnst mikilvægt að deila þessu svo fólk sjái í alvöru hvernig staðan er á heilbrigðiskerfinu okkar“ segir Kristín Guðmundsdóttir handboltakona. Hún gagnrýnir harðlega þær aðstæður sem blöstu við þegar hún leitaði ásamt dóttur sinni á bráðamóttöku Landspítalans á dögunum.

„Þetta hefur verið helvíti“
Tæknitröllið og útvarpsmaðurinn Þráinn Steinsson var mættur á kunnuglegar slóðir í morgun, en nú sem viðmælandi í Bítinu en þar sat hann við takkana árum saman og var í raun þriðji hluti í tvíeyki þeirra Heimis Karlsson og Gulla Helga. Þráinn rakti snarlega ótrúlega sjúkrasögu sína sem er með þeim hætti að hroll setti að hraustustu mönnum meðal hlustenda.

Æfðu viðbragð eftir stórt brunaslys með Bandaríkjaher
Viðbragðsaðilar á Íslandi ásamt Bandaríkjaher æfðu í dag viðbragð við því ef fjöldi fólks fengi alvarleg brunasár á sama tíma. Æfingin gekk vel að sögn þátttakenda sem margir hverjir brugðu sér í gervi sjúklinga.

Segir algengan misskilning að læknar séu hátekjustétt
„Ef þú ert læknir sem er eingöngu að vinna dagvaktir þá eru útborguð laun tæplega að fara að duga til að standa skil á námslánum, hvað þá afborgunum af húsnæði og ýmsu öðru,” segir Hrafnhildur Hallgrímsdóttir en hún útskrifaðist úr læknisfræði á síðasta ári og er nú að ljúka sérnámsgrunnári á Landspítalanum.

Safnaði 700 þúsund krónum: „Ég hreinlega bara elska Barnaspítalann svo mikið“
Ólavía Þorkelsdóttir Skarstad, tíu ára frá Akranesi, tók upp á því fyrir um tíu dögum síðan að teikna myndir af Akrafjalli sem hún gekk með á milli húsa og seldi á 200 krónur stykkið. Þetta gerði hún til styrktar Barnaspítala Hringsins og hafa nú safnast rúmlega 700 þúsund krónur.

Framtíð heilbrigðisþjónustu á Íslandi
Í könnun sem fyrirtækið Prósent gerði nýverið fyrir hlaðvarpið Bakherbergið kom fram að þrátt fyrir langvinna himinháa vexti og verðbólgu mælast heilbrigðismálin ennþá efst þeirra mála sem almenningur á Íslandi vill að stjórnmálaflokkar einblíni á. Niðurstöður könnunarinnar sem birtar voru á Facebook-síðu hlaðvarpsins sýndu að 59% nefna heilbrigðismálin en 51% efnahagsmál, 47% verðbólgu og 41% húsnæðis- og lóðamál.

Faðir pilts sem lenti í stunguárás hélt að sonurinn væri látinn
Faðir palestínsks drengs sem varð fyrir alvarlegri stunguárás á menningarnótt ásamt tveimur íslenskum stúlkum segist hafa talið að hann væri að bjarga lífi barnanna sinna með því að flytja til Íslands. Hann óttast nú um líf sonarins.

Fékk að vita tímann á bráðamóttökunni
Dagur Lárusson sló metið sitt í maraþonhlaupi um heilar fimmtíu mínútur í Reykjavíkurmaraþoninu í dag en þurfti hins vegar að fagna því með næringu í æð á bráðamóttöku Landspítalans.

Gulldrengir Landspítala (Ekki KSÍ): Sönn saga um spillingu
Á Landspítala sjúkrahúsi allra landsmanna lúta menn öðrum lögum en hinir óbreyttu. Þar ríkir hin sanna gullna klefamenning. Í þessari grein átelur greinahöfundur einkum tvö meginatriði.

Á annað hundrað kvenna bíða eftir minni brjóstum
138 konur biðu þess um síðustu áramót að komast að í brjóstaminnkunaraðgerð á Landspítalanum og ein á sjúkrahúsinu á Akureyri. Gerð er krafa um BMI-stuðul innan við 27 til að komast í aðgerð.

Upplifði fálæti lækna þegar lykkjan týndist inni í henni
Sigrún Arna Gunnarsdóttir segir umræðu um endómetríósu af skornum skammti, sjúkdómurinn sé mun algengari en flesta grunar. Hún lýsir í Íslandi í dag miklu fálæti á Landspítalanum en hún var ekki greind með sjúkdóminn fyrr en hún leitaði til einkarekinnar heilbrigðisstofu. Þangað til gekk Sigrún í gegnum gríðarleg veikindi, eftir að það tók fjórar tilraunir og fimm mánuði að ná úr henni hormónalykkju vegna samgróninga af völdum ógreindrar endómetríósu.

Mikið álag sem bitnar mest á bráðamóttökunni
Mikið álag er á deildum Landspítalans sem bitnar einna helst á bráðamóttökunni í Fossvogi. Yfir tvö hundruð manns hafa leitað á bráðamóttökuna undanfarna tvo daga.

Nýútskrifuð kona ráðin í stað reynslumikils karls
Landspítalinn braut jafnréttislög þegar ung nýútskrifuð kona var ráðin í starf lyfjafræðings í stað karlmanns um fertugt með áratugsreynslu í faginu. Konan hafði verið með starfsleyfi í sjö mánuði þegar hún var ráðin. Spítalinn mismunaði karlmanninum bæði á grundvelli kyns og aldurs.

Maður hætt kominn eftir ísbjarnarárás
Hlúð er að manni á Landspítalanum sem slasaðist alvarlega í ísbjarnarárás á Traill-eyju á norðanverðri austurströnd Grænlands á föstudaginn síðasta.

Skoða að flytja Blóðbankann vegna myglu og raka
Til greina kemur að flytja starfsemi Blóðbankans vegna raka- og mygluvandamála sem upp komu í húsnæði hans við Snorrabraut. Mygla greindist síðasta sumar eftir langvarandi kvartanir starfsfólks.

Telur ekki trúlegt að komið verði á samkomutakmörkunum
Margrét Héðinsdóttir, fagstjóri hjúkrunar og upplýsingamiðstöðvar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir fleiri erindi á borði upplýsingamiðstöðvarinnar núna en voru í janúar og febrúar. Skæðar og smitandi veirusýkingar, þeirra á meðal kórónaveiran, séu í gangi og mikið álag á heilsugæslum landsins.

„Covid er alltaf einhvern veginn með okkur“
Formaður farsóttanefndar Landspítalans segir fjölgun Covid-smita valda manneklu á ýmsum deildum. Heimsóknartími verður takmarkaður og kemur til greina að loka alfarið fyrir heimsóknir.

Fjöldi smitaðra af Covid kallar á aðgerðir
Talsverð fölgun smitaðra af Covid í samfélaginu og á Landspítala kallar á aðgerðir til að stemma stigu við útbreiðslu þeirra.

Ætlar að leggja til málshöfðun á hendur íslenska ríkinu
Íslenska ríkið hefur hafnað miska- og skaðabótagreiðslu til handa ekkju Andemariams Beyene sem lést 30. janúar 2014 í kjölfar plastbarkaígræðslu á Karólínska háskólasjúkrahúsinu í júní árið 2011. Lögmaður ekkjunnar er Sigurður G. Guðjónsson mun að öllum líkindum leggja til við skjólstæðing sinn að hún höfði mál á hendur íslenska ríkinu.