Ástin á götunni
283 284 285 286 287 288 289 290 291 … 334 ›
Dregið í töfluraðir í dag Í dag kl. 13 verður dregið í töfluröð fyrir landsdeildir 2006 í fótbolta en þá skýrist hvaða félög mætast í einstökum umferðum viðkomandi móts. Drátturinn er fyrir Landsbankadeild karla, Landsbankadeild kvenna, 1. deild karla og 2. deild karla og fer hann fram á Hótel Nordica. Niðurstöður dráttarins ættu að liggja fyrir um miðjan daginn í dag. Sport 12.11.2005 12:48
Ceres 4 þrekþjálfari Þróttar Kennarinn, þjálfarinn, tónlistarmaðurinn og athafnamaðurinn Hlynur Áskelsson, sem einhverjir kunna að þekkja sem Ceres 4 en aðrir sem Köttara númer tvö, hefur tekið að sér þrek- og úthaldsþjálfun Þróttar og mun þar af leiðandi bera ábyrgð á því að leikmenn liðsins geti hlaupið heilan fótboltaleik næsta sumar. Sport 8.11.2005 22:16
Sektað um 700 þúsund á árinu Knattspyrnusamband Íslands hefur alls verið sektað um ríflega 700 þúsund krónur á tímabilinu vegna áminninga sem leikmenn íslenska landsliðsins hafa hlotið í undankeppni HM. Sport 8.11.2005 22:14
Allir á leið heim? Eins og við greindum frá í gær þá er Þórarinn Kristjánsson líklega á leið til Keflavíkur á ný en samningaviðræður gætu tafist eftir að stjórn Keflavíkur komst að því að Þórarinn væri ekki lengur í viðræðum við Grindavík og því væru þeir einir um hituna. Sport 7.11.2005 21:45
Þórarinn til Keflavíkur Knattspyrnumaðurinn Þórarinn Kristjánsson mun að öllum líkindum skrifa undir samning við uppeldisfélag sitt, Keflavík, í vikunni. Þórarinn hefur verið í viðræðum vð Grindavík og Keflavík síðustu vikur en Grindvíkingar hafa slitið viðræðunum þar sem þeir sáu sér ekki fært að mæta launakröfum Þórarins sem ku vera í hærri kantinum. Sport 7.11.2005 10:03
Breiðablik fór með sigur af hólmi Lið Breiðabliks vann lið Icelandair í úrslitum á Mastersmótinu í Egilshöll í dag, en mótið var kennt við markaskorarann Ian Rush, fyrrum leikmann Liverpool, en lið hans hafnaði í þriðja sæti á mótinu eftir sigur á Víkingi í leiknum um þriðja sætið. Sport 5.11.2005 18:05
Skrifar undir hjá Skaganum á morgun Knattspyrnumaðurinn Þórður Guðjónsson er á leið heim til Íslands og mun skrifa undir þriggja ára samning við sitt gamla félag ÍA á morgun. Þetta staðfesti Þórður sjálfur nú rétt áðan. Ljóst er að koma Þórðar verður Skagaliðinu mikill liðsstyrkur fyrir átökin næsta sumar, en hann hafnaði tilboði FHinga um að leika með liðinu og ákvað að fara á heimaslóðirnar. Sport 2.11.2005 18:01
Valur fær liðsstyrk Valsmönnum gengu í dag frá samningi við tvo nýja leikmenn sem spila munu fyrir liðið á næsta ári. Þetta eru fyrrum Fylkismaðurinn Valur Fannar Gíslason og Pálmi Rafn Pálmason frá KA. Þá hefur knattspyrnudeild Víkings ákveðið að draga kæru á hendur Valsmönnum vegna ólöglegra viðræðna við leikmenn til baka, eftir að sátt náðist milli félaganna tveggja. Sport 1.11.2005 17:09
Lárus Orri tekur við þjálfun Þórs Fyrrum atvinnumaðurinn Lárus Orri Sigurðsson hefur verið ráðinn þjálfari fyrstu deildarliðs Þórs á Akureyri. Lárus hefur leikið með liðinu síðan hann sneri aftur heim úr atvinnumennsku og mun nú verða spilandi þjálfari liðsins. Samningurinn er til þriggja ára, en frá þessu er greint á heimasíðu félagsins í dag. Sport 26.10.2005 17:36
