
Hjálparstarf

Rifjar upp björgunaraðgerðirnar á Haítí: „Maður grét þegar maður kom út“
„En að sama skapi, ófá börnin hafa brosað til manns, sem hafa þakkað manni fyrir, hafa verið vítamínsprauta sem maður fær í hjartað til að vega upp á móti þessum erfiðu hlutum sem maður upplifir.“

Mörgum börnum líður illa vegna faraldurs og verkfalla
Ellefu samtöl við börn tengd sjálfsvígum voru hjá Hjálparsíma Rauða krossins 1717 í apríl. Verkefnastjóri Hjálparsímans segir mikið óvissuástand undanfarið hafa haft áhrif á mörg börn sem líði illa.

Fæðuskortur í skugga COVID-19
Í Afríku sunnan Sahara búa yfir 20 milljónir barna og foreldrar þeirra við mikinn fæðuskort. COVID-19 smitum í Afríku fjölgar nú ört og mikil hætta er á hraðri útbreiðslu í álfunni þar sem innviðir eru ekki nógu sterkir til að stemma stigu við faraldrinum.

Hægt að innleiða áfallahjálp í daglega rútínu vinnustaða
Doktor Sigríður Björk Þormar segir vinnustaði geta gripið inn í með áfallahjálp á margvíslegan hátt og að slíkt inngrip þurfi alls ekkert að vera svo flókið né kostnaðarsamt.

Rauði krossinn er til staðar
Á erfiðum tímum er mikilvægt að styðja sig við ættingja, vini og vinnufélaga, en þetta á aðeins við um þá sem eiga slíkt tengslanet. Fjöldi fólks býr ekki svo vel, á ekki fjölskyldu og situr eitt, hrætt og einmana – jafnvel á stofnun, í fangelsi eða í ótryggu húsnæði og jafnvel á á götunni.

Geðheilsan skiptir líka máli
Rauði krossinn hefur nokkrar áhyggjur af þeim sem glíma við andlega erfiðleika á tímum sem þessum.

Einmanaleiki: Hinn faldi faraldur
Manneskjan er að eðlisfari félagsvera og má segja að það sé hluti af grunnþörfum mannsins að fá félagsskap. Við höfum flest upplifað einmanaleika einhvern tímann á lífsleiðinni.

Einangrunin eykst dag frá degi og einmanaleikinn svíður
Fjölmargir einstaklingar sitja í fangelsi á Íslandi og á óvissutímum líkt og nú er hætt við að þeir gleymist. Í miklum óstöðuleika upplifir þessi hópur óöryggi og aukna streitu, líkt og flestir aðrir.

Afríka í hættu
COVID-19 veiran er búin að breyta heiminum. Hann verður aldrei aftur samur.En veiran hefur ekki enn sagt sitt síðasta.

Hvernig held ég mig heima ef ég er heimilislaus?
Að halda sig heima er ekki möguleiki fyrir heimilislausa einstaklinga. Fyrirmæli yfirvalda til almennings á þessum tíma – einangrun, aukið hreinlæti og að halda sig heima – eru ekki raunsæ fyrir einstaklinga sem glíma við heimilisleysi.

Ástin (og neyðin) á tímum kórónuveirunnar
Miðað við fréttaflutning undanfarinna vikna mætti halda að það sé kominn á heimsfriður, fátækt hafi verið útrýmt og allir hafi aðeins það eina hlutverk að kveða COVID-19 í kútinn.

„Ef við ætlum að standa undir nafni sem samfélag þá verðum við að hjálpa þeim“
Hópur sjálfboðaliða mun sinna matarúthlutunum á meðan samkomubann er í gildi. Yfir 600 heimili á höfuðborgarsvæðinu þurfa á slíkri aðstoð að halda.

Hópur sjálfboðaliða mun sinna matarúthlutunum á meðan samkomubann er í gildi
Stór hópur sjálfboðaliða hefur ákveðið að bregðast við og sinna úthlutun á höfuðborgarsvæðinu. Slysavarnarfélagið Landsbjörg mun keyra vörurnar heim til þeirra sem þurfa á mataraðstoð að halda.

Hundruð manna fá ekki matargjafir
Mæðrastyrksnefnd verður lokuð næstu vikuna vegna kórónuveirunnar. Þeir verst settu geta beðið um neyðaraðstoð og framkvæmdastjórinn bindur vonir við að félagsþjónustan grípi hópinn.

Burt með fátæktina
Á aðalfundi Rauða krossins á Íslandi árið 2018 var samþykkt að stofna sjóð þar sem einstaklingar og fjölskyldur sem byggju við sárafátækt gætu sótt um styrki. Ákveðið var að verkefnið tæki til tveggja ára.

