

Bandaríski sundkappinn Michael Phelps er nú að undirbúa sig undir fyrsta mótið sitt eftir að hafa setið af sér þriggja mánaða keppnisbann.
Spánverjinn Rafael Nadal vann í dag sigur á Novak Djokovic í úrslitaleik rómverska meistaramótsins í tennis sem fram fer árlega. Þetta var fjórði sigur hans á mótinu á fimm árum.
Spretthlauparinn Usain Bolt lenti í bílslysi í heimalandi sínu í Jamaíku en slapp þó við alvarleg meiðsli.
Tenniskonan Maria Sharapova hefur dregið sig úr keppni á opna ítalska meistaramótinu í næstu viku vegna þrálátra meiðsla á öxl.
Ólympíumeistarinn Sammy Wanjiru frá Kenía sigraði í dag í Lundúnamaraþoninu eftir að hafa staðið af sér æsilegan endasprett félaga síns Martin Lel sem sigraði í hlaupinu í fyrra.
Forráðamenn NFL-deildarinnar hafa verið í viðræðum við menn í London upp á síðkastið varðandi þann möguleika að vera með sjálfan Super Bowl-leikinn í Lundúnum.
Detroit Lions valdi leikstjórnandann Matthew Stafford fyrstan í NFL-nýliðavalinu. Stuðningsmenn Lions voru þó ekki par sáttir við val sinna manna enda telja þeir Stafford vera ofmetinn.
Frakkinn Alain Bernard varð í gær fyrsti maðurinn til að synda 100 metra skriðsund á undir 47 sekúndum.
Spænski tennisleikarinn Rafael Nadal sigraði í dag á Monte Carlo mótinu í tennis fimmta árið í röð þegar hann skellti Novak Djokovic í úrslitaleik 6-3, 2-6, 6-1.
Ein þekktasta íþróttakona Kína, Deng Yaping, er á hraðri leið upp metorðastiga kommúnistaflokksins þar í landi.
Svissneski tenniskappinn Roger Federer hefur átt erfitt uppdráttar á árinu og hefur enn ekki unnið mót. Hann missti toppsætið á heimslistanum í hendur Rafael Nadal fyrir nokkru.
Usain Bolt segir að honum hafi verið kennt að vefja hasssígarettur sem krakki og að hann hafi prófað að reykja hass, rétt eins og allir í heimalandi hans í Jamaíku.
Tenniskappinn Rafael Nadal á möguleika á sunnudaginn að gera það engum hefur tekist í heil 95 ár. Nadal getur nefnilega unnið Monte Carlo tennismótið fimmta árið í röð.
Kastarinn Nick Adenhart lést í bíslysi í gærmorgun en hann var nýliði í bandaríska hafnaboltaliðinu Los Angeles Angels.
Nú virðist sem hinu furðulega sakamáli í kring um þjófnaðinn á reiðhjóli goðsagnarinnar Lance Armstrong sé loksins að ljúka.
Skötuhjúin Tom Brady, leikstjórnandi New England Patriots, og ofurmódelið Gisele giftu sig aftur á Costa Rica síðasta laugardag. Um 50 gestir mættu í athöfnina á rómantískum stað.
Heimsmeistarinn Sebastien Loeb vann í dag fjórða sigur sinn í röð á heimsmeistaramótinu í rallakstri þegar hann kom fyrstur í mark í portúgalska rallinu.
Skoski tennisleikarinn Andy Murray vann í dag sigur á opna Miami mótinu árlega þegar hann lagði Novak Djokovic í úrslitaleik 6-2 og 75.
New York Giants hefur ákveðið að losa sig við útherjann Plaxico Burress. Ákvörðunin kemur þrem dögum eftir að ákveðið var að rétta yfir útherjanum í júní.
Hin fallna NFL-stjarna, Michael Vick, er loksins laus úr fangelsi og hyggur á endurkomu í NFL-deildina. Vick var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að skipuleggja hundaat, veðmál því tengdu sem og að ala upp hunda í slagsmálin.
Rafael Nadal, efsti maður heimslistans, tapaði óvænt fyrir Argentínumanninum Juan Martin Del Potro á opna Sony Ericsson mótinu í tennis í gær. Del Potro er þar með kominn í fyrsta sinn í undanúrslit á stóru móti.
Alþjóða Ólympíunefndin ætlar að taka ákvörðun um það í ágúst hvort hnefaleikar kvenna verði ein af keppnisgreinunum á ÓL í London árið 2012.
Systurnar Serena og Venus Williams mætast í undanúrslitum á Sony Ericsson mótinu í tennis sem fram fer í Miami.
Ástralskur unglingspiltur var í dag dæmdur í fimm leikja bann fyrir að leysa niður um sig buxurnar og sýna áhorfendum á sér botninn í deildarleik í ruðningi um helgina.
Franski stangarstökkvarinn Romain Mesnil, sem vakti heimsathygli um helgina fyrir að skokka nakinn í gegn um París, hefur opnað uppboð á netinu til að finna sér stuðningsaðila.
Franski stangarstökkvarinn Romain Mesnil hefur ákveðið að vekja athygli á raunum sínum með því að hlaupa nakinn um þekktustu ferðamannastaði Parísar.
Hjólreiðakappinn Lance Armstrong er búinn að leggjast undir hnífinn eftir að hafa viðbeinsbrotnað illa. Viðbeinið á Armstrong brotnaði í fjóra hluta.
Roger Goodell, forseti NFL-deildarinnar, hefur lagt það til við eigendur félaga í NFL-deildinni að leikjum deildarinnar verði fjölgað í 17 eða 18 en núna eru spilaðir 16 leikir plús úrslitakeppni.
Belgíska tenniskonan Kim Clijsters hefur boðað til blaðamannafundar á fimmtudaginn þar sem gert er ráð fyrir að hún muni tilkynna að hún ætli að taka spaðann ofan af hillunni.
Komið er í ljós að bandaríska hjólreiðagoðsögnin Lance Armstrong er með brákað viðbein eftir að hafa dottið í keppni á Spáni.