Rússland

Mannskæð loftárás Rússa í Norður-Úkraínu
Þrettán eru sagðir fallir í það minnsta og rúmlega sextíu særðir eftir að þrjú rússnesk flugskeyti hæfðu íbúðarblokk nærri miðborg Tsjérnihiv í norðanverðri Úkraínu í morgun. Enn er leitað að fórnarlömbum í húsarústum.

Áætla að yfir 50.000 rússneskir hermenn hafi fallið í átökunum
Fleiri en 50.000 rússneskir hermenn hafa nú fallið í átökunum í Úkraínu, samkvæmt BBC. Mannfallið var 25 prósent meira á öðru ári átakanna, ef talið er í mánuðum frá því að innrásin hófst, heldur en fyrstu tólf mánuðina.

Sjálfsævisaga Navalní væntanleg í haust
Bók með æviminningum Alexei Navalní heitins, rússneska stjórnarandstöðuleiðtogans, verður gefin út í haust. Útgefandi hennar segir bókina „lokabréf“ Navalní til heimsbyggðarinnar og að hann hafi byrjað að skrifa hana eftir að eitrað var fyrir honum.

Samþykktu loks frumvarp um herkvaðningu
Úkraínska þingið samþykkti í morgun nýtt frumvarp um það hvernig haldið er utan herkvaðningu. Frumvarpið hefur verið til umræðu í þinginu í marga mánuði og tekið umfangsmiklum breytingum. Lögin þykja óvinsæla en fela meðal annars í sér að lækka lágmarksaldur herkvaðningar úr 27 árum í 25 ár og auðvelda yfirvöldum að kveðja menn í herinn.

Ólígarkar unnu mál vegna refsiaðgerða fyrir Evrópudómstól
Evrópskur dómstóll komst að þeirri niðurstöðu að rangt hafi verið að beita tvo rússneska ólígarka refsiaðgerðum vegna innrásar Rússlands í Úkraínu í dag. Sannanir fyrir því að þeir hafi stutt stríðsreksturinn skorti.

Friðrik Þór fer fyrir dómnefnd á kvikmyndahátíð í Moskvu
Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndaleikstjóri og framleiðandi mun fara fyrir dómnefnd á Alþjóðlegu Kvikmyndahátíðinni í Moskvu. Vestræni kvikmyndaiðnaðurinn hefur ákveðið að sniðganga keppnina að mestu leyti vegna innrásar Rússlands inn í Úkraínu.

Saka formann fyrrverandi stjórnar um að eyðileggja MÍR
Þrír félagar í íslensk-rússneska menningarfélaginu MÍR sem stefndu því fyrir dómi saka formann fyrrverandi stjórnar félagsins um að vinna að því að eyðileggja félagið og sóa fjármunum þess. Þeir sækjast eftir því að blása nýju lífi í starfsemina.

Njósnaskandall skekur Austurríki
Yfirvöld í Austurríki standa frammi fyrir umfangsmiklum njósnaskandal sem bendir til þess að leyniþjónustur Rússlands séu umsvifamiklar í ríkinu og varpar ljósi á slæmt eftirlit hins opinbera. Háttsettur fyrrverandi njósnari í Austurríki var handtekinn á dögunum.

Grossi varar við drónaárásum á Zaporizhzhia-kjarnorkuverið
Rafael Grossi, yfirmaður Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar, hefur fordæmt drónaárásir á einn af sex kjarnakljúfum Zaporizhzhia-kjarnorkuversins í Úkraínu

Dæmd í þrælkunarvinnu fyrir að þykjast pota í brjóst Móðurlandsins
Rússnesk kona hefur verið dæmd til tíu mánaða þrælkunarvinnu fyrir að þykjast snerta brjóst styttu í myndbandi sem hún birti á samfélagsmiðlum. Konan er frá borginni Samara en í júlí í fyrra birti hún myndband á Instagram þar sem hún otar fingri að styttu sem kallast „Móðurlandið kallar“.

