Besta deild karla

Vísar ummælum Gumma Ben á bug: „Við erum ekki í einhverri pólitík hérna“
Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, neitar því að einhverjar ástæður aðrar en fótboltalegar liggi að baki þeirri ákvörðun að Kjartan Henry Finnbogason sitji á varamannabekk félagsins. Kjartan er ósáttur við skort sinn á leiktíma að undanförnu.

Vill slökkva í vonum Blika: „Munum brjóta ansi mörg hjörtu“
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, segir sína menn vel stemmda fyrir stórleik kvöldsins er Víkingur tekst á við Breiðablik á Kópavogsvelli í undanúrslitum Mjólkurbikarsins.

Dönsku Valsmennirnir verða í banni í stórleiknum
Valsmenn verða án þeirra Lasse Petry og Patrick Pedersen er liðið fer í heimsókn í Kópavoginn þar sem topplið Breiðabliks tekur á móti þeim í stórleik 20. umferðar Bestu-deildar karla næstkomandi mánudag.

„Ég var rosa barnalegur þá“
Arnar Gunnlaugsson fagnar því að hafa skrifað undir nýjan samning við Víking í dag. Hann segist hvergi annars staðar vilja vera þrátt fyrir að hugurinn leiti út. Það gefist tími fyrir það síðar.

Arnar framlengir í Víkinni
Arnar Gunnlaugsson hefur framlengt samning sinn sem þjálfari Víkings í Reykjavík til loka tímabilsins 2025. Félagið tilkynnti um þetta í dag.

Keimlík mörk er Valur og Fram gerðu jafntefli
Valur og Fram gerðu 1-1 jafntefli í eina leiknum sem fór fram í gær, mánudag, í Bestu deilda karla í fótbolta. Mörk leiksins voru vægast sagt keimlík. Bæði voru skoruð af stuttu færi, bæði komu á sama mark eftir fyrirgjöf frá vinstri og bæði voru skoruð undir lok hvors hálfleiks fyrir sig.

Jón Sveinsson: Svekktur að hafa ekki klárað leikinn
Fram gerði 1-1 jafntefli við Val í Bestu deild karla í kvöld eftir að hafa jafnað metin í blálokin. Jón Sveinsson, þjálfari Fram, var svekktur að hafa ekki náð að klára leikinn.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Valur 1-1 Fram | Jafntefli á Hlíðarenda
Valur og Fram gerðu 1-1 jafntefli í lokaleik 19. umferðar Bestu-deildar karla í kvöld. Haukur Páll kom Valsmönnum yfir rétt fyrir hálfleik en Jannik Holmsgaard jafnaði leikinn þremur mínútum fyrir leikslok.

„Við erum aldrei að fara að falla úr þessari deild“
Atli Jónasson, markvörður Leiknis, lék í gær sinn fyrsta leik í efstu deild í 13 ár þegar Leiknir og Breiðablik áttust við í 19. umferð Bestu-deildar karla.

Sjáðu mörkin: Öruggt hjá Blikum, dramatík á Akureyri og í Keflavík, ÍBV kom til baka og ekkert gerðist í Vesturbæ
Alls fóru fimm leikir fram í Bestu deild karla í fótbolta á sunnudag. Það var nóg um að vera, mikið af mörkum, nóg af dramatík og mikil skemmtun á flestum völlum. Hér að neðan má sjá öll mörkin og allt það helsta sem gerðist.

Spilaði síðast í efstu deild 2009 en varði víti gegn toppliðinu á sunnudag
Atli Jónasson stóð óvænt í marki Leiknis Reykjavíkur er liðið heimsótti Breiðablik, topplið Bestu deildar karla í fótbolta, á sunnudagskvöld. Toppliðið vann vissulega öruggan sigur en Atli, sem var að spila aðeins sinn annan leik í efstu deild, stóð sig með prýði og varði meðal annars vítaspyrnu frá Höskuldi Gunnlaugssyni.

Fór út af vegna höfuðmeiðsla eftir að hafa nýlega jafnað sig á heilahristingi
Það ætlar ekki af miðverðinum Óttari Bjarna Guðmundssyni að ganga eftir endurkomu hans í Breiðholtið. Hann fór meiddur af velli í leik Breiðabliks og Leiknis í Bestu deild karla í gærkvöld.

„Færð það sem að þú gefur í þetta“
Breiðablik eru með 9 stiga forskot á toppnum er þeir unnu sannfærandi 4-0 sigur á Leiknismönnum í 18. umferð Bestu deildarinnar í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik 4-0 Leiknir | Blikar ekki í vandræðum með Leikni
Breiðablik vann sannfærandi 4-0 sigur á Leiknismönnum í 18. umferð Bestu deildarinnar í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík-ÍA 0-1 | Mark Olivers í lokin tryggði Skagamönnum annan sigurinn í röð
Oliver Stefánsson var hetja Skagamanna þegar hann skoraði eina mark leiksins í 1-0 sigri á Keflavík suður með sjó í dag. Þetta er annar sigur ÍA í röð sem fara úr neðsta sæti deildarinnar með sigrinum.

„Mörg ár síðan FH kom hingað til að liggja til baka“
Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, var svekktur með að hafa ekki tekið öll stigin gegn FH. Leikurinn var lokaður og endaði með markalausu jafntefli.

