Jafnréttismál

Ísland best í heimi?
Mörg telja að fullu jafnrétti sé náð hér á landi vegna þess að Ísland trónir gjarnan á toppi alþjóðlegra lista sem mæla stöðu jafnréttis meðal kvenna og karla. Ef við skoðum hins vegar stöðuna út frá einstaka þáttum birtist okkur önnur mynd.

Sigríður Th. Erlendsdóttir er látin
Sigríður Theodóra Erlendsdóttir sagnfræðingur er látin, 92 ára að aldri. Sigríður var brautryðjandi í rannsóknum á sögu kvenna og lagði með kennslu sinni og rannsóknum grunn að kvennasögu sem fræðigrein hér á landi.

Stjórnandi hjá Chelsea rekinn: „Konur þurfa að þola daglega áreitni í þessum geira“
Chelsea hefur sagt upp viðskiptastjóra sínum eftir aðeins mánuð í starfi vegna óviðeigandi skilaboða hans til kvenkyns starfsmanns fyrirtækis sem vann með félaginu. Samtök kvenna í fótbolta í Bretlandi segja málið eitt af fjölmörgum, sem fæst hver eru tilkynnt.

Kvennalið KR hafi ekki getað æft því karlaliðið var erlendis
Kvennalið KR var til umræðu í Bestu mörkunum á Stöð 2 Sport í gær. Þar kom fram að liðið hafi ekki getað æft á meðan karlalið félagsins var erlendis í keppnisferð. Allir með lyklavöld að KR-heimilinu hafi verið ytra með körlunum.

Fráfarandi þjálfari KR axlar ábyrgð „fyrst það er lítið um það“
Arnar Páll Garðarsson, sem þjálfaði fallið kvennalið KR í sumar en mun ljúka störfum í lok tímabils, segist eiga sinn þátt í því að börurnar voru ekki mannaðar í umtöluðum leik KR og Selfoss í Bestu deild kvenna á sunnudag.

Alvarleg teikn á lofti – áskorun til íslenskra stjórnvalda
Stöðugar fréttir af auknu hatri og óþoli í garð hinsegin fólks á Íslandi eru alvarleg teikn á lofti sem bregðast verður við. Í morgun var meðal annars fjallað um áhyggjur Mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs Reykjavíkurborgar af stöðu hinsegin barna og ungmenna sem hafa í auknum mæli verið að segja frá alvarlegum hótunum og aðkasti innan veggja skóla.

Látum ekki deigan síga í baráttunni
Landsnefnd UN Women á Íslandi lætur eina ferðina enn verulega um sig muna innan UN Women fjölskyldunnar með nýju söfnunarátaki. Að þessu sinni ríður íslenska landsnefndin á vaðið og hrindir úr vör herferð til að safna fjármunum í hinseginsjóð UN Women.

Íslenskt vinnuumhverfi er ekki jafnréttisparadís
Í mörg ár hefur verið klifað á þeirri hugmynd að Ísland sé jafnréttisparadís. Á dögunum birtist okkur enn önnur sprungan á þeirri ímynd og í þetta skiptið var hún ansi stór. Þriðjungur kvenna á íslenskum vinnumarkaði hefur orðið fyrir kynferðislegri áreitni eða ofbeldi á vinnustað einhvern tímann á lífsleiðinni. Þetta kom fram í stórri rannsókn um umfang áreitni og ofbeldis gegn konum á íslenskum vinnumarkaði. Niðurstöðurnar voru birtar í tímaritinu Lancet.

Alltaf að muna að hafa gaman, annars er svo leiðinlegt
„Ég hugsa jákvætt og nota húmor, þannig afkasta ég sem mest og tekst á við áskoranir,“ segir Anna Steinsen, einn eiganda KVAN, meðal annars þegar Atvinnulífið sækir hjá henni innblástur og góð ráð um það, hvað kom henni á þann stað sem hún er á í dag.

