Sundlaugar og baðlón
„Ég er bara þrjóskari en andskotinn“
Sumarbústaðaeigandi í Grímsnes- og Grafningshreppi sem brá í brún þegar honum var gert að greiða margfalt verð fyrir árskort í sund og líkamsrækt á við þá sem skráðir eru með lögheimili í sveitarfélaginu fagnar þeim úrskurði innviðaráðuneytisins að mismununin sé ólögleg.
Gjaldskrá sundlaugarinnar í Grímsnesi er ólögmæt
Innviðaráðuneytið hefur úrskurðað að gjaldskrá sveitarfélagsins Grímsnes- og Grafningshrepps fyrir sundlaug og íþróttamiðstöðina Borg sé ekki í samræmi við jafnræðis- og meðalhófsreglu stjórnsýsluréttar og þar af leiðandi ólögmæt.
Tvöfaldur verðmunur á dýrustu og ódýrustu sundlauginni
Sundlaugarnar tvær á Akranesi eru ódýrustu sundlaugar landsins. Lýsulaug á Snæfellsnesi og Skeiðalaug í uppsveitum Árnessýslu eru þær dýrustu. Verðmunurinn er rúmlega tvöfaldur.
„Maður talar ekki svona við tólf ára barn“
Tólf ára stelpa varð fyrir aðkasti ásamt frænku sinni af hálfu sundlaugargests í Grafarvogslaug í gær vegna uppruna þeirra. Faðir stelpunnar kveðst gáttaður á því að einhver leyfi sér að tala á slíkan hátt við barn.
Sjáðu hversu margir eru í sundi á hverjum tíma
Nýr vefur Reykjavíkurborgar sem ber nafnið Gagnahlaðborðið gerir notendum kleift að vita hversu margir sundlaugargestir eru í sundlaugum Reykjavíkur hverju sinni.
Sundþyrstir biðu eftir starfsfólki sem vissi ekki að það mætti mæta
Hópur fólks dreif sig að sundlaug Kópavogs í morgun þegar fregnir bárust af því að verkfalli BSRB hefði verið aflýst. Starfsfólk sundlaugarinnar vissi hins vegar ekki af því og hópurinn kom að læstum dyrum.
36 sundlaugum lokað og fjöldi íþróttahúsa líka
Verkfallsaðgerðir um 2500 félagsmanna BSRB í 29 sveitarfélögum verða meðal annars til þess að íbúar munu ekki komast í sund í sveitarfélagi sínu á meðan verkfallsaðgerðum stendur. Viðræður við Samband íslenskra sveitarfélaga eru í hnút og ekki hefur verið boðað til næsta fundar eftir að upp úr slitnaði í viðræðum í nótt.
Rennibrautirnar á Akureyri lokaðar: „Auðvitað snúa einhverjir svekktir frá“
Stóru rennibrautunum í Sundlaug Akureyrar, Trektinni og Flækjunni, var lokað síðastliðinn þriðjudag vegna viðhaldsframkvæmda og er reiknað með að framkvæmdir standi í tvær vikur.
Sundlaugar lokaðar á langþráðum sólskinsdegi
Skellt var í lás í mörgum sundlaugum úti á landi í morgun vegna verkfalla starfsmanna BSRB sem starfa í íþróttamiðstöðvum og sundlaugum. Lokað verður fram á þriðjudag en að óbreyttu hefjast ótímabundin verkföll mánudaginn 5. júní.
Óttast allsherjarverkfall: „Þau vilja ekkert tala um þetta“
Sundlaugum og íþróttahúsum á landsbyggðinni verður lokað um helgina vegna verkfalls BSRB og leikskólum skellt aftur í lás eftir helgi. Bæjarstjóri Mosfellsbæjar segir alvarlega stöðu að teiknast upp og sýnir ósætti félagsmanna skilning. Trúnaðarmaður telur stefna í ótímabundið verkfall miðað við skilningsleysi viðsemjanda.
112 milljóna hagnaður hjá Skógarböðunum
Baðlónið Skógarböðin, sem staðsett er í Vaðlaskógi í Eyjafirði, hagnaðist um yfir hundrað milljónir á síðasta ári, þrátt fyrir að lónið hafi ekki opnað fyrr en í maí í fyrra. Gestafjöldi hefur verið meiri en búist var við í upphafi en lónið hefur tekið á móti yfir hundrað þúsund gestum frá því það opnaði fyrir ári síðan.
Nauðsynlegt að laga gufulögnina á ný til að geta haldið úti sundkennslu
Bæjarráð Hveragerðisbæjar hefur falið Geir Sveinssyni bæjarstjóra að leita leiða til að lagfæra gufulögn sem liggur að Sundlauginni í Laugarskarði í bænum. Gufulögnin hefur lengi ekki annað notkuninni sem verður til þess að yfir kaldasta tímann á veturna er ekki nægur hiti á lauginni sem hefur orðið til þess að ítrekað hefur þurft að fella niður sundæfingar.
Kviknaði í sánu eftir að ofn losnaði
Eldur kom upp í sánu í Vesturbæjarlaug í dag. Forstöðumaður sundlaugarinnar segir starfsmenn hafa brugðist fljótt við og slökkt eldinn. Hún er vongóð að sánan opni aftur á næstu dögum, jafnvel á morgun ef allt gengur upp.
Støre í sundi og Macron á Þingvöllum
Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, heimsótti Sundhöll Reykjavíkur í gær og skellti sér í heita pottinn. Emmanuel Macron, forseti Frakklands, fór á Þingvelli í morgun ásamt Dúa J. Landmark og þjóðgarðsverði.
