Vinnumarkaður

Drífa: Samskiptin við Sólveigu og Ragnar hafa gert störfin óbærileg á köflum
Drífa Snædal fráfarandi forseti Alþýðusambands Íslands segir að samskiptin við formenn VR og Eflingar hafi gert störf hennar á köflum óbærileg. Hún hafi ekki getað ímyndað sér að sitja áfram við þessar aðstæður. Á ýmsu hefur gengið innan hreyfingarinnar síðustu misseri. Drífa segir: „Ég hef oft þurft að bíta í tunguna á mér.“

Drífa segir af sér embætti forseta ASÍ
Drífa Snædal hefur sagt af sér embætti forseta Alþýðusambands Íslands. Vegna átaka innan verkalýðshreyfingarinnar kveðst hún ekki treysta sér til að vinna áfram innan sambandsins. Skynsamlegra sé því vegna kjaraviðræðna og undirbúningi þingsins, að hætta sem fyrst.

Starfsfólk andlega þreyttara í blönduðu fyrirkomulagi
Fjarvinna er komin til að vera, það er öllum ljóst. Hins vegar eru vísbendingar um að mögulega þurfi að skoða betur það fyrirkomulag sem almennt er kallað „blandað" (e. hybrid).

Öllum sagt upp hjá Fagus
Öllum átta starfsmönnum trésmiðjunnar Fagus í Þorlákshöfn hefur verið sagt upp störfum. Fagus er í eigu Bitter ehf., móðurfélags Parki Interiors og býðst starfsfólki að þiggja önnur störf hjá móðurfélaginu eða vinna uppsagnarfrest.

Svigrúm til launahækkana er á þrotum, segir hagfræðingur forsætisráðuneytisins
Svigrúmið sem myndaðist fyrir launahækkanir á árunum eftir fjármálahrunið, einkum vegna uppgangs ferðaþjónustu og lítillar alþjóðlegrar verðbólgu, er á þrotum og ólíklegt er að aðstæður verði jafnhagfelldar í bráð. Þetta skrifar Arnór Sighvatsson, hagfræðingur hjá forsætisráðuneytinu og fyrrverandi aðstoðarseðlabankastjóri, í greinargerð sem var unnin að beiðni þjóðhagsráðs.

Formaður VR slær verkföll í haust ekki út af borðinu
Formaður VR segir stjórnvöld hafa sofið á verðinum í húsnæðismálum og ekki hafa efnt loforð úr síðustu kjarasamningum. Hann segir verkalýðshreyfinguna klára í slaginn og slær verkföll ekki út af borðinu.

Furðar sig á gagnrýni leigubílstjóra
Innviðaráðherra furðar sig á gagnrýni leigubílstjóra á frumvarp ráðherrans um leigubílaakstur. Með frumvarpinu er ætlað að rýmka mjög þau skilyrði sem þarf til að reka leigubíl.

Gleðin, samstaðan og jafnréttið
Fyrstu niðurstöður skýrslu um stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði sem voru kynntar á sameiginlegum viðburði ASÍ, BHM og BSRB í gær ættu að vekja okkur öll til umhugsunar um staðalímyndir og fordóma sem stuðla að misrétti.

Hommar með þriðjungi lægri árslaun en gagnkynhneigðir karlar
Samkynhneigðir karlmenn eru með þriðjungi lægri árslaun en gagnkynhneigðir samkvæmt nýrri rannsókn. Félags- og vinnumarkaðsráðherra segir niðurstöðurnar sláandi og boðar aðgerðir.

Bein útsending: Staða hinsegin fólks á vinnumarkaði
Samtökin '78, BHM, ASÍ, BSRB kynna rannsókn á stöðu hinsegin fólks á íslenskum vinnumarkaði á Hinsegin dögum í dag.

Atvinnuleysi jókst um 0,5 prósent milli mánaða
Atvinnuleysi jókst um 0,5 prósentustig á milli maí og júní samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands en atvinnuleysi mældist fjögur prósent í júní. Hlutfall starfandi einstaklinga lækkaði um 1,4 prósentustig.

Seðlabankinn fóðrar fjármálahýenurnar
Enn og aftur kemur Seðlabankinn og hótar launafólki illilega vegna komandi kjarasamninga en rétt er að geta þess að einungis 12 vikur eru þar til kjarasamningar á hinum almenna vinnumarkaði renna út.

Yfirklór SFS – Fiskvinnslufólk á ofurlaunum
Það þarf ekki að koma á óvart að Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) grípi til varna þegar við horfum enn og aftur upp á frekari samþjöppun í sjávarútvegi nú þegar Síldarvinnslan hefur eignast sjávarútvegsfyrirtækið Vísi hf. í Grindavík

Staðreynd að margt starfsfólk upplifir þunglyndi eftir sumarfrí
Rannsóknir hafa sýnt að fólk er mun ánægðara áður en það fer í frí í samanburði við þegar fríinu lýkur. Sem gæti hljómað skringilega því það er einmitt eftir frí sem við eigum að vera svo úthvíld og endurnærð.

Enginn sé tilbúin til að sýna samfélaginu og launafólki vott af virðingu
Viðskiptabankarnir þrír hafa hagnast um ríflega 32 milljarða það sem af er ári. Formaður VR segir galið að kalla eftir hófsemi af hálfu launafólks fyrir komandi kjaraviðræður í ljósi stöðunnar. Seðlabankinn og stjórnvöld þurfi að láta af dekri við fjármagnseigendur og hugsa um fólkið í landinu.

