Heimilisofbeldi
1 2 3 4 5 6 7 8 … 10 ›
Antony sendur heim vegna ásakana kærustunnar Knattspyrnumaðurinn Antony, leikmaður Manchester United, hefur verið sendur heim úr æfingabúðum brasilíska landsliðsins eftir ásakanir kærustu hans um líkamlegt og andlegt ofbeldi. Fótbolti 5.9.2023 08:02
Antony neitar ásökunum um líkamlegt og andlegt ofbeldi Antony, vængmaður Manchester United, segir ekkert til í ásökunum Gabriela Cavallin - fyrrverandi kærustu hans. Gabriela segir leikmanninn hafa beitt sig andlegu og líkamlegu ofbeldi á meðan þau voru saman. Enski boltinn 4.9.2023 22:10
Átta ára fangelsi fyrir hrottaleg brot gegn eiginkonu sinni Karlmaður var dæmdur í átta ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir nauðgun, stórfellda líkamsárás og stórfellt brot í nánu sambandi yfir fjögurra ára tímabil. Hann þarf að greiða eiginkonu sinni fyrrverandi sjö milljónir króna í miskabætur. Innlent 4.9.2023 16:48
Ekki gerð refsing fyrir stórfellt heimilisofbeldi Maður var fundinn sekur en ekki gerð refsing vegna stórfelldra brota í nánu sambandi gagnvart fyrrverandi sambýliskonu sinni. Samkvæmt dóminum, sem féll á föstudag í Héraðsdómi Reykjaness, er sagt að maðurinn hafi verið ósakhæfur og að fangelsisvist myndi ekki gera honum gott. Innlent 20.8.2023 11:25
Braut sér leið inn og hreytti ókvæðisorðum í eiginkonuna fyrir framan börnin Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann fyrir brot á barnaverndarlögum og stórfelldar ærumeiðingar gegn maka fyrir að hafa brotið sér leið inn í íbúð á Akureyri og hreytt ókvæðisorðum í eiginkonu sína fyrir framan börn þeirra. Innlent 9.8.2023 08:49
Giggs sýknaður Ryan Giggs, fyrrverandi leikmaður enska knattspyrnuliðsins Manchester United, hefur verið sýknaður af ákærum um heimilisofbeldi. Enski boltinn 18.7.2023 11:30
Langþráð lausn úr ofbeldishjúskap Um helgina dregur til tíðinda. Þá taka loksins gildi lög sem auðvelda lögskilnað, bæði fyrir þolendur ofbeldis í nánu sambandi og fyrir fólk sem er sammála um að leita skilnaðar. Aðdragandinn er frumvarp sem Jón Steindór Valdimarsson, þáverandi þingmaður Viðreisnar, lagði fyrst fram í nóvember 2019 og undirrituð endurflutti fyrir rúmu ári síðan. Skoðun 30.6.2023 06:31
Fyrrverandi kærasta Antony sakar hann um heimilisofbeldi Fyrrverandi kærasta Brasilíumannsins Antony, leikmanns Manchester United og brasilíska landsliðsins, hefur sakað hann um beita sig heimilisofbeldi og haft í hótunum við hana þegar þau voru saman. Um er að ræða fjögur atvik samkvæmt ESPN í Brasilíu. Enski boltinn 6.6.2023 18:26
Fyrrverandi leikmaður Inter reyndi að kyrkja systur sína Alsírski fótboltamaðurinn Ishak Belfodil hefur verið handtekinn fyrir að reyna að kyrkja fimmtán ára systur sína. Fótbolti 6.6.2023 08:31
Sterabolti breytti lífi sambýliskonunnar í algjöra martröð Karlmaður hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að hafa með áralöngu ofbeldi og hótunum breytt lífi sambýliskonu sinnar í algjöra martröð. Hann fylgdist með ferðum hennar í gegnum síma, talaði um hana sem hóru og hótaði að hringja inn sprengjuhótun á Keflavíkurflugvelli mætti hún til vinnu. Var hann einnig dæmdur fyrir brot á barnaverndarlögum og líkamsárás á frænda konunnar. Karlmaðurinn var gripinn með nokkuð magn stera á sér við heimsókn lögreglu. Innlent 25.5.2023 10:42
