
Samkomubann á Íslandi

Smárabíó opnar 4. maí
Smárabíó í Kópavogi opnar þann 4. maí, sama dag og tilslakanir á samkomubanni taka gildi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá kvikmyndahúsinu.

Svona var 58. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar fyrir blaðamenn klukkan 14 í Skógarhlíð 14.

Bein útsending: Lee Proud og Bergur Þór í listamannaspjalli
Borgarleikhúsið heldur áfram að bjóða upp á beint streymi í samkomubanni.

Tvö ný smit í Bolungarvík hjá fólki í sóttkví
Upp komu tvö ný smit á norðanverðum Vestfjörðum í gær. Bæði smitin komu úr þekktum smithópum í Bolungarvík og voru báðir einstaklingarnir því í sóttkví

Hræddir um að ástvinurinn gleymi þeim vegna ástandsins
Aðstandendur fólks með heilabilun hafa áhyggjur af því að ástvinurinn gleymi þeim vegna kórónuveiruástandsins. Þetta segir fræðslustjóri Alzheimersamtakanna sem hefur áhyggjur af afleiðingunum. Mikið hefur mætt á ráðgjafasíma samtakanna vegna ástandsins.

Losað að hluta um samkomubann í Bolungarvík og á Ísafirði
Frá og með næstkomandi mánudegi, 4. maí, verður að hluta til losað um samkomubannið sem gilt hefur frá því í byrjun apríl í Bolungarvík og á Ísafirði.

Framtíð Lækjarbrekku óljós eftir lokun
Veitingastaðnum Lækjarbrekku á Bankastræti hefur verið lokað. Eigendur staðarins greina frá því á vefsíðu Lækjarbrekku að vonast sé til þess að lokunin sé einungis tímabundin. Það verði þó að koma í ljós.

Um 70 þúsund Íslendingar tilheyra áhættuhópum vegna kórónuveirunnar: „Eina vissan er óvissan“
Um það bil 70 þúsund Íslendingar tilheyra áhættuhópum vegna kórónuveirunnar og eru taldir líklegri til að veikjast alvarlega af völdum hennar en aðrir. Ekki er vitað hvenær fólkinu er óhætt að fara út í samfélagið að nýju.

Hvað er til ráða gegn Covid-19 kvíða?
Óvissan vegna áhrifa veirunnar sem veldur Covid-19 sjúkdómnum á heilsufarslega og fjárhagslega afkomu er íþyngjandi og til þess fallin að ýta undir þrálátar tilfinningar streitu, kvíða og ótta.

Tveggja metra reglan verði almennt viðmið
Ekki hefur verið tekin ákvörðun um að afnema tveggja metra regluna og ekki stendur heldur til að afnema hana sem slíka.

Svona var 57. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar fyrir blaðamenn klukkan 14 í Skógarhlíð 14.

Fólkið sem má ekki hitta neinn
Talið er að hátt í sjötíu þúsund Íslendingar, ungir og aldnir, tilheyri áhættuhópum og eru taldir líklegri til að veikjast alvarlega af völdum veirunnar en aðrir. Þetta fólk hefur meira og minna verið í svokallaðri verndarsóttkví frá byrjun mars og það sér ekki fyrir endann á henni.

Stefnt að því að afnema tveggja metra regluna um mánaðamótin maí/júní
Víðir Reynisson stakk upp á samfélagssáttmála svo það geti orðið.

Skimanir hefjast að nýju 4. maí
Skimanir fyrir brjósta- og leghálskrabbameinum munu hefjast að nýju hjá leitarstöð Krabbameinsfélagsins 4. maí næstkomandi.

Bein útsending: Heimahelgistund í Hallgrímskirkju
Í dag klukkan 17 verður heimahelgistund streymt heim til landsmanna frá Hallgrímskirkju.

Borgarstjóri vill ræða götulokanir til að tryggja tveggja metra regluna
Til skoðunar er að loka fyrir bílaumferð í miðbænum til þess að tryggja það að hægt verði að fylgja tveggja metra reglunni.

Segir einum kafla stríðsins við veiruna lokið
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að nú megi segja að einum kafla í stríðinu við kórónuveiruna sem valdið getur Covid-19 sé lokið.

Enginn nýr ökumaður hefur komið út í umferðina í samkomubanni
Enginn nýr ökumaður hefur komið út í umferðina frá því samkomubann var sett á. Björgvin Þór Guðnason,formaður Ökukennarafélagsins, segir uppsafnaða þörf mikla og að líklega verði brjálað að gera þegar höftum verði aflétt.

Engin lyfjapróf verið tekin í samkomubanni
Lyfjaprófum á íþróttafólki hefur fækkað verulega í kjölfar kórónaveirufaraldursins en á Íslandi er áfram hægt að lyfjaprófa. Það hefur þó ekki verið gert síðan samkomubann skall á.

Bein útsending: Rakel og Garðar taka klassísk Bubbalög
Borgarleikhúsið heldur áfram að bjóða upp á beint streymi í samkomubanni.

Skátar fresta mótum í sumar
Landsmóti skáta, sem fram átti að fara að Hömrum á Akureyri í sumar, hefur verið frestað um ár.

Svona var 54. upplýsingafundurinn vegna almannavarna
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar fyrir blaðamenn klukkan 14:00 í Skógarhlíð 14.

TV í sóttkví: Þjóðkunnir einstaklingar mæla með áhorfsefni í samkomubanni
Guðni Th, Yrsa, Jón Gnarr, Halldóra Geirharðs, Daði Freyr o.fl. mæla með kvikmyndum eða sjónvarpsþáttum til að horfa á í samkomubanni.

Dagskrá sjómannadagsins í Reykjavík aflýst í fyrsta sinn í 82 ár
Skipulagðri dagskrá á sjómannadaginn í Reykjavík sunnudaginn 7. júní næstkomandi hefur verið aflýst. Er það gert vegna þeirra aðstæðna sem uppi eru í samfélaginu vegna kórónuveirufaraldursins.

Samkomubannið minnkaði eldsneytissölu um tugi prósenta
Kúvending varð á sölu eldsneytis eftir gildistöku samkomubannsins vegna kórónuveirunnar þann 16. mars.

Bein útsending: Tvískinnungur
Borgarleikhúsið heldur áfram að bjóða upp á beint streymi í samkomubanninu.

Fólk hvatt til útiveru á sumardaginn fyrsta
Hátíðarhöld í tilefni sumardagsins fyrsta, sem er í dag, hafa víðast hvar verið felld niður vegna kórónuveirunnar.

Heimsending Tíu sopa mögulega komið í bakið á þeim
Ólafur Örn Ólafsson, einn eigenda vínstúkunnar, óttast að þær litlu tekjur sem Tíu sopar höfðu af heimsendingum kunni að hafa skemmt möguleika þeirra á öðlast stuðning stjórnvalda.

Íbúar á hjúkrunarheimilum geta fengið einn gest fyrstu vikuna
Lagt er til að aðeins einum aðstandanda íbúa hjúkrunar- og dvalarheimila verði leyft að heimsækja þá fyrstu vikuna eftir að byrjað verður að slaka á heimsóknarbanni sem hefur verið í gildi vegna kórónuveirufaraldursins 4. maí.

Þingmaður VG lýsir vonbrigðum með viðbrögð ASÍ: „Er launafólk ekki fólk?“
Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður Vinstri grænna, segir að viðbrögð ASÍ og sumra úr stjórnarandstöðunni við þeim aðgerðapakka sem ríkisstjórnin kynnti í gær til að bregðast við kórónuveirufaraldrinum valdi sér vonbrigðum.