
Kosningar 2018

Gríðarleg fagnaðarlæti á Grand Hotel og Hildur bjartsýn
„Nóttin er ung en fyrstu tölur gefa góð fyrirheit,“ segir Hildur Björnsdóttir.

Sjálfstæðismenn á Skaganum vongóðir þrátt fyrir að missa mann
Samkvæmt fyrstu tölum tapar flokkurinn einum manni og mælist með fjóra menn inni af níu.

Varnarsigur Sjalla á Nesinu
"Við erum rosalega glöð. Þetta yrði mikill varnarsigur,“ segir Ásgerður Halldórsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi eftir fyrstu tölur.

Stærðin skiptir það miklu máli að tölum í Reykjavík seinkar
Stefnt á fyrstu tölur upp úr klukkan 23:30.

„Þetta er mjög sárt“
Það var þungt hljóð í Margréti Júlíu Rafnsdóttur, oddvita Vinstri grænna í Kópavogi, þegar Erla Björg Gunnarsdóttir, fréttamaður, ræddi við hana í beinni útsendingu í kosningasjónvarpi Stöðvar 2.

L-listinn að taka mann af Sjöllum á Akureyri
„Þetta er framar okkar björtustu vonum. En kvöldið er ungt og allt getur gerst,“ segir Halla Björk Reynisdóttir á Akureyri.

Ármann mjög þakklátur og sáttur
Sjálfstæðisflokkurinn heldur velli í Kópavogi samkvæmt fyrstu tölum.

„Verður bara spennandi eins og við vissum“
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að úrslit sveitarstjórnarkosninganna verði spennandi bæði á Seltjarnarnesi og í Vestmannaeyjum miðað við fyrstu tölur.

Gríðarleg spenna í Eyjum að mati Elliða: Við erum að fara inn í „overtime“ núna
Fyrir Heimaey, klofningsframboð úr Sjálfstæðisflokki Elliða, virðist hafa tekið mikið fylgi af Sjálfstæðismönnum miðað við fyrstu tölur.

Kjörstöðum landsins lokað
Kjörstöðum landsins var lokað nú klukkan 22 og er talning atkvæða hafin alls staðar.

Virkjunarsinnar rúlluðu upp kosningunni í Árneshreppi
"Mér líst bara vel á þetta nema það er náttúrulega ekkert gaman að vera kominn í hreppsnefndina,“ segir Björn Torfason bóndi léttur.

Kosningasjónvarp Stöðvar 2 hefst á slaginu 21:55
Í opinni dagskrá eins og allt sjónvarpsefni hjá Sýn um helgina.

Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2
Grétar Þór Eyþórsson, prófessor í stjórnmálafræði, segir úrslit sveitarstjórnarkosninganna sem fram fara í dag að einhverju leyti ráðast af kjörsókn unga fólksins.

Betri kjörsókn í Vestmannaeyjum en á sama tíma fyrir átta árum
Kjörsókn hefur verið misjöfn á milli sveitarfélaga í sveitarstjórnarkosningunum í dag en er heldur lakari en í kosningunum fyrir átta árum.

Aðstoðardepill á rúðu túlkaður sem kosningaáróður Samfylkingarinnar
Límt hefur verið yfir rauðan depil á hurð að Kórnum í Kópavogi, sem er kjörstaður þar í bæ, eftir að kvörtun barst vegna depilsins í dag.

Píratar og eldri borgarar - fullkomin samleið
Velferðarmál eldri borgara þurfa að fá meiri athygli. Eins og við vitum öll búa eldri borgarar sem og reyndar öryrkjar líka, við ýmsar skerðingar.

Kjörsókn misjöfn eftir sveitarfélögum
Á einhverjum stöðum hefur hún aukist lítillega miðað við síðustu sveitarstjórnarkosningar en annars staðar hefur hún minnkað.

Bjartsýn á að ná inn tveimur og jafnvel þremur mönnum
Líf Magneudóttir, oddviti Vinstri grænna, er bjartsýn á að flokkurinn nái tveimur og jafnvel þremur mönnum inn í borgarstjórn.

Betri kjörsókn í Reykjavík en lakari annars staðar miðað við síðustu kosningar
Kjörsókn í Kópavogi, Hafnarfirði, Reykjanesbæ og Akureyri var lakari klukkan 11 í morgun en á sama tíma í síðustu sveitarstjórnarkosingum árið 2014.

Bein útsending: Hádegisfréttir Stöðvar 2
Í hádegisfréttum Stöðvar 2 fjöllum við um sveitarstjórnarkosningarnar sem fram fara um land allt í dag.

Píratar komnir til að vera
„Við erum, í könnunum, að tvöfalda fylgi okkar frá síðustu kosningum.“

„Úrslitin gætu ráðist á kjörsókn“
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur og oddviti Samfylkingarinnar, hvetur fólk til að styðja við jákvæða og spennandi þróun Reykjavíkur.

„Spennandi og yndisleg áskorun fyrir mig“
Miðað við síðustu kannanir gæti Kolbrún Baldursdóttir, oddviti flokksins, verið á leið inn í borgarstjórn.

„Það þarf að breyta borginni og gera hana betri“
Eyþór segir stóran flokk þurfa að ná málamiðlunum með fólki með ólíkar skoðanir.

Ætla að komast að borðinu þar sem ákvarðanir eru teknar
Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Sósíalistaflokksins í Reykjavík, segir kosningabaráttuna hafa verið skemmtilega.

Leiðtogar Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks á síðustu stundu í Víglínunni
Dagur B. Eggertsson oddviti Samfylkingarinnar og Eyþór Arnalds oddviti Sjálfstæðisflokksins fá síðasta tækifærið til að sannfæra kjósendur um ágæti sitt og þeirrar stefnu sem þeir standa fyrir.

Líf kosningastjóra korter í kosningar
Kosningastjórar flokkanna eru á harðahlaupum fyrir kosningar. Nokkrir þeirra gefa innsýn í starf sitt og segja frá því hvað þeir telja eiga að prýða góðan kosningastjóra.

Lýðræði í miðaldrakrísu
Þegar ég var ellefu ára fór ég í fyrsta fjölskyldufríið með foreldrum mínum og bræðrum. Förinni var heitið til Majorka.

Vaktin: Íslendingar ganga til kosninga
Vísir greinir frá nýjustu tíðindum frá kjördegi um leið og þau berast.

Burt með millastéttina
Að hafa millistétt ætti að vera hverju þjóðfélagi nauðsyn, samt er það svo að sum þjóðfélög vilja þurrka hana út.