
Áfengi

Útihátíð fyrir ungmenni gekk eins og í sögu
Tveir vinir og nýstúdentar héldu í sumar vímuefnalausan viðburð þar sem ungmenni gátu skemmt sér utandyra með jafnöldrum sínum. Þeir segja viðburðinn hafa heppnast afar vel og stefna á að stækka hann á næsta ári.

Hella áfenginu niður og hringja í foreldra
Allt verður gert til að sporna gegn drykkju ungmenna í miðbænum á morgun þegar menningarnótt fer fram, að sögn lögreglu. Áfengisdrykkja meðal ungmenna verði sífellt meira áberandi og slík mál koma oftar inn á borð lögreglu en áður.

Færa vinsæla útitónleika yfir á sunnudag: „Ég ætla ekki bara að dæma ungmennin“
Útitónleikar bæjarhátíðar Mosfellsbæjar hafa verið færðir yfir á sunnudag, einhverjum bæjarbúum til ama. Verkefnastjóri segir núllstillingu mikilvæga eftir erfiða atburði í kringum hátíð síðasta árs.

Kinnhestur frá Ingvari E. Sigurðssyni í tilefni af nýjum bjór
Kinnhestur er nafn á nýjum bjór, sem frumsýndur var í dag en það sem vekur athygli er að bjórinn er sérstaklega framleiddur fyrir fjögurra daga Njáluhátíð í Rangárþingi. Fréttamaður okkar fékk vænan kinnhest frá einum þekktasta leikara landsins í tilefni dagsins. Sjón er sögu ríkari.

Tilkynnt um par að slást
Lögreglu barst tilkynning í dag um menn með háreysti og leiðindi í Árbænum í Reykjavík. Einnig barst tilkynning um par að slást í sama hverfi en engan var að sjá þegar lögreglumenn bar að.

Sante fer í hart við Heinemann
Sante ehf. sem heldur úti netverslun með áfengi hefur lagt fram lögreglukæru á hendur Heinemann Travel Retail Ice ehf. vegna smásölu félagsins í tollfrjálsri verslun á Keflavíkurflugvelli.

Íþróttafélag kært fyrir að bjóða upp á áfengi utandyra
Lögregla kærði í gær íþróttafélag í Reykjavík fyrir að veita áfengi utandyra á íþróttakappleik.

Vilja ekkert með áfengi nágranna sinna hafa
Bandarískir framleiðendur bjórs, víns og annarskonar áfengis, hafa tapað fúlgum fjár vegna mikils samdráttar á útflutningi til Kanada. Nágrannar þeirra í norðri vilja lítið sem ekkert með áfengi frá Bandaríkjunum hafa þessa dagana.

Dásamar ÁTVR og skýtur á lögreglustjóra
Fyrrverandi heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra segir sæta furðu að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafi ekki enn lokið rannsókn á fólki sem selur áfengi á netinu í trássi við lög. Áfengissala á Íslandi þurfi að vera á samfélagslegum forsendum.

Takk starfsfólk og forysta ÁTVR
Starfsfólk og forysta ÁTVR á þakkir skildar fyrir framúrskarandi lipra og góða þjónustu. Einnig fyrir að standa heil með forsendum þess að ríkið reki ÁTVR.

Ungt fólk setur vínbændur í erfiða stöðu
Íslenskur vínbóndi í Sviss segir breytt neyslumynstur ungmenna hafa slæm áhrif á vínbransann. Bændur þurfi að skera niður hjá sér því sífellt færri drekka vín.

Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni
Konu á leið frá Vestmannaeyjum til Reykjavíkur í gær var sagt að hún væri bær til að aka þegar hún blés í áfengismæli lögreglu við Landeyjahöfn en var handtekin vegna gruns um ölvunarakstur eftir að hafa blásið á næsta eftirlitspósti, nokkrum mínútum síðar. Hún reiknar með hárri sekt og að missa ökuréttindin. Aðalvarðstjóri segir ökumenn alfarið ábyrga í tilfellum sem þessu og að áfengismælar gefi einungis vísbendingu um vínandamagn.

Atvinnubílstjóri með farþega undir áhrifum áfengis í vinnunni
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af atvinnubílstjóra í farþegaflutningum sem reyndist undir áhrifum áfengis í dag.

Vínsalar látnir klára vakt eftir andlát í versluninni
Starfsfólki Vínbúðarinnar í Austurstræti var gert að klára vinnudaginn sinn eftir að maður lést í versluninni í síðustu viku. Stjórnendur ÁTVR harma að svo illa hafi verið brugðist við en segja að starfsfólki hafi verið boðin áfallahjálp næsta dag.

Hrósar Verzlingum fyrir „vel skipulagða“ útilegu
Borgarstjóri hrósar Verzlingum fyrir „vel skipulagða“ útilegu sem tjaldsvæðiseigendur sögðu hafa „farið úr böndunum“.

Gleði Verzlinga fór úr böndunum og þeim ekki boðið aftur
Útilega nemenda úr Verzlunarskóla Íslands er sögð hafa farið úr böndunum og hyggst tjaldsvæðið ekki taka aftur á móti menntaskólahópum. Mikið fyllerí og partístand var á ungmennunum, öðrum tjaldgestum til mikilla ama.