„Þegar ég flutti heim úr námi fannst mér ég vera frábær“
„Þegar ég flutti heim úr námi fannst mér ég vera frábær og hélt að öll fyrirtæki Íslands biðu spennt eftir að fá mig heim. En það varð ekki alveg raunin,“ segir Sigríður Theódóra Pétursdóttir framkvæmdastjóri auglýsingastofunnar Brandenburg í léttum dúr.

KSÍ fær Barnaheill með sér í lið til forvarnarfræðslu innan félaga
Knattspyrnusamband Íslands hefur samið við samtökin Barnaheill um tveggja ára fræðsluverkefni sem ætlað er að fyrirbyggja ofbeldi gegn börnum og auka vitund innan aðildarfélaga KSÍ. Verkefnið hefst í haust.

Efast um að áhugi sé fyrir ofbeldisforvörnum innan KSÍ
Kynjafræðikennari efast um að áhugi sé fyrir jafnréttismálum og ofbeldisforvörnum innan KSÍ. Hún segir að ekki hafi verið gert nóg í málum KSÍ frá því að nýr formaður tók við sambandinu.

Brutu jafnréttislög þegar konu var sagt upp vegna kynferðislegra tilburða
Strætó bs. braut gegn jafnréttislögum þegar stjórnendur sögðu konu upp störfum eftir að kvartað var yfir óviðeigandi skilaboðum hennar til samstarfsmanns. Þetta er niðurstaða kærunefndar jafnréttismála en fjallað er um málið í nýrri ársskýrslu nefndarinnar.

Bein útsending: Staða hinsegin fólks á vinnumarkaði
Samtökin '78, BHM, ASÍ, BSRB kynna rannsókn á stöðu hinsegin fólks á íslenskum vinnumarkaði á Hinsegin dögum í dag.

„Vil bara að þau séu sett til hliðar“
Arndís Hrund Guðmarsdóttir notar hjólastól og hefur upp á síðkastið lent í því í að komast ekki ferðar sinnar vegna rafhlaupahjóla sem búið er að leggja þvert yfir gangstéttina. Hún hefur ekkert á móti hjólunum sjálfum en telur menningarbreytingar þörf svo fólk leggi hjólunum betur.

„Þessi dæmi koma við mig og sýna svart á hvítu að það þarf klárlega að gera betur í þessum málum“
Lilja D. Alfreðsdóttir, menningarmálaráðherra, segir að fréttir um þjónustuleysi við heyrnarlaus börn komi við sig og segir jafnframt að gera þurfi betur þegar kemur að þjónustu við heyrnarlausa. Hún segir að stjórnvöld muni í samstarfi við sveitarfélögin einhenda sér í að framkvæma aðgerðaráætlun með það að markmiði að gera betur í málaflokknum.

Kona í aðalhlutverki og færri niðrandi brandarar í GTA VI
Grand Theft Auto VI verður fyrsti leikur tölvuleikjaseríunnar vinsælu með konu í stóru aðalhlutverki. Persónuvalið er hluti af yfirstandandi menningarbreytingu innan Rockstar Games sem framleiðir leikinn en fyrirtækið ætlar jafnframt að fækka niðrandi bröndurum um jaðarhópa í leiknum.

Að minnsta kosti þrjár fjölskyldur heyrnarlausra barna flúið land á síðustu tveimur árum vegna þjónustuleysis
Að minnsta kosti þrjár fjölskyldur heyrnarlausra barna hafa flúið land vegna skorts á þjónustu við börnin hér á landi. Formaður Félags heyrnarlausra segir að lögum um íslenskt táknmál sé ekki nægilega framfylgt og ábyrgð yfir málaflokknum allt of dreifða.

Kærir leikskóla heyrnarlauss sonar síns: Stundum hafi hann engan til að eiga samskipti við
Móðir heyrnarlauss drengs treystir sér oft ekki til að senda son sinn á leikskólann þótt skólinn sérhæfi sig í að mæta þörfum heyrnarlausra barna. Stundum hafi drengurinn engan til að eiga samskipti við þar sem oft vanti táknmálstalandi starfsmann á vakt. Hún hefur kært skólann til menntamálaráðuneytisins og óttast að þurfa að flytja út fyrir landsteinana í leit að þjónustu fyrir börnin.

