
Bretland

Breskir heilbrigðisstarfsmenn gætu þurft að velja hverjir lifa og hverjir deyja
Breskir heilbrigðisstarfsmenn gætu á næstu dögum og vikum staðið frammi fyrir því að þurfa að velja hverjir lifa og hverjir deyja. Þetta segja sérfræðingar innan opinbera heilbrigðiskerfisins, sem sjá fram á mesta álag í sögu NHS vegna Covid-19 faraldursins.

„Ástin sigrar,“ segja Meghan og Harry í fyrsta hlaðvarpsþættinum
„Sama hvað lífið gefur þér, treystið okkur þegar við segjum: Ástin sigrar.“

Væntir hörmunga í Englandi verði aðgerðir ekki hertar
Vísindamaður sem hefur ráðlagt yfirvöldum í Englandi vegna faraldurs nýju kórónuveirunnar segir nauðsynlegt að herða sóttvarnir til muna svo koma megi í „hamfarir“ á nýju ári. Smituðum fari hratt fjölgandi í landinu og sporna verði gegn því.

Í fyrsta sinn frá upphafi greindust yfir 40 þúsund á einum degi
Mjög mikil fjölgun þeirra sem smitast hafa af kórónuveirunni í Englandi veldur heilbrigðisyfirvöldum þar í landi vaxandi áhyggjum. Heilbrigðisstofnanir eiga æ erfiðara með að bregðast við fjölgun sjúklinga sem þurfa að leggjast inn. Í fyrsta sinn frá upphafi faraldursins greindust yfir fjörutíu þúsund með covid-19 á einum degi í Bretlandi.

Gefa út yfirlit yfir breska fjárfesta í verslun með þræla
Breskir fræðamenn hafa fengið styrk frá breskum stjórnvöldum til að gefa út rit þar sem safnað verður saman upplýsingum um alla Breta sem fjárfestu í verslun með þræla á árunum 1640 til 1807.

Aðildarríki ESB leggja blessun sína yfir Brexitsamninginn
Aðildarríki Evrópusambandsins hafa samþykkt Brexitsamning breskra stjórnvalda og ESB. Samningurinn á þá að geta tekið gildi um áramót þegar Bretar yfirgefa bæði innri markað sambandsins og tollabandalagið.

Bretar stefna á strangar reglur um óhollustu í verslunum 2022
Bresk stjórnvöld hyggjast banna matvöruverslunum að staðsetja óhollar matvörur og drykk við afgreiðslukassa. Þá hyggjast þau einnig banna verslunum að selja þau í svokölluðum „tveir fyrir einn“ tilboðum.

Stormurinn Bella olli usla í Frakklandi og Bretlandi
Flugsamgöngur röskuðust og þúsundir heimila voru án rafmagns þegar stormurinn Bella fór yfir suðurhluta Bretlands og norðurhluta Frakklands í gær. Bellu fylgdi bæði mikið úrhelli og sömuleiðis hvassviðri.

Stefna að því að bólusetja milljónir Breta í janúar
Útlit er fyrir að bóluefni AstraZeneca og Oxford fari í dreifingu í Bretlandi þann 4. janúar næstkomandi. Bóluefnið hefur enn ekki verið samþykkt af yfirvöldum þar í landi en búist er við því heilbrigðisyfirvöld gefi grænt ljós á allra næstu dögum.

Vísindamenn kalla eftir útgöngubanni á landsvísu vegna afbrigðisins
Breskir vísindamenn innan SAGE-hópsins, hóps vísindamanna sem veita stjórnvöldum ráðgefandi álit, hafa biðlað til stjórnvalda þar í landi að herða aðgerðir til muna og setja á útgöngubann á landsvísu.

Alræmdi njósnarinn George Blake er látinn
George Blake, fyrrum njósnari bresku leyniþjónustunnar MI6 og einn alræmdasti „tvöfaldi útsendarinn“ á tímum Kalda stríðsins er látinn, 98 ára að aldri. Á yfir níu ára tímabili starfaði Blake sem njósnari fyrir Sovétríkin en hann afhenti upplýsingar sem leiddu til þess að upp komst um að minnsta kosti fjörutíu útsendara MI6 í Austur Evrópu.

Nýja afbrigðið skotið upp kollinum á fleiri stöðum
Fjögur tilfelli af nýju afbrigði kórónuveirunnar hafa fundist á Spáni, sama dag og það var tilkynnt að það hefði einnig verið greint í Frakklandi. Afbrigðið, sem er betur þekkt sem breska afbrigðið, er mun meira smitandi en önnur.

Hertar aðgerðir taka gildi í Bretlandi
Milljónir Breta búa nú við strangari sóttvarnaaðgerðir eftir að hertar aðgerðir tóku gildi í landinu á miðnætti. Greint var frá 570 dauðsföllum í landinu í gær, en smitum hefur farið fjölgandi undanfarnar vikur.

„Þið eruð ekki ein“
Elísabet Englandsdrottning nýtti tækifærið í jólaávarpi sínu í gær til að fullvissa þau sem hafa átt erfitt, fjarri vinum sínum og fjölskyldu á þessu ári, um að þau séu ekki ein. Hún sagði að það sem marga langi í um jólin sé „einfalt faðmlag eða þétt handtak,“ en að „jafnvel dimmustu um nætur fylgi von með nýjum degi.“

Fagna samningnum sem verður kynntur í dag
Búist er við að kynning verði haldin á samningi vegna útgöngu Breta úr Evrópusambandinu í dag fyrir fulltrúm þjóða sambandsins. Bretar yfirgáfu sambandið formlega í janúar á þessu ári og átti frestur til að ná útgöngusamningi að renna út 31. desember næstkomandi.

