
UMF Grindavík

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Grindavík 91-87 | Stjarnan snéri taflinu við og vann í framlengdum leik
Stjarnan vann mikilvægan fjögurra stiga sigur gegn Grindvíkingum í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld, 91-87. Grindvíkingar leiddu með tuttugu stigum í hálfleik, en Garðbæingar snéru taflinu við í síðari hálfleik og höfðu að lokum betur í framlengingu.

Sverrir Þór: „Við þurfum að fínpússa hluti“
Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari Grindavíkur, var sár og svekktur eftir að hafa misst niður nánast unnin leik gegn Stjörnunni í Garðabæ.

Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík 79-85 Grindavík | Grindvíkingar sóttu óvæntan útisigur í Njarðvík
Nýliðar Njarðvíkur og Grindavíkur mættust í Ljónagryfjunni í kvöld í hörku leik. Þrátt fyrir að hlutskipti liðanna í deildinni sé ansi ólíkt, var ekki að sjá á leik þeirra að hér væru lið að berjast á sitthvorum enda töflunnar.

„Ég vissi allan tímann að við ættum séns“
Þorleifur Ólafsson, Lalli, þjálfari Grindavíkur var kampakátur í leikslok í Ljónagryfjunni í kvöld þar sem hans konur lönduðu miklum baráttusigri gegn Njarðvík.

Umfjöllun og viðtöl: Grindavík - Haukar 78-93 | Reynslusigur hjá Haukum í Grindavík í kvöld
Haukar unnu fjórða leikinn sinn í röð er liðið heimsótti Grindavík í Subway-deild kvenna í körfubolta í kvöld. Lokatölur 93-78.

Bjarni: Grindavík var bara að gera okkur erfitt fyrir á löngum köflum
Haukar lönduðu þegar upp var staðið nokkuð öruggum sigri í Grindavík í kvöld, en það var þó ekki fyrr en rétt síðustu fimm mínúturnar eða svo sem gestirnir náðu að slíta sig almennilega frá heimakonum í Grindavík, staðan 71-75 þegar 5:32 lifðu leiks. Bjarni Magnússon, þjálfari Hauka, tók undir þá greiningu blaðamanns að þær hefðu þurft að hafa töluvert fyrir sigrinum í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Grindavík - Vestri 90-74| Sigur í endurkomu Sverris
Grindavík vann Vestra í endurkomu Sverris Þórs Sverrissonar sem þjálfara Grindavíkur. Eftir hikandi byrjun duttu heimamenn í gang í öðrum leikhluta og litu aldrei um öxl eftir það. Grindavík vann á endanum sextán stiga sigur 90-74.

Sverrir: Markmiðið er að fá stöðugleika í Grindavík
Grindavík vann sextán stiga sigur á Vestra í HS-Orku höllinni í kvöld. Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari Grindavíkur, var afar ánægður með að byrja á sigri í sínum fyrsta leik sem nýr þjálfari Grindavíkur.

Sverrir Þór tekur við Grindavík
Sverrir Þór Sverrisson hefur verið ráðinn þjálfari liðs Grindavíkur í Subway-deild karla í körfubolta. Grindvíkingar hafa verið án þjálfara síðan Daníel Guðni Guðmundsson var látinn taka poka sinn á dögunum.

Daníel fékk uppörvandi símtöl frá lykilmönnum: „Þetta kom mér á óvart“
„Ég veit ekki hvort nokkur sé sáttur þegar maður er rekinn. Þetta kom mér á óvart,“ segir körfuboltaþjálfarinn Daníel Guðni Guðmundsson sem fékk að vita það í gærkvöld að honum hefði verið sagt upp starfi sem þjálfari karlaliðs Grindavíkur.

Daníel rekinn frá Grindavík
Stjórn körfuknattleiksdeildar Grindavíkur vinnur nú að því að ákveða hver stýra muni karlaliði félagsins út leiktíðina eftir að hafa ákveðið að láta Daníel Guðna Guðmundsson taka pokann sinn.

Umfjöllun og viðtöl: Fjölnir - Grindavík 90 - 66| Fjölnir aftur á sigurbraut
Fjölnir komst aftur á sigurbraut er liðið valtaði yfir Grindavík. Frábær fjórði leikhluti Fjölnis gerði útslagið og endaði leikurinn 90-66. Umfjöllun og viðtöl.

Þorleifur: „Hraunaði yfir stelpurnar í hálfleik“
Grindavík steinlá fyrir Fjölni í Subway-deild kvenna í kvöld. Leikurinn endaði 90-66 og var Þorleifur Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, afar svekktur með úrslitin.

„Þetta er einfaldlega orkustigið sem þarf ef þú ætlar að vinna leiki í þessari deild“
Jóhann Þór Ólafsson, aðstoðarþjálfari Grindavíkur, var við stjórnvölin í kvöld þar sem Daníel Guðni tók út leikbann. Hann tók undir þá greiningu mína að það hefði verið engu líkara en tvö mismunandi Grindavíkurlið hefðu mætt til leiks í fyrri og seinni hálfleik, en frammistaðan var eins og svart og hvítt hjá þeim gulklæddu í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Grindavík - Valur 99-92 | Mögnuð endurkoma heimamanna í Grindavík
Grindavík vann frábæran endurkomusigur á Val, 99-92, í Subway-deild karla í kvöld. Sigurinn þýðir að Grindavík hefur jafnað Val að stigum í deildinni.