Hatur eins og þetta þoli illa dagsljósið
Pétur G. Markan, biskupsritari og Margrét Lilja Vilmundardóttir, prestur í Fríkirkjunni Hafnarfirði fengu dularfullt bréf inn um lúguna nú á dögunum. Í bréfinu má sjá fordómafulla orðræðu gagnvart hinsegin samfélaginu og segja þau bréfið sýna hversu mikilvægt sé að halda baráttunni áfram.

„Valdakerfin okkar eru enn að bregðast þolendum“
Druslugangan var gengin í dag í tíunda sinn eftir tveggja ára hlé vegna heimsfaraldurs. Hundruð voru saman komin við Hallgrímskirkju til að ganga niður að Austurvelli til samstöðufundar.

Druslugangan haldin í tíunda sinn
Druslugangan var haldin í tíunda sinn í dag eftir tveggja ára hlé. Mikill fjöldi fólks safnaðist saman við Hallgrímskirkju og gekk að Austurvelli þar sem var haldinn samstöðufundur með ræðuhöldum og tónlistarflutningi.

RÚV og aðgengisstefna
Fyrir ekki svo löngu síðan var skipuð svokölluð aðgengisnefnd RÚV sem gaf út aðgengisstefnu Ríkisútvarpsins. Í umræddri aðgengisstefnu er lögð áhersla á að fjölbreytileiki í samfélaginu endurspeglist í miðlum RÚV.

FIFA ætlar tvöfalda verðlaunafé á HM kvenna 2023 | Styrktaraðilar sjá möguleikana í kvennaknattspyrnu
Verðlaunafé á næsta heimsmeistaramóti kvenna í knattspyrnu gæti farið yfir 60 milljónir Bandaríkjadala samkvæmt aðalritara FIFA, Fatma Samoura.

Rangt að ákveða að hljómsveitir séu ekki starfandi án þess að heyra í þeim
Elíza Geirsdóttir Newman segir rangt af skipuleggjanda tónleikanna Rokks í Reykjavík að ákveða að Kolrassa krókríðandi væri ekki starfandi án þess að tékka á því. Hún segir tónlistarmannaúrvalið á tónleikunum tímaskekkju og til að breyta karlastemmingu í rokki þurfi að gefa konum pláss.

Ekki rétt að engar konur spili á umdeildum tónleikum
Tónleikarnir Rokk í Reykjavík hafa vakið athygli vegna algjörs skorts á konum í hópi fjörutíu tónlistarmanna á auglýsingaplakati tónleikanna. Einn skipuleggjenda segir umræðuna bjagaða, það sé ekki rétt að engar konur komi fram á tónleikunum og að skipuleggjendur séu að vinna í því að bæta hljómsveitum með konum við.

Konur með um 86 prósent af heildarlaunum karla
Konur sem vinna fulla vinnu eru með um 86 prósent af heildarlaunum karla, en launamunurinn er mestur hjá ríkinu. Grunntímakaup hefur hækkað töluvert á þremur árum, eða um tæp 23 prósent.

100 ár liðin frá róttækum sigri Kvennalistans
„Fyrstu konurnar, brautryðjendurnir, verða auðvitað fyrir ýmsu hnjaski, aðeins vegna þess að þær eru konur – en slíkt má ekki setja fyrir sig. Þegar konum fjölgar á Alþingi Íslendinga hverfur það, að ráðist sé á þær sérstaklega af því, að þær eru konur.“

Þurfum að fara varlega í að halda að við séum best
„Landslagið á Íslandi hefur breyst mikið síðustu árin og nú eru um 15% þjóðarinnar íbúar af erlendum uppruna. Samt erum við ekki að ræða nógu mikið um kynþátt, þjóðerni eða stöðu innflytjenda og tungumálið hefur ekki fylgt eftir þessum breytingum,“ segir Charlotte Biering hjá Marel.

Engin lagaleg skilgreining á orðinu kona
Orðið kona er ekki skilgreint í lögunum og engin lagaleg skilgreining er til á því orði.