
Reykjavík

Loka verslun í Smáralind
Vodafone lokar verslun sinni í Smáralind í lok mánaðarins. Í staðinn munu viðskiptavinir geta farið í verslun Vodafone á Suðurlandsbraut 8 um helgar. Síðasti dagurinn í Smáralind er 29. desember og ný helgaropnun á Suðurlandsbraut hefst strax eftir áramót.

Einkaframtakinu sé ekki alltaf treystandi fyrir miklu svigrúmi í skipulagi
Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi Pírata segir augljóst að einkaframtakinu hafi ekki verið treystandi fyrir rúmum skipulagsheimildum í Breiðholti. Þess vegna séu reglur og kvaðir á skipulag mikilvægar. Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir reglur of strangar en tekur þó fram að mikilvægt sé að borgin hafi afskipti þegar það varði heildarhagsmuni.

Talið að hamri hafi verið beitt
Tveir voru handteknir og einn fluttur á slysadeild eftir vopnaða árás á Álfinum, krá í Breiðholti, seint í gærkvöldi. Samkvæmt heimildum fréttastofu er grunur um að hamri hafi verið beitt við árásina.

Um 360 nemendur sem tala 25 tungumál
Fellaskóli hlaut nýlega íslensku menntaverðlaunin fyrir verkefnið Draumaskólinn okkar. Verkefnið hófst árið 2020 sem tilraunaverkefni til fimm ára. Árangurinn af verkefninu hefur verið góður. Fleiri börn ná markmiðum um læsi en áður og fjöldi þeirra sem eru í tónlistarnámi hefur margfaldast.

Grunur um vopnaða árás á krá í nótt
Tveir voru handteknir í gærkvöldi eða í nótt vegna líkamsárásar á krá í Kópavogi eða Breiðholti. Grunur er á að vopnum hafi verið beitt við árásina. Lögregla var kölluð til vegna málsins og má gera ráð fyrir að málið sé nú rannsakað hjá þeim.

„Framsóknarlegt“ bakkaklór hjá borgarstjóra
Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, segir ummæli borgarstjóra um hæð og útlit umdeilds vöruhúss í Breiðholti „Framsóknarleg.“ Hún segir tillögur hans um að minnka umfang hússins bakkaklór.

Það þarf að kyngja klúðrinu
Við höfum öll getað sett okkur í spor íbúa í Breiðholtinu sem hafa fengið risavaxna geymslu, gluggalausa og flata, sem eina útsýni sitt. Tillitsleysið í þeirra garð þegar ákveðið var að reisa fimm hæða gímald var algert og óskiljanlegt.

Brotist inn og hjóli stolið fyrir tvær milljónir
Brotist var inn í íþróttavöruverslunina Sportís í Skeifunni í nótt og varningi stolið fyrir tæplega tvær milljónir króna.

„Ekki skipulagsslys heldur skemmdarverk“
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir stærðar vöruhús sem reist var í Breiðholti steinsnar frá stofugluggum íbúa í fjölbýlishúsi ekki vera skipulagsslys heldur skemmdarverk.

Eldur kom upp í vinnuskúr í miðborginni
Eldur kom upp í vinnuskúr við Vatnsstíg í miðborginni og er slökkviliðið búið að ráða niðurlögum hans.

Dyravörður grunaður um líkamsárás
Dyravörður í miðbænum er grunaður um líkamsárás í nótt. Lögregla rannsakað málið. Þá var einnig handtekinn vegna hótana við nágranna sinn í Grafarvogi, Mosfellsbæ eða Árbæ. Lögregla lagði hald á eggvopn á vettvangi.

Þetta var ekki skipulagsslys heldur skemmdarverk
Það er ótækt að stjórnendur Reykjavíkur og skipulagsmála í borginni segist vera undrandi, skilji ekkert í þessu, tali um „fíaskó” og segi framkvæmdir sem voru beinlínis skipulagðar af borginni vera í andstöðu við stefnu borgarinnar.

Festa kaup á áttatíu íbúðum fyrir eldra fólk
Leigufélag aldraðra og Brák íbúðafélag hafa komist að samkomulagi um að Brák kaupi öll þrjú fjölbýlishús Leigufélags aldraðra sem eru samtals 80 hagkvæmar leiguíbúðir fyrir eldra fólk. Með kaupunum er ætlunin að ná fram aukinni stærðarhagkvæmni og renna styrkari stoðum undir rekstur íbúðanna og áframhaldandi útleigu þeirra til tekju- og eignalægra eldra fólks.

„Kom mér algjörlega í opna skjöldu að sjá hvernig þetta lítur út“
Borgarstjóri segir hæð og útlit á umdeildu vöruhúsi í Breiðholti hafa komið sér algjörlega í opna skjöldu. Hann vill kanna hvort hægt sé að lækka húsið.

Veita almenningi innsýn í fjölbreytt störf
„Löggutíst“ er leið lögreglunnar til að færa almenningi fréttir af störfum lögreglu í rauntíma. Á samfélagsmiðlinum X mun lögregla segja frá öllum helstu verkefnum sem embættið fæst við.

Alvotech taki þátt í uppbyggingu en Reykjavík reki skólann
Líf Magneudóttir oddviti VG í borgarstjórn veltir fyrir sér afleiðingum þess að fyrirtæki hefji rekstur leikskóla. Færist starfsfólk yfir gæti það leitt til þess að mönnunarvandinn, rót vandans að hennar sögn, aukist.

Stakk samfanga ítrekað á meðan hann afplánaði átta ára dóm
Ingólfur Kjartansson hefur verið dæmdur til átta ára fangelsisvistar fyrir margvísleg brot framin í fangelsinu Litla-Hrauni, þar á meðal sérstaklega hættulega líkamsárás. Brotin framdi hann á meðan hann afplánaði annan átta ára dóm fyrir tilraun til manndráps. Ingólfur er 22 ára.

Játaði fjárdrátt hjá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur
Ari Hermóður Jafetsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Stangaveiðifélags Reykjavíkur, var í morgun dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fjárdrátt í starfi sínu fyrir félagið. Ari Hermóður játaði brot sín sem voru framin árin 2017 og 2018.

Segja öllum reglum fylgt við byggingu vöruhússins
Forsvarsmenn félagsins sem reisir nú stærðarinnar hús við Álfabakka 2 í Reykjavík, nágrönnum þess til nokkurs ama, segja framkvæmdina í fullu í samræmi við gildandi deiliskipulag og þær heimildir sem borgaryfirvöld hafa gefið út.

Borgarstjóri biðlaði til atvinnulífsins vegna leikskólavandans
Einar Þorsteinsson borgarstjóri segist hafa hvatt atvinnulífið til þess að hefja samtal við borgina um samvinnuverkefni við að brúa bilið milli fæðingarorlofs og innritun í leikskóla. Alvotech hefur þegar tilkynnt áform um að stofna þrjá leikskóla og fleiri atvinnurekendur hafa fundað með borginni.

Skipstjórinn fylgdist ekki með og stímdi á hafnarkant
Gáleysi skipstjóra hvalaskoðunarskips var talin orsök þess því var siglt á hafnarkant í Reykjavíkurhöfn í sumar. Þrátt fyrir að skipstjórinn væri í brúnni var hann ekki með athygli við stýrið samkvæmt niðurstöðum rannsóknarnefndar samgönguslysa.

„Mér finnst þetta bara ömurlegt“
„Ég skil íbúa mjög vel og mér finnst þetta bara ömurlegt,“ sagði Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi og formaður umhverfis- og skipulagsráðs, um risavaxið iðnaðarhúsnæði sem risið er í Breiðholti, þétt upp við fjölbýlishús.

Lögreglumanni ekki gerð refsing átta árum eftir að hann réðst á fanga
Landsréttur hefur staðfest sakfellingu lögreglumanns sem var ákærður fyrir líkamsárás gegn fanga í fangageymslu lögreglustöðvarinnar á Hverfisgötu þann 16. maí 2016. Honum er þó ekki gerð refsing í málinu.

Mannleg mistök hafi valdið því að beiðni til borgarinnar týndist
Lögfræðingur á umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar segist taka ábendingar Umboðsmanns Alþingis um aðgengi fólks að starfsfólki og þjónustu sviðsins alvarlega. Mannleg mistök hafi leitt til þess að gagnabeiðni frá borgara var ekki afgreidd í tvö ár.

Umboðsmaður gagnrýnir svörun og þjónustu Reykjavíkurborgar
Umboðsmaður Alþingis hefur það til skoðunar að hefja frumkvæðisathugun á aðgengi almennings að starfsmönnum og þjónustu umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar.

Hefur styrkt KR um 300 milljónir
Róbert Wessman stofnandi og forstjóri lyfjafyrirtækisins Alvotech hefur á síðustu árum styrkt íþróttastarf KR í gegnum fyrirtæki sín um tæplega 300 milljónir króna.

Síðastliðin tvö ár verið „alveg skelfileg“
Íbúi fjölbýlishúss í Breiðholti er allt annað en ánægður með framkvæmdir sem staðið hafa yfir á næstu lóð í meira en ár. Þegar framkvæmdum lýkur mun standa eftir mörg þúsund fermetra vöruhús, steinsnar frá stofuglugganum.

Breytir gömlu heilsugæslunni í sex íbúðir
Hekla fasteignir hefur keypt fasteign að Drápuhlíð 14 til 16 þar sem áður var heilsugæsla. Félagið er í eigu forstjóra Heklu, Friðberts Friðbertssonar. Heilsugæslan flutti í Skógarhlíð sumarið 2023. Eignina keypti Friðbert af Reykjavíkurborg og ríkissjóði á um 341 milljón.

Wok to Walk opnar á Smáratorgi
Alþjóðlega veitingakeðjan Wok to Walk opnaði fyrsta veitingastað sinn á Íslandi á Smáratorgi í dag. Tveir staðir til viðbótar verða opnaðir innan tíðar.

Þau vilja taka við af Helga Grímssyni
Tuttugu og tveir sóttu um starf sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar sem auglýst var laust til umsóknar í nóvember. Tilkynnt var í haust að Helgi Grímsson hefði ákveðið að láta af störfum.