Kostnaður Festar vegna starfsloka Eggerts um 76 milljónir
Smásölufyrirtækið Festi, sem rekur meðal annars eldsneytisstöðvar undir merkjum N1 og verslanir Krónunnar og Elko, gjaldfærir hjá sér kostnað sem nemur samtals um 76 milljónum króna á þriðja ársfjórðungi vegna samkomulags sem stjórn félagsins gerði í byrjun júní vegna starfsloka Eggerts Þórs Kristóferssonar, fráfarandi forstjóra.

Að langa til að skipta um vinnu en þora ekki
Það fylgir mannlegu eðli að hræðast stundum óvissuna eða eitthvað nýtt. Þessi ótti má þó ekki yfirtaka neitt hjá okkur, enda kemur oftast í ljós að hann er óþarfur með öllu.

Vinnandi fólk í landinu sé látið bera byrðina þrátt fyrir tal um samstöðu
Verðbólga nálgast nú tíu prósent og hefur ekki mælst hærri í þrettán ár. Framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins segir þróunina hafa gríðarleg áhrif fyrir komandi kjaraviðræður. Það komi ekki til greina að félagsmenn beri byrðina einir.

Hélt það væri nóg komið en íslenska ríkið áfrýjar
Kjara- og mannauðssýsla ríkisins hefur áfrýjað dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli sem blaðamaðurinn Björn Þorláksson höfðaði gegn stofnuninni. Björn segist ekki hafa áhyggjur af því að dómsniðurstaðan muni breytast fyrir Landsrétti.

Meðaltekjur 640 þúsund krónur á mánuði
Heildartekjur einstaklinga voru um 7,7 milljónir króna að meðaltali árið 2021. Það gerir um 640 þúsund krónur á mánuði. Miðgildi tekna var lægra, um fimm hundruð þúsund krónur á mánuði.

Vill leyfa heilbrigðisstarfsfólki að vinna lengur
Heilbrigðisráðuneytið hefur sett áform um breytingu á lögum um heilbrigðisstarfsmenn í samráðsgátt. Breytingunni er ætlað að mæta mönnunarvanda í heilbrigðiskerfinu með því að heimila heilbrigðisstofnunum að ráða fólk eftir sjötíu ára aldur.

Misráðnu ríkisútgjöldin sem aldrei urðu
Himinn og haf skilja að ástandið á vinnumarkaðinum í dag og það sem var í byrjun árs 2021. Samkvæmt mælingu Vinnumálastofnunar í júní mældist atvinnuleysi einungis 3,3 prósent en til samanburðar nam það 11,6 prósentum í janúar á síðasta ári. Atvinnustig hefur til allrar hamingju batnað mun hraðar en nokkurn gat órað fyrir þegar hagkerfið var í djúpri lægð.

Atvinnuleysi hefur minnkað hratt en er mest á Suðurnesjum
Samkvæmt Hagsjá Hagfræðideildar Landsbankans hefur atvinnuleysi minnkað hraðar en reiknað var með en Hagsjáin vitnar í tölur Vinnumálastofnunar. Ekki séu margar vísbendingar um að atvinnuleysi muni aukast mikið.

Konur með um 86 prósent af heildarlaunum karla
Konur sem vinna fulla vinnu eru með um 86 prósent af heildarlaunum karla, en launamunurinn er mestur hjá ríkinu. Grunntímakaup hefur hækkað töluvert á þremur árum, eða um tæp 23 prósent.

Fjárhagsstaða heimilanna óvenju sterk og tekjur háar í alþjóðlegum samanburði
Fjárhagsstaða heimilanna er óvenju sterk og tekjur háar í alþjóðlegum samanburði, en grunntímakaup hefur hækkað um tæp 23 prósent á vinnumarkaði.

Atvinnulausum fækkað um þúsund milli mánaða
Skráð atvinnuleysi var 3,3 prósent í júní og minnkaði úr 0,6 prósent frá því í maí. Að meðaltali fækkaði atvinnulausum því um 1.042 frá maímánuði.

Til skoðunar hvort auglýsing Áslaugar sé lögmæt
Menningarráðherra skoðar nú hvort starfsauglýsing annars ráðuneytis þar sem ekki er krafist íslenskukunnáttu stangist á við lög. Forsætisráðherra hefur miklar áhyggjur af stöðu tungumálsins og gagnrýnir þá þróun að innlend fyrirtæki velji sér ensk heiti í ríkari mæli.

Katrín um endurgreiðslu launa: „Ef einhver ætti að ráða við það þá erum það við“
Forsætisráðherra segir eðlilegt að þeir embættismenn sem hafi fengið ofgreidd laun síðustu þrjú ár endurgreiði hluta þeirra til ríkisins, sérstaklega í ljósi þess að þeir hafi hve hæst laun hjá hinu opinbera.

Tilkynnt um eina hópuppsögn í júní
Tilkynnt var um eina hópuppsögn til Vinnumálastofnunar í júní þar sem 39 starfsmönnum var sagt upp störfum í opinberri stjórnsýslu vegna flutninga á starfsemi milli stofnana.

Nýtt ár á nýja vinnumarkaðnum
Júlí er genginn í garð og þar með hin eiginlegu áramót á vinnumarkaði í huga margra. Launafólk tekur fríinu fagnandi enda krefjandi tímar að baki, þar sem glímt hefur verið við heimsfaraldur, atvinnuleysi og fjárhagslega óvissu. Öll vonum við að bjartari tímar séu framundan, þó vissulega séu ýmsar blikur á lofti.