
Reykjavík

Telur að róttækar breytingar við Bústaðaveg myndu stórbæta hverfið
Róttækar breytingar á Bústaða- og Háaleitishverfi eru boðaðar með tillögum að nýju hverfisskipulagi. Skiptar skoðanir eru um tillögurnar en formaður íbúaráðs er þó viss um að þær myndu stórbæta hverfið.

Dagur segir Eyþór skjóta pólitískum púðurskotum
Sjálfstæðismenn í borgarstjórn vilja reisa 3.000 íbúðir án tafar innan borgarmarkanna. Borgarstjóri segir það útspil pólitískt púðurskot. Þjóðarátakið sem verkalýðshreyfingin hafi kallað eftir í uppbyggingu húsnæðis sé nú þegar leitt af borgaryfirvöldum.

Stakk mann með hnífi við Breiðholtslaug
Ungur karlmaður var stunginn með hníf við Breiðholtslaug um eittleytið í dag. Hann var fluttur með sjúkrabíl á Landspítalann. DV greindi fyrst frá.

Við viljum nýtt neyðarathvarf fyrir konur
Það eru í það minnsta 349 manns í Reykjavík í heimilislausir eða í ótryggu húsnæði, þar af 108 konur samkvæmt nýjustu skýrslu um heimilisleysi í Reykjavík frá árinu 2017.

Ruddust inn með leitarheimild til að taka refinn en gripu í tómt
Ágústi Beinteini Árnasyni brá heldur betur í brún þegar tveir einkennisklæddir lögreglumenn mættu að heimili hans ásamt fulltrúa Matvælastofnunar (MAST) í síðustu viku með húsleitarheimild. Markmiðið var að finna og taka af Ágústi, sem er kallaður Gústi B, ref sem hann hefur haldið síðasta eina og hálfa mánuðinn, Gústa Jr. Þeir gripu þó í tómt.

Umtalað ofbeldismál fékk ekki leyfi frá Hæstarétti
Hæstiréttur ákvað á dögunum að taka ekki fyrir víðfrægt ofbeldismál ungrar konu. Ríkissaksóknari óskaði eftir áfrýjunarleyfi til að fá betur úr því skorið undir hvaða lagagrein málið heyrði miðað við eðli sambands ofbeldismannsins og konunnar.

Sveigjanleg þjónusta fyrir fatlað fólk
Velferðarstefna Reykjavikur er í innleiðingu og ein af lykiláherslum hennar er að þjónusta skuli vera eins einstaklingsmiðuð, heildstæð og sveigjanleg og kostur er. Lögð er áhersla á virðingu fyrir ólíkum einstaklingum og þörfum, sjálfræði og valdeflingu allra til að taka þátt í samfélaginu á eigin forsendum.

Sótt að meirihlutanum í Reykjavík vegna íbúðaskorts
„Það verður erfitt fyrir meirihlutann að sækja sér umboð í næstu kosningum ef þessi tillaga nú verður felld,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, um tillögu Sjálfstæðismanna í Reykjavík sem vilja flýtimeðferð á byggingu 3.000 íbúða í borginni.

Magnús Norðdahl hættur að hugsa um kosningarnar og farinn að verja refi
Magnús Davíð Norðdahl, lögfræðingur og oddviti Pírata í Norðvesturkjördæmi í síðustu alþingiskosningum, er hættur að hugsa um kosningamálið í bili og farinn að snúa sér aftur að lögfræðistörfum. Þar á meðal máli sem kom nýlega inn á borð lögfræðistofu hans, um refinn Gústa Jr. sem Vísir hefur fjallað um.

Þuríður Harpa endurkjörin formaður Öryrkjabandalags Íslands
Á aðalfundi Öryrkjabandalags Íslands, sem haldinn var í Reykjavík 15. og 16 október, var Þuríður Harpa Sigurðardóttir endurkjörin formaður bandalagsins til tveggja ára. Þá voru tvær ályktanir samþykktar á fundinum.

