Heilbrigðismál

Samþykkið lyf við Spinal Muscular Atrophy fyrir 18 ára og eldri!
Kæri Willum Þór. Við erum ellefu einstaklingar sem erum með taugahrörnunarsjúkdóminn Spinal Muscular Atrophy (SMA) á ólíkum aldursskeiðum sem eigum það öll sameiginlegt að eiga okkur draum um lyf við sjúkdómi sem hefur mikil áhrif á vöðvastyrk, færni og hreyfigetu.

Færði slökkviliðinu þakkir og bangsa handa öðrum börnum
Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst hjartnæm kveðja í gær frá stúlku sem flytja þurfti með sjúkrabíl fyrir nokkru.

Ríkið samdi við hjúkrunarfræðinga
Fulltrúar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og íslenska ríkisins skrifuðu undir nýjan kjarasamninga í dag. Samningurinn er sagður tryggja launahækkanir og kjarabætur fyrir hjúkrunarfræðinga sem starfa hjá ríkinu næsta árið.

„Sjúkdómurinn eltir mig og fjölskyldu mína hvert sem við förum“
„Ég er ekki sjúkdómurinn. Ég er með þennan sjúkdóm en ég er hann ekki. Ég reyni að lifa eins og ég get. Þó hann sé að naga mig þá læt ég hann ekki taka yfir líf mitt,“ segir Magnús Þorkelsson, fyrrum skólameistari við Flensborgarskóla en hann greindist með Parkinson sjúkdóminn fyrir fimmtán árum.

Djammreykingar mun lífseigari en dagreykingar
Þrátt fyrir að dagreykingafólki á Íslandi hafi fækkað úr rúmlega 30 prósent í 6 á síðustu 30 árum hefur hlutfall djammreykingafólks, eða fólks sem reykir sjaldnar en daglega, haldist nokkuð stöðugt. Hefur hlutfallið rokkað frá um 3 í 6 prósent um árabil og engin fylgni er milli þess og lækkandi hlutfalls reykingafólks.

MS segir koma til greina að endurskoða markpósta til foreldra
Björn S. Gunnarsson, vöruþróunarstjóri hjá Mjólkursamsölunni, segir koma til greina að endurskoða þá aðferðafræði að senda markpóst heim til einstaklinga sem hafa nýverið eignast barn. „Við viljum auðvitað ekki valda fólki ama með þessum markpósti,“ segir hann í svörum við fyrirspurn fréttastofu.

Óhugnanlegt og erfitt að finna líkamann hrörna meðan lyf eru í boði
Kona sem fær ekki lyf við taugahrörnunarsjúkdóminum SMA sökum aldurs segir stefnu íslenskra yfirvalda óskiljanlega en ljóst sé að kostnaður ráði för. Ákvörðun Norðmanna í dag um að leyfa fullorðnum að fá lyf við sjúkdóminum hljóti að hreyfa við íslenskum yfirvöldum. Það eitt að geta stöðvað sjúkdóminn, þó hún fengi enga færni til baka, væri guðsgjöf.

Áskorun til heilbrigðisráðherra
Á dögunum vakti Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður athygli heilbrigðisráðherra á því að nýir foreldrar á Íslandi sitja ekki allir við sama borð þegar kemur að heimavitjunum ljósmæðra, eða því sem kallað er heimaþjónusta í sængurlegu.

9,9 prósent innlagðra á geðdeildum fengu nauðungarlyf 2014 til 2018
Á árunum 2014 til 2018 fengu 9,9 prósent einstaklinga sem lagðir voru inn á geðdeildir Landspítalans nauðungarlyf, flestir einu til fjórum sinnum. Um er að ræða 400 einstaklinga, sem flestir þjáðust af geðrofssjúkdómi.