Endaði á geðdeild eftir notkun MDMA í sálfræðimeðferð
Hödd Vilhjálmsdóttir notaði MDMA í meðferð við áfallastreituröskun fyrir þremur árum sem endaði með því að hún fór inn á geðdeild. Þáverandi sálfræðingur Haddar, sem hefur síðan misst starfsleyfið, lagði henni til að bæta MDMA við EMDR-meðferð.

Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum
Samtök foreldra kalla eftir aukinni viðveru forráðamanna á hittingum ungmenna. Það sé mikilvægt að efla traust svo viðburðirnir séu öruggari fyrir þá sem mæta.

Tekur ný ríkisstjórn af skarið?
Allir sem fylgjast með fréttum hafa tekið eftir því að forvarnarsamtökin Fræðsla og forvarnir – félag áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu, Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum, IOGT á Íslandi og SAFF-Samstarf félagasamtaka í forvörnum, hafa um langt skeið gagnrýnt skeytingarleysi stjórnvalda sem ríkir gagnvart þeirri netsölu áfengis sem fram fer hér á landi.

Einungis áfengi í boði hjá Heimkaupum
Forsvarsmenn vefverslunarinnar Heimkaup hafa ákveðið að nú verði einungis hægt að kaupa áfengi þar. Breytingarnar koma í kjölfar samruna fyrirtækisins við Samkaup.

Bjórpása í Víkinni og lögreglan í heimsókn í Garðabæ
Fundur lögreglu með knattspyrnufélögum á höfuðborgarsvæðinu hafði það meðal annars í för með sér að ekki var seldur bjór á heimaleik Víkinga gegn Aftureldingu í Bestu deild karla í gærkvöldi. Lögregla gerði athugasemdir við áfengisneyslu á heimaleik Stjörnunnar gegn Breiðabliki á föstudagskvöld.

Drakk ógeðslega illa og hætti eftir blindafyllerí
Arnmundur Ernst Backman leikari segir það sína mestu guðsgjöf að hafa hætt að drekka og reykja kannabis. Arnmundur segist ekki hafa náð að syrgja móður sína fyrr en löngu eftir andlátið og það ferli hafi sýnt honum hve skakkt samfélagið okkar meðhöndlar fólk sem fer í gegnum missi nánasta ástvinar.

Ingvar útskrifaður úr meðferð
Ingvar Þóroddsson, þingmaður Viðreisnar, segist vera útskrifaður úr meðferð en hann tók sér hlé frá þingstörfum í síðasta mánuði í von um að sigrast á Bakkusi.

Vara við því að ölvuðu fólki sé boðið að sitja að sumbli í Lystigarðinum
Garðyrkjufólk hefur áhyggjur af fyrirhugaðri bjórhátið sem á að halda í lystigarði bæjarins í næsta mánuði. Formaður Garðyrkjufélags Íslands segir augljósa áhættu fólgna í því að bjóða ölvuðu fólki að sitja að sumbli innan um óbætanlegar plöntur. Skipuleggjandi segir aldrei hafa verið gengið illa um garðinn á fyrri hátíðum.

Frábær fundur, frábært framtak, vanvirk stjórnsýsla, meðvirk stjórnvöld
Hinn 16. júní síðastliðinn stóðu helstu forvarnarsamtök landsins að góðum og vekjandi fundi um forvarnir og þá lögleysu sem látin er viðgangast með ólöglegri netverslun með áfengi. Smám saman er lögbrjótunum að takast að grafa undan lögbundinni dreifingu á áfengi.

Milljónavirði af gini á víðavangi og búið til með íslensku veðri
Það er allt að gerast hjá Arnari Jóni Agnarssyni, einum eigenda Mosa gins. Sem nú framleiðir nýtt íslenskt gin á einstakan hátt; Með því að veðra það í tunnum!

Ótækt að íþróttafélögin selji áfengi án leyfis
Forseti ÍSÍ segir ótækt að íþróttafélögin selji áfengi á íþróttaviðburðum án þess að hafa til þess leyfi. Innan við helmingur félaga á höfuðborgarsvæðinu má selja áfengi og ekkert þeirra er með útiveitingaleyfi. Heilbrigðisráðherra segir að skýra þurfi reglur.

Teikn á lofti þegar kemur að áfengisneyslu unglinga
Teikn á lofti eru um að áfengisneysla meðal unglinga sé að aukast. Þetta segir formaður Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum en hann furðar sig á að fimm árum eftir að netsala áfengis var kærð til lögreglu sé enn engin niðurstaða komin í málið.

Til hamingju með daginn á ný!
Þann 16. júní 2025 eru nákvæmlega fimm ár síðan ÁTVR kærði ólöglega netsölu til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Netsölu sem er ólögleg því hún selur áfengi í smásölu af lager á Íslandi til neytenda. Lögreglan hefur ekki klárað þetta samfélagslega mikilvæga mál á fimm árum, hálfum áratug. Til hamingju með daginn! Þessi staða er auðvitað með ólíkindum.

Nýtt slagorð Ísland Duty Free: „Ég er á leiðinni“
Tómar hillur blasa við komufarþegum Leifsstöðvar og virðist frasinn „I'm on my way“ eða „Ég er á leiðinni“ standa á öðru hverju skilti. Framkvæmdastjórinn segir að unnið sé hörðum höndum að því að leysa málið.