Unglingar í Grafarvogi söfnuðu tæplega fjögur hundruð þúsund til styrktar Hróa Hetti
Í febrúar hélt unglingasvið Gufunesbæjar góðgerðaviku til styrktar Hróa Hetti, barnavinafélagi.

Leist ekkert á blikuna þegar Wei Li leiddi hana að bílnum
Wei Li sem vakti mikla athygli þegar hann kom hingað til lands með mikið magn íslenskrar smámyntar virðist hafa farið tómhentur heim. Framkvæmdarstjóri Samhjálpar segir að hann hafi mætt færandi hendi á skrifstofu félagsins fyrr í mánuðinum starfsmanni þess til mikillar mæðu.

Spilarar EVE Online gáfu rúmar þrettán milljónir til Ástralíu
Spilarar EVO Online, tölvuleiks CCP, hafa safnað vel á fjórtán milljónum króna sem gefið hefur verið til uppbyggingar- og hjálparstarfs í Ástralíu vegna skógareldanna sem geisað hafa þar.

Bergsteinn hættir hjá UNICEF: „Ég held að þetta kallist vitjunartími“
Bergsteinn Jónsson hefur ákveðið að hætta sem framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.

Rauða krossinn þinn vantar þig
Rauði krossinn á Íslandi er grasrótarhreyfing sem er borin upp á sjálfboðaliðum og er sjálfstæð í störfum sínum.

Hvað er sálrænn stuðningur?
Í kjölfar snjóflóðanna á Flateyri og í Súgandafirði, rétt eins og annarra alvarlegra atburða, hefur mikið verið rætt um sálrænan stuðning. Sálrænn stuðningur er yfirheiti yfir aðstoð sem veitt er í kjölfar alvarlegra atburða.

Opna fjöldahjálparstöð: „Ljóst að þörf er á sálrænum stuðning í kjölfar atburðanna“
Eftir að varðskipið Þór hefur flutt unglingsstúlkuna, sem slasaðist lítillega í snjóflóði sem féll á Flateyri í nótt, til Ísafjarðar er ætlunin að sigla skipinu aftur til Flateyrar með áfallateymi og vistir.

Haítí: Áratugur í skugga skjálftans
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) hefur sett sér það markmið að safna tæplega 19 milljónum bandarískra dala, tæplega 2,4 milljörðum íslenskra króna, fyrir starfsemi sína á Haítí í þágu barna og fjölskyldna á árinu 2020.

Prjóna fyrir móðurlaus dýr
Hópur fólks ætlar að bregðast við ákalli dýraverndunarsamtaka í Ástralíu og hittast á Kex Hosteli í Reykjavík í kvöld og prjóna poka fyrir dýr sem eru móðurlaus eftir gróðureldana í Ástralíu.

Um 250 skráðir í jólamat hjá Hjálpræðishernum
Rúmlega tvö hundruð og fimmtíu manns eru skráðir í jólamatinn hjá Hjálpræðishernum í dag. Óvenju mörg börn eru meðal þeirra sem mæta í ár.

Bjóða sjötíu manns í mat á aðfangadagskvöld
"Ég hef alltaf fyrir jólin reynt að gera eitthvað gott, en hef ekki gert það svona opinberlega eins og núna,“ segir Einar Karl Birgisson sem ætlar að bjóða sjötíu manns í mat á Gumma Ben bar á aðfangadagskvöld. Matarboðið er ætlað þeim sem hafa ekki tök á því að halda jól eða sjá fyrir að eyða kvöldinu ein.

Guðrún prjónaði 57 lopapeysur fyrir heilt þorp
Guðrún Kristinsdóttir, kennari á Húsavík, gerði sér lítið fyrir og prjónaði 57 lopapeysur á öll börn og allt starfsfólk í SOS barnaþorpinu í Hemeius í Rúmeníu.

Áhrifavaldur safnaði milljón á sólarhring
"Það sem gerir mig svo meyran er bara hvað er til mikið af góðu fólki. Og hvað þúsund kall getur orðið stór. Þetta sýnir okkur það.“

Dagur sjálfboðaliðans: Sjálfboðaliðastörf á vinnu- og skólatíma?
Í tilefni af degi sjálfboðaliðans langar mig að skrifa litla hugleiðingu og áskorun til vinnustaða og skóla.

Röð út úr dyrum hjá Hjálparstarfi kirkjunnar
Röð var út úr dyrum hjá Hjálparstarfi kirkjunnar þegar byrjað var að taka á móti umsóknum um jólaaðstoð. Erlendum ríkisborgurum sem eru nýkomnir til landsins hefur fjölgað ört í hópi þeirra sem sækja um.