Verslun

Ferðalög Íslendinga taka við sér
Kaup Íslendinga á ferðum til útlanda hafa aukist mikið á þessu ári en í ágústmánuði jókst velta innlendra greiðslukorta hjá ferðaskrifstofum um 211 prósent milli ára.

100 dagar til jóla: „Það eru gestirnir sem koma með jólin til mín“
Slagorð Ikea hefur löngum verið „Jólin þín byrja í Ikea“. Síðustu ár hafa jólin komið í Ikea í október en nágranninn Costco hefur nú þegar hafið sölu á einstaka jólavöru og þar geta jólabörn nú þegar fest kaup á mannhæðarháum hnotubrjót, jólaljósum og gjafapappír.

Hefur ekki keypt áfengi af netverslun og skoðar hvort starfsemin standist lög
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segir til skoðunar hjá ráðuneyti sínu hvort áfengissala netverslana sem skráðar eru erlendis en starfi að miklu leyti til hér á landi stangist á við lög. Félag atvinnurekanda hefur kallað eftir svörum um málið þar sem fjöldi fyrirtækja hefur áhuga á að hefja slíka sölu. Sjálf hefur Áslaug ekki keypt áfengi af slíkri netverslun.

Félag atvinnurekenda krefst svara um lögmæti netsölu á áfengi
Félag atvinnurekenda hefur enn ekki fengið svar við fyrirspurn sinni um lögmæti netsölu á áfengi, þrátt fyrir að hún hafi legið inni um nokkurt skeið hjá tveimur ráðuneytum.

„Það var bara allt kreisí“
Netglæpir verða sífellt algengari og telur lögreglufulltrúi tímabært að skýra ýmis atriði í löggjöfinni. Mikið álag var á verslunarmönnum um helgina vegna netárása á greiðslumiðlunarfyrirtæki.

Allt að 143 prósenta verðmunur í verðkönnun ASÍ
Bónus var oftast með lægsta verðið í nýrri verðkönnun verðlagseftirlits ASÍ á matvöru og hreinlætis- og snyrtivöru. Iceland var oftast með hæsta verðið.

Sekta fjórar verslanir vegna trassaskapar við verðmerkingar
Neytendastofa hefur sektað Gulla Arnar bakarí, Kjötbúðina, Kjötkompaní og Sælkerabúðina fyrir að fara ekki að fyrirmælum stofnunarinnar um verðmerkingar.

Hótel, verslanir og líkamsrækt gætu litið dagsins ljós á Langasandi
Útivistarperlan Langisandur mun taka á sig breytta mynd á næstu misserum, þegar hugmyndir íbúa um nýtt skipulag líta dagsins ljós í lok mánaðar. Hótel, verslanir og margs konar þjónusta er því mögulega það sem koma skal á svæðinu.

Afsláttardagar ofan á hagstætt verð Lyfjavers
Með tilkomu Netapóteks Lyfjavers hefur aðgengi landsmanna stóraukist að fjölbreyttu vöruúrvali á hagstæðu verði.

Neytendasamtökin um sellerískort: Styðjum bændur frekar en að reisa múra
Umtalaður sellerískortur í verslunum sem og annar vöruskortur sem kemur niður á íslenskum neytendum er, að mati Neytendasamtakanna, afsprengi „óviturlegs kerfis hamlandi og misskilinnar tollverndar“. Styðja þurfi innlenda bændur frekar en að reisa verndarmúra.

Tekur við stjórn Ilvu og fer beint í að flytja verslunina frá Korputorgi
Kristján Geir Gunnarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri húsgagnaverslunarinnar Ilvu og hefur þegar hafið störf. Kristján Geir var áður framkvæmdastjóri Odda, Kassagerðar Reykjavíkur og sölu- og markaðssviðs Nóa Síríus.

Vonar að ráðherra sjái ljósið
Sellerí er nú víða ófáanlegt í matvöruverslunum og beina innflutningsaðilar sökinni að innflutningstollum sem voru lagðir á sellerí um þarsíðustu mánaðamót. Á sama tíma hefur innlend uppskera gengið illa og íslenskt sellerí skilað sér stopult til verslana.

Costco á Íslandi hagnaðist um 463 milljónir
Costco á Íslandi hagnaðist um 462,9 milljónir króna á síðasta rekstrarári sem endaði í ágúst 2020. Nam sala félagsins 20,5 milljörðum króna á tímabilinu og jókst um 3,7 prósent milli rekstrarára.

Bónus opnar þriðju verslunina á Akureyri næsta vor
Bónus hyggst opna þriðju matvöruverslunina á Akureyri næsta vor. Verslunin mun opna í verslunarkjarnanum að Norðurtorgi.