Unglingar hrella íbúa í Vesturbænum og á Nesinu
Íbúar Vesturbæjar og Seltjarnarness hafa tjáð sig um það sem virðist vera alda slæmrar hegðunar unglinga. Unglingum er gefið að sök að berja ítrekað á hurðir og glugga og vekja með því ótta meðal íbúa.

Ærslabelgurinn óumdeildur sigurvegari kosninganna
Stefnt er að því að setja upp alls þrettán nýja ærslabelgi í Reykjavík á næsta ári í samræmi við niðurstöður í íbúakosningunni Hverfið mitt.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: ÍA - Víkingur 0-3 | Víkingur Íslands- og bikarmeistari 2021
Víkingur Reykjavík varð bikarmeistari í þriðja skiptið í sögu félagsins. Víkingur lagði ÍA 3-0 og endaði magnað keppnistímabil 2021 sem Íslands- og bikarmeistari.

Háaleiti og Bústaðir - hverfisskipulag í þágu íbúa
Kynning á hverfisskipulagi fyrir Háaleiti og Bústaði stendur nú yfir en borgarhlutinn, sem samanstendur af Bústaðahverfi, Fossvogi, Háaleiti og Múlum, er sá þriðji á eftir Árbæ og Breiðholti til að fá staðbundið skipulag fyrir sitt nærsamfélag.

Bætum rétt barna sem eiga tvö heimili
Á fundi borgarráðs lagði ég til fyrir hönd Flokks fólksins að reglur um strætókort handa nemendum í grunnskólum Reykjavíkurborgar yrðu rýmkaðar. Taka ætti mið af bæði lögheimili og búsetuheimili barns og að börn, sem sækja skóla í öðru skólahverfi en lögheimili þeirra segir til um, ættu einnig rétt á strætókorti.

Hverfisskipulag fjölgar bílastæðum við Bústaðaveg
Samkvæmt vinnutillögum hverfiskipulags mun bílastæðum fjölga við Bústaðaveg úr 400 í að minnsta kosti 500 stæði. Tillögurnar, sem eru nú í kynningar- og samráðsferli, gera ráð fyrir því að á svæði sem sem afmarkast af Grensásvegi i vestri og Réttarholtsvegi í austri geti risið blanda af atvinnuhúsnæði og íbúðum. Stærð þessa svæðis er 35 þúsund fermetrar og er byggingarmagn áætlað 18,5 þúsund fermetrar, þar af eru sjö þúsund fermetrar í bílakjöllurum.

Skilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn samstarfskonu í vinnuferð
Kona var í gær dæmd til tveggja mánaða fangelsisrefsingar, sem fresta skal til tveggja ára haldi hún almennt skilorð, fyrir að brjóta kynferðislega gegn samstarfskonu sinni í vinnuferð til Reykjavíkur árið 2019.

Þjónar gengu út af Snaps í síðustu viku: „Það er engan bilbug á okkur að finna“
Nær allt starfslið veitingahússins Snaps við Óðinstorg sagði starfi sínu lausu á dögunum vegna víðtækrar óánægju með stjórnarhætti nýs rekstrarstjóra. Í samtali við Vísi í vikunni sögðu fyrrverandi starfsmenn óánægjuna snúa að launakjörum, undirmönnum og samskiptavanda eftir stjórnendaskipi.

Eitruð könguló barst á heimili í Reykjavík með vínberjum
Eitruð könguló sem á rætur að rekja til Norður-Ameríku barst til Reykjavíkur í september í rauðum vínberjaklasa. Sérfræðingur er heillaður af dýrinu enda séu fá kvikindi jafn aðdáundarverð og köngulær.

„Þetta er skandall og meiriháttar skipulagslegt stórslys“
Stjórn Íbúasamtaka Grafarvogs hefur sent menntamálaráðherra og heilbrigðisráðherra athugasemd vegna fyrirhugaðrar byggingar nýs hjúkrunarheimilis á lóð Bogarholtsskóla í Grafarvogi. Skólameistari Borgarholtsskóla tekur undir athugasemdirnar og segir borgarstjóra ekki hafa svarað beiðnum sínum um fund vegna málsins í meira en tvö ár.

