Þór Akureyri

Ljósleiðaradeildin í beinni: Þór og Dusty vilja halda fullkominni byrjun áfram
Tveir leikir eru á dagskrá þegar 3. umferð Ljósleiðaradeildarinnar í CS:GO fer af stað í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Þór/KA - Stjarnan 0-4 | Garðbæingar upp í annað sætið eftir stórsigur
Stjarnan gjörsigraði Þór/KA, 4-0, í lokaleik 17. umferðar Bestu deildar kvenna. Sigurinn var aldrei í hættu og voru gestirnir 3-0 yfir í hálfleik. Með sigrinum fer Stjarnan upp í 2. sæti fyrir lokaumferðina sem gefur þeim Evrópusæti ef svo fer að lokum að þær hirði annað sætið.

Umfjöllun: KA/Þór-Haukar 26-25 | Naumur sigur heimaliðsins
KA/Þór vann nauman eins marks sigur á Haukum í Olís deild kvenna i handbolta í dag, lokatölur 26-25.

„Þetta var draumur sem ég bjóst ekkert endilega við að myndi rætast“
Martha Hermannsdóttir, fyrirliði KA/Þórs í Olís deild kvenna undanfarin ár, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir viðburðarríkan feril. Tannlækningar eiga nú hug hennar allan.

2. umferð CS:GO lokið: Staðan og næstu leikir
2. umferð Ljósleiðaradeildarinnar í CS:GO lauk með sigri Fylkis á Ten5ion. Dusty, Þór, NÚ, og Ármann unnu einnig sína leiki.

Þór fær risavaxna króatíska skyttu sem á leiki í Meistaradeildinni
Þór Akureyri, sem leikur í Grill 66 deild karla, hefur samið við króatísku skyttuna Josip Vekic.

Peterrr í lykilhlutverki hjá Þórsurum
Í síðari leik gærkvöldsins mættust Þór og SAGA í Ljósleiðaradeildinni í CS:GO.

Valskonur einar um að fljúga frá Íslandi
Tvö íslensku liðanna sem leika í 2. umferð Evrópubikars kvenna í handbolta munu leika einvígi sín alfarið á heimavelli en bikarmeistarar Vals spila hins vegar báða leiki sína á útivelli.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík-Þór/KA 1-3 | Þór/KA tók risaskref í átt að áframhaldandi veru í Bestu deildinni
Þór/KA fór langt með að halda sér í deildinni með 1-3 sigri á Keflavík. Leikurinn fór rólega af stað en um leið og Þór/KA komst á bragðið fór boltinn að rúlla sem skilaði þremur mörkum. Keflavík minnkaði muninn í 1-3 en nær komust Keflvíkingar ekki og Þór/KA fékk mikilvæg þrjú stig í pokann

„Keflavík ákvað að vorkenna okkur og gefa okkur mark“
Þór/KA vann Keflavík nokkuð sannfærandi 1-3 og tók risaskref í átt að áframhaldandi veru í Bestu deildinni. Jón Stefán Jónsson, þjálfari Þór/KA, var í skýjunum eftir leik.

Martha Hermannsdóttir leggur skóna á hilluna
Martha Hermannsdóttir, ein reyndasta handboltakona landsins, hefur ákveðið að kalla þetta gott af handboltaiðkun og lagt skóna á hilluna frægu.

ÍBV vann KA/Þór með minnsta mun
KA/Þór var í heimsókn í Vestmannaeyjum og mætti ÍBV í Olís-deild kvenna. Fór það svo að heimaliðið vann með minnsta mun, lokatölur 28-27.

1. umferð CS:GO lokið: Staðan og næstu leikir
1. umferð Ljósleiðaradeildarinnar í CS:GO lauk með sigri meistaranna í Dusty á nýliðum Breiðabliks. Þór, NÚ, SAGA og Ármann unnu einnig sína leiki.

Sýndum mikinn karakter
„Ég held að þetta hafi verið sanngjörn niðurstaða í þessum leik, hann var fremur kaflaskiptur og opinn,“ sagði Perry John James Mclachan þjálfari Þór/KA eftir 3-3 jafntefli við ÍBV á Akureyri í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Þór/KA 3-3 ÍBV | Jafnt í markaleik á Akureyri
Þór/KA og ÍBV gerðu jafntefli í sex marka leik í lokaleik 15. umferðar Bestu-deildar kvenna í fótbolta.

Miskunnarlaus Minidegreez tryggði Þór sigur á LAVA
Í öðrum leik Ljósleiðaradeildarinnar í CS:GO mættust Þór og LAVA, liðin sem höfnuðu í 2. og 3. sæti á síðasta tímabili.

