Páfagarður

Bein útsending: Fyrsta messa nýs páfa
Leó fjórtándi, nýr páfi, heldur sína fyrstu messu í Vatíkaninu í dag. Hún er haldin í Sixtínsku kapellunni og eru kardinálar þeir einu sem fá að sitja hana.

Býst við að bróðir sinn Leó feti í fótspor Frans
John Prevost býst við góðum hlutum af bróður sínum, Robert Francis Provost, eða Leó fjórtánda, sem kjörinn var páfi í gær. John segir valið hafa komið sér og fjölskyldu sinni gífurlega á óvart.

Hvað vitum við um Leó páfa?
Kardínálar kaþólsku kirkjunnar kusu sér í dag nýjan páfa, þann 267. í röðinni, á öðrum degi páfakjörs. Bandaríkjamaðurinn Robert Francis Prevost varð fyrir valinu og valdi sér páfanafnið Leó. Hann er fjórtándi páfinn til að kjósa sér það nafn, og mun því ganga undir nafninu Leó fjórtándi.

„Þvílík spenna og þvílíkur heiður fyrir landið okkar“
Donald Trump Bandaríkjaforseti segir það mikinn heiður að nýr páfi, Leó XIV, sé bandarískur og segist hann hlakka til að hitta hann.

Reyndi til hins síðasta að koma skikki á fjármál Vatíkansins
Nánast fram á sitt síðasta reyndi Frans páfi að koma skikki á fjármál hins vellauðuga smáríkis, Vatíkansins. Þrátt fyrir miklar tilraunir í rúman áratug átti páfinn ekki erindi sem erfiði. Rekstrarhalli Páfagarðs þrefaldaðist í valdatíð Frans og stendur eftirlaunasjóður smáríkisins frammi fyrir allt að tveggja milljarða evra skuldbindingum sem óvíst er hvort hægt sé að greiða.

Þeir sem gangi inn sem páfaefni gangi út sem kardinálar
Páfakjör hefst í dag og munu kardínálar kaþólsku kirkjunnar setjast niður í Sixtínsku kapellunni síðdegis og hefja leit að nýjum páfa. Prestur kaþólikka á Norðurlandi segir líklegt að kjörið dragist á langinn. Ólíklegt sé að einn þeirra sem gangi inn í kjörið sem páfaefni standi uppi sem næsti páfi.

Vaktin: Robert Francis Prevost er nýr páfi
Kardinálar kaþólsku kirkjunnar hafa valið sér nýjan páfa, Bandaríkjamanninn Robert Francis Prevost sem tekur sér nafnið Leó XIV. Vísir fylgist með gangi mála á sérstakri páfakjörsvakt en einnig er hægt að horfa á beina útsendingu frá Páfagarði.

Kardinálarnir læstir inni á morgun
Kardinálar kaþólsku kirkjunnar munu á morgun setjast niður í Sixtínsku kapellunni og hefja leitina að nýjum páfa. Þar verða 133 kardinálar frá sjötíu löndum innilokaðir þar til hvítan reyk ber frá páfagerði, til marks um að nýr páfi hafi verið kjörinn.

Klækir, prettir og kardínálaklíkur í páfakjöri
Páfinn er dáinn! Kardínálar ferðast til Rómar þar sem þeir eru læstir inni í Sixtínsku kapellunni til að kjósa nýjan leiðtoga kaþólsku kirkjunnar. Kardínálarnir eru breyskir eins og aðrir menn, syndga, slúðra og láta kappið jafnvel bera fegurðina ofurliði.

Páfabíll verður færanleg heilsugæsla fyrir börn á Gasa
Einum svokallaðra páfabíla Frans páfa heitins verður breytt í færanlega heilsugæslu fyrir börn á hinu stríðshrjáða Gasasvæði. Bílinn notaði páfinn meðal annars á ferðalagi sínu til Betlehem árið 2014.

Birti mynd af sér í páfaskrúða
Donald Trump Bandaríkjaforseti birti í gær mynd af sér á samfélagsmiðlum klæddum páfaskrúða. Kaþólikkar sem og aðrir hafa tekið misvel í þetta uppátæki hans og þykir mörgum hann vanvirða minningu Frans páfa sem féll frá nýlega.

Páfakjör hefst í næstu viku
Kardinálar kaþólsku kirkjunnar hafa ákveðið að páfakjörsfundur til þess að velja eftirmann Frans páfa hefjist miðvikudaginn 7. maí. Þeir vilja ná að kynnast betur og ná samhljómi um nýjan páfa áður en kjörið hefst.

Sixtínsku kapellunni lokað vegna páfakjörs
Yfirvöld í Vatíkaninu hafa nú lokað Sixtínsku kapellunni, einum mest sótta ferðamannastað heims, til þess að efna til páfakjörs eftir fráfall Frans páfa á dögunum.

Gröf Frans páfa opin gestum
Frá og með deginum í dag geta gestir barið gröf Frans páfa í Maríukirkju í Róm augum. Páfinn var borinn til hinstu hvílu í gær.

