
Kynferðisofbeldi

Fullyrðing um nauðgun innan marka tjáningarfrelsisins
Kona nokkur hefur verið sýknuð af kröfu fyrrverandi kærasta um miskabætur og fangelsisrefsingu vegna ummæla sem hún lét falla á samfélagsmiðlunum Facebook og Instagram árið 2022. Þar sakaði hún ónafngreindan karlmann um nauðgun en fyrrverandi kærastinn taldi augljóst að um sig væri að ræða.

Leikkonu sem tældi konur í sértrúarsöfnuð sleppt úr fangelsi
Allison Mack, fyrrverandi leikkonu, sem tældi konur í meintan sjálfshjálparhóp, var sleppt úr fangelsi í Kaliforníu í Bandaríkjunum í vikunni. Hún hlaut dóm fyrir fjárkúgun en játaði að hafa hjálpað leiðtoga hópsins að finna konur sem hann misnotaði kynferðislega.

„Þetta er í lagi, ég hef sofið hjá 10.000 konum“
Knattspyrnumaðurnn Benjamin Mendy fullvissaði 24 ára gamla konu sem hann nauðgaði um að það væri í lagi því hann hafði „sofið hjá 10.000 konum“ á lífsleiðinni.

Maðurinn muni ekki koma nálægt reiðskólanum framar
Þroskaskertur maður, sem er sagður hafa brotið kynferðislega á níu ára stúlku með fötlun í sumarbúðunum í Reykjadal í fyrrasumar, mun ekki koma nálægt starfsemi Reiðskóla Reykjavíkur lengur. Hann var aldrei starfsmaður skólans en aðstoðaði við umhirðu hrossa eftir hádegi og segir skólinn hann aldrei hafa verið einan með nemendum.

Maður sem er sagður hafa brotið á stúlku vinnur enn í kringum börn
Þroskaskertur maður, sem er sagður hafa brotið kynferðislega á níu ára stúlku með fötlun í sumarbúðunum í Reykjadal í fyrrasumar, vinnur í dag í reiðskóla þar sem börn sækja námskeið.

Trump kærir konuna sem hann braut á kynferðislega
Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, hefur kært E Jean Carroll sem hann var dæmdur fyrir að brjóta kynferðislega á. Carroll hefur sagt Trump hafa nauðgað sér.

Segir ásakanirnar blöndu af rangfærslum og ósannindum
Árni Heimir Ingólfsson sver af sér allar ásakanir Bjarna Frímanns Bjarnasonar í hans garð. Í september í fyrra steig Bjarni Frímann fram og sakaði Árna Heimi um að hafa brotið á honum kynferðislega þegar hann var sautján ára gamall.

Byrlaði eiginkonu sinni og leyfði 83 mönnum að nauðga henni
Franskur maður byrlaði eiginkonu sinni og leyfði 83 mönnum að nauðga henni á meðan hún svaf. Hann tók nauðganirnar, sem áttu sér stað yfir tíu ára tímabil, upp og geymdi upptökurnar. Lögregla hefur borið kennsl á 51 mannanna sem munu auk eiginmannsins fara fyrir dóm í sögulegu dómsmáli.

Þyngdu nauðgunardóm yfir Finni
Landsréttur hefur með dómi sínum í dag þyngt fangelsisdóm yfir Finni Þ. Gunnþórssyni um sex mánuði fyrir að hafa nauðgað konu í nóvember 2019. Héraðsdómur hafði dæmt hann í tveggja og hálfs árs fangelsi og taldi að seinagangur hjá lögreglu við skýrslutökur hafi ekki spillt vörn hans.

Hæstiréttur tekur mál Brynjars fyrir
Hæstiréttur samþykkti á dögunum málskotsbeiðni Brynjar Joensen Creed, sem dæmdur var til sjö ára fangelsisvistar fyrir nauðganir og önnur brot gegn ólögráða stúlkum í Landsrétti.

Stígamót kæra tvö tilfelli ofbeldis til lögreglu
Samtökin Stígamót vilja taka skýrt fram að hótanir, ógnanir, áreiti eða umsáturseinelti gegn starfsfólki Stígamóta verði ekki liðið og hafa tvö tilfelli af því tagi verið kærð til lögreglu.

Kynferðislegur lágmarksaldur færður úr 13 árum í 16
Stjórnvöld í Japan hafa gert breytingar á lögum er varða kynferðisbrot, sem fela meðal annars í sér að kynferðislegur lágmarksaldur hefur nú verið færður úr 13 árum í 16 ár. Þá hafa skilyrði „nauðgunar“ verið skýrð og gægjuhneigð gerð refsiverð.

McGregor sakaður um nauðgun | Neitar sök
Írski UFC-bardagakappinn Conor McGregor er sakaður um að hafa nauðgað konu inn á klósetti þegar hann var viðstaddur fjórða leik Denver Nuggets og Miami Heat í úrslitum NBA-deildarinnar. Conor neitar sök.

Segja rannsóknina hafa undið upp á sig
Saksóknarar í Rúmeníu segja rannsókn þeirra á meintu mansali Andrew Tate og bróður hans Tristan hafa undið upp á sig. Þeir séu þar að auki sakaðir um að hafa brotið á sjö konum en ekki sex.

Söngvari Rammstein gæti átt fimm ára fangelsi yfir höfði sér
Saksóknari í Berlín hefur opnað rannsókn á hendur Till Lindemann, söngvara Rammstein, fyrir kynferðisbrot. Tugir kvenna hafa stigið fram á undanförnum vikum og sakað Lindemann og starfslið hans um kerfisbundna tælingu og byrlun.

