
Ástin á götunni

Óskar Hrafn: Þurfum að stíga á bensíngjöfina
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, telur að liðið lærði mikið af fyrri leiknum við Santa Coloma sem Blikar unnu 0-1 í Andorra. Blikar þurfa að auka hraðann gegn þeim í næsta leik.

Mörkin: Karl Friðleifur skoraði tvö er Víkingur skaut Malmö skelk í bringu
Karl Friðleifur Gunnarsson skoraði sín fyrstu tvö mörk í sumar er Víkingur og Malmö gerðu 3-3 jafntefli í síðari leik liðanna í undankeppni Meistaradeildar Evrópu. Malmö fór áfram með 6-5 sigri samanlegt en Víkingar geta borið höfuðið hátt eftir tvo frábæra leiki. Hér að neðan má sjá mörkin úr leik gærdagsins.

„Við teljum okkur vera með góðan mannskap en höfum ekki náð því besta út úr öllum”
Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, segir sína menn ekki vera í leit að liðsstyrk þó svo að mikil meiðsli herji nú á leikmannahóp liðsins. Hann segir einfaldlega að allir hjá félaginu þurfi að líta í spegil og bæta sig.

Óli Valur mættur til Sirius
Besta deild karla í fótbolta heldur áfram að missa skemmtikrafta úr deildinni. Fyrr í morgun var staðfest að Kristall Máni Ingason væri búinn að skrifa undir hjá Rosenborg og nú hefur sænska úrvalsdeildarfélagið IK Sirius staðfest komu Óla Vals Ómarssonar.

Kristall Máni semur við Rosenborg: Nær tveimur leikjum í viðbót með Víkingum
Norska stórliðið Rosenborg hefur staðfest að Kristall Máni Ingason er genginn í raðir félagsins. Tilkynning þess efnis og kynningarmyndband var birt á samfélagsmiðlum félagsins í morgun.

Víkingar allra landsmanna eiga erfitt verkefni fyrir höndum
Víkingur mætir Malmö í síðari leik liðanna í undankeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Víkingar eiga á brattan að sækja eftir fyrri leikinn gegn Svíþjóðarmeisturunum en einvígið er vel á lífi þökk sé marki ofur-varamannsins Helga Guðjónssonar undir lok leiks ytra.

Keflavík og Leiknir R. með óvænta en örugga sigra á meðan Fram tapar ekki í Úlfarsárdal
Þrír leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta á mánudag. Keflavík vann öruggan 3-0 útisigur á Val og sömu sögu er að segja af Leikni Reykjavík sem heimsótti Stjörnuna í Garðabæ. Þá vann Fram 1-0 sigur á FH.

Heimir um hugarfar Valsmanna: „Sá hlutur sem er að skaða okkur hvað mest“
Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals, gat ekki leynt vonbrigðum sínum er hann ræddi við Gunnlaug Jónsson eftir 0-3 tap sinna manna á heimavelli gegn Keflavík í Bestu deild karla í fótbolta á mánudag. Hann sagði Valsmenn vera sjálfum sér verstir.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan-Leiknir R. 0-3 | Leiknismenn völtuðu yfir Stjörnuna í fyrri hálfleik
Leiknismenn sóttu þrjú stig í Garðabæinn í kvöld þegar þeir sigruðu Stjörnuna í Bestu deild karla í knattspyrnu. Lokatölur 3-0 en öll mörk Leiknis komu í fyrri hálfleik þar sem þeir léku við hvern sinn fingur.

„Þetta var iðnaðarsigur“
„Mér líður dásamlega, það er ekki annað hægt, 1-0 sigur í hörkuleik. Þetta gæti ekki byrjað betur,“ sagði Brynjar Gauti Guðjónsson, leikmaður Fram, í sínum fyrsta leik fyrir félagið þegar liðið vann FH 1-0.

Umfjöllun og viðtal: Valur 0-3 Keflavík | Einum fleiri gengu Keflvíkingar á lagið
Keflavík vann gríðarlega mikilvægan sigur á Valsmönnum að Hlíðarenda í kvöld, 0-3. Keflavík komst yfir í fyrri hálfleik úr vítaspyrnu sem kostaði heimamenn rautt spjald að auki. Gestirnir lokuðu leiknum svo í síðari hálfleik eftir mikla orrahríð að marki Vals.

Umfjöllun og viðtöl: Fram-FH 1-0 | FH-ingar sigraðir í Grafarholti
Fram tók á móti FH í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. Fyrir leikinn voru liðin jöfn að stigum í 8. og 9. sæti deildarinnar með aðeins 10 stig að loknum 11 umferðum. Eina mark leiksins kom eftir 50 mínútna leik og var það Tiago Manuel Da Silva Fernandes á skotskónum fyrir Framara. Lokatölur 1-0.

Arftaki Kristals Mána fundinn: „Glaður og spenntur, það eru orðin tvö“
Danijel Dejan Djuric er genginn í raðir Íslands- og bikarmeistara Víkings. Hann kemur úr unglingastarfi Midtjylland í Danmörku en þessi ungi leikmaður lék með Blikum áður en hann fór út í atvinnumennsku árið 2019.

