Fram
Einar Jónsson: Þetta er bara áfram gakk, það er bara svoleiðis
Einar Jónsson, þjálfari Fram var sáttur með að ná stigi í hörkuspennandi leik á móti Aftureldingu í 11. umferð Olís-deildar karla í kvöld. Kaflaskiptur leikur en Framarar skoruðu nánast á loka sekúndu leiksins. Lokatölur 27-27.
Fram hafði betur gegn Haukum í jöfnum leik
Fram vann nauman tveggja marka heimasigur er liðið tók á móti Haukum í Olís-deild kvenna í kvöld, 24-22.
Umfjöllun og viðtöl: Fram - Afturelding 27-27| Jafntefli niðurstaðan í hörkuleik
Framarar tóku á móti Aftureldingu í 11. umferð Olís-deildar karla í handbolta í kvöld. Mjög kaflaskiptur og spennandi leikur þar sem jöfnunar markið var nánast skorað á loka sekúndu leiksins. Lokatölur 27-27.
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Fram 31-31 | Jafntefli niðurstaða í hörkuleik
Stjarnan og Fram gerðu jafntefli er liðin mættust í 10. umferð Olís-deildar karla í kvöld. Framarar með öll tök á leiknum en um miðbik seinni hálfleiks urðu þeir full værukærir. Stjörnumenn nýttu sér það og tókst að jafna á loka mínútunni. Lokatölur 31-31.
„Mitt heimili er aðdáandi númer eitt af Ragnheiði Júlíusdóttur“
Ragnheiður Júlíusdóttir átti mjög flottan leik þegar Fram vann 26-25 sigur á Stjörnunni í Olís deild kvenna en stórskyttan var með tíu mörk og sex stoðsendingar í leiknum. Seinni bylgjan ræddi frammistöðu Ragnheiðar í leiknum.
Þórey Rósa tékkar sig inn rétt fyrir flug
Framkonan Þórey Rósa Stefánsdóttir verður í íslenska landsliðshópnum sem sem heldur til Tékklands í fyrramálið til að leika þar á æfingamóti í handbolta.
Umfjöllun og viðtöl: FH - Fram 30-27 | FH-ingar upp í 2. sætið
FH komst upp í 2. sæti Olís-deildar karla með sigri á Fram, 30-27, í Kaplakrika í kvöld. Þetta var fimmti sigur FH-inga í síðustu sex leikjum. Fram, sem hefur tapað þremur leikjum í röð, er áfram í 7. sæti deildarinnar.
Einar: Þvílíkt andleysi og karaktersleysi
Einar Jónsson, þjálfari Fram, var langt frá því að vera sáttur með sína menn í fyrri hálfleik gegn FH í kvöld. Frammarar voru sjö mörkum undir að honum loknum, 17-10.
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Fram 25-26 | Fram hafði betur í spennuleik
Fram komst á toppinn eftir eins marks sigur á Stjörnunni í spennuleik. Leikurinn var jafn nánast frá fyrstu mínútu og vann Fram að lokum 25-26.
Stefán: Sýndum karakter að klára þennan leik með sigri
Fram vann Stjörnuna með einu marki 25-26. Stefán Arnarson, þjálfari Fram, var afar ánægður með að vera kominn á toppinn í Olís deild kvenna.
Tiago snýr aftur í Fram
Portúgalski miðjumaðurinn Tiago Manuel Silva Fernandes er snúinn aftur í raðir Fram og mun leika með liðinu í Pepsi Max deild karla á næstu leiktíð.
Umfjöllun: ÍBV - Fram 23-25 | Fram marði sigur í Eyjum
Fram vann nauman tveggja marka sigur á ÍBV er liðin mættust í Olís-deild kvenna í handbolta í Vestmannaeyjum í dag, lokatölur 23-25.
FH fær vinstri bakvörð Fram
Nýliðar Fram halda áfram að missa leikmenn úr sínum röðum en vinstri bakvörðurinn Haraldur Einar Ásgrímsson hefur samið við FH um mun leika með félaginu næstu þrjú árin.
Leik Fram og Vals frestað vegna veirunnar
Kórónuveiran heldur áfram að setja strik í reikninginn í íþróttalífinu á Íslandi, en leik Fram og Vals sem átti að fara fram í Olís-deild karla annað kvöld hefur verið frestað vegna hennar.
Umfjöllun og viðtöl: KA - Fram 37-33 | Heimamenn með góðan sigur
KA og Fram mættust í 7. umferð Olís-deildar karla í handbolta nú í kvöld þar sem heimamenn fóru með nokkuð öruggan sigur af hólmi í miklum markaleik, lokatölur 37-33.
Umfjöllun og viðtöl: Fram - Valur 24-25 | Valur á toppinn
Valur tyllti sér á topp Olís-deildar kvenna með eins marks sigri á Fram, 24-25, í Safamýrinni í dag. Valskonur eru með fullt hús stiga.
Úrslitin réðust á lokaspurningunni
Í Kviss á laugardaginn mættust Þróttur og Fram í 8-liða úrslitunum.
Kári fagnaði framan í Framara og var vikið af velli: „Ég hefði orðið brjálaður“
Línumaðurinn Kári Kristján Kristjánsson var sendur í kælingu eftir að hafa fagnað marki fyrir ÍBV gegn Fram af miklum móð. Silfurdrengirnir í sérfræðingateymi Seinni bylgjunnar voru afar ósammála dómaranum.
„Betri heima en á parketinu í Safamýri“
„Á meðan hún stendur sig á parketinu eins og hún gerði í síðasta leik að þá er þetta þess virði. Þú þarft að vinna svolítið fyrir því að fá þessar pásur frá krakkanum,“ grínast Þorgrímur Smári Ólafsson sem er heimavinnandi húsfaðir á meðan að Karen Knútsdóttir blómstrar á toppi Olís-deildarinnar.
Umfjöllun og viðtöl: Fram - ÍBV 28-32 | Eyjamenn sóttu tvö stig í Safamýrina
ÍBV er komið með átta stig í Olís-deild karla eftir sigur liðsins á Fram í Safamýrinni í kvöld en lokatölur voru 28-32.
Stigalausir Mosfellingar stríddu toppliðinu
Stigalaust lið Aftureldingar tapaði gegn toppliði Fram í Olís-deild kvenna í kvöld er liðin mættust í Mosfellsbæ. Lokatölur 29-25, en það tók Framara rúmar 50 mínútur að hrista Mosfellinga af sér.
Gaupi hitti markvörðinn sem elskar Eurovision og fór í framboð
Guðjón Guðmundsson var í Eurovision fíling í síðustu Seinni bylgju og hitti þar einn virtasta Eurovision sérfræðing íslensku þjóðarinnar sem er líka alveg þrælgóður í marki í handbolta. Hér má finna nýjasta „.Eina“ með Gaupa.
Umfjöllun og viðtöl: Víkingur - Fram 25-27 | Víkingar enn í leit að fyrsta sigrinum
Framarar gerðu góða ferð í Víkina í kvöld og lögðu nýliða Víkings að velli í Olís deildinni í handbolta.
Stefán: Gerðum þá breytingu að spila vörnina eins og við ætluðum að gera
Stefán Arnarson var ánægður með hvernig Fram sneri dæminu sér í vil í seinni hálfleik gegn KA/Þór í dag.
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Fram - KA/Þór 27-25 | Framkonur sterkari á svellinu undir lokin
Fram vann góðan sigur á Íslands- og bikarmeisturum KA/Þórs, 27-25, í Safamýrinni í Olís-deild kvenna í dag.
Áfram í Fram
Alex Freyr Elísson hefur skrifað undir nýjan samning við Fram og mun leika með liðinu í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu næsta sumar. Samningur hans gildir til ársins 2023.
Umfjöllun og viðtöl: Fram - HK 27-25 | Framarar sigruðu gamla þjálfarann í hörkuleik
Sebastian Alexandersson mætti með HK-inga á sinn gamla heimavöll í Safamýrinni í 4. umferð Olís-deildar karla í handbolta í dag. Hörkuleikur þar sem bæði stigin enduðu hjá Fram. Lokatölur 27-25.
Einar Jónsson: Við unnum og það skiptir máli
Einar Jónsson, þjálfari Fram í handbolta, var að vonum sáttur með sigur á HK er liðin mættust í 4. umferð Olís-deildar karla í handbolta í dag. Hörkuleikur sem endaði með sigri Fram. Lokatölur 27-25.
Aníta og Óskar stýra Fram
Knattspyrnudeild Fram hefur ráðið þau Anítu Lísu Svansdóttur og Óskar Smára Haraldsson sem þjálfara kvennaliðs félagsins til næstu tveggja ára. Þau munu einnig þjálfa 4. flokk kvenna hjá félaginu og vinna að uppbyggingu kvennaknattspyrnunnar hjá Fram.
Umfjöllun og viðtöl: Grótta - Fram 23-24 | Gestirnir unnu nauman sigur á Seltjarnarnesi
Fram kom sér upp í fjórða sæti Olís deildar karla eftir eins marks sigur á Gróttu 24-23 í Hertz-höllinni fyrr í kvöld. Grótta er enn án stiga eftir fyrstu þrjár umferðir deildarinnar.