
ÍR

Ísak hættur með ÍR
Fyrstu þjálfarabreytingarnar hafa orðið í Bónus deild karla í körfubolta því Ísak Máni Wium er hættur með ÍR.

Uppgjörið: ÍR - Keflavík 79-91 | Kanalausir Keflvíkingar sáu til þess að ÍR fagnaði ekki fyrsta sigrinum
Keflvíkingar sækja ÍR-inga heim í Bónus-deild karla í körfubolta, í fyrsta leik sínum eftir að Wendell Green var rekinn frá Keflavík.

Sonur þjálfarans er markahæstur í Olís deildinni
Baldur Fritz Bjarnason, leikmaður ÍR, er markahæsti leikmaður Olís deildar karla í handbolta nú þegar deildin er komin í landsleikjafrí.

Valskonur óstöðvandi
Íslandsmeistarar Vals eru hreint út sagt óstöðvandi í Olís-deild kvenna í handbolta. Þær unnu í kvöld átta marka útisigur á ÍR, lokatölur í Breiðholti 23-31.

„Það þarf svo margt að ganga upp til að þeir vinni“
ÍR tókst næstum því að vinna leik í Bónus deild karla síðasta fimmtudag en kastaði forystunni frá sér undir lokin gegn Álftanesi. Haukar eru einnig án sigurs eftir eins stigs tap gegn Þór Þorlákshöfn. Farið var yfir lánlausu liðin á Körfuboltakvöldi Stöðvar 2 Sport í gær.

„Vorum ógeðslega góðir sóknarlega í tvo leikhluta“
Ísak Wium þjálfari ÍR sagði lengsta góða kafla liðsins í vetur ekki hafa dugað gegn Álftnesingum í kvöld. ÍR tapaði sínum fimmta leik í röð eftir skelfilegan fjórða leikhluta.

Uppgjörið: Álftanes - ÍR 93-87 | Hræðilegur fjórði leikhluti varð ÍR-ingum að falli
Álftanes vann sinn annan sigur í röð í Bónus-deild karla eftir 93-87 sigur á ÍR í Forsetahöllinni í kvöld. ÍR er enn án sigurs eftir fimm leiki í deildinni.

ÍBV með stórsigur gegn ÍR meðan KA og Stjarnan skildu jöfn
ÍBV heimsótti ÍR og vann 41-31 stórsigur í Olís deild karla. KA tók á móti Stjörnunni og kastaði frá sér sigri, 27-27 lokaniðurstaðan.

Uppgjörið: ÍR - Grótta 30-18 | Fyrsti sigur ÍR-inga
ÍR vann sinn fyrsta sigur í Olís-deild kvenna í handbolta í kvöld er liðið hafði betur gegn Gróttu í botnslag umferðarinnar.

„Búinn að öskra þannig að ég reyndi að vera uppbyggjandi“
Ísak Wium, þjálfara ÍR, leið „mjög illa“ eftir fjórða tap liðsins í jafnmörgum leikjum í Bónus deild karla. ÍR var yfir allan fyrri hálfleikinn í kvöld gegn Þór Þorlákshöfn en gaf verulega eftir í seinni hálfleik og tapaði örugglega að endingu, 73-84.

Uppgjörið: ÍR - Þór Þ. 73-84 | Biðin lengist eftir fyrsta sigri nýliðanna
ÍR tók á móti Þór Þorlákshöfn og tapaði 73-84 í fjórðu umferð Subway deildar karla. Nýliðarnir eru því enn án sigurs en Þór hefur unnið þrjá leiki í upphafi tímabils.

Uppgjörið: HK - ÍR 37-31| HK vann botnslaginn
HK fór með sigur af hólmi gegn ÍR í Olís-deild karla í handbolta í kvöld er liðin mættust í Kórnum.

KR heldur áfram að sækja unga og efnilega leikmenn
Róbert Elís Hlynsson er genginn í raðir KR frá Lengjudeildarliði ÍR. Hann skrifar undir þriggja ára samning í Vesturbænum.

Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - ÍR 117-88 | Miskunnarlausir Stjörnumenn
Stjörnumenn eru ósigraðir í Bónus deild karla í körfuknattleik eftir þrjár umferðir. ÍR voru fórnarlamb kvöldsins þegar Breiðhyltingar komu í heimsókn í Garðabæinn. Það var ljóst nokkuð snemma í hvað stefndi en Stjarnan sýndi ekkert kæruleysi og enga miskunn þó að staðan hafi verið orðin þægileg. Lokatölur 117-88 í leik sem var aldrei í hættu fyrir heimamenn.

Árni tekur við Fylki af Rúnari
Árni Freyr Guðnason hefur verið ráðinn nýr þjálfari karlaliðs Fylkis í fótbolta. Hann tekur við af Rúnari Páli Sigmundssyni sem lýkur störfum að lokaleikjum liðsins í Bestu deild karla afstöðnum.