Umfjöllun og Viðtöl: Víkingur 3-2 ÍA | Íslandsmeistararnir hefndu fyrir tapið á Skaganum
Íslands- og bikarmeistarar Víkings fengu Skagamenn í heimsókn í 12. umferð Bestu-deild karla í fótbolta. Eini sigurleikur Skagamanna hingað til í sumar kom gegn Víkingum í 2. umferð á Skipaskaga en meistararnir náðu að hefna fyrir það tap með 3-2 sigri í dag.

Umfjöllun: KA 4-3 ÍBV | Frábært sigurmark skilaði heimasigri í markaleik
KA vann mikilvægan heimasigur á botnliði ÍBV á Akureyri í dag. Leikurinn var stórkostleg skemmtun og sjö mörk litu dagsins ljós en það var Elfar Árni Aðalsteinsson sem skoraði sigurmark heimamanna.

Ísak Snær fagnaði eins og Kristall Máni: „Smá æsing í þetta“
Ísak Snær Þorvaldsson, leikmaður Breiðabliks, fagnaði því sem reyndist sigurmark Breiðabliks gegn Santa Coloma með því að herma eftir fagni Kristals Mána Ingasonar, leikmanns Víkings, í Malmö.

Óli Valur mögulega á leið til Svíþjóðar
Sænska úrvalsdeildarfélagið Sirius hefur mikinn áhuga á Óla Val Ómarssyni, hægri bakverði Stjörnunnar og einni skærustu stjörnu Bestu deildar karla í fótbolta.

Loks vann Leiknir, Stjarnan bjargaði stigi líkt og KA
Þrír leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta í gær. Hér að neðan má sjá mörkin úr leikjunum þremur.

Umfjöllun og viðtöl: Leiknir R.-ÍA 1-0 | 330 daga bið eftir deildarsigri Leiknis á enda
Leiknir vann sinn fyrsta leik í Bestu-deildinni. Seinasti sigur Leiknis í deildinni kom þann 8. ágúst á síðasta ári gegn Val. 330 dögum síðar kom 1-0 sigur gegn ÍA þar sem Mikkel Elbæk Jakobsen reyndist hetja Breiðhyltinga.

Umfjöllun og viðtöl: FH-Stjarnan 1-1 | Enn eitt jafntefli liðanna eftir æsilegar lokamínútur
FH og Stjarnan þurfa að deila stigunum sem voru í boði í dag eftir að hafa gert jafntefli 1-1 í Kaplakrika. Leikurinn var í hægara lagi og fá færi litu dagsins ljós þangað til í uppbótartíma en Stjarnan jafnaði metin þegar lítið var eftir og bæði lið hefðu getað skorað í uppbótartíma. FH komst tvisvar í góða skyndisókn og Stjarnan skaut í stöng.

Umfjöllun og viðtöl: KA-Valur 1-1 | KA og Valur skiptu stigunum á milli sín
KA og Valur gerðu 1-1 jafntefli á Greifavellinum nú í kvöld þegar liðin mættust í 11. umferð Bestu deildar karla.

Mikill hiti er KR og Selfoss mættust fyrst allra í Besta þættinum
Fyrsti þátturinn af Besta þættinum er kominn út en í þættinum eru leikmenn og stuðningsmenn liða í Bestu deildinni paraðir saman í keppni á móti öðru pari annars liðs.

Almarr: Þeir áttu þetta skilið
Almarr Ormarsson, leikmaður Fram, var að vonum ósáttur eftir tap liðsins gegn Keflavík í Bestu deild karla í kvöld en lokatölur leiksins voru 3-1.

Sjáðu mörkin er Víkingar rúlluðu KR upp í Vesturbænum
Íslands og bikarmeistarar Víkings unnu frábæran 3-0 sigur á KR er liðin mættust á Meistaravöllum í Bestu deild karla í fótbolta í gærkvöld. Hér að neðan má sjá öll mörk leiksins.

„Þegar við fundum taktinn þá var ekki spurt að leikslokum“
Halldór Smári Sigurðsson, varnarmaður Víkinga var að vonum gríðarlega sáttur með sigur þeirra á KR-ingum er liðin mættust í Bestu deild karla á föstudagskvöld.

Nóg um að vera í Lengjudeildinni: KV vann á Ísafirði
Fjórir leikir fóru fram í Lengjudeild karla í fótbolta í kvöld. KV vann magnaðan 4-2 sigur á Vestra á Ísafirði, Kórdrengir lögðu Gróttu 1-0 en hinum tveimur leikjunum lauk með 2-2 jafntefli.

Stutt gaman hjá Hans og Hosine
Þeir Hans Kamta Mpongo og Hosine Bility hafa yfirgefið lið ÍBV og Fram í Bestu deild karla í fótbolta. Munu þeir ekki leika meira með liðunum á leiktíðinni.

Arnar telur að Kristall Máni verður seldur á næstu dögum
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Íslands- og bikarmeistara Víkings, telur nær öruggt að Kristall Máni Ingason verði seldur erlendis í félagaskiptaglugganum sem er nú opinn.

Grótta upp í annað sætið
Grótta vann Þrótt Vogum 1-0 í eina leik kvöldsins í Lengjudeild karla í fótbolta.

Sverrir Páll skaut Kórdrengjum í átta liða úrslit
Kórdrengir lagði Aftureldingu 2-1 í framlengdum leik í 16-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta.