
Malta

Play komið með flugrekstrarleyfi á Möltu
Play Europe, dótturfélag Fly Play hf., fékk í morgun afhent flugrekstrarleyfi frá flugmálayfirvöldum á Möltu. Félagið mun leigja út þrjár vélar til austur-evrópsks flugfélags.

Bjóða fyrstu freyju 217 þúsund á mánuði og fimm veikindadaga á ári
Maltneskt dótturfélag flugfélagsins Play hefur auglýst í lausar stöður flugliða, svokallaðra fyrstu freyja. Launin sem boðið er upp á eru 217 þúsund krónur á mánuði og veikindadagar eru fimm á ári. Ekki er um að ræða flugliða sem fljúga til og frá Íslandi.

Sækja um leyfi á Möltu
Flugfélagið Play hefur sótt um flugrekstrarleyfi á Möltu og ætlar að draga verulega úr umsvifum tengiflugs á milli Norður-Ameríku og Evrópu. Meiri fókus verði settur á sólarlandaáfangastaði frá Íslandi. Eftir breytingarnar verða um sex til sjö vélar staðsettar á Íslandi á íslenska flugrekstrarleyfinu og þrjár til fjórar erlendis.

Brottfall ungra karla á Íslandi úr námi hæst í Evrópu
Um 16 prósent ungs fólks á aldrinum 18 til 24 á Íslandi flosnuðu upp úr námi eftir mennta- eða framhaldsskóla samkvæmt niðurstöðum nýrrar greiningar fyrir árið 20230 á vegum Hagstofu Evrópusambandsins, Eurostat. Ísland er í þriðja sæti meðal Evrópuríkja.

Maðurinn ríkisborgari Möltu
Maðurinn sem grunur er um að hafi verið frelsissviptur í heimahúsi í Reykholti í Bláskógabyggð er með maltneskt ríkisfang. Fjögur eru í haldi vegna málsins, grunuð um frelsissviptingu, líkamsárás og fjárkúgun.

Bræður dæmdir fyrir morðið á Galizia
George og Alfred Degiorgio voru í gær dæmdir í fjörutíu ára fangelsi hvor um sig fyrir morðið á maltnesku blaðakonunni Daphne Caruana Galizia árið 2017. Þriðji maðurinn, Vince Muscat, hafði þegar játað á sig aðild að morðinu.

Landsliðsþjálfari Möltu grunaður um að hafa áreitt landsliðsmann kynferðislega
Landsliðsþjálfari Möltu í fótbolta hefur verið settur til hliðar vegna ásakana um að hann hafi áreitt leikmann landsliðsins kynferðislega.

Hlíf af mótor flugvélar Atlanta lenti í innkeyrslu í Belgíu
Hlíf féll af mótor flugvélar frá flugfélaginu Atlanta ehf. sem var á leið frá Liége í Belgíu til Möltu síðastliðinn fimmtudag. Hlífin lenti í innkeyrslu við íbúðarhúsnæði í Waremme í Belgíu.

Flaug til Mallorca eftir að hafa verið neitað um þungunarrof á Möltu
Bandarísk kona sem hefur ekki fengið að gangast undir þungunarrof á Möltu þrátt fyrir að hún sé að missa fóstur og að heilsa hennar sé í hættu, fékk í gær grænt ljós frá tryggingafélaginu sínu til að ferðast til Spánar til að fá nauðsynlega heilbrigðisþjónustu.

Bíður þess að hjartað hætti að slá eða að hún fái sýkingu
Óttast er um líf bandarískrar konu sem er að missa fóstur á spítala á Möltu en fær ekki að gangast undir þungunarrof þar sem slíkar aðgerðir eru bannaðar með öllu í landinu. „Ég vil bara komast héðan lifandi,“ sagði konan við Guardian í gær.

Maltverjar loka á vegabréfakaup Rússa
Malta hefur ákveðið að loka fyrir umsóknir Rússa og Hvítrússa fyrir svokölluð „gyllt vegabréf“ vegna viðskiptaþvingana Evrópusambandsins gegn ríkjunum tveimur.

Maltverji nýr forseti Evrópuþingsins
Hin maltneska Roberta Metsola var í morgun kjörin nýr forseti Evrópuþingsins. Hún tekur við stöðunni af hinum ítalska David Sassoli sem lést á dögunum.

Maltneska ríkið bar ábyrgð á dauða blaðamannsins Daphne Caruana Galizia
Niðurstöður sjálfstæðrar rannsóknar á dauða maltnesku blaðakonunnar Daphne Caruana Galizia segja að maltnesk yfirvöld þurfi að taka ábyrgð á dauða hennar, eftir að hafa skapað menningu refsileysis í landinu.

Malta borgar ferðamönnum til að koma í sumar
Yfirvöld í Möltu stefnir á að greiða erlendum ferðamönnum, sem halda til á eyjunni í meira en þrjá daga í sumar, allt að 200 evrur, sem eru um 30 þúsund íslenskar krónur. Þau segja aðgerðirnar til þess gerðar að koma ferðaþjónustu eyjunnar á réttan kjöl en atvinnugreinin hefur tekið dýfu niður á við vegna kórónuveirufaraldursins.