Milduðu dóm yfir manni sem nauðgaði öðrum á salerni skemmtistaðar
Landsréttur hefur mildað dóm yfir Faisal Mohed Freer vegna nauðgunar inni á salerni skemmtistaðar í tveggja ára fangelsi. Maðurinn hlaut þriggja ára fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur í apríl á síðasta ári og var dómnum í kjölfarið áfrýjað.

Átján mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gagnvart stjúpdóttur
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í eins og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn barni og stórfellt brot í nánu sambandi.

Reyndi ítrekað að flýja land: „I think I killed her“
Demetrius Allen, bandarískur karlmaður sem spilað hefur amerískan fótbolta hér á landi, hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun. Allen kynntist brotaþola, íslenskri konu, á Tinder tíu dögum fyrir brotið og reyndi ítrekað að flýja land í kjölfarið.

Útgefandi Lindemann lætur hann róa og fleiri ásakanir birtast
Fleiri Metoo sögur um Till Lindemann, söngvara þungarokkssveitarinnar Rammstein hafa birst eftir að kona sakaði hann um byrlun í Litháen í síðasta mánuði. Bókaútgefandi hefur sagt upp samningi við Lindemann.

Dómur yfir Snapchat-perranum staðfestur
Landsréttur hefur staðfest þriggja ára fangelsisvist yfir Herði Sigurjónssyni fyrir kynferðisbrot gegn sextán ólögráða stúlkum. Í ágúst 2022 dæmdi Héraðsdómur Reykjavíkur Hörð í þriggja ára fangelsi fyrir verknaðinn en sá ákærði áfrýjaði málinu.

Mátti ekki þyngja dóm föður sem káfaði á dóttur sinni
Hæstiréttur hefur mildað dóm Landsréttar yfir manni sem sakfelldur var fyrir að káfa á dóttur sinni í tvö skipti. Málið er eitt þeirra sem fór fyrir Endurupptökudóm í kjölfar Landsréttarmálsins svokallaða.

Karlar leita í auknum mæli til Stígamóta
Hjálmar G. Sigmarsson, ráðgjafi hjá Stígamótum, segir að karlkyns brotaþolar kynferðisofbeldis leiti sér aðstoðar hjá samtökunum í auknum mæli. Hann greindi frá því í erindi sínu á ráðstefnu um kynferðisbrot gegn drengjum í Háskólanum í Reykjavík í síðustu viku.

Cuba Gooding Jr. samdi rétt fyrir upphaf nauðgunarréttarhalda
Bandaríski leikarinn Cuba Gooding Jr. hefur gert samkomulag við konu sem sakaði hann um að hafa nauðgað sér fyrir um áratug. Réttarhöld í málinu áttu að hefjast í dag en leikarinn hafði neitað sök.

Hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot og dreifingu myndbanda
Karlmaður var á föstudag dæmdur í hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fyrrverandi kærustu sinni. Tók maðurinn upp kynferðisleg myndbönd og dreifði þeim til eiginmanns konunnar og víðar.

Flúði farbann vegna nauðgunar og býðst til að spila frítt
Kólumbíski fótboltamaðurinn Andrés Ramiro Manga Escobar, sem flúði Ísland í farbanni í desember síðastliðnum eftir að hafa hlotið fangelsisdóm fyrir nauðgun, er ennþá staddur í Kólumbíu og segist ólmur vilja hasla sér völl í atvinnumennsku á ný. Hefur hann boðist til að spila frítt fyrir sitt gamla félag, Deportivo Cali.

Hundruð fórnarlamba kaþólskra presta á Spáni
Rannsókn kaþólsku kirkjunnar á Spáni á misnotkun presta og annarra þjóna kirkjunnar á börnum hefur afhjúpað 728 meinta gerendur og 927 fórnarlömb frá fimmta áratug síðustu aldar. Meira en helmingur meintra gerenda voru prestar en flest brotin áttu sér stað á sjöunda, áttunda og níunda áratugnum.

Nauðgaði vinkonu sinni og bar fyrir sig kynferðislega svefnröskun
Karlmaður hefur verið dæmdur til tveggja og hálfs árs fangelsisvistar fyrir nauðgun, með því að hafa haft samræði við konu án hennar samþykkis. Maðurinn hafði fengið að gista heima hjá konunni og unnusta hennar, besta vini sínum. Fyrir dómi kom fram að maðurinn þjáist af svokallaðri kynferðislegri svefnröskun.

„Drengir eru þögull hópur þolenda“
Forsvarsmaður ráðstefnu sem fjallaði um kynferðisofbeldi gegn drengjum segir drengi ólíklegri til að stíga fram og segja frá en stúlkur. Afbrotafræðingur segir að til séu úrræði til að koma í veg fyrir að menn brjóti ítrekað af sér, og að þeim verði að beita.

Ámælisverð viðbrögð eftir að þroskaskertur maður braut á barni
Samkvæmt nýrri skýrslu Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála (GEV) voru fyrstu viðbrögð starfsmanna í Reykjadal ámælisverð þegar þroskaskertur starfsmaður er sakaður um að hafa brotið á níu ára stúlku. Viðeigandi verkferla hafi skort með öllu og fyrstu viðbrögð talin ómarkviss.

Ný drykkjarpróf geta komið upp um byrlun
„Þeir sem byrla öðrum gera það til að stjórna þeim sem er byrlað og er það yfirleitt gert til að notfæra sér ástand viðkomandi.