UMF Grindavík

Grindvíkingar fá landsliðskonu frá Njarðvík
Körfuknattleiksdeild Grindavíkur hefur samið við íslensku landsliðskonuna Isabellu Ósk Sigurðardóttur um að leika með liðinu í Subway-deild kvenna næstu tvö árin.

Njarðvík mistókst að komast á toppinn og botnliðið náði í mikilvæg stig
Afturelding vann góðan 5-2 sigur er liðið heimsótti Njarðvík í Lengudeild karla í knattspyrnu í kvöld. Á sama tíma vann botnlið Þróttar mikilvægan 1-0 sigur gegn Grindavík.

Basile á Krókinn
Bandaríski leikstjórnandinn Dedrick Deon Basile er genginn í raðir Tindastóls frá Grindavík.

Emma heldur áfram að raða inn mörkum og FHL fór á toppinn
FHL komst aftur á toppinn í Lengjudeild kvenna í fótbolta eftir sex marka stórsigur á Grindavík í Safamýrinni.

Grindvíkingar búnir að finna sér nýjan bandarískan bakvörð
Grindvíkingar hafa fundið eftirmann Dedrick Basile því félagið segir í dag frá samningi sínum við bandaríska leikstjórnandann Devon Thomas.

Skiptir um lið en ekki um heimavöll
Kvennalið Grindavíkur í körfuboltanum hefur fengið góðan liðstyrk fyrir næsta tímabil en bakvörðurinn Sóllilja Bjarnadóttir hefur nú samið við félagið.

Íslenska vegabréfið skilar Danielle samningi hjá Euro Cup liði
Danielle Rodriguez spilar ekki áfram með Grindavík í Subway deild kvenna í körfubolta á næstu leiktíð því þessi öfluga körfuboltakona hefur samið við svissneska félagið BCF Elfic Fribourg Basket.

Hulda verður áfram hjá Grindavík
Fyrirliði Grindavíkur í Subway-deild kvenna, Hulda Björk Ólafsdóttir, verður áfram á sínum stað næsta vetur.

Uppgjör og viðtöl: Grindavík - Valur | Valskonur í undanúrslit eftir sex marka sigur
Íslandsmeistarar Vals unnu afskaplega öruggan 6-0 sigur gegn Lengjudeildarliði Grindavíkur í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna.

Sækja um leyfi fyrir einum leik í Grindavík
Grindvíkingar hafa sótt um leyfi fyrir því að fá að spila einn leik á heimavelli sínum, Stakkavíkurvelli, í Lengjudeild karla í knattspyrnu í sumar.

Jóhann Árni til Hattar
Jóhann Árni Ólafsson hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs Hattar í körfubolta við hlið Viðars Arnar Hafsteinssonar.

Haraldur tekur við Grindavík
Haraldur Árni Hróðmarsson hefur verið ráðinn þjálfari Grindavíkur í Lengjudeild karla í fótbolta.

Slakur árangur og samskiptaleysi ástæðan fyrir brottvikningu Brynjars Björns
Knattspyrnudeild Grindavíkur hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna brottvikningar þjálfarans Brynjars Björns Gunnarssonar. Grindvíkingar segja að slakur árangur og samskiptaleysi sé ástæðan fyrir brottvikningunni.

Ráku Brynjar Björn strax eftir leik
Brynjar Björn Gunnarsson stýrði Grindavík í síðasta skiptið í gærkvöldi þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við Keflavík í Lengjudeild karla í fótbolta.

Kane skrifaði undir samning á lokahófi Grindavíkur
DeAndre Kane mun snúa aftur til Grindavíkur og leika með liðinu á næsta tímabili.

Fyrstu sigrar Aftureldingar og Þróttar
Afturelding og Þróttur unnu í kvöld sína fyrstu leiki í Lengjudeild karla á tímabilinu.