Játar að hafa ráðið blaðakonuna Daphne Caruana Galizia af dögum
Vince Muscat, einn af þremur mönnum sem ákærðir hafa verið fyrir morðið á maltnesku blaðakonunni Daphne Caruana Galizia árið 2017, hefur viðurkennt að hafa átt aðild að morðinu. Verjandi Muscat hefur upplýst dómara um að Muscat viðurkenni nú sök í öllum ákæruliðum.

Atlanta stofnar nýtt flugfélag á Möltu
Forsvarsmenn íslenska Flugfélagsins Atlanta ehf. hafa ákveðið að stofna nýtt flugfélag á Möltu, sem hlotið hefur nafnið Air Atlanta Europe.

Vilja fá tönn sem Attenborough gaf prinsinum aftur
Yfirvöld á Möltu munu mögulega krefjast þess að beingervingi hákarlatannar verði skilað til landsins. Hinn víðfrægi David Attenborough gaf Georg prinsi tönnina en hann fann hana í fríi á Möltu fyrir rúmum fimmtíu árum.

Fjörutíu dagar á sjó og þrjár neitanir
Hópur flóttafólks er nú kominn í land á Ítalíu eftir að hafa varið yfir 40 dögum á sjó. Danska skipinu sem flutti hópinn var meinað að leggjast að landi í þremur ríkjum.

Sagði af sér eftir að hafa líkt Angelu Merkel við Hitler
Sendiherra Möltu í Finnlandi hefur sagt af sér eftir að hann birti Facebook-færslu þar sem hann bar Angelu Merkel saman við Adolf Hitler.

Robert Abela nýr forsætisráðherra Möltu
Robert Abela hefur tekið við sem nýr formaður Verkamannaflokksins þar í landi og mun taka við stóli forsætisráðherra eftir að Joseph Muscat sagði af sér embætti í síðasta mánuði.

Aðstoðarmaður forsætisráðherra Möltu neitar sök vegna morðs blaðakonu
Keith Schembri, fyrrverandi aðstoðarmaður Josheph Muscat, forsætisráðherra Möltu, segist ekki hafa lekið upplýsingum um rannsókn á morði blaðakonunnar Daphne Caruana Galizia til mannsins sem grunaður er um að hafa skipulagt morð hennar.

Forsætisráðherra Möltu segir af sér í skugga morðmáls
Joseph Muscat, forsætisráðherra Möltu, mun láta af embætti á nýju ári. Kallað hefur verið eftir uppsögn hans í kjölfar morðs á maltneskri blaðakonu árið 2017. Einstaklingar með sterkt tengsl inn í ríkisstjórn Muscat eru grunaðir um aðild að morðinu.

Maltneskur viðskiptajöfur ákærður fyrir aðild að morði á blaðakonu
Maltneski viðskiptamaðurinn Yorgen Fenech hefur verið ákærður í heimalandi sínu. Honum er meðal annars gefið að sök að hafa átt þátt í dauða blaðakonunnar Daphne Caruana Galizia, sem var myrt árið 2017.

Þrír stjórnmálamenn sagt af sér á Möltu
Þrír hafa stigið til hliðar frá störfum fyrir maltnesku ríkisstjórnina. Talið er að afsagnirnar séu í tengslum við morðið á maltneska rannsóknarblaðamanninum Daphne Caruana Galizia í október 2017, þar á meðal tveir ráðherrar.

Maltneskur viðskiptajöfur handtekinn á snekkju sinni
Lögreglan á Möltu hefur handtekið viðskiptajöfurinn Yorgen Fenech. Hann var handtekinn í morgun klukkan hálfsex að staðartíma þar sem hann dvaldi um borð í snekkju sinni skammt í Portomaso á Möltu.

Sáu flóttamenn en sigldu á brott
Malta Mohammed Adam Oga, sá eini sem lifði af tilraun fimmtán flóttamanna til að sigla yfir Miðjarðarhaf fyrr í mánuðinum, sagði við Reuters í gær að fleiri en eitt skip hefði siglt fram hjá flóttamönnunum, hundsað allar beiðnir um aðstoð og siglt á brott.

Richard Gere færði flóttafólki birgðir eftir viku kyrrsetu
Richard Gere, leikari, heimsótti flóttafólk á Miðjarðarhafinu á föstudag.

Flóttamönnum sem var bjargað við strendur Líbíu komu hafnar á Möltu í dag
Hópur flóttamanna sem var bjargað undan ströndum Líbíu á miðvikudag eru komnir í höfn á Möltu.

Maltverjar tóku við flóttafólki með fyrirvörum
Yfirvöld á Möltu hafa heimilað 65 hælisleitendum sem var bjargað á hafi úti fyrir Líbíuströndum að koma í landi í eyjunni eftir að strandgæsla Möltu hafði tekið fólkið úr björgunarskipi.

Handsömuðu kaldrifjaðan morðingja sem hafði verið á flótta í 16 ár
Flúði frá Bretlandseyjum eftir að Brian Waters var pyntaður og barinn til dauða fyrir framan uppkomin börn sín árið 2003.