Enn grímuskylda í Hagkaup vegna Tax free-daga
Athygli hefur vakið að grímuskylda er enn í verslunum Hagkaups en ekki í systurversluninni Bónus.

Hugsuðu hlutina upp á nýtt í faraldrinum og opnuðu eigin verslun
Mágkonurnar Eva og Steinunn opnuðu á föstudaginn tískuverslunina Andrá Reykjavík. Ragnar maður Evu er bróðir Steinunnar en upprunalega þá kynntust þær þegar þær unnu báðar í KronKron, áður en Ragnar og Eva byrjuðu saman.

Neytendastofa bannar auglýsingu Heimkaupa
Auglýsingar Heimkaupa um fría heimsendingu voru villandi þar sem kaupandi þurfti að vera staddur á höfuðborgarsvæðinu og kaupa vörur fyrir lágmarksupphæð. Þetta kemur fram í nýlegri ákvörðun Neytendastofu sem segir Heimkaup hafa brotið gegn lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu.

Grímuskyldan afnumin í Bónus
Frá og með deginum í dag verður ekki grímuskylda í verslunum Bónus. Framkvæmdastjóri Bónus segist finna fyrir mikilli grímuþreytu meðal almennings.

Krónan afnemur grímuskyldu
Krónan mun afnema grímuskyldu í verslunum sínum á morgun, 1. september. Telja forsvarsmenn keðjunnar að viðskiptavinum og starfsfólki sé nú treystandi til að meta sjálft hvort þörf sé á grímu.

Allar United treyjur uppseldar hjá Jóa útherja | Fær Ronaldo sjöuna?
Íþróttavöruverslunin Jói útherji greindi frá því síðdegis í dag að Manchester United treyjur til sölu í versluninni væru uppseldar. Margur virðist hafa tryggt sér treyju eftir að tilkynnt var um komu Cristiano Ronaldo til félagsins.

Origo kaupir í verslun á Akureyri til að mæta eftirspurn eftir Apple-vörum
Origo hefur keypt 70% eignarhlut í Eldhafi sem er innflutningsaðili á Apple-vörum og rekur samnefnda verslun á Akureyri. Er markmiðið með kaupunum að auka breiddina í vöruúrvali Origo.

Sveik út vörur og þjónustu í gegnum reikninga Eimskips og Brims
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt konu í tíu mánaða fangelsi fyrir að hafa í nokkrum tilfellum svikið út vörur og þjónustu í verslunum og hjá einni bílaleigu með því að nýta sér vitneskju um viðskiptareikning hjá Eimskip og Brim til úttektar í eigin þágu.

Helgarferð til Póllands endaði með opnun Home & You á Íslandi
Samheldin fjölskylda stendur á bak við Home & You.

22% söluaukning með nýju hillukerfi
Eiríksson Heildsala fer með umboð RTC hillukerfa.

Skiptu á strikamerkjum til að greiða tvö þúsund fyrir vörur að andvirði sjötíu þúsund
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt erlend hjón í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa stolið vörum úr Ikea með því að hafa tekið strikamerki af ódýrari vörum og sett á dýrari vörur.

Réðst að öryggisverði vopnaður grjóti
Öryggisvörður verslunar í miðbæ Reykjavíkur var fluttur á slysadeild í morgun eftir að maður réðst að honum vopnaður grjóti.

Starfsmaður Hringekjunnar smitaður
Verslunin Hringekjan í Þórunnartúni í Reykjavík verður lokuð í dag eftir að starfsmaður verslunarinnar greindist smitaður af kórónuveirunni.

Framtakssamir krakkar reka sjoppur í kofum í Úlfarsárdal
Framtakssamir krakkar reka nú sjoppur í kofum í Úlfarsárdal. Þar má finna kaupmenn á hverju horni en hátt í tíu sjoppur hafa risið á síðustu dögum og þéna krakkarnir vel á sölunni.

Jóhanna tekur við Banönum
Jóhanna Þ. Jónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Banana ehf., dótturfélags Haga hf.. Hún tekur við starfinu af Kjartani Má Friðsteinssyni.

Bankarnir vildu ekki lausnina sem átti að sefa áhyggjur Seðlabankans
Reiknistofa bankanna stöðvaði þróun greiðslulausnar sem átti að gera fólki kleift að greiða verslunum og öðrum fyrirtækjum án milligöngu kortafyrirtækja. Viðskiptabankarnir höfðu þá sýnt því lítinn áhuga að innleiða kerfið fyrir sína viðskiptavini.