Íslendingar erlendis

Enginn fær að skipta sér af tónlist Laufeyjar
„Eina ástæða þess að tónlistin gekk upp hjá mér er af því ég fór ekki með hana beint til plötuútgefenda,“ segir stórstjarnan Laufey Lín í nýlegu viðtali við tískurisann Vogue. Þar fer hún meðal annars yfir það hvernig velgengni hennar hefur þróast og hvernig hún hefur alltaf fengið að vera hún sjálf.

Ljósbrot tilnefnd til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs
Kvikmyndin Ljósbrot heldur áfram sigurför sinni um heiminn en hún er tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2025.

Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni
Kristinn Örn Kristinsson er látinn en hann var lagður inn á sjúkrahús á Spáni vegna hitaslags fyrr í mánuðinum.

Íslendingur lést vegna hitaslags
Íslendingur á fimmtugsaldri sem var lagður inn á sjúkrahúss vegna hitaslags fyrr í vikunni er látinn.

„Yngsti „self made“ milljónamæringur undir þrítugu“
Eigendur Metta Sport, Pétur Kiernan og Samúel Ásberg O’Neill, eru nýkomnir heim úr sumarfríi í Króatíu ásamt kærustum sínum, Valdísi Hörpu Porcu og Þuríði Guðrúnu Pétursdóttur. Ferðalagið einkenndist af sólríkum dögum og vellystingum ef marka má myndir á samfélagsmiðlum.

Fagnar því að hafa klárað „erfiðustu kappreiðar í heimi“
Íslensk hestakona lauk keppni í erfiðustu kappreiðum í heimi í dag. Hún er ánægð með að hafa náð að ljúka keppninni og mun fagna árangrinum í kvöld.

„Er að koma inn í hlutverk sem ég veit að ég er góð í“
Íslenska landsliðskonan í fótbolta, Ingibjörg Sigurðardóttir er mætt aftur í þýsku úrvalsdeildina en nú í verkefni af öðrum toga en hún tókst á við áður. Eftir vonbrigði á EM með Íslandi vill Ingibjörg taka ábyrgð og skref út fyrir þægindarammann.

Íslendingur á Spáni sagður þungt haldinn vegna hitaslags
Íslenskur karlmaður á fimmtugsaldri er þungt haldinn eftir að hafa fengið hitaslag, að sögn spænskra fjölmiðla. Hann dvelur nú á sjúkrahúsi í Alicante-héraði.

Íslensku KFC-feðgarnir í Danmörku gjaldþrota
Fyrirtæki í eigu Íslendings sem hefur rekið veitingahús KFC í Danmörku í tæplega fjóra áratugi hefur lýst yfir gjaldþroti en öllum stöðum keðjunnar var lokað í júní eftir að danskir miðlar greindu frá meriháttar vanrækslu á heilsuháttaverklagi á stöðunum.

Gunnlaugur byrjar vel á móti þar sem til mikils er að vinna
Kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson átti góða byrjun á US Amateur Championship mótinu sem haldið er á The Olympic Club í San Fransisco og er í fimmta sæti, tveimur höggum á eftir efstu kylfingum eftir fyrsta hring.

Fyrstu skrefin tekin á sama stað og símtalið um fæðinguna barst
Leikkonan María Birta Fox birti hjartnæma færslu á Instagram í vikunni þar sem hún rifjaði upp þegar hún og eiginmaður hennar, myndlistarmaðurinn Elli Egilsson Fox, fengu símtalið um að yngri dóttir þeirra Naja væri komin í heiminn. Á sama stað rétt rúmu ári síðar tók dóttirin sín fyrstu skref.

Bretland aftur inn í Reiki í Evrópu hjá Sýn, Símanum og Nova
Fjarskiptafyrirtækin Sýn, Síminn og Nova hafa bætt Bretlandi aftur inn í svokallaða Reiki í Evrópu þjónustu, þar sem íbúar innan ESB og EES greiða sama gjald fyrir farsímanotkun í Evrópu og þeir greiða heima fyrir.

Ungt fólk setur vínbændur í erfiða stöðu
Íslenskur vínbóndi í Sviss segir breytt neyslumynstur ungmenna hafa slæm áhrif á vínbransann. Bændur þurfi að skera niður hjá sér því sífellt færri drekka vín.

Íslendingurinn í Grikklandi laus úr haldi
Íslendingur sem var handtekinn í Grikklandi á dögunum er laus úr haldi. Hann hefur verið ákærður fyrir heimilisofbeldi og hótun.

Finna áhugann dvína á meðan vinir berjast og deyja á vígvellinum
Íslensk-úkraínsk hjón hafa takmarkaða trú á að samtal Trump og Pútín myndi leiða til friðar í Úkraínu. Þau hafa misst vini á vígvellinum og segja erfitt að fylgjast með aukinni hörku í árásum Rússa á heimaborg þeirra úr fjarska. Þau skynja breytingar á viðhorfi og afstöðu fólks utan Úkraínu til stríðsins frá því sem var í byrjun. Svo virðist sem áhuginn sé að dvína og rússneskur áróður að ná betur í gegn.

„Ekki sáttir við að Íslendingur kæmi að kenna þeim“
Heimir Hallgrímsson hefur verið landsliðsþjálfari Írlands í rúmt ár. Starfið tók á til að byrja með en hann segist vera á réttri leið með írska liðið.

