Íþróttir

Sigurvegarar helgarinnar á Reykjavíkurleikunum
Þrettándu Reykjavíkurleikarnir hófust á fimmtudag og Íþróttabandalag Reykjavíkur fólk hefur nú tekið saman hvaða íþróttafólk náði bestum árangri í íþróttagreinum tólf sem fóru fram um helgina.

Sportpakkinn: Keppendur koma nú frá 40 löndum á Reykjavíkurleikana
Þrettándu Reykjavíkurleikarnir í íþróttum hófust í dag. Um eitt þúsund erlendir keppendur koma til landsins en keppt verður í 23 greinum. Gústaf Adolf Hjaltason fer fyrir framkvæmdanefndinni en hann lagði grunninn að þessum leikum fyrir 15 árum. Arnar Björnsson ræddi við hann í dag.

Sportpakkinn: Maðurinn sem ætlar að slá þetta met er ekki enn fæddur
Júlían J.K. Jóhannsson, íþróttamaður ársins ætlaði að keppa á Reykjavíkurleikunum en vegna smávægilegra meiðsla ákvað hann að hvíla. Arnar Björnsson hitti Julian og fékk að reyna við lóðin í Laugardalshöll í dag.

Samfylkingin vill koma á fót íþróttamannalaunasjóði
Vilja stofna launasjóð fyrir afreksíþróttafólk.

Þjálfari meistaranna slasaði sjálfan sig við að reyna að kveikja í sínum strákum
Ed Orgeron er enginn venjulegur þjálfari hjá engu venjulegu liði. Strákarnir hans í LSU fótboltaliðinu fullkomnuðu magnað tímabil í nótt.

Starfshópur um þjóðarleikvang fyrir innanhússíþróttir skipaður
Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað starfshóp til þess að gera tillögur um þjóðarleikvang fyrir innanhúsíþróttir.

Matti Matt með handboltasöguna á hreinu
Olís hefur látið útbúa stórskemmtilegan spurningaleik á netinu í tengslum við þátttöku Íslands á Evrópumeistaramótinu í handbolta. Til að hita upp fyrir leikinn mættu tveir landsliðsmenn, þeir Kári Kristján Kristjánsson og nýliðinn Viktor Gísli Hallgrímsson á Olís-stöðina í Álfheimum og spurðu þar gesti og gangandi spjörunum úr.

Féll úr krana og er í lífshættu
Skautakona, sem var að æfa fyrir opnunarhátið Vetrarólympíuleika æskunnar, liggur milli heims og helju á spítala í Sviss.

Maðurinn sem hefur húðflúrað LeBron James, Thierry Henry og Lewis Hamilton
Margir af þekktustu íþróttamönnum heimsins eru vel skreyttir af húðflúrum sem eru flest mikil listasmíð. Það er því örugglega einhverjir sem velta því fyrir sér hver sé svona leikinn með blekið.

Gæsahúðarmyndband af íþróttaafrekum síðasta áratugar
ESPN gerði stórkostlegt myndband fyrir áramótin þar sem tekin voru saman helstu íþróttaafrek áratugarins.

Baðst afsökunar á því að hafa fært leikmanni hræðilegar fréttir í beinni
Fréttamanni ESPN varð á mistök í sjónvarpsviðtali eftir úrslitaleik í háskólafótboltanum um helgina þegar hann fór að spyrja út í nýskeð flugslys sem viðmælandinn vissi ekki um.

Ráðherrar minnast Vihjálms
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra minnist í dag Vilhjálms Einarssonar á Facebook-síðu sinni. Ráðherrann fer fögrum orðum um íþróttakappann og segir hann þjóðhetju.

Sportpakkinn: Hver af þessum tíu verður kosinn Íþróttamaður ársins í kvöld?
Í dag kemur í ljós hver verður valinn Íþróttamaður ársins fyrir árið 2019 en á Þorláksmessu var greint frá því hvaða tíu fengu flest atkvæði í kjörinu á íþróttamanni ársins 2019. Kjörinu verður lýst í Hörpu í kvöld.

„Þetta er bara algjör hundsun“
Stjórn Landssambands hestamannafélaga sendi frá sér yfirlýsingu í dag þar sem lýst er yfir óánægju með tilnefningar Samtaka íþróttafréttamanna til íþróttamanns ársins.