Sjáðu stikluna fyrir nýju heimildaþættina um Grindavík
Stöð 2 Sport er að vinna sex þátta heimildaþáttaseríu um körfuboltann í Grindavík og áhrifin sem jarðhræringarnar á Reykjanesi höfðu á starf körfuknattleiksdeildarinnar og leikmenn liðsins.

Tískan á körfuboltaleiknum
Það var gríðarleg stemning og mikil spenna á Hlíðarenda í gær þegar að Valur varð Íslandsmeistari í körfubolta karla eftir sigur á Grindavík. N1 höllin var troðfull af stuðningsmönnum sem margir hverjir nýttu tækifærið til þess að klæða sig upp.

Myndasyrpa frá oddaleiknum og fögnuði Valsmanna
Valur varð í gær Íslandsmeistari í körfubolta karla eftir sigur á Grindavík, 80-73, í oddaleik í troðfullri N1-höll þeirra Valsmanna.

Twitter um oddaleikinn: Finnur Freyr, dómgæslan og ósvikin Valsgleði
Fólk lét gamminn geysa á Twitter á meðan oddaleik Vals og Grindavíkur um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta karla stóð.

Leikmennirnir sem hafa skarað fram úr í baráttunni um titilinn
Valur og Grindavík mætast í kvöld í hreinum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í Subway deild karla í körfubolta og fer oddaleikurinn fram á Hlíðarenda.

Iðkendur með forgang: „Förum ekki að breyta því núna“
Ungir iðkendur í Val fá frítt á leik liðsins í kvöld og fengu forgang í sæti, líkt og á öðrum leikjum. Valur mætir Grindavík í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn að Hlíðarenda klukkan 19:15.

Grindvíkingar gætu tapað fjórða oddaleiknum um titilinn
Grindvíkingum hefur ekki gengið allt of vel að landa sigri í oddaleik um Íslandsmeistaratitil karla í körfubolta en þeir fá tækifæri til að breyta því á Hlíðarenda í kvöld.

„Við skuldum sjálfum okkur alvöru frammistöðu á útivelli“
Ólafur Ólafsson og félagar í Grindavík geta í kvöld unnið sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í meira en áratug. Stefán Árni Pálsson ræddi við fyrirliði Grindvíkinga um leikinn við Val sem fer fram fyrir fram troðfullan Hlíðarenda.

Grindvíkingar verða áfram í Smáranum
Dagurinn byrjar mjög vel fyrir Grindvíkinga því þeir hafa fundið sér heimili í körfuboltanum næsta árið.

„Þetta verður bara stríð“
Kristófer Acox er að fara spila oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn þriðja árið í röð og í fjórða sinn á síðustu fimm árum. Stefán Árni Pálsson ræddi við fyrirliða Valsmanna um leikinn við Grindavík sem fer fram í kvöld fyrir framan troðfullan Hlíðarenda.

Uppselt á oddaleikinn
Uppselt er á oddaleik Vals og Grindavíkur um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta karla. Leikurinn fer fram í N1-höll Valsmanna á miðvikudaginn.

„Ég elska að við töpum ekki hér“
Dedrick Basile var hetja Grindvíkinga í kvöld í dramatískum leik. Hann lét sér ekki nægja að vera langstigahæstur með 32 stig heldur skoraði hann einnig sigurkörfuna níu sekúndum fyrir leikslok.

Uppgjör: Grindavík-Valur 80-78 | Oddaleikur niðurstaðan þökk sé ótrúlegasta endi síðari ára
Grindavík tryggði sér oddaleik um Íslandsmeistaratitil karla í körfubolta með háspennu sigri á Val í Smáranum. Leikurinn var stál í stál frá fyrstu sekúndu til þeirrar síðustu en ótrúleg sókn Grindavíkur undir lok leiks og þristur frá Dedrick Basile tryggði sigurinn að lokum.

Lögreglan kórónaði ömurlegan dag hjá Kane
Grindvíkingurinn DeAndre Kane átti mjög erfiðan dag í gær. Fyrst gat hann ekkert í leik Vals og Grindavíkur og svo var hann stöðvaður af lögreglunni.