Börnin í sömu klípu og Jón Arnór fyrir 30 árum: „Aðstaðan er ekki boðleg“
Það ríkir neyðarástand hjá einni stærstu körfuknattleiksdeild landsins, Ármanni, vegna aðstöðuleysis í Laugardal. Jón Arnór Stefánsson hitti Gaupa í pínulitlum íþróttasal sem félagið notar og sagði aðstöðuna jafnvel enn verri en þegar hann neyddist til að sækja æfingar úr Laugardal í Vesturbæinn á sínum tíma.

Rakang Thai og Blásteini lokað: Erfið ákvörðun en ákveðinn léttir
Veitingastaðnum Rakang Thai og sportbarnum Blásteini í Hraunbænum var lokað í síðustu viku. Guðmundur Ingi Þóroddsson, eigandi staðanna, segir undanfarin ár hafa reynst mjög erfið í rekstri vegna Covid-19. Ákvörðunin hafi verið erfið en henni fylgi ákveðinn léttir.

Eldur í hannyrðastofu Borgaskóla
Eldur kom upp í Borgaskóla í Grafarvogi í gærkvöldi. Þegar slökkvilið bar að garði var brunaviðvörunarkerfið í gangi og vatnsúðakerfi einnig í hluta skólans.

„Gangi þeim vel að læra af þessu en ég vil fá borgað“
Ásmundur Helgason, annar eigandi kaffihússins Gráa kattarins, var mjög gagnrýninn á þau sem stóðu að framkvæmdum við Hverfisgötu árið 2019, við aðalmeðferð í dómsmáli eigandanna gegn Reykjavíkurborg. Eigendur krefjast 18,5 milljóna króna í skaðabætur frá borginni vegna framkvæmda sem stóðu yfir á Hverfisgötu lungann af árinu 2019. Hann líkti aðstæðunum á umræddu tímabili á Hverfisgötu við stríðsástand.

Á fimmtíu gítara og spilar á fullt af hljóðfærum
Það er með ólíkindum hvað Sigurjón Matthíasson, sem er nýorðin 70 ára getur spilað á mörg hljóðfæri því hann er alveg lamaður öðrum megin í líkamanum og getur því aðeins notað aðra höndina við spilamennskuna. Sigurjón á meðal annars fimmtíu gítara.

Gamli tíminn mætti þeim nýja við nýja viðbyggingu Gamla garðs
Isabel Alejandra Díaz og Björn Bjarnason, núverandi og fyrrverandi forsetar Stúdentaráðs Háskóla Íslands vígðu í dag nýja viðbyggingu elsta stúdentagarðs háskólastúdenta, Gamla Garðs.

Þessar tillögur urðu fyrir vali Reykvíkinga í íbúakosningunni Hverfið mitt
Niðurstöður úr íbúakosningunni Hverfið mitt liggja nú fyrir en metþátttaka var í kosningunni í ár. Þegar kosningunni lauk á hádegi var kosningaþátttakan rúm 16 prósent.

Aldrei fleiri tekið þátt og stór verkefni framundan
Íbúakosningunni Hverfið mitt í Reykjavík lauk klukkan 12 í dag en metþátttaka var í kosningunum í ár að sögn verkefnisstjóra. Nú verður hafist handa við að fara yfir niðurstöðurnar og undirbúa framkvæmd verkefna.

Segir starfsmenn hafa sinnt Fossvogsskólaverkefninu af fagmennsku og heilindum
Viðgerðirnar sem standa yfir á Fossvogsskóla eru flókið og ófyrirsjáanlegt verkefni og starfsfólk umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar hafa unnið starf sitt af fagmennsku og heilindum.

Ný íbúðabyggð við Bústaðaveg
Meðal vinnutillagna í hverfisskipulagi fyrir Háaleiti og Bústaði er að leyfa byggingu húsa meðfram Bústaðavegi en þar er mikið vannýtt land sem í dag fer í samsíða götur, umferðareyjur og bílastæði.