Halda áformum um framtíð MÍR til streitu eftir dóm
Stjórn menningarfélagsins MÍR stefnir enn á að selja húsnæði félagsins og leggja niður starfsemi þess í núverandi mynd. Unnið er að undirbúningi nýs aðalfundar eftir að dómstóll ógilti ákvarðanir sem voru samþykktar á fundi sem hann taldi ekki löglega boðaðan.

„Rússland getur ekki verið skotmark íslamista“
Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hélt því fram í dag að íslamskir öfgamenn hefðu ekki tilefni til að fremja hryðjuverkaárás í Rússlandi. Eining rússnesku þjóðarinnar á sviðum trúarbragða og þjóðernis og samheldni þjóðarinnar væri svo mikil að ómögulegt væri að öfgamenn fremdu hryðjuverkaárás í landinu.

Felldu þrjá slökkviliðsmenn með drónum í Karkív
Að minnsta kosti fjórir létu lífið í nótt þegar sjálfsprengidrónum var flogið á tvö fjölbýlishús og orkuver í Karkív, næst stærstu borg Úkraínu. Rússar hafa látið sprengjum rigna yfir borgina á undanförnum vikum og valdið þar miklum skemmdum og mannfalli.

Finnar framlengja lokun landamæranna ótímabundið
Ríkisstjórn Finnlands ákvað að halda landamærum landsins að Rússlandi áfram lokuðum ótímabundið í dag. Finnar saka rússnesk stjórnvöld um að senda hælisleitendur frá öðrum ríkjum að landamærunum til þess að baka þeim vandræði.

Í basli með viðhald og viðgerðir á olíuvinnslum
Viðskiptaþvinganir og refsiaðgerðir hafa gert Rússum erfitt um vik með viðhald í olíuvinnslustöðvum og viðgerðir eftir drónaárásir Úkraínumanna. Skortur er á varahlutum og fyrirtæki sem geta framleitt og selt varahluti eru ekki rússnesk.

Tónleikahöllin var nefnd sem mögulegt skotmark ISKP
Bandarískir embættismenn vöruðu rússneska kollega sína við því að tónleikahöllin í Crocus væri mögulegt skotmark vígamann Íslamska ríkisins í Khorasan, eða ISKP, rúmum tveimur vikum áður en fjórir menn myrtu þar minnst 144. Ráðamenn í Rússlandi hunsuðu viðvörunina og Vladimír Pútín, forseti, sagði nokkrum dögum fyrir árásina að Vesturlönd væru að reyna að kúga Rússland.

Bendla umdeilda rússneska sveit við Havana-heilkennið
Á undanförnum árum hafa nokkrum sinnum átt sér stað atvik þar sem bandarískir og kanadískir embættismenn og erindrekar verða fyrir óútskýrðum heilbrigðisvandamálum. Heyrnartap, ógleði, svimi og miklir höfuðverkir eru meðal þess sem fólk hefur fundið fyrir en fyrstu tilfellin greindust í sendiráði Bandaríkjanna í Havana á Kúbu.

Herkvaðningaraldurinn lækkaður úr 27 árum í 25 ár
Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti hefur undirritað lög sem kveða á um að herkvaðningaraldurinn verði lækkaður úr 27 ára í 25 ára.

„Stríð er alltaf fjarstæða og ósigur“
Frans páfi kallaði eftir vopnahléi á Gasa í páskaávarpi sínu í Vatíkaninu í dag. Hann kallaði einnig eftir því að Hamas sleppti öllum gíslum. Hann minntist á stríðið í Úkraínu

„Lifum á þýðingamestu tímum frá endalokum seinni heimsstyrjaldarinnar“
Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands segir Evrópu vera á „fyrirstríðstímum“ og varar við því að Úkraína megi ekki lúta í lægra haldi fyrir Rússlandi. Heimsálfan eigi mikið undir og stríð ekki lengur draugar fortíðar.

Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP
Degi áður en sendiráð Bandaríkjanna í Moskvu gaf út opinbera viðvörun um mögulegar árásir öfgamanna á tónleika eða aðra samkomustaði í Moskvu höfðu starfsmenn Leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA) í Moskvu sent rússneskum kollegum sínum sambærileg skilaboð.

Rússar flytja inn eldsneyti eftir drónaárásir
Ráðamenn í Rússlandi eru sagðir hafa flutt inn eldsneyti frá Belarús í þessum mánuði, vegna samdráttar í framleiðslu. Úkraínumenn hafa gert drónaárásir á þó nokkrar olíuvinnslustöðvar í Rússlandi á undanförnum vikum en útflutningur á eldsneyti var bannaður í upphafi mánaðarins.

Segir árásarmennina hafa ætlað til Belarús
Alexander Lúkasjenka, einræðisherra Belarús, segir mennina sem gerðu árásina í tónleikahúsinu í Crocus, úthverfi Moskvu um helgina, hafa fyrst reynt að flýja til Belarús. Öryggisgæsla þar hafi verið svo mikil að þeir beygðu í átt að landamærum Úkraínu.

Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi
Liudmilu „Lucy“ Shtein, meðlimur Pussy Riot og íslenskur ríkisborgari, hefur verið dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi. Shtein, sem er 27 ára gömul, er ekki í Rússlandi en hún var dæmd vegna færslna á samfélagsmiðlum þar sem hún talaði gegn innrás Rússa í Úkraínu.

Sakar Bandaríkjamenn og Breta um aðkomu að árásinni
Alexander Bortnikov Yfirmaður Leyniþjónustu Rússlands, FSB, lýsti því yfir í dag að Úkraínumenn hefðu þjálfað íslamska öfgamenn í Mið-Austurlöndum og bæru ábyrgð á árásinni á tónleikahöllina í Crocus um helgina. Þá bendlaði hann Bandaríkjamenn og Breta við árásina.

Hverjir eru ISKP? Skæðasti angi Íslamska ríkisins teygir anga sína til Moskvu
Þegar Kalífadæmi Íslamska ríkisins í Írak og Sýrlandi féll í mars 2019 markaði það ekki endalok hryðjuverkasamtakanna sjálfra. Síðan þá hefur hver leiðtoginn á fætur öðrum verið felldur af bandarískum hermönnum en samtökin sjálf hafa þó tórað áfram, í einhverri mynd.

Beinir spjótunum enn að Úkraínu
Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir öfgamenn úr röðum íslamista hafa gert árásina á tónleikahöllina í Crocus um helgina en beinir spjótum sínum þó áfram að Úkraínu og Bandaríkjunum. Í ræðu í kvöld gaf hann í skyn að árásarmennirnir hefðu fengið borgað fyrir árásina og frá Úkraínu.

Heita hefndum en freista þess enn að bendla Úkraínu við árásina
Stjórnvöld í Rússlandi virðast enn staðráðin í því að reyna að sannfæra umheiminn um að Úkraínumenn hafi átt þátt í hryðjuverkaárásinni á Crocus City tónleikahöllina í Moskvu á föstudag, þar sem 137 létu lífið.

Fjórir menn fyrir dómara vegna hryðjuverkanna
Fjórir menn hafa verið leiddir fyrir dómara vegna aðildar sinnar að hryðjuverkaárásunum í nágrenni Moskvu á föstudagskvöldið. Tveir þeirra játuðu skýlaust að hafa framið voðaverkin. 137 manns létu lífið þegar hópur manna hófu skothríð í Crocus City-tónleikahöllinni og meira en 150 særðust.

ISIS birtir hryllingsmyndbönd af árásinni
Íslamska ríkið birti í dag ný myndbönd af hryðjuverkaárásinni í útjaðri Moskvuborgar sem átti sér stað á föstudagskvöld. 133 létust en myndböndin staðfesta fyrri yfirlýsingu íslamska ríkisins þar sem ábyrgð á árásinni var lýst yfir. Rússar hafa aftur á móti bendlað Úkraínumenn við árásina.