Óaðfinnanleg Elín Klara skaut Haukum upp í þriðja sætið
Haukar eru komnir í 3. sæti Olís-deildar kvenna í handbolta eftir góðan sigur á ÍR sem áttu engin svör við stórbrotnum leik Elínar Klöru Þorkelsdóttur.

Valsmenn rufu fjörutíu marka múrinn
Valsmenn fögnuðu í kvöld sínum þriðja sigri í röð í Olís deild karla í handbolta þegar liðið vann fimm marka sigur á ÍR-ingum á Hlíðarenda.

Uppgjörið: ÍR - Tindastóll 82-93 | Stólarnir komnir á blað
Stólarnir eru komnir á blað í Bónus-deildinni eftir ellefu stiga sigur gegn ÍR 82-93. Heimamenn voru yfir í hálfleik en voru teknir í bakaríið í síðari hálfleik.

Engir eftirmálar af látunum í Smáranum
Engir eftirmálar verða af látunum sem urðu í Smáranum á föstudagskvöldið eftir leik Grindavíkur og ÍR í Bónus-deild karla í körfubolta. Misjafnar meiningar eru í málinu.

Ísak: Við erum ekki komin á þann stað sem við viljum vera
ÍR hóf körfuboltatímabilið á því að lúta í gras fyrir Grindavík með 19 stigum. ÍR byrjaði ágætlega og átti sína kafla en höfðu ekki það sem þarf til að komast nær Grindvíkingum. Ísak Wium, þjálfari ÍR, sagði að margir þyrftu að koma með meira að borðinu til að sigrar kæmu í hús.

Selfoss komið á blað
Selfoss vann í kvöld sinn fyrsta leik í Olís-deild kvenna og er þar með komið á blað í deildinni. ÍR er hins vegar enn án sigurs.

Uppgjörið: Grindavík - ÍR 100-81 | Grindavík of stór biti fyrir nýliðana
ÍR-ingar höfðu ekki erindi sem erfiði í Smárann í kvöld. Þeir komust yfir í byrjun en misstu Grindvíkinga frá sér ansi fljótt og höfðu ekki orku eða gæðin til að ná þeim aftur. Grindavík gerði það sem þurftu að gera í kvöld og sigldu heim 100-81 sigri og byrja með besta móti í deildinni.

Grótta tyllti sér á toppinn og KA fékk fyrstu stigin
Grótta er í efsta sæti Olís deildar karla eftir 32-30 sigur gegn ÍBV í kvöld. KA reif sig upp af botninum með 28-24 sigri gegn ÍBV. Afturelding lagði Fram örugglega með fimm marka mun, 34-29.

„Höfum bara aldrei verið jafn fegnir að fá hálfleik“
Keflavík tók á móti ÍR í seinni leik liðana í undanúrslitum umspilsins fyrir Bestu deildina í dag. Það var ÍR sem hafði betur með þremur mörkum gegn tveim en það kom ekki að sök þar sem Keflavík vann einvígið með sex mörkum gegn fjórum.

Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn
Keflavík er komið úrslit umspils um sæti í Bestu deild karla þrátt fyrir 2-3 tap fyrir ÍR á heimavelli í dag. Keflvíkingar unnu einvígið, 6-4 samanlagt.

Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga
Haukar unnu í kvöld góðan sjö marka sigur á ÍR í Olís-deild karla í handbolta, lokatölur 37-30.

„Stefnum á að vera í þessum efri hluta“
ÍR tóku á móti ÍBV í 3. umferð Olís deild kvenna í kvöld þar sem hart var barist og leikar enduðu jafnir 22-22. Karen Tinna Demian gerði sér lítið fyrir og skoraði helming marka ÍR-liðsins í kvöld.

Uppgjörið: ÍR - ÍBV 22-22 | Heimakonur komnar á blað
ÍR og ÍBV áttust við í 3. umferð Olís deild kvenna í kvöld. ÍR sem hafði fyrir leikinn ekki enn náð í sitt fyrsta stig á mótinu voru grátlega nálægt því að leggja ÍBV af velli en urðu að sætta sig við stigið þar sem leiknum lauk með jafntefli 22-22.

Keflvíkingar skutu Eyjamenn upp í Bestu deildina
Eyjamenn endurheimtu sæti sitt í Bestu deild karla í fótbolta í dag en þá fór fram lokaumferðin í Lengjudeild karla. ÍBV féll í fyrra en kemur strax upp aftur.

Fyrsti sigurinn hjá bæði Stjörnukonum og Framkörlum
Stjarnan vann sinn fyrsta sigur í Olís deild kvenna í handbolta í dag og Fram lék það síðan eftir í Olís deild karla.