Drottningin bregður út af vananum í ár
Jóladagur verður með öðruvísi móti í ár hjá Elísabetu Bretlandsdrottningu sem mun eyða honum í Windsor-kastala ásamt eiginmanni sínum Filippusi. Yfirleitt hafa hjónin haldið upp á jóladag í Sandringham sveitasetrinu með fjölskyldunni.

Þurfa í sýnatöku fyrir brottför til Bandaríkjanna
Allir farþegar frá Bretlandi þurfa að framvísa neikvæðri niðurstöðu úr sýnatöku til þess að geta ferðast til Bandaríkjanna. Er þetta gert vegna ótta við nýtt afbrigði kórónuveirunnar sem hefur fundist í Bretlandi að undanförnu, en það er talið mun meira smitandi en önnur.

Brexit-samningur í höfn
Samkomulag um útgöngusamning Breta úr Evrópusambandinu er í höfn eftir að samninganefndir Evrópusambandsins og Breta náðu samkomulagi í dag.

Enn stritað við samningaborðið vegna Brexit-samnings sem er „innan seilingar“
Samninganefndir Breta og Evrópusambandsins sitja enn við samningaborðið um Brexit-samning sem sagður er vera „innan seilingar.“

Enn eitt afbrigði SARS-CoV-2 greinist á Bretlandseyjum: Hefur stökkbreyst meira
Tvö tilfelli nýs afbrigðis SARS-CoV-2 frá Suður-Afríku hafa greinst í Bretlandi. Heilbrigðisráðherra landsins hefur biðlað til þeirra sem hafa ferðast frá Suður-Afríku til Bretlands á síðustu tveimur vikum um að einangra sig.

Skoska fyrirsætan Stella Tennant látin
Skoska fyrirsætan Stella Tennant er látin fimmtug að aldri. Fjölskylda hennar staðfestir andlátið í tilkynningu. „Stella var yndisleg kona og mikill innblástur fyrir okkur öll. Hennar verður sárt saknað,“ segir í tilkynningunni. Hún hafi látist í gær og andlát hennar borið brátt að.

Reuters hefur eftir heimildarmanni að Brexit-samningur sé svo gott sem í höfn
Samningar milli Evrópusambandsins og Bretlands nást mögulega á næstu klukkustundum, hefur Reuters eftir heimildarmanni hjá ESB. Ef rétt reynist hefur því þá verið forðað að svokallað aðlögunartímabil taki enda um áramót með ófyrirsjáanlegum efnahagslegum afleiðingum.

Munu opna á vöruflutninga um Ermarsundsgöngin
Breski forsætisráðherrann Boris Johnson og Emmanuel Macron Frakklandsforseti hafa náð samkomulagi um að opna landamæri ríkjanna að nýju.

Morðingi Grace Millane sakfelldur fyrir fleiri árásir gegn konum
Maðurinn sem myrti breska bakpokaferðalanginn Grace Millane á Nýja-Sjálandi hefur verið sakfelldur fyrir tvær árásir til viðbótar gegn konum.

Ræða hvernig skuli taka á nýju afbrigði veirunnar
Fulltrúar aðildarríkja Evrópusambandsins munu ræða það síðar í dag hvernig taka skuli á hinu nýja afbrigði kórónuveirunnar sem grasserar nú í Bretlandi.

Svíar og Frakkar loka á Bretland
Svíþjóð og Frakkland hafa bæst í hóp þeirra Evrópuríkja sem hafa sett takmörk á eða bannað alfarið samgöngur frá Bretlandi vegna nýs afbrigðis kórónuveiru sem dreifst hefur um Bretland, og er talið meira smitandi en önnur afbrigði.

„Við erum ekkert að fara á taugum yfir þessu núna“
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir ekki hafa komið til skoðunar að leggja til að gripið verði til sérstakra ráðstafana vegna nýs afbrigðis kórónuveirunnar sem komið hefur upp í Bretlandi, og er talið meira smitandi en önnur afbrigði.

Banna flug frá Bretlandi vegna nýja afbrigðisins
Nokkur Evrópulönd hafa gripið til þeirra ráða að banna samgöngur frá Bretlandi og hefur flugi til að mynda verið aflýst. Er þetta gert vegna þess nýja afbrigðis kórónuveirunnar sem hefur fundist í Bretlandi og er talið vera sjötíu prósent meira smitandi en önnur afbrigði.

Stefna nú að samkomulagi fyrir jól
Bretar segja nauðsynlegt að Evrópusambandið breyti um stefnu í viðræðunum ef samningar eiga að nást. Samningsaðilar munu funda næstu daga og stefna að því ákveða fyrir jól hvort mögulegt sé að komast að samkomulagi.

WHO í samskiptum við Breta vegna nýja afbrigðisins
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) fylgist grannt með stöðu mála í Bretlandi vegna nýja afbrigðisins af kórónuveirunni sem hefur náð töluverðri dreifingu í Lundúnaborg og suðausturhluta Bretlands. Stofnunin er í nánum samskiptum við yfirvöld og verið er að rannsaka afbrigðið.