Heilbrigðismál

Hefur sungið í ellefu jarðarförum tengdum fíkniefnaneyslu á árinu
Bubbi Morthens segist hafa sungið í ellefu jarðarförum á þessu ári þar sem allir látnu hafi fallið frá vegna fíknisjúkdóms. Hann segir ópíóðafaraldur geisa hér á landi.

Tölum um lýðheilsu
Félagslegur ójöfnuður í heilsu er hugtak sem lýsir því veraldlega mynstri að þeir sem búa við verri félags- og efnahagslega stöðu búa við verri heilsu. Þetta mynstur má rekja til þeirrar félagslegu stöðu sem að fólk býr við og er afleiðing póltíkur sem ekki hefur tekist að tryggja félagslegan jöfnuð.

Hæstiréttur Bandaríkjanna stöðvar bann við þungunarrofslyfi
Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur ákveðið að leyfa áfram þungunarrofslyfið mifepristone á meðan málaferli standa yfir. Dómari í Texas ógilti markaðsleyfi matvæla- og lyfjastofnunar Bandaríkjanna (FDA) fyrr í mánuðinum.

„Mikil sorg en samt svo mikil gleði“
Nýbakaðir foreldrar stúlku með Downs-heilkenni, líklega fyrsta barnsins sem fæðist með heilkennið á Íslandi í rúm tvö ár, segja fæðinguna hafa kallað fram erfiðar tilfinningar. Móðurina grunaði að ekki væri allt með felldu á meðgöngu en heilbrigðiskerfið hafi ekki hlustað á áhyggjur hennar. Dóttir þeirra sé þó, þegar allt kemur til alls, fullkomin.

Nýtt afbrigði sem valdið hefur augnsýkingum ekki greinst hér á landi
Alþjóðleg heilbrigðisyfirvöld fylgjast náið með nýju undirafbrigði Ómíkrón XBB veirunnar sem veldur Covid-19 sjúkdómnum og heitir latneska heitinu Arcturus. Fjölgun augnsýkinga hefur verið tengd við afbrigðið í frásögnum á netinu. Sóttvarnarlæknir segir ekki að merkja fjölgun slíkra sýkinga í gögnum heilbrigðisyfirvalda. Afbrigðið hefur enn ekki greinst hér á landi en tilfellum fer fjölgandi á alþjóðavísu og því megi búast við því.

Mönnunarvandi og heilbrigði
Flest nágrannalönd okkar hafa áttað sig á mikilvægi þess að fjárfesta í heilbrigðis- og félagsþjónustu og tilheyrandi starfsfólki. Við Íslendingar erum því í harðri samkeppni við önnur lönd um starfsfólk.

Bíður sárkvalinn eftir því að komast að
Sambýliskona manns sem er sárkvalinn vegna verkja í bakinu gagnrýnir harðlega að hann þurfi að bíða fram á sumar eftir því að komast inn hjá verkjateymi Landspítalans. Hún furðar sig á því hvers vegna heilbrigðiskerfið sé ekki betra en þetta hjá fámennri þjóð eins og Íslandi.

Geðsvið Landspítala fær líka nýtt húsnæði
Nýtt húsnæði Landspítala undir geðþjónustu mun rísa en þrettán og hálfur milljarður er eyrnamerktur verkefninu. Fjármálaráðherra segir uppbyggingu Landspítalans langstærstu fjárfestingu Íslandssögunnar en hún hljóðar upp á 210 milljarða í heild.

Árdís Björk nýr framkvæmdastjóri lækninga á Reykjalundi
Árdís Björk Ármannsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri lækninga á Reykjalundi. Hún hefur undanfarin ár verið yfirlæknir og sinnt stjórnun við Södra Älvsborgs Sjukhus í Borås í Svíþjóð. Hún tekur við af Stefáni Yngvasyni sem sagði upp störfum að eigin ósk.

Mikil fækkun umframdauðsfalla
Umframdauðsföllum á Íslandi fækkaði mikið í febrúar eftir gríðarlega aukningu í desember og janúar. Um tíma voru umframdauðsföll hvergi meiri í allri Evrópu en á Íslandi, 29 prósent, en í febrúar var hlutfallið komið niður í 10,7 prósent.