Liðskiptiaðgerðir og réttindi sjúklinga
Á dögunum bárust fréttir af því að Sjúkratryggingar Íslands höfðu samið um framkvæmd liðskiptiaðgerða við tvö einkarekin fyrirtæki á sviði heilbrigðisþjónustu. Um er að ræða fyrirtækin Klíníkina við Ármúla og Cosan slf. sem aðsetur hefur í Handlæknastöðinni Glæsibæ.

„Virðingin sem hann fékk var núll“
Barnsfaðir Guðbjargar Hrafnhettu Ragnarsdóttur, Þorvaldur Þórarinsson, lést úr briskrabbameini í mars 2019. Átta mánuðum áður hafði hann leitað til heimilislæknis sem taldi ekkert ama að og ráðlagði Þorvaldi að slaka á og njóta. Aðstandendur Þorvaldar sendu inn kvörtun til Landlæknis árið 2021 en þau telja að krabbameinið hefði greinst mun fyrr ef ekki hefði verið fyrir vanrækslu umrædds heimilislæknis.

Lífið með Parkinson: „Þetta er ekki minningagrein“
„Þetta er ekki minningagrein. Mér finnst mikilvægt að hafa þetta skemmtilegt líka,“ segir Magnús Bragason þegar viðtalinu er að ljúka.

Ógilding markaðsleyfis þungunarrofslyfs vekur ugg
Demókratar eru æfir vegna ógildingar dómara í Texas í Bandaríkjunum á markaðsleyfi þungunarrofslyfsins mifepresone. Um sé að ræða stórhættulegt fordæmi.

Hlutu hæsta styrk til að rannsaka byltingu í greiningu svefnsjúkdóma
Íslenska hátæknifyrirtækið Nox medical vinnur að nýrri gervigreindaraðferð sem gæti umbylt svefnrannsóknum. Fyrirtækið hlut hæsta styrkinn úr nýsköpunarsjóði námsmanna í ár.

Spennandi að fylgjast með þróun bóluefna gegn krabbameini
Íslenskur krabbameinslæknir segir fréttir um að bóluefni við krabbameini gætu litið dagsins ljós innan fárra ára vera spennandi. Sagan sýni þó að rannsóknir taki oftast lengri tíma en áætlað er.

Dómari afturkallar leyfi FDA fyrir þungunarrofslyfi
Dómari í Texas í Bandaríkjunum hefur ógilt samþykki Matvæla- og lyfjastofnunar (FDA) Bandaríkjanna um markaðsleyfi fyrir þungunarrofslyfið mifepristone. Um er að ræða fyrsta skiptið sem dómstóll hlutast til um leyfisveitingu stofnunarinnar.

Bóluefni við krabbameini sögð klár innan nokkurra ára
Bóluefni við krabbameini, hjartveiki, lungnasjúkdómum og fjölda annarra sjúkdóma gætu verið tilbúin innan nokkurra ára, að sögn lyfjasérfræðinga. Framfarirnar sem náðust við þróun Covid-bóluefnisins hafa mikla þýðingu við þróun þessara bóluefna.

Löng bið í langtímahúsnæði fyrir neyslurými
Biðin eftir neyslurými í langtímahúsnæði verður líklegast talin í mánuðum en ekki vikum. Þetta segir formaður velferðarráðs. Neyslurýmið hafi sannað gildi sitt og heilbrigðisyfirvöld verði að sjá til þess að þessi mikilvæga þjónusta verði í boði

Fjörutíu prósent karla 18 til 24 ára nota nikótínpúða daglega
Tæplega fjörutíu prósent karla á aldrinum 18 til 24 ára notuðu nikótínpúða daglega á síðasta ári og hefur þeim fjölgað mikið á milli ára. Tannlæknir hefur áhyggjur af hraðri þróun og segir að hægt sé að gera betur í forvörnum. Dæmi séu um að fólk sofi með nikótínpúða uppi í sér.