Halla og Biden hittust í útför páfans
Halla Tómasdóttir forseti Íslands birti í dag mynd af sér ásamt Joe Biden fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Þau eru stödd í Páfagarði og voru viðstödd útför páfans ásamt fjölda annarra þjóðarleiðtoga.

Hittust í fyrsta sinn eftir að upp úr sauð
Donald Trump Bandaríkjaforseti og Volodímír Selenskí Úkraínuforseti áttu korterslangan fund inni í Péturskirkjunni í Páfagarði rétt fyrir útför Frans páfa í morgun.

Myndir: Ráðamenn heims fylgja Frans páfa til hinstu hvílu
Um fimmtíu þúsund manns eru við útför Frans páfa á Sankti Péturstorgi í Páfagarði. Meðal annars Donald Trump Bandaríkjaforseti, Volodímír Selenskí Úkraínuforseti og Vilhjálmur bretaprins.

Bein útsending: Útför Frans páfa
Frans páfi verður borinn til hinstu hvílu í dag. Athöfnin hefst klukkan átta að íslenskum tíma, en hún fer fram á Péturstorgi í Páfagarði og verður í beinni útsendingu.

Friður - í framsöguhætti eða viðtengingarhætti?
Francis páfi er fallinn frá – háaldraður og saddur lífdaga. Meðfylgjandi orð setti ég á blað fyrir mörgum árum - tæpum áratug eða svo – þ.e.a.s. á meðan Abbas frá Palestínu var enn talinn maður með mönnum, og Francis frá Argentínu nýstsiginn í stól páfa.

Tugir þúsunda kveðja páfann fyrir útförina
Lokaundirbúningur fyrir útför Frans páfa mun fara fram í Páfagarði í dag. Almenningur hefur til klukkan 20 í dag, að staðartíma, til að kveðja páfann í Péturskirkjunni. Útförin er svo á morgun. Fjöldi erlendra ráðamanna ferðast í dag og á morgun til að vera viðstaddir útförina.

Dæmdur kardínáli segist mega kjósa næsta páfa
Giovanni Angelo Becciu kardínáli sem hefur verið sakfelldur fyrir fjárdrátt vill meina að hann eigi atkvæðisrétt í komandi páfakjöri.

Lík páfans flutt í Péturskirkju í dag
Lík Frans páfa verður flutt í Péturskirkjuna í Vatíkaninu snemma í dag. Þar mun hann liggja í þrjá daga svo almenningur og trúariðkendur geti kvatt hann. Frans páfi lést á mánudag 88 ára gamall úr heilablóðfalli. Hann var páfi í tólf ár.

Valdatafl í Vatíkaninu: Hver verður næsti páfi?
Eftir fráfall Frans páfa styttist nú óðfluga í að næsti páfi kaþólsku kirkjunnar er valinn. Það gera kardínálar fyrir luktum dyrum í Sixtínsku kapellunni í Páfagarði.

Reiknar með að sækja útför Frans páfa
Reiknað er með því að Halla Tómasdóttir forseti verði viðstödd útför Frans páfa á laugardag. Halla er meðal þjóðarleiðtoga hvaðanæva úr heiminum sem verða viðstaddir útförina, en meðal þeirra sem hafa boðað komu sína eru Donald Trump Bandaríkjaforseti og Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands.

Vildi „tagga“ Frans páfa en niðurstaðan reyndist slysaleg
Ástæðan fyrir því að Halla Tómasdóttir forseti Íslands notaði enska mynd nafns páfa var einfaldlega sú að hún ætlaði að merkja opinbera síðu páfa í færslu sinni.

Útför páfans á laugardag
Kardinálarnir Í Róm hittust í morgun til að skipuleggja útför Frans páfa sem lést í gærmorgun. Hann fékk heilablóðfall sem leiddi til þess að hjarta hans stöðvaðist. Gera má ráð fyrir að leiðtogar hvaðanæva úr heiminum muni vera viðstaddir útförina. Útförin fer fram á laugardag.

Greint frá dánarorsök páfans
Dánarorsök Frans páfa, sem lést í morgun 88 ára að aldri, hefur verið kunngjörð en hann fékk heilablóðfall sem leiddi til þess að hann fór í hjartastopp.

Í minningu Frans páfa - sem tók sér nafn verndardýrlings dýra og náttúru
Séra Jorge Mario Bergoglio er allur í jarðvist sinni. Fæddur 17. des. 1936 í Argentínu. Kjörinn páfi 13. mars 2013. Ég, sem kaþólikki, fagnaði því mjög þegar hann tók við embætti páfa og kenndi sig við heilagan Frans frá Assísi. Það þótti mér stórmannlegt.

Dánarorsök páfans talin vera heilablóðfall
Frans páfi lést í morgun en ítalskir miðlar greina frá að dánarorsökin hafi verið heilablóðfall. Páfinn var lengi heilsuveill vegna alvarlegra veikinda í lungum.

Halla Tómasdóttir minnist „Pope Francis“
Halla Tómasdóttir forseti deilir samúðarkveðjum vegna fráfalls Frans páfa. Hún vísar til hans sem „Pope Francis“ á ensku í færslunni.