„Sætasti sigur sem ég hef unnið”
Víkingur vann dramatískan 3-2 sigur á KA á Akureyri í dag eftir að hafa lent 2-1 undir í síðari hálfleik. Birnir Snær Ingason skoraði sigurmark leiksins um leið og klukkan sló 90. mínútur og kveðst sjálfur aldrei hafa unnið eins sætan sigur.

Oliver: Yndislegt að gefa til baka
„Þetta var geggjað, fyrsta markið fyrir klúbbinn og merkileg stund fyrir mig,“ sagði Oliver Stefánsson leikmaður ÍA eftir 1-0 sigur á Keflavík í Bestu deildinni í dag. Oliver skoraði eina mark leiksins á 89.mínútu leiksins.

Umfjöllun,viðtöl og myndir: KR-FH 0-0| Vögguvísa á Meistaravöllum
Það var mikið húllumhæ fyrir leik KR og FH. Ný útgáfa af stuðningsmannalagi KR, Öll sem eitt var frumflutt og var fjölmennt á vellinum.Leikurinn var einn sá allra lokaðasti sem hefur verið spilaður á tímabilinu og var afar lítið um marktækifæri og var markalaust jafntefli niðurstaðan. Umfjöllun og viðtöl væntanleg.

Umfjöllun og viðtöl: KA 2- 3 Víkingur | Birnir Snær tryggði Íslandsmeisturunum dramatískan sigur
Víkingur sigraði KA, 2-3, í frábærum fótbolta leik á Akureyri fyrr í dag. KA leiddi 2-1 þegar stundarfjórðungur lifði leiks en Víkingar grófu djúpt og uppskáru sigur með marki frá Birni Snæ Ingasyni á 90. mínútu.

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV-Stjarnan 3-1 | Frábær Eyjasigur á tíu Stjörnumönnum
ÍBV tók á móti Stjörnunni á Hásteinsvelli í fyrsta leik dagsins í Bestu deild karla. Leikurinn endaði með 3-1 sgiri ÍBV. Eftir tap fyrir ÍA í síðasta leik þurftu Eyjamenn sigur í botnbaráttunni en Stjörnumenn fjarlægðust Evrópubaráttuna enn frekar.

Fylkir tryggði sér sæti í Bestu-deildinni með stórsigri
Fylkismenn tryggðu sér sæti í Bestu-deild karla á næsta tímabili er liðið vann öruggan sigur gegn Gróttu í dag, 5-1.

Svona virkar úrslitakeppnin: Fjórskipt barátta í lokin
Harkaleg fallbarátta, hnífjöfn keppni um Evrópupeninga og slagurinn um sjálfan Íslandsmeistaratitilinn er það sem er fram undan í Bestu deild karla í fótbolta nú þegar styttist í fyrstu úrslitakeppnina í sögu efstu deildar á Íslandi.

Markafjörið í efstu deild aldrei meira
Leikmenn hafa raðað inn mörkum sem aldrei fyrr í Bestu deild karla í fótbolta í sumar og útlit fyrir að markamet í tólf liða deild verði slegið.

Fimm spurningar Stúkunnar: Hver er besti miðvörður Bestu deildar, er KA í titilbaráttu og meira til
Liðurinn „Fimm spurningar“ var á sínum stað í síðasta þætti Stúkunnar er farið var yfir síðustu umferð Bestu deildar karla í fótbolta. Kjartan Atli Kjartansson spurði þá Reyni Leósson og Lárus Orra Sigurðsson spjörunum úr.

KA-menn áberandi í liði umferðarinnar
KA-maðurinn Nökkvi Þeyr Þórisson var valinn leikmaður 18. umferðar Bestu deildar karla af sérfræðingum Stúkunnar á Stöð 2 Sport.

Rangur bróðir fékk skráð á sig sjálfsmark
Um tíma leit út fyrir að bræður hefðu skorað sjálfsmark fyrir sitt hvort liðið í sama leiknum í Bestu deild karla í gær. Þegar betur var að gáð þá ætti það ekki að vera þannig.

Sjáðu mörkin: Langþráður sigur FH, aukaspyrna Tryggva Hrafns og markaveisla í Breiðholti
Fjórtán mörk voru skoruð í þremur leikjum í Bestu deild karla í fótbolta í gærkvöld. FH vann þar sinn fyrsta deildarsigur eftir þjálfaraskipti í júní, sjö mörk voru skoruð í Breiðholti og fjögurra marka jafntefli var í Víkinni.

Blóðgaði Ólaf en telur „margar ástæður“ fyrir rauða spjaldinu
Kian Williams, leikmaður Keflavíkur, var enn harður á því eftir leikinn við FH í Bestu deildinni í gærkvöld að hann hefði ekki átt að fá rautt spjald. Hann gaf í skyn að dómari leiksins hefði haft fleiri ástæður til að lyfta rauða spjaldinu en aðeins þá að fara eftir reglum.

Ólafur Davíð: „Við munum vakna til lífsins, bíðið þið bara“
Ólafur Davíð Jóhannesson er enn taplaus eftir að hann tók við stjórnartaumunum hjá Val á nýjan leik fyrr í sumar en liðið gerði jafntefli við Víking í Fossvoginum í Bestu deild karla í fótbolta á Víkingsvellinum í kvöld.