Leikmannaspá Ljósleiðaradeildarinnar: Lofa góðu en ná ekki að slá meistarana af stalli
Leikmenn Ljósleiðaradeildarinnar í CS:GO spá Þór öðru sæti deildarinnar á komadi tímabili.

Olís-spá kvenna 2022-23: Treysta á heilaga Rut sem aldrei fyrr
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir KA/Þór 5. sæti Olís-deildar kvenna í vetur.

Þrjú rauð spjöld og Þórssigur í Vogunum
Þór vann öruggan sigur á föllnum Þrótturum í síðasta leik dagsins í Lengjudeildinni í fótbolta.

Sjáðu fyrsta mark Þórs/KA síðan í júní og sjö mörk Stjörnunnar
Tveir leikir voru á dagskrá í Bestu deild kvenna í fótbolta í gær sem voru mikilvægir bæði á toppi og botni. Þór/KA vann sinn fyrsta leik síðan 1. júní og Evrópudraumur Stjörnunnar lifir eftir risasigur.

Fylkir hafði betur í toppslagnum og Grótta heldur í vonina
Seinni þremur leikjum kvöldsins í Lengjudeild karla lauk nú rétt í þessu. Fylkismenn eru svo gott sem búnir að tryggja sér sæti í Bestu-deildinni eftir 0-2 sigur gegn HK, Grótta heldur enn í vonina eftir nauman 1-0 sigur gegn Þór og Afturelding vann öruggan 4-0 sigur gegn Þrótti Vogum.

Umfjöllun og viðtöl: Þór/KA-Þróttur R. 1-0 | Norðankonur fjarlægjast fallsvæðið
Þór/KA vann gríðarlega mikilvægan 1-0 sigur er liðið tók á móti Þrótti í Bestu-deild kvenna í knattspyrnu í kvöld. Liðið er nú þremur stigum frá fallsvæðinu eftir sigur kvöldsins.

800 kílóum létt af manni
„Einhverjir tala um að það sé þungu fargi af manni létt en þetta voru svona 800 kíló sem er létt af manni,“ sagði Jón Stefán Jónsson, þjálfari Þór/KA kátur eftir mikilvægan 1-0 sigur á Þrótti í Bestu deild kvenna á SaltPay vellinum í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Selfoss-Þór/KA 2-0 | Markaþurrð Selfyssinga lokið
Selfoss hafði ekki skorað í síðustu fimm leikjum áður en Þór/KA kom í heimsókn. Brenna Lovera braut ísinn á fimmtu mínútu. Þór/KA hótaði jöfnunarmarki í síðari hálfleik en gegn gangi leiksins skoraði Susanna Joy Friedrichs annað mark Selfyssinga og gulltryggði stigin þrjú. Umfjöllun og viðtöl væntanleg.

Þórsarar reyndu ekki að fá bulldómnum breytt
Knattspyrnudeild Þórs ákvað að sækjast ekki formlega eftir því að Hermann Helgi Rúnarsson slyppi við leikbann eftir rauða spjaldið sem hann fékk ranglega vegna misskilnings dómarans reynslumikla, Erlends Eiríkssonar, í leik gegn Selfossi.

Þór stöðvaði sigurgöngu HK
Þór Akureyri bar 2-0 sigur úr býtum þegar liðið fékk topplið Lengjudeildar karla í fótbolta, HK, í heimsókn í Þorpið í kvöld.

Gary Martin tryggði Selfoss sigur á Þór
Tvö rauð spjöld fóru á loft og þrjú mörk voru skoruð þegar Selfoss vann 2-1 endurkomusigur á heimavelli gegn Þór í Lengjudeildinni í dag.

Umfjöllun og viðtöl: Þór/KA - Afturelding 0-1 | Afturelding lyfti sér upp úr botnsætinu
Afturelding vann gríðarlega mikilvægan 0-1 útisigur er liðið heimsótti Þór/KA í fallbaráttuslag í Bestu-deild kvenna í knattspyrnu í kvöld. Ísafold Þórhallsdóttir skoraði eina mark leiksins strax á fyrstu mínútu.

Ásdís líka farin til Skara
Leikmönnum sem farið hafa frá KA/Þór út í atvinnumennsku í sumar heldur áfram að fjölga því Ásdís Guðmundsdóttir var í dag kynnt sem nýjasti leikmaður sænska úrvalsdeildarfélagsins Skara.

Þriðji sigur Þórsara í röð
Þór Akureyri vann 1-0 sigur á Vestra í síðasta leik 15. umferð í Lengjudeild karla í fótbolta í dag. Austankonur lögðu þá Grindavík í Lengjudeild kvenna.