
Besta deild karla

Ósammála Rúnari: „Menn reyna að klekkja á liðinu sem er á toppnum“
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, er ósammála ummælum Rúnars Kristinssonar, þjálfara KR, um meintan grófleika Víkinga eftir leik liðanna í undanúrslitum Mjólkurbikarsins í gær. Hann skilur þó af hverju Rúnar lét ummælin falla.

Vill finna ástríðuna á ný og afsanna hrakspár annarra í sinn garð
Markahrókurinn Steven Lennon telur sig hafa leikið sinn síðasta leik fyrir FH. Á næstu vikum ætlar hann að sanna fyrir fólki að fótboltatöfrarnir lifi enn í sér.

Michael Jordan hjálpar Eyjamönnum í fallbaráttunni
ÍBV hefur samið við Michael Jordan Nkololo um að leika með liðinu í Bestu-deild karla. Jordan er þrítugur framherji sem kemur til með að hjálpa Eyjamönnum í fallbaráttunni sem framundan er.

Steven Lennon í Þrótt
Það er nóg um að vera í Laugardalnum í dag en rétt í þessu staðfesti Þróttur Reykjavík að skoski framherjinn Steven Lennon muni spila með liðinu á láni út tímabilið. Skömmu þar áður var tilkynnt að landsliðskonan Elín Metta Jensen hefði tekið skóna af hillunni og myndi spila með kvennaliði félagsins til 2024.

Keflvíkingar fá Palestínumann sem á unglingalandsliðsleiki fyrir Króatíu
Knattspyrnudeild Keflavíkur hefur samið við Palestínumanninn Muhamed Alghoul um að leika með liðinu út tímabilið í Bestu-deild karla í knattspyrnu.

Emil búinn að missa þrennuna aftur
Stjörnumaðurinn Emil Atlason hélt þrennunni ekki lengi því staðfest leikskýrsla á heimasíðu KSÍ hefur nú verið uppfærð.

Erlendur dómari gaf Emil þrennuna: Sjáðu mörkin
Stjörnumaðurinn Emil Atlason hélt að hann hefði ekki fengið þrennuna skráða í 4-0 sigri Stjörnunnar á Fylki í Bestu deild karla í fótbolta í Árbæ í gærkvöldi en dómarar leiksins ákváðu eftir allt saman að skrá þrjú mörk á hann.

Held að það hafi enginn í hópnum okkar verið hissa á hans frammistöðu í dag
Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, var sáttur með frammistöðu sinna manna þegar Stjarnan lagði Fylki afar sannfærandi í Bestu deild karla í knattspyrnu í Árbænum nú í kvöld. Lokatölur urðu 4-0 fyrir Stjörnuna.

Umfjöllun og viðtöl: Fylkir - Stjarnan 0-4 | Emil Atlason allt í öllu
Emil Atlason skoraði tvö, mögulega þrjú mörk, þegar Stjarnan heimsótti Fylki í lokaleik 19. umferðar Bestu deildar karla í knattspyrnu. Stjarnan hafði fyrir leik kvöldsins ekki tapað gegn Fylki í efstu deild í heilan áratug. Á því varð engin breyting í kvöld.

Stjarnan bætir við sig dönskum varnarmanni
Bestu deildar lið Stjörnunar hefur gengið fram samningum við danska varnarmanninn Kristian Riss.

Hafa tekið stig í fjórum af fimm leikjum á móti bestu liðunum en eru samt neðstir
Keflvíkingar eru enn í slæmum málum á botni Bestu deildar karla í fótbolta en þeir voru samt hársbreidd frá sigri á Valsmönnum í gær.

Gamli þjálfarinn getur hjálpað Fylki að vinna Stjörnuna í fyrsta sinn í áratug
7. ágúst 2013 var merkilegur dagur fyrir Árbæinga því þá vann Fylkir 2-1 sigur á Stjörnunni í þá Pepsi deild karla. Fylkismenn hafa ekki unnið Garðbæinga í úrvalsdeildinni síðan.

„Ég skammast mín svo mikið fyrir þetta“
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings Reykjavíkur, skammast sín fyrir að hafa misst stjórn á skapi sínu í leik Víkings gegn FH á dögunum. Hann kvíðir því ávallt að sjá nafn sitt í fjölmiðlum eftir slík atvik og segir bílferðina heim eftir leiki, þegar að svona atvik koma upp, vera hörðustu refsinguna.

Sjáðu markaveislur í Vesturbæ og í Víkinni sem og Valmenn redda stigi
Víkingar juku við forskot sitt á toppi Bestu deildar karla eftir stórsigur á HK en Valsmenn töpuðu stigum á móti botnliðinu í Keflavík.