„Þetta er sjúkdómur sem getur tekið ungt fólk“
„Við eigum öll að nota sólarvörn allt árið, líka um hávetur þegar sólin skín ekki,“ segir Jenna Huld Eysteinsdóttir húðsjúkdómalæknir í viðtali í Bakaríinu.

Heilsugæslustöðvar lokaðar um páskana en hægt að fá ráðgjöf í síma
Heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu verða lokaðar yfir páskana, frá skírdegi og fram yfir annan í páskum. Þetta eru dagarnir 6. til 10. apríl.

Sýkingar aukist til muna í fjarveru neyslurýmis: „Þetta er grafalvarlegt mál“
Sýkingum hefur fjölgað mikið hjá notendum neyslurýmisins Ylju síðan úrræðinu var lokað fyrir tæpum mánuði. Hópur þeirra ekki skilað sér í lifrarbólgumeðferðir. Ein þeirra sem sótti oft þjónustu Ylju segir málið grafalvarlegt. Hún hafi miklar áhyggjur af vinum sínum og sérstaklega þeim sem karlkyns eru.

Vilja að Ísland fari að fordæmi Bandaríkjamanna og heimili Naloxone í lausasölu
Matvæla-og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hefur heimilað nefúðann Narcan nalaxone í lausasölu til að mæta þeirri alvarlegu ógn sem ópíóðafaraldurinn er. Teymisstjóri skaðaminnkunar hjá Rauða krossinum bindur vonir við að Ísland feti sömu slóð. Rauði krossinn dreifði á síðasta ári hátt í sex hundruð stykkjum af nefúðanum hér á landi.

Tímamótasamningur um liðskiptaaðgerðir og loksins jafnt aðgengi
Jafnt aðgengi að heilbrigðisþjónustu óháð efnahag og búsetu er kjarninn í stefnu Framsóknar í heilbrigðismálum. Þær áherslur birtast sömuleiðis í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar þar sem segir að aðgengi að heilbrigðisþjónustu er réttlætismál.

Um vanhugsaða lokun borgarinnar á Vin, Hverfisgötu
Vin á Hverfisgötu hefur borið nafn með rentu í 30 ár og framsækin starfsemin sem fer fram í húsinu hefur reynst gestum hennar ómetanlegur hluti af daglegu lífi, valdeflingu, bata og vinnu fyrir auknum lífsgæðum.

Jafnræði landsbyggðar – Tryggjum öllum grunnheilbrigðisþjónustu í heimabyggð
Heilbrigðisstofnun Suðurlands rekur öfluga og blómlega starfsemi um allt Suðurland og heldur úti níu starfsstöðvum víðs vegar um Suðurlandið. aðalstarfsemi stofnunarinnar er á Selfossi þar sem sjúkrahúsið er staðsett.

„Opin rými eru bara andstyggileg“
Leyfa þarf börnum sem bíða eftir einhverfugreiningu að njóta vafans og veita þeim þjónustu strax. Þetta segir framkvæmdastjóri Einhverfusamtakanna og bætir við að skólakerfið henti þessum hóp verr en áður þar sem stærri bekkir og opin rými reynast hópnum oft erfið.

FDA heimilar lausasölu naloxone-lyfsins Narcan
Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hefur heimilað lausasölu lyfjaúðans Narcan.

Heimilt að „framselja“ kynfrumur og fósturvísa til fyrrverandi og eftirlifandi
Heilbrigðisráðherra hefur lagt fram frumvarp þess efnis að kynfrumum og fósturvísum verði ekki lengur sjálfkrafa eytt við sambúðar- eða hjúskaparslit eða andlát. Munu einstaklingar þannig geta veitt heimild fyrir notkun kynfruma og fósturvísa þrátt fyrir breyttar aðstæður.

Lið fyrir lið
Í gær var skrifað undir samninga milli Sjúkratrygginga Íslands, Klíníkarinnar í Ármúla og Handlæknastöðvarinnar í Glæsibæ um framkvæmd 700 liðskiptaaðgerða á þessu ári.