Bjarni aðstoðar Eyjólf Bjarni Jóhannsson, þjálfari Blika í Landsbankadeildinni, mun verða aðstoðarmaður félaga síns Eyjólfs Sverrissonar hjá íslenska landsliðinu. Þetta var tilkynnt í dag og kemur kannski ekki mikið á óvart, því þeir félagar hafa starfað saman áður. Sport 26.10.2005 17:26
Gerði þriggja ára samning Eins og fram kom í Fréttablaðinu í morgun hefur Ásgeir Elíasson samþykkt að taka við þjálfun 1. deildar liðs Fram og hefur nú undirritað þriggja ára samning við sitt gamla félag, sem náði góðum árangri undir stjórn Ásgeirs á sínum tíma. Sport 25.10.2005 17:57
Önnur kæra lögð fram á Val Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri KSÍ hefur staðfest að sambandinu hafi borist kæra frá forráðamönnum Víkings á hendur Knattspyrnufélaginu Val fyrir að eiga ólöglegar viðræður við tvo af leikmönnum félagsins. Sport 24.10.2005 16:46
Lítið skorað á Englandi Aðeins þrjú mörk eru komin í hálfleik í leikjunum fjórum sem standa yfir í ensku úrvalsdeildinni. Manchester United hefur yfir 1-0 gegn Tottenham, þar sem Mikael Silvestre skoraði eftir mistök Paul Robinson í marki Tottenham. Sport 23.10.2005 17:51
Charlton í annað sætið Hermann Hreiðarsson og félagar í Charlton lyftu sér í annað sæti ensku úrvalsdeildarinnar áðan, þegar þeir báru sigurorð af lánlausu liði Portsmouth á útivelli, 2-1. Sport 23.10.2005 17:51
Wenger rólegur yfir klúðri Pires Arsene Wenger, stjóri Arsenal, sagðist í viðtali við BBC ekki hafa verið hrifinn af tilþrifum Robert Pires í dag, þegar hann klúðraði vítaspyrnu gegn Manchester City. Wenger á afmæli í dag og sagðist gjarnan hafa viljað eitthvað annað í afmælisgjöf en þetta. Sport 23.10.2005 17:51
Pires var klaufi Robert Pires kann að hafa skorað sigurmark Arsenal gegn Manchester City í dag, en hann fór engu að síður mjög illa að ráði sínu í tvígang í leiknum. Í byrjun leiks lagði Thierry Henry upp sannkallað dauðafæri fyrir hann, en Pires tókst á óskiljanlegan hátt að skjóta boltanum yfir markið. En þar með var ekki öll sagan sögð. Sport 23.10.2005 17:51
Burley farinn frá Hearts Knattspyrnustjórinn George Burley hefur hætt störfum hjá úrvalsdeildarliðinu Hearts í Skotlandi, eftir að hafa verið í starfi í aðeins fjóra mánuði. Talið er að ástæðan sé ágreiningur milli hans og eigandans Vladimir Romanov, sem keypti félagið í febrúar. Sport 23.10.2005 17:51
Bayern á toppinn í Þýskalandi Þýskalandsmeistarar Bayern Munchen skutust í toppsæti úrvalsdeildarinnar í dag þegar þeir tóku Duisburg í kennslustund 4-0 á heimavelli sínum. Michael Ballack, Ze Roberto, Claudio Pizarro og Roque Santa Cruz skoruðu mörk Bayern í leiknum. Sport 23.10.2005 17:51
Fulham vann Liverpool Leikjunum fjórum sem hófust klukkan 14 í enska boltanum er lokið. Þar ber hæst sigur Fulham á Liverpool, en mörk frá Collins John á 30. mínútu og Luis Boa Morte á þeirri 90. tryggðu Fulham góðan sigur á Evrópumeisturunum, sem hafa ekki riðið feitum hesti í úrvalsdeildinni í haust. Sport 23.10.2005 17:51
Richardson semur við United Kieran Richardson hélt upp á 21 árs afmæli sitt með því að skrifa undir nýjan samning við Manchester United og því er ljóst að hann verður hjá félaginu til ársins 2009. Sport 23.10.2005 17:51