„Stigum aldrei af bensíngjöfinni í fyrri hálfleik og kláruðum leikinn með fjórum mörkum“
Sölvi Geir Ottesen stýrði Víkingi í fjarveru Arnars Gunnlaugssonar sem tók út leikbann. Sölvi var afar ánægður með 6-1 sigur.

„Ein versta tilfinning sem ég hef fundið á ferlinum“
„Tilfinningin er bara hræðileg. Þetta er ein versta tilfinning sem ég hef fundið á ferlinum. Þetta er bara ömurlegt,“ sagði Ernir Bjarnason, leikmaður Keflavíkur, eftir 1-1 jafntefli við Val í Bestu deild karla í kvöld. Keflvíkingar héldu að sigurinn væri vís með marki í uppbótartíma en Valur svaraði í blálokin.

„Þó þetta sé gaman þá er er þetta erfitt“
Daníel Hafsteinsson, leikmaður KA, var bæði svekktur og pirraður eftir 1-1 jafntefli á móti Breiðabliki.

Umfjöllun og viðtöl: KR - Fram 3-2 | KR náði í þrjú stig í baráttu sinni um að komast í Evrópukeppni
KR bar sigur úr býtum 3-2 þegar liðið fékk Fram í heimsókn í 19. umferð Bestu deildar karla í fótbolta á Meistaravelli í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: KA - Breiðablik 1-1 | Mistókst að vinna tíu Blika
Breiðablik hvíldi sjö mikilvæga leikmenn á meðan KA spilaði á fleiri þreyttum mönnum. Svo fór að liðin skildu jöfn, 1-1, eftir að heimamenn spiluðu seinni hálfleik manni fleiri.

Umfjöllun og viðtöl: FH 2 - ÍBV 1 | Endurkomusigur hjá FH
FH tók á móti ÍBV eftir að hafa tapað gegn Víkingi á heimavelli í síðasta leik, í Bestu deild karla í fótbolta. Þetta er var fyrsti leikur Eyjamanna eftir tapið gegn Stjörnunni á Þjóðhátíð í Eyjum.

„Köstuðum þessu frá okkur“
Eyjamenn misstu einbeitinguna og forskotið sem þeir byggðu upp gegn FH í fyrri hálfleik þegar liðið tapaði 2-1 gegn FH í Bestu deild karla í dag. Hermann Hreiðarsson, þjálfari ÍBV var svekktur í leikslok.

Umfjöllun: Keflavík - Valur 1-1 | Bæði lið fúl heim
Keflavík og Valur skildu jöfn 1-1 í Bestu deild karla í fótbolta. Mörkin tvö komu alveg í lokin.

„Þeir eru andlega og líkamlega gjaldþrota og þurfa að fá tíma til að jafna sig“
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, var fúll að fá ekki öll stigin þrjú þegar lið hans sótti KA heim á Akureyri í dag.

Umfjöllun og viðtöl: Víkingur - HK 6-1 | Sex mörk og átta stiga forysta
Víkingur er með átta stiga forskot á toppi Bestu deildar karla eftir afar öruggan 6-1 sigur á HK í Víkinni í kvöld.

Álagsleikur á Akureyri í dag
Breiðablik sækir KA heim á Akureyri í Bestu deildinni í dag en bæði lið hafa spilað ansi marga leiki síðustu vikur og má leiða að því líkur að sumir leikmenn séu að keyra á síðustu bensíndropunum í tanknum.

„Vonandi bara hanga þeir uppi“
Sigurður Ragnar Eyjólfsson segir það best fyrir alla aðila að hann stígi frá borði sem þjálfari Keflavíkur í Bestu-deild karla. Sigurður samdi um starfslok við félagið í gær.

Ekki heyrt frá Fram: „Kjaftasaga sem ég veit ekki hvaðan kemur“
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, fráfarandi þjálfari Keflavíkur, kveður niður orðróma þess efnis að hann sé að taka við Fram. Hann var leystur undan störfum hjá Keflavíkurliðinu í gær.

Blikar búnir að fá á sig sextán mörk í síðustu þremur leikjum
Íslandsmeistarar Breiðabliks grófu sér djúpa holu í gær með 6-2 tapi á móti bosníska félaginu Zrinjski Mostar í fyrri leik liðanna í þriðju umferð undankeppni Evrópudeildarinnar.

Eyþór fenginn aftur til Breiðabliks
Breiðablik hefur kallað sóknarmanninn Eyþór Aron Wöhler heim úr láni hjá grönnum sínum í HK og hann mun því spila með Blikum það sem eftir lifir keppnistímabilsins.

Sigurður Ragnar lætur af störfum hjá Keflavík
Knattspyrnudeild Keflavíkur hefur ákveðið að Sigurður Ragnar Eyjólfsson láti af störfum sem þjálfari karlaliðs félagsins í Bestu-deild karla.