Meirihluti gerenda og þolenda heimilisofbeldis yngri en 36 ára Rúmlega helmingur þeirra sem beitti og varð fyrir heimilisofbeldi á fyrsta fjórðungi ársins var yngri en 36 ára samkvæmt tölum lögreglunnar. Afgerandi meirihluti gerenda var karlar og konur yfirleitt þolendur. Innlent 22.5.2023 15:38
Skilorðsbundið fangelsi fyrir stórfellda líkamsárás gegn sambýliskonu Karlmaður hefur verið dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir stórfellda líkamsárás gegn þáverandi sambýliskonu sinni. Hann hrinti henni, sló hana í andlitið og ítrekað með beltissylgju. Innlent 20.5.2023 22:28
Stutt við þolendur heimilisofbeldis Heimilisofbeldi er óásættanlegt samfélagslegt mein. Fólk af öllum kynjum verður fyrir heimilisofbeldi og því miður eru tilfellin allt of mörg. Mikilvægt er að þolendur heimilisofbeldis fái jafnt og greitt aðgengi að viðeigandi heilbrigðisþjónustu og stuðning eins fljótt og auðið er. Þjónustu sem er skipulögð með hagsmuni þolenda að leiðarljósi. Skoðun 29.3.2023 07:30
Þrjátíu daga skilorð fyrir árás á fyrrverandi kærustu: „Ég get ekki leyft neinum að leggja á mig hendur, aldrei“ Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á fyrrum unnustu sína á heimili sínu á Akureyri. Árásin átti sér stað í september 2021. Innlent 28.3.2023 18:07
Ákæran felld niður og Roiland gagnrýnir slaufunarmenningu Ákæra á hendur Justin Roilands, sem er maðurinn á bak við þættina Rick and Morty, hefur verið felld niður. Roiland var nýverið ákærður fyrir heimilisofbeldi. Erlent 23.3.2023 21:44
Grunaður um tilraun til manndráps í nánu sambandi Lögreglan á Suðurnesjum hefur haft til rannsóknar ætlað stórfellt brot í nánu sambandi og ætlaða tilraun til manndráps frá 25. febrúar síðastliðnum. Karlmaður á fertugsaldri hefur verið í gæsluvarðhaldi frá því að málið kom upp. Innlent 23.3.2023 10:37
Lifa við stöðugar árásir, hótanir og áreiti: „Það er ekkert gert“ Kona sem hefur mátt þola stöðugar árásir, ógnir, skemmdarverk, hótanir og áreiti af hálfu fyrrum maka segir kerfið hafa brugðist sér. Þrátt fyrir nálgunarbann og fjölda kæra hefur ekkert verið gert. Hún og kærasti hennar óttast hvað maðurinn tekur upp á næst og telja að lögregla sé að bíða eftir því að einhver verði drepinn. Aðgerðarleysið sé algjört. Innlent 12.3.2023 07:00
Héraðsdómur ómerktur vegna tölvupósta dómarans Héraðsdómur í máli karlmanns sem ákærður hefur verið fyrir fjölmörg brot gagnvart sambýliskonu og börnum hefur verið ómerktur. Dómari tjáði sig um efni málsins í tölvupósti og taldi Landsréttur að draga mætti óhlutdrægni hans í efa. Héraðsdómur fær málið í sínar hendur á ný. Innlent 12.2.2023 14:19
Móður sem misþyrmdi þremur af fjórum dætrum hafnað af Hæstarétti Hæstiréttur hefur hafnað málskotsbeiðni móður sem sakfelld var fyrir að misþyrma þremur af fjórum dætrum hennar. Innlent 31.1.2023 15:29
Aldrei fleiri tilkynningar um heimilisofbeldi en árið 2022 Lögreglunni á landsvísu bárust 2.374 tilkynningar um heimilisofbeldi og ágreining milli skyldra/tengdra aðila árið 2022. Jafngildir það að meðaltali tæplega 7 slíkum tilkynningum á dag eða 198 tilkynningum á mánuði. Nær 70 prósent heimilisofbeldismála eru gegn maka eða fyrrverandi maka. Innlent 26.1.2023 11:10