Henry segir Arsenal vanta menn Thierry Henry, framherji Arsenal, segir að liðið vanti fleiri leikmenn og þá sérstaklega einhvern til að fylla skarð Patrick Vieira, ef það á að ná einhverjum árangri í vetur. Þær raddir gerast nú æ háværari að hann sé á förum frá Arsenal vegna óánægju með leikmannamál. Sport 23.10.2005 17:51
100 ára veldi Abramovich Roman Abramovich, eigandi Chelsea segist ætla að byggja félagið upp svo það megi verða stórveldi í heimsknattspyrnunni næstu 100 árin og segir að sig hafi aldrei órað fyrir hvað væri gaman að byggja upp knattspyrnulið á Englandi. Sport 23.10.2005 17:51
Enn ein meiðslin hjá Villa Wilfred Bouma, varnarmaður Aston Villa er meiddur á læri og verður frá í nokkrar vikur og eykur með því enn á meiðslavandann hjá mönnum David O´Leary, sem þegar hefur misst þá Jlloyd Samuel, Martin Laursen og Gary Cahill í erfið meiðsli. Sport 23.10.2005 17:51
Carroll klaufalegur Markvörðurinn Roy Carroll hjá West Ham verður líklega ekki á milli stanganna hjá liði sínu um helgina eftir að hafa meitt sig á hné á æfingu í dag. Meiðslin eru í hæsta máta neyðarleg, því markvörðurinn flæktist í marknetinu þegar hann var að safna saman boltum eftir æfinguna. Sport 23.10.2005 17:51
Davids tók Milan fram yfir United Edgar Davids hjá Tottenham Hotspur hefur viðurkennt að litlu hafi munað að hann gengi í raðir Manchester United árið 1996, en hann kaus þess í stað að fara til AC Milan á Ítalíu frá liðinu sem hann lék með þá, Ajax í Amsterdam. Sport 23.10.2005 17:51
Ronaldo verður með um helgina Cristiano Ronaldo, leikmaður Manchester United verður í liðinu um helgina, þrátt fyrir að hafa verið kærður fyrir nauðgun. Þetta staðfesti Sir Alex Ferguson í dag. "Cristiano mætti á æfingu í gær og ég held að verði allt í lagi með hann þó þetta séu erfiðir tímar fyrir hann," sagði Ferguson, en United mætir Tottenham um helgina. Sport 23.10.2005 17:51
Fjöldi liða skoðar Gunnar í kvöld Útsendarar liða frá Englandi og Þýskalandi munu í kvöld fylgjast með Gunnari Heiðari Þorvaldssyni, markahæsta leikmanni sænsku deildarinnar, þegar lið hans Halmstad mætir Hertha Berlin í Evrópukeppninni. Birmingham og Everton eru á meðal áhugasamra liða samkvæmt fréttavef BBC. Sport 23.10.2005 17:51
Halmstad tapaði fyrir Hertha Gunnar Heiðar Þorvaldsson og félagar í sænska liðinu Halmstad, töpuðu 1-0 fyrir þýska liðinu Hertha Berlin í C-riðli Evrópukeppni félagsliða nú áðan. Það var Neuendorf sem skoraði mark þýska liðsins á 67. mínútu. Síðar í kvöld mætast Steua Búkarest og Lens í þessum sama riðli. Sport 23.10.2005 17:51
Middlesbrough sigraði Middlesbrough sigraði svissneska liðið Grasshoppers með einu marki gegn engu í fyrsta leik liðsins í riðlakeppni UEFA bikarsins í kvöld. Mark liðsins skoraði Jimmy Floyd Hasselbaink snemma leiks. Bolton varð hinsvegar að sætta sig við jafntefli 1-1 við Besiktas. Ailton skoraði fyrir Tyrkina, en Borgetti fyrir Bolton. Sport 23.10.2005 17:51
Henry stendur við orð sín Franski sóknarmaðurinn Thierry Henry hjá Arsenal ætlar ekki að láta fjölmiðlafárið í kring um framtíð sína hjá félaginu hafa nein áhrif á sig og segir að hann muni ekki skoða nýjan samning fyrr en í sumar þegar tímabilinu lýkur. Sport 23.10.2005 17:51