Íslendingur grunaður um heimilisofbeldi handtekinn í Grikklandi
Íslenskur karlmaður á sjötugsaldri mun hafa verið handtekinn í Grikklandi á dögunum vegna gruns um heimilisofbeldi.

Íslenskar konur gáfu nýjan búning á fjallkonuna í Gimli
Um helgina er haldin Íslendingadagurinn í Gimli í Manitoba. Hátiðin var með stærra sniði en áður því í ár er fagnað 150 árum frá landtöku Íslendinga við Winnipegvatn. Lögð var sérstök áhersla á þau sterku tengsl sem varað hafa á milli þessara landa í 150 ár, en um leið var lögð áhersla á mikilvægi nýrra tengsla á milli þessara samfélaga.

Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu
Þegar Hrefna Marcher Helgadóttir lagði af stað einsömul til Balí sumarið 2018, vissi hún ekki að ferðalagið ætti eftir að snúa lífi hennar á hvolf. Þar hitti hún Eric Poole, bandarískan hermann sem hún eyddi einum sólarhring með, og síðan var ekki aftur snúið.

Á bát í Kyrrahafi þegar skjálftaflóðbylgjur skullu á
Íslendingur í Frönsku Pólýnesíu segist hafa fyllst skelfingu þegar fregnir bárust af jarðskjálfta undan ströndum Rússlands og gefnar voru út flóðbylgjuviðvaranir. Skjálftinn var 8,8 að stærð en betur fór en á horfðist. Engar fregnir hafa borist af manntjóni.

Forseti Alþingis snæddi kvöldverð með Michael Douglas
Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, snæddi kvöldverð með stórleikaranum Michael Douglas í vikunni en leikarinn margverðlaunaði er aðalræðumaður á heimsráðstefnu þingforseta sem nú er haldin í Genf í Sviss.

Merkúr Máni sótti brons í Ólympíukeppninni í líffræði
Merkúr Máni Hermannsson, nemi við Menntaskólann í Reykjavík, nældi sér í brons með íslenska landsliðinu í Ólympíukeppninni í líffræði í Filippseyjum. Þetta er í fyrsta sinn síðan 2016 sem Ísland vinnur til verðlauna í keppninni.

„Greyið, hann þarf að horfa á mig deyja“
Íslensk kona lenti í lífsháska þegar öndunarvegur hennar lokaðist á leið í grunnbúðir Everest. Ellefu sjerpar báru hana í fjóra tíma áður en hún var flutt með þyrlu til Katmandú. Við útskrift af spítala var ferðatrygging hennar ekki tekin gild svo hún þurfti sjálf að leggja út 1,4 milljón króna. Sjóvá greiddi henni peninginn til baka en hún furðar sig á vinnubrögðunum.

Komst ekki heim frá Íran fyrr en mánuði eftir árásirnar
Íslensk kona sem var stödd í Íran þegar Ísraelsher hóf árásir á landið í júní komst ekki úr landinu og til Dúbaí, þar sem hún er búsett, fyrr en mánuði síðar. Hún lýsir miklum ótta og ringulreið í tólf daga stríðinu sem fylgdi.

Keyrt á íslenska stráka á Ólympíuhátíð
Keyrt var á tvo íslenska stráka í Norður-Makedóníu þegar þeir æfðu fyrir keppni í götuhjólreiðum. Líðan þeirra er sögð góð eftir atvikum.

„Sorglega lítið eftir“ þegar sundkappinn var stöðvaður
Sundkappinn Sigurgeir Svanbergsson segist hafa átt sorglega lítið eftir af sundferð sinni yfir Ermarsundið þegar hann þurfti að hætta af öryggisástæðum. Hann er staðráðinn í að reyna aftur.

Ætlar fyrir Mannréttindadómstólinn og segir fréttaflutning villandi
Listamaðurinn Odee Friðriksson er hvergi af baki dottinn í baráttu sinni við Samherja vegna afsökunarbeiðni og vefsíðu sem hann setti upp í nafni Samherja. Hann ætlar með málið fyrir Mannréttindadómstól Evrópu eftir að áfrýjunardómstóll hafnaði áfrýjunarbeiðni hans. Þá segir hann fréttaflutning Ríkisútvarpsins af málinu villandi.

Þurfti að hætta sundi af öryggisástæðum
Sundkappinn Sigurgeir Svanbergsson þurfti að hætta sundi sínu yfir Ermarsundið af öryggisástæðum. Hann ætlaði sér að synda sundið til styrktar Píetasamtakanna.

Lærði skriðsund á YouTube og syndir Ermarsund á morgun
Sigurgeir Svanbergsson lærði að synda skriðsund á YouTube fyrir fáeinum árum en syndir Ermarsundið í fyrramálið. Hann hefur verið veðurtepptur í Dover undanfarna daga en hann hefur aðeins vikuglugga til að klára þrekvirkið.

Ástin sveif yfir ítölskum vötnum
„Þetta er annað hjónaband okkar beggja og okkur langaði að gera eitthvað öðruvísi en þetta hefðbundna. Það að ganga að eiga manninn minn með börnunum okkar fimm, það er bara ekki hægt að lýsa því augnabliki,“ segir hin nýgifta María Björg Sigurðardóttir, hönnuður og matgæðingur.