Sýknaður af líkamsárás á sambýliskonu sína Héraðsdómur Vesturlands hefur sýknað karlmann sem ákærður var fyrir að ráðast á þáverandi sambýliskonu sína. Framburður fórnarlambsins hjá lögreglu og fyrir dómi þótti óstöðugur en konan gaf þrjár mismunandi lýsingar af atvikum. Innlent 9.1.2023 12:50
Heard hættir við áfrýjun eftir samkomulag Leikkonan Amber Heard hefur tilkynnt að hún hafi gert samkomulag um að hætta við áfrýjun í meiðyrðamál Johnny Depp, fyrrverandi eiginmanns hennar. Hún var í fyrra dæmd til að greiða Depp um tvo milljarða króna í skaðabætur vegna greinar sem hún skrifaði í Washington Post árið 2018, þar sem hún sagðist hafa verið fórnarlamb heimilisofbeldis. Erlent 19.12.2022 16:33
Má ég gæta barnanna minna? „Ef þú ætlar að skilja við mig mun ég drepa þig, ég mun ganga frá þér þangað til ekkert verður eftir af þér og gera líf þitt að algjöru helvíti.“ Hann fylgdi þessum orðum eftir með því að toga hana niður stiga svo að skvettist á hann úr vatnsglasinu sem hún hélt á, hann sendi börnin út að leika og nauðgaði henni um hábjartan dag. Skoðun 15.12.2022 12:00
Réðst á barnsmóður og 28 daga gamalt barn sitt: „Hræðilegt að sjá hana“ Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann í 12 mánaða fangelsi fyrir brot í nánu sambandi og barnaverndarlagabrot. Maðurinn var sakfelldur fyrir að hafa á alvarlegan hátt ógnað heilsu og velferð þáverandi kærustu sinnar og barnsmóður og 28 daga gamallar dóttur þeirra. Fram kemur í dómnum að konan hafi sætt margvíslegu ofbeldi af hálfu mannsins um langt skeið og þá hafi maðurinn haldið áfram að ásækja hana eftir að umrædd árás átti sér stað. Innlent 12.12.2022 11:54
Ákærður fyrir tilraun til manndráps og hrottafengna nauðgun Karlmaður hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps, nauðgun og stórfelld brot í nánu sambandi. Lýsingar í ákærunni gefa til kynna að atlaga mannsins að konunni hafi verið hrottafengin. Innlent 29.11.2022 21:01
Að meðaltali sjö tilkynningar á dag um heimilisofbeldi eða ágreining Tæplega átján hundruð tilkynningar bárust lögreglunni á landsvísu um heimilisofbeldi og ágreining milli skyldra eða tengdra aðila á fyrstu níu mánuðum ársins. Jafngildir það að meðaltali tæplega sjö tilkynningum á dag og hafa þær aldrei verið fleiri ef litið er til sama tímabils síðustu sjö ára. Á sama tíma hefur tilkynningum um ofbeldi foreldris í garð barns fjölgað. Innlent 29.11.2022 10:14
Hafði búið á Íslandi í nokkur ár en vissi ekki eigið heimilisfang Mikilvægt er að halda á lofti umræðunni um ofbeldi í nánum samböndum segir ráðgjafi hjá Kvennaathvarfinu. Hún sér um fræðslu einstaklinga frá leikskólaaldri og segir að sérstaklega þurfi að huga að innflytjendum. Lífið 29.11.2022 07:01
Heyrði öskrin í næsta herbergi og sá marblettina á mömmu „Ég heyrði mjög oft í pabba mínum að öskra, oftast á mömmu. Herbergið mitt var við hliðina á þeirra. Ég heyrði pabba oft öskra og mömmu biðja hann að hætta.“ Lífið 28.11.2022 15:31
Mun færri konur fara nú aftur á ofbeldisheimilið „Við leggjum af stað mjög hugaðar í þetta verkefni,“ segir Linda Dröfn Gunnarsdóttir framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins. Lífið 26.11.2022 17:01
„Þær taka valdið aftur í sínar hendur“ Gögn Kvennaathvarfsins eru ekki geymd undir nöfnum kvennanna sem þangað leita vegna ofbeldis í nánum samskiptum. Mikil áhersla er lögð á trúnað og eru konurnar ekki spurðar um nafn þess sem beitti þær ofbeldi. Lífið 19.11.2022 08:01