„Hefði getað dáið á þessum harða stól“
Sjötug kona beið í sex klukkustundir á bráðamóttöku í nótt með einkenni blóðtappa í handlegg án þess að hitta heilbrigðisstarfsmann, þar til hún gafst upp og fór heim. Henni var vísað beint á bráðamóttöku að nýju daginn eftir. Dóttir hennar segir heilbrigðiskerfið vandamálið og þá sem því stýra.

Bein útsending: Uppbygging heilbrigðiskerfisins og nýr Landspítali
Forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og heilbrigðisráðherra kynna í dag kl. 11 heildstæða áætlun um uppbyggingu innviða heilbrigðiskerfisins til ársins 2030.

Margir einkennalausir með blóðtappa
Á bilinu 300 til 400 manns greinast árlega með blóðtappa hér á landi. Sjúkdómurinn er talsverð byrði á bæði heilbrigðiskerfinu og samfélaginu öllu því margir eru vangreindir og einkennalausir. Íslenskt fyrirtæki kemur að blóðtapparannsóknum á skógarbjörnum.

„Hefði hjálpað okkur Bjarka heil ósköp“
Ástrós Rut Sigurðardóttir, varaþingmaður Viðreisnar, flutti jómfrúarræðu sína á Alþingi í dag. Í ræðunni fagnar Ástrós þingsályktunartillögu um umboðsmann sjúklinga. Ástrós missti eiginmann sinn árið 2019 eftir langa baráttu við krabbamein. Hún segir að umboðsmaður sjúklinga hefði getað hjálpað þeim á sínum tíma.

Sprengja í tæknifrjóvgunum
Tæknifrjóvgunum hér á landi hefur fjölgað mjög mikið á undanförnum árum. Frá árinu 2019 til 2022 fjölgaði aðgerðum um 51 prósent. Þingmaður segir fjölgunina ekki koma sér á óvart.

Lykilinn að lyfjum við blóðtappa að finna í blóði skógarbjarna
Samkvæmt nýrri rannsókn getur blóð skógarbjarna gegnt lykilhlutverki við lyfjaþróun við blóðtappa. Birnirnir dvelja mánuðum saman í hýði án mikillar hreyfingar en hreyfingarleysi eykur á hættuna á blóðtappa hjá fólki.

Kostnaður Sjúkratrygginga vegna tannlækninga 7,1 milljarður
Kostnaður Sjúkratrygginga vegna tannviðgerða og tannréttinga nam 7,1 milljarði króna í fyrra. Þar af voru 450 milljónir vegna tannréttinga. Útgjöldin hafa farið síhækkandi frá 2014, þegar þau voru 2,2 milljarðar króna.

Viðhaldsmeðferðir við fíkn eigi ekki að vera í höndum einstaka lækna
Landlæknir segir að mál geðlæknisins, sem sviptur var ávísanaleyfi á dögunum, sé fordæmalaust vegna magns þeirra ópíóíðalyfja sem skrifað var upp á. Svokallaðar viðhaldsmeðferðir eigi ekki heima hjá einstökum læknum en kallar eftir heildstæðri stefnu stjórnvalda í vímuefnamálum.

Aðgangur að lífsnauðsynlegum lyfjum við SMA strandar á fjármagni!
Á föstudag var haft eftir Willum Þór Þórssyni, heilbrigðisráðherra í fjölmiðlum að notkun lyfsins Spinraza til að meðhöndla einstaklinga með taugahrörnunarsjúkdóminn Spinal Muscular Atrophy (SMA) sem eru 18 ára og eldri við upphaf meðferðar verði ekki samþykkt nema að undangengnu faglegu mati sem tryggi bæði öryggi lyfsins og nytsemi þess.

Lét örið ekki stöðva sig að láta drauminn rætast
Ísabella Þorvaldsdóttir var einungis þriggja ára þegar hún gekk undir líffæraígræðslu. Ísabella sem fæddist með óvirk nýru þáði líffæragjöf frá föður sínum og er hún yngsti einstaklingurinn hér á landi til að gangast undir slíka aðgerð.