Góðar fréttir fyrir Grindvíkinga: Mæta einu af efstu liðunum í kvöld
Grindvíkingar eru komnir niður í sjötta sæti Subway-deildar karla í körfubolta og eru á hraðri niðurleið eftir einstaklega slakt gengi á móti neðstu liðum deildarinnar að undanförnu.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Grindavík 104-92 | Gott gengi Blika heldur áfram
Breiðablik er áfram á sigurbraut í Subway-deild karla í körfubolta. Að þessu sinni var það Grindavík sem lá í valnum, lokatölur í Smáranum 104-92. Blikar eru svo sannarlega komnir í baráttuna um sæti í úrslitakeppninni.

„Hann gæti verið stoðsendingahæsti leikmaðurinn í þessari deild.“
Ivan Aurrecoechea Alcolado átti góðan leik er Grindavík lagði Tindastól í síðustu umferð Subway-deildar karla í körfubolta. Strákarnir í Körfuboltakvöldi eru þó á því að þessi 26 ára Spánverji gæti orðið enn betri ef hann breytir leik sínum örlítið.

Umfjöllun og viðtöl: Grindavík - Tindastóll 101-93 | Grindvíkingar náðu í fyrsta sigur ársins
Grindavík vann góðan 101-93 sigur á Tindastól í Subway-deild karla í kvöld. Þetta var fyrsti sigur heimamanna á árinu.

Daníel Guðni: Þetta sýnir góð karakterseinkenni fyrir framhaldið
„Það er gott að verja heimavöllinn og ná loksins í sigur á þessu ári,“ sagði Daníel Guðni Guðmundsson, þjálfari Grindavíkur, eftir sigurinn á Tindastól í Subway-deildinni í körfuknattleik í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Grindavík 85-65 | Öruggur Keflavíkursigur
Keflavík vann öruggan sigur á nágrönnum sínum úr Grindavík í Subway deildinni í körfubolta í kvöld.

„Horfum þrjú ár fram í tímann“
Grindavík beið lægri hlut fyrir Keflavík í Subway deildinni í körfubolta í kvöld en þrátt fyrir það er engan bilbug að finna á Grindavíkurkonum.

„Þessi gæi er hæfileikabúnt“
Elbert Clark Matthews, eða EC Matthews eins og hann er yfirleitt kallaður, var til umræðu í seinasta þætti Körfuboltakvölds. Sérfræðingar þáttarins voru sammála um það að þarna væri hæfileikabúnt á ferðinni, en að liðsfélagar hans í Grindavík væru oft að gera honum erfitt fyrir.

Umfjöllun og viðtal: KR - Grindavík 83-81 | Heimamenn svöruðu fyrir afhroðið í Kópavogi
KR fékk Grindavík í heimsókn í sínum fyrsta heimaleik síðan um miðjan desember. Eftir að bíða afhroð í Kópavogi í síðustu umferð þurftu heimamenn að svara fyrir sig, sem þeir og gerðu. KR vann mikilvægan tveggja stiga sigur en sigurkarfan kom í blálokin.

Umfjöllun og viðtöl: Grindavík - Njarðvík 67-71 | Torsóttur sigur Njarðvíkur gegn nágrönnunum
Njarðvík vann baráttusigur á Grindavík í Subway-deild kvenna í körfuknattleik í kvöld. Aliyah Collier var frábær í síðari hálfleik og dró vagninn fyrir gestina.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Grindavík 77-71 | Annar sigur Breiðabliks á tímabilinu
Breiðablik vann sinn annan sigur í Subway-deild kvenna í kvöld gegn Grindavík. Leikurinn var spennandi þrátt fyrir að Breiðablik lenti aldrei undir í leiknum. Breiðablik vann að lokum sex stiga sigur 77-71.

Umfjöllun og viðtöl: Þór Ak. - Grindavík 82-80 | Fyrsti sigur Þórsara kom í fyrsta leik ársins
Þór Akureyri vann sinn fyrsta sigur í Subway-deild karla í körfubolta þegar þeir fengu Grindavík í heimsókn í Höllina á Akureyri í kvöld. Þórsarar fyrir leikinn í neðsta sæti án stiga en Grindvíkingar í þriðja sæti með 14 stig, fjórum stigum frá toppliði Keflavíkur.

Umfjöllun og viðtöl: Grindavík - Valur 58-73 | Meistararnir hefja árið á sigri
Nýliðar Grindavíkur tóku á móti Íslandsmeisturum Vals í HS Orku höllinni í Grindavík í kvöld þar sem gestirnir fóru að lokum með nokkuð sanngjarnan sigur af hólmi, 58-73.

Umfjöllun og viðtöl: Þór Þ. - Grindavík 91-95 | Gestirnir stálu sigrinum á lokasprettinum
Grindvíkingar unnu nauman sigur gegn Íslandsmeisturum Þórs er liðin mættust í Þorlákshöfn í kvöld. Heimamenn leiddu lengst af, en frábær lokasprettur skilaði Grindvíkingum mikilvægum fjögurra stiga sigri, 91-95.

Daníel Guðni: „Þetta voru bara tvö góð lið að berjast og við unnum hérna í kvöld“
Daníel Guðni Guðmundsson, þjálfari Grindvíkinga, var að vonum sáttur með 95-91 sigur sinna manna gegn Íslandsmeisturum Þórs frá Þorlákshöfn í Subway-deild karla í kvöld.