Verkföll boðuð í sundlaugum um hvítasunnuhelgi
Sundlaugar í átta sveitarfélögum á landsbyggðinni verða lokaðar um hvítasunnuhelgina eftir að starfsfólk sundlaga og íþróttamannavirkja samþykktu að leggja niður störf í atkvæðagreiðslu sem lauk í dag. Þeir bætast í hóp hátt í 1.600 félagsmanna BSRB sem eru á leið í verkfall.
Vilja nýjan pott og segja þann gamla vera slysagildru
Rúmlega sex hundruð íbúar á Kársnesi hafa skorað á bæjaryfirvöld í Kópavogi að útbúa nýjan kaldan pott og infrarauðan klefa í Kópavogslaug. Talsmaður hópsins segir núverandi pott vera slysagildru. Bæjarstjóri segir tillit verða tekið til ábendingana í vinnu næstu fjárhagsáætlunar.
„Raunverulegur vandi“ í Laugardalslaug um þessar mundir
Alvarleg staða er uppi í Laugardalslaug vegna þess að gestir gleyma að skila aðgangsarmböndum. Dæmi eru um að fólk hafi tekið tugi armbanda með sér heim. Forstöðumaður leitar nú leiða til að einfalda aðgangskerfi laugarinnar.
Gufubaðsklúbbarnir í Neskaupstað sjá fram á gjaldskrárhækkun
Svokallaðir „gufubaðsklúbbar“ sem starfandi eru í Neskaupstað sjá fram á að dýrara verði fyrir þá að hittast utan hefðbundins opnunartíma sundlaugarinnar í bænum. Átta slíkir klúbbar eru nú starfræktir í Neskaupstað.
Stórefla öryggi í sundlaugum eftir andlát ungs manns
Borgarráð hefur samþykkt þrettán tillögur um bætingu öryggis í sundlaugum Reykjavíkur, umfram það sem lög og reglur kveða á um. Tillögurnar voru samþykktar í nafni Guðna Péturs Guðnasonar, sem lést í Sundhöll Reykjavíkur í janúar árið 2021.
Sundlaugar ríka fólksins mikil umhverfisógn
Ríkt fólk notar um fimmtíu sinnum meira vatn en fátækt fólk. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri rannsókn vísindamanna við Reading háskóla í Bretlandi. Vatnsnotkun ríka fólksins hefur verið alvarlega vanmetin umhverfisógn.
Allt fullt af fólki í sumarbústöðum yfir páskana
Allir sumarbústaðir, sem skipta þúsundum í Uppsveitum Árnessýslu eru fullir af fólki nú um páskahelgina. Sundlaugarnar eru vinsælasti afþreyingastaður fólksins í fríinu sínu.
Loka sundlauginni á Sauðárkróki vegna kuldakastsins
Búið er að loka suðndlauginni á Sauðárkróki vegna kuldakastsins sem gengið hefur yfir í norðanáttinni. Þrýstingur hefur fallið í hitaveitu í bænum á síðustu dögum, fyrst í efri byggðum en síðar í öllum bænum.
Vilja sundlaugamenningu og laufabrauðsgerð á lista UNESCO
Menningar- og viðskiptaráðherra kynnti tillögu fyrir ríkisstjórninni um að laufabrauðsgerð og sundlaugamenning verði tilnefnd á skrá menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna yfir menningarerfðir.
Minnst níu hafa látist í sundlaugum hérlendis
Frá árinu 2000 hafa að minnsta kosti níu manns látist í sundlaugum hér á landi. Þrír hafa látist í sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu á síðustu þremur mánuðum. Hafþór B. Guðmundsson sérfræðingur á sviði sund og björgunarmála hefur kallað eftir að komið verði á laggirnar sérstakri rannsóknarnefnd sundlaugarslysa.
Tvö andlát í sundlaugum höfuðborgarsvæðisins á fjórum dögum
Konan sem fannst meðvitundarlaus í Lágafellslaug í gærmorgun er látin. Annað dauðsfall varð í sundlaug Kópavogs á föstudag þegar kona á níræðisaldri lést.
Fannst meðvitundarlaus í Lágafellslaug
Kona fannst meðvitundarlaus í Lágafellslaug í Mosfellsbæ í morgun. Hún var flutt á slysadeild en ekki er vitað um líðan hennar.
Vilja félagsmiðstöð og bókasafn í Laugardalsstúku
Borgarráð hefur samþykkt að bókasafn og félagsstöðvar- og menningarrými verði útbúið í stúku Laugardalslaugar fyrir Laugarnes- og Laugarlækjaskóla. Blásið verður til hugmyndakeppni um útfærslu hugmyndarinnar.
Diskó, slökun og zumbafjör í sundlaugum borgarinnar í kvöld
Sundlauganótt verður haldin víðsvegar um höfuðborgarsvæðið í dag eftir tveggja ára hlé. Öll sveitafélög á höfuðborgarsvæðinu taka þátt en alls ellefu sundlaugar verða opnar og bjóða ókeypis aðgang.
Miðnæturopnunin „krefjandi“ og kostnaðarsamari en gert var ráð fyrir
Lenging opnunartíma Laugardalslaugar í Reykjavík á fimmtudögum hefur reynst kostnaðarsamari en áætlanir gerðu ráð fyrir í upphafi. Þá hefur yngra fólk helst nýtt sér miðnæturopnunina og hefur það oft reynst krefjandi fyrir starfsfólk laugarinnar að ráða við aðstæður. Ekki er fjármagn til að halda miðnæturopnuninni áfram.
Opna allar sundlaugarnar á morgun en Árbæjarlaug á laugardag
Reykjavíkurborg stefnir á að opna sundlaugar í höfuðborginni klukkan 15 á morgun ef frá er talin Árbæjarlaug. Þar verða dyrnar opnaðar klukkan níu á laugardagsmorgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.