
Erlendar

Armstrong datt og var fluttur á sjúkrahús
Bandaríska hjólreiðagoðsögnin Lance Armstrong var fluttur á sjúkrahús eftir að hafa dottið illa í keppni á Spáni.

Verður Stallworth ákærður fyrir manndráp?
Eins og Vísir greindi frá í gær þá varð NFL-leikmaðurinn Donte Stallworth valdur að dauða manns í Miami er hann keyrði á hann. Nú hafa borist fregnir af því að Stallworth hafi verið yfir leyfilegum áfengismörkum þegar slysið átti sér stað.

Nadal og Federer í fjórðungsúrslit á Indian Wells
Rafael Nadal tryggði sér sæti í fjórðungsúrslitum á Indian Wells mótinu í tennis sem haldið er í Kaliforníu með naumum sigri á David Nalbandian í hörkuleik.

NFL-leikmaður varð manni að bana
Útherjinn Donte Stallworth hjá Cleveland Browns segist vera ónýtur maður eftir að hann varð manni að bana í bílslysi sem átti sér stað í Miami á dögunum.

Bolt hleypur á götum Manchester
Fljótasti maður heims, Usain Bolt, mun keppa í 150 metra hlaupi á götum Manchester-borgar þann 17. maí næstkomandi.

Nýtt heimsmet hjá Jackson
Breska sundkonan Jo Jackson bætti í kvöld heimsmetið í 400 metra skriðsundi á breska meistaramótinu sem hófst í Sheffield í dag.

Phelps opnar sig um hasspípumálið
Sundkappinn Michael Phelps hefur loksins rofið þögnina um hasspípumálið fræga. Málið snýst um mynd af Phelps þar sem hann fær sér að reykja úr hasspípu.

Federer og frú eiga von á barni
"Ég er með frábærar fréttir handa ykkur öllum," skrifar tenniskappinn Roger Federer á heimasíðu sína í kvöld.

Don King: Khan hefur vakið sofandi risa
Hinn umdeildi hnefaleikafrömuður, Don King, segist vera mikill aðdáandi Bretans Amir Khan en gerir þó ekki ráð fyrir því að hann muni eiga mikið í Marco Antonio Barrera á laugardag.

Gaf þýski þjóðsöngurinn honum ofurkraft?
Þjóðverjinn Sebastian Bayer tryggði sér Evrópumeistaratitilinn í langstökki með metstökki upp á 8,71 metra á Evrópumeistaramótinu innanhúss í frjálsum íþróttum sem fram fór í Tórínó á Ítalíu um helgina.

Dallas losar sig við Terrell Owens
Jerry Jones, eigandi Dallas Cowboys, hefur ákveðið að losa sig við vandræðagemlinginn Terrell Owens. Jones segir það hafa verið nauðsynlegt liðsins vegna að losa sig við Owens. Nú geti liðið byrjað upp á nýtt.

Fornleifar fundust við undirbúning ÓL í London
4000 ára gömul öxi og fjórar fornsögulegar beinagrindur voru á meðal fornleifa sem fundust þegar grafið var fyrir Ólympíugarðinum í London.

Warner áfram hjá Cardinals
Hinn 37 ára gamli leikstjórnandi, Kurt Warner, ætlar ekki að leggja skóna á hilluna og hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Arizona Cardinals.

Tom Brady giftist ofurmódelinu Gisele
Ein stærsta stjarnan í bandarísku íþróttalífi, Tom Brady, leikstjórnandi New England Patriots, er búinn að giftast brasilíska ofurmódelinu Gisele. Þau hafa verið saman síðan árið 2006.

Byssu-Burress vill spila aftur með Giants
Plaxico Burress, sem komst í fréttirnar í fyrra fyrir að skjóta sjálfan sig í fótinn, segist vilja komast aftur í lið NY Giants í NFL-deildinni þó svo hann hafi brennt flestar brýr að baki sér hjá liðinu.

Venus Williams sigraði í Dubai
Bandaríska tenniskonan Venus Williams vann í gær sigur á opna Dubai mótinu þegar hún lagði Vigrinie Razzano 6-4 og 6-2 í úrslitaleik.

Pistorius á sjúkrahúsi
Suður-Afríski spretthlauparinn Oscar Pistorius fór í aðgerð á sjúkrahúsi í Jóhannesarborg dag eftir að hafa lent í bátaslysi í gær.

Isinbayeva rauf fimm metra múrinn innanhúss
Rússneska stúlkan Yelena Isinbayeva bætti eigið heimsmet í stangarstökki innanhúss um helgina þegar hún vippaði sér yfir fimm metra slétta á móti í Donetsk í Úkraínu.

Reiðhjóli Lance Armstrong stolið
Hjólreiðamaðurinn Lance Armstrong varð fyrir óskemmtilegri reynslu í undirbúningi sínum fyrir Kaliforníuhjólreiðarnar þegar hjóli hans var stolið.

Þriðji sigur Murray í röð á Nadal
Breski tennisleikarinn Andy Murray vann sinn þriðja sigur í röð á stigahæsta manni heims Rafael Nadal um helgina. Murray vann 6-3 4-6 og 6-0 í viðureign þeirra félaga í úrslitaleik á móti í Rotterdam.

Pranger bjargaði andliti Austurríkismanna
Manfred Pranger vann í dag gull í svigi karla á HM í alpagreinum sem fer fram í Val d'Isere í Frakklandi.

Björgvin féll úr leik
Björgvin Björgvinsson féll úr leik í síðari umferð í svigi karla á HM í alpagreinum sem fer fram í Val d'Isere í Frakklandi.

Frábær árangur hjá Björgvini
Björgvin Björgvinsson náði að koma sér í hóp 30 efstu keppenda í fyrri ferðinni í svigkeppni karla á HM í alpagreinum í Val d'Isere í Frakklandi.

Stefán Jón: Er að gera eitthvað rétt
Hinn nítján ára gamli Stefán Jón Sigurgeirsson vann sér í gær þátttökurétt í aðalkeppni í svigi karla á HM í alpagreinum í Val d'Isere í Frakklandi í gær.

Önnur gullverðlaun Þjóðverja
Maria Riesch fagnaði í dag sigri í svigkeppni kvenna á HM í alpagreinum sem fer fram í Val d'Isere í Frakklandi.

Frábær árangur hjá Stefáni Jóni
Stefán Jón Sigurgeirsson tryggði sér í dag þátttökurétt í aðalkeppni svigsins á HM í alpagreinum sem fer fram í Val d'Isere í Frakklandi.

Janka heimsmeistari í stórsvigi
Carlo Janka frá Sviss varði forskot sitt eftir fyrri ferðina í stórsvigi karla og fagnaði sigri í greininni á HM í alpagreinum í Val d'Isere í Frakklandi.

Björgvin og Stefán Jón úr leik
Björgvin Björgvinsson og Stefán Jón Sigurgeirsson féllu báðir úr leik í keppni í stórsvigi á HM í alpagreinum sem fer fram í Val d'Isere í Frakklandi.

Læknar vöktu Albrecht úr dái
Svissneski skíðamaðurinn Daniel Albrecht var í dag vakinn upp úr þriggja vikna löngu dái eftir að hann datt illa á æfingu í síðasta mánuði.

Nadal líður eins og glæpamanni undir hertu lyfjaeftirliti
Rafael Nadal, stigahæsti tennisleikari heims, er afar óhress með stórlega hert lyfjaeftirlit með íþróttamönnum og segir þá upplifa sig eins og glæpamenn.