10 efstu í kjöri íþróttamanns ársins 2019
Samtök íþróttafréttamanna hafa birt listann yfir þá tíu íþróttamenn sem flest atkvæði fengu í kjörinu á íþróttamanni ársins 2019.

„Mikilvægt að gera ekki allt fyrir börnin sín“
Rithöfundurinn og þjálfarinn Bjarni Fritzson hvetur foreldra til að efla börn og hvetja þau til þess að fara út fyrir þægindarammann.

Ótrúlegt ævintýri Sherrock heldur áfram | Sjáðu sigurkastið magnaða
Fallon Sherrock heldur áfram að slá í gegn á heimsmeistaramótinu í pílu.

Sportpakkinn: Íþróttafólk á Íslandi hefur þurft að hætta á toppnum vegna peningaleysis
Þrír fulltrúar íslenskra afreksíþróttamanna mættu í mennta- og menningarmálaráðuneytið í hádeginu og afhentu ráðherra bréf undirritað af hópi íþróttamanna sem vekja athygli á réttindaleysi afreksíþróttamanna. Arnar Björnsson hitti íþróttafólkið í dag.

Þrefaldur heimsmeistari í snóker hatar íþróttina og spilar frekar golf
Mark Williams, sem hefur orðið heimsmeistari í snóker í þrígang, er ekki mikill aðdáandi íþróttarinnar en hann segist hata snóker.

Fékk boltann í augað og þarf að hætta
Sam Ward, enski hokkíleikmaðurinn, hefur neyðst til þess að leggja skóna á hilluna eftir að hafa misst sjónina á vinstra augu.

Leggja af skallaæfingar fyrir börn yngri en 12 ára
Sýnt hefur verið fram á að höfuðáverkar í íþróttum séu vanmetnir, heilaskaði geti orðið þegar mikið eða snöggt högg kemur á höfuð.

Grænlendingar leggja drög að smíði veglegs þjóðarleikvangs
Hugmyndin er að mannvirkið þjóni jafnt sem íþróttaleikvangur, sýningarhöll og tónleikastaður og verði þannig allt í senn; íþrótta-, viðskipta- og menningarmiðstöð.

Gervigreind gæti leitað upp ólöglega lyfjanotkun íþróttafólks innan tveggja ára
Alþjóðalyfjaeftirlitið eltir uppi nýjustu tækniframfarir í baráttu sinni gegn ólöglegri lyfjanotkun í íþróttum. Nú hefur stefnan verið sett á að nýta sér gervigreind í allra næstu framtíð.

Lukka sú fjórða besta á Norðurlöndum
Kjartan Jónsson hafnaði í áttunda sæti í flokki fullorðinna en hann var annar tveggja íslenskra keppenda í þeim flokki.

Köngulóarkonan klifraði upp fimmtán metra vegg á nýju heimsmeti
Aries Susanti Rahayu er frá Indónesíu og er kölluð "Köngulóarkonan“ og ekki af ástæðulausu.

Þurfti að tækla liðsfélaga sinn | Myndband
Stórbrotið atvik átti sér stað í framhaldsskólaleik í Kaliforníu á dögunum.

Össur strætóbílsstjóri stoppaði vagninn og fékk farþega til að taka húið
Strætóbílstjóri sem hefur skreytt vagninn sinn í áraraðir fyrir landsleiki í knattspyrnu segist elska liðið. Draumur hans er að hitta landsliðið og fá í strætó til sín. Þetta er í eina skipti sem þið fáið tækifæri til að vera með hávaða í strætó sagði hann við farþega í dag þegar hann fékk þá til að gera Hú-ið með sér.

Sir Alex Ferguson hjálpaði enska landsliðinu í rúgbí
Eddie Jones, þjálfari enska rúgbílandsliðsins, þakkaði Sir Alex Ferguson eftir sigur liðsins á konungsríkinu Tonga á HM í rúgbí.

Baldur og Heimir Íslandsmeistarar í ralli
Lengsta og erfiðasta rallkeppni ársins, Rallý Reykjavík, fór fram um helgina. Baldur Arnar Hlöðversson og Heimir Snær Jónsson stóðu uppi sem öruggir sigurvegarar eftir þriggja daga keppni.

Sóley heimsmeistari stúlkna í kraftlyftingum
Sóley Margrét Jónsdóttir varð í gær heimsmeistari í kraftlyftingum á heimsmeistaramóti unglinga.