Klókir markaðsaðilar fá ráðherra til að klóra sér í kollinum
Heilbrigðisráðherra segir það mikið áhyggjuefni hversu margir landsmenn neyta nikótínpúða en vörurnar höfða meðal annars til barna og unglinga. Um sé að ræða snúna baráttu þar sem markaðsaðilar séu mjög séðir og þróa sífellt nýjar vörur. Nýtt regluverk gefi aukin færi.

„Ég veit ekki hvernig ég verð eftir fimm ár“
„Ef ég hefði fæðst ellefu mánuðum fyrr hefði ég verið sautján ára þegar lyfið var samþykkt hér á landi árið 2018 og þá væri ég á lyfinu núna,“ segir Þorsteinn Sturla Gunnarsson, 23 ára leikstjóri og handritshöfundur og einn ellefu einstaklinga á Íslandi með vöðva- og taugahrörnunarsjúkdóminn Spinal Muscular Atrophy (SMA), sem fá ekki lyf við sjúkdómnum.

Þjóðþekktum flett upp í lyfjagátt án tilefnis
Dæmi eru um það að starfsfólk apóteka fletti upp þjóðþekktu fólki í lyfjagáttinni, miðlægum gagnagrunni sem heldur utan um lyfjaávísanir fólks, án nokkurs tilefnis.

Tugprósenta munur á tannlæknaþjónustu og gjaldskrár ekki alltaf sýnilegar
Tugprósenta munur er á verði tannlæknaþjónustu og ekki eru allar gjaldskrár aðgengilegar á netinu. Þetta kemur fram í óformlegri verðkönnun Vísis hjá tuttugu tannlæknastofum.

„Þetta þarf að vera faglegt mat“
Heilbrigðisráðherra segir að notkun lyfs við taugahrörnunarsjúkdómnum spinal muscular athrophy (SMA) verði ekki samþykkt nema að undangengnu faglegu mati. Nauðsynlegt sé að tryggja bæði öryggi notkunar lyfsins og að nytsemi hennar sé óyggjandi.

Oft erfitt samtal um hvort meðferð sé vegna fíknar eða í læknisfræðilegum tilgangi
Um fjörutíu prósent heimilislækna hafa orðið fyrir hótunum eða ógnunum í starfi og oftast er það vegna lyfjaávísana. Formaður félags íslenskra heimilislækna segir geta verið erfitt að greina hvort um fíkn sé að ræða eða læknisfræðileg vandamál.

Ráðherraábyrgð fyrir skarðabörn
Börnin okkar, skarðabörn, virðast aldrei ætla að fá það pláss í kerfinu sem þau eiga rétt á.

Skoða hvort fullorðnir með SMA geti fengið langþráð lyf: „Ég reikna með að við getum unnið þetta hratt“
Heilbrigðisyfirvöld skoða hvort tilefni sé til að leyfa fullorðnum með SMA hér á landi að fá lyf við sjúkdóminum í kjölfar ákvörðunar Norðmanna þess efnis. Hópur sjúklinga hefur undanfarið lýst langri baráttu við kerfið og kallað eftir aðgerðum. Heilbrigðisráðherra reiknar með að hægt verði að vinna málið hratt, enda ákallið sterkt.

Íslenskt fyrirtæki brautryðjandi í baráttunni við fjölónæmar bakteríur
Íslenska lyfjaþróunarfyrirtækið Akthelia er brautryðjandi í rannsóknum sem leitt gætu til byltingar í baráttunni við bakteríur sem í vaxandi mæli verða ónæmar fyrir sýklalyfjum. Evrópusambandið hefur styrkt rannsóknir fyrirtækisins um tæpan milljarð sem kom á elleftu stundu því horfur voru á að loka þyrfti rannsóknarstofu fyrirtækisins vegna fjárskorts.

Geðlæknir ávísaði sjúklingi oxýkódóni og morfíni í kílóa vís
Heilbrigðisráðuneytið hefur staðfest ákvörðun Embættis landlæknis um að svipta geðlækni á Íslandi réttindum til að ávísa ópíóðalyfjum. Læknirinn er talinn hafa ávísað 2,1 kílói af oxýkódóni og 1,5 kílói af morfíni til sjúklings á fjögurra ára tímabili.