Ástin á götunni

„Titlarnir og árangurinn talar sínu máli“
Heimir Guðjónsson og Steven Lennon voru til umfjöllunar í fimmta þætti Liðs áratugarins á Stöð 2 Sport í gær.

Ánægð með að fara á lán til Svíþjóðar fyrst og stefnir á að vera best í heimi
Í gær var staðfest að Sveindís Jane Jónsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, hafi samið við Þýskalandsmeistara Wolfsburg. Hún verður þó lánuð til Svíþjóðar fyrst þar sem hún mun leika með Íslendingaliði Kristianstad.

„Þetta er maðurinn sem drottnaði yfir deildinni“
Davíð Þór Viðarsson og Haukur Páll Sigurðsson voru til umfjöllunar í fjórða þætti Liðs áratugarins á Stöð 2 Sport í gær. Báðir eiga þeir það sameiginlegt að hafa lyft Íslandsbikarnum oft sem fyrirliðar meistaraliða.

Stoltir heimamenn í Liði áratugarins: Daníel Laxdal og Eiður Aron Sigurbjörnsson
Daníel Laxdal og Eiður Aron Sigurbjörnsson eru næstu tveir mennirnir í úrvalslið áratugarins.

Verst geymda leyndarmál Íslands að ég væri á leið í Val
Tryggvi Hrafn Haraldsson sagði það verst geymda leyndarmál Íslands að hann hefði verið á leið í Val eftir tímabilið með ÍA nú í sumar. Þetta kom fram í viðtali Tryggva Hrafns við Fótbolta.net.

Valur heldur áfram að sækja leikmenn
Sólveig Jóhannesdóttir Larsen samdi í dag við Val til tveggja ára. Hin tvítuga Sólveig lék með Fylki síðasta sumar en hún hefur einnig leikið með Breiðablik, Augnablik og HK/Víking hér á landi.

Logi um þjálfarateymi Íslands: Geta náð gríðarlega langt í þessu starfi
Logi Ólafsson er spenntur fyrir nýju þjálfarateymi íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu og telur þá eiga framtíðina fyrir sér.

Þetta var tiltölulega einföld ákvörðun fyrir mig
Logi Ólafsson segir það ekki hafa verið erfiða ákvörðun að taka við FH á nýjan leik er það stóð til boða. Hann telur liðið þó þurfa að bæta við sig leikmönnum til að geta barist á toppi Íslandsmótsins næsta sumar.

Hallbera: Hélt mögulega að þetta væri búið
Landsliðskonan Hallbera Guðný Gísladóttir er spennt fyrir því að leika í atvinnumennsku á nýjan leik. Vinstri bakvörðurinn segir jafn framt að umræðan í kringum íslenska kvennalandsliðið á dögunum hafi verið óvægin.

KR gæti leitað til Alþjóða íþróttadómstólsins
Formaður knattspyrnudeildar KR segir félagið hafa tæmt allar leiðir innanlands og því sé eina sem félagið geti gert að leita til Alþjóða íþróttadómstólsins.

KSÍ svarar Fram fullum hálsi: „Þennan málflutning er ekki hægt að sætta sig við“
KSÍ hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir vísa yfirlýsingu Fram til föðurhúsana. Framarar eru ósáttir við meðferðina á máli þeirra gagnvart KSÍ hvernig var skorið úr hvaða lið fara upp úr fyrstu deild karla.

Nýliðarnir ráða þjálfarann sem yfirmann knattspyrnumála
Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefur verið ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá Keflavík, nýliðum Pepsi Max deildarinnar sumarið 2021.

Segir Ara Frey ekki vera á leiðinni á Hlíðarenda
Edvard Börkur Edvardsson, formaður knattspyrnudeildar Vals, tók fyrir það að félagið væri í viðræðum við landsliðsmanninn Ara Frey Skúlason um að spila með félaginu í Pepsi Max deildinni næsta sumar.

Tilkynning frá Fram: „Gera verður þá kröfu til KSÍ að allir fái sömu málsmeðferð“
Knattspyrnudeild Fram birti rétt í þessu fréttatilkynningu til þess að útskýra á hvaða grundvelli félagið hefur ákveðið að vísa ágreiningsmáli við KSÍ til áfrýjunardómstóls ÍSÍ.

Fram áfrýjar til dómstóla ÍSÍ
Knattspyrnudeild Fram hefur ákveðið að áfrýja úrskurði áfrýjunardómstóls KSÍ í máli Fram gegn stjórn sambandinu til dómstóla Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.

Íslenskar getraunir gefa íþróttafélögum landsins sextíu milljónir
Íslenskar getraunir ákváðu í dag að gefa rúmlega 60 milljónir íslenskra króna í sérstakan styrk til afreksdeilda í fót-, hand-, og körfubolta.

KSÍ styrkir félögin í landinu um 70 milljónir: ÍBV og Þróttur R. fá mest samanlagt
Knattspyrnusamband Íslands gaf það út í dag að sambandið myndi styrkja aðildarfélög landsins um 70 milljónir króna. Var þetta samþykkt á stjórnarfundi KSÍ þann 10. desember síðastliðinn.

Framkvæmdastjóri KA segir ímynd íslenskrar knattspyrnu vera laskaða
Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, telur að ímynd íslenskrar knattspyrnu sé löskuð eftir umræðuna í kringum kvennalandsliðið undanfarið.

KR skoðar sín mál en Fram virðist ekki ætla að halda áfram
KR-ingar ætla að skoða sín mál og hafa ekki tekið ákvörðun með framhaldið eftir að áfrýjunardómstóll KSÍ staðfesti úrskurð aga- og úrskurðarnefndar. Þá var máli Fram vísað frá og virðist sem Fram ætli ekki lengra með málið.

Arnar hefur rætt við forráðamenn KSÍ: „Ef einhver býður mér að taka við íslenska A-landsliðinu þá segi ég já“
Arnar Þór Viðarsson, yfirmaður knattspyrnumála hjá KSÍ og þjálfari U21 árs landsliðsins, hefur áhuga á því að gerast A-landsliðsþjálfari. Segir Arnar að hann hafi rætt við forráðamenn KSÍ líkt og aðrir kandídatar. Þetta sagði hann í samtali við Guðjón Guðmundsson í Sportpakkanum í kvöld.

Undanþágubeiðni KSÍ einnig samþykkt
Knattspyrnusamband Íslands fékk undanþágubeiðni samþykkta svo lið í næstefstu deild, Lengjudeildinni, mega hefja æfingar.

Heimavöllurinn stækkar við sig | Forsala á Lyon-treyju Söru Bjarkar
Heimavöllurinn er að færa út kvíarnar og hefur nú opnað sína eigin vefsíðu. Á síðunni er hægt að kaupa treyju Evrópumeistarans Söru Bjarkar Gunnarsdóttur. Hægt er að fá áritaða Lyon-treyju frá landsliðsfyrirliðanum þangað til á miðnætti í kvöld.

Eiður Aron aftur í ÍBV
Miðvörðurinn Eiður Aron Sigurbjörnsson er snúinn aftur í raðir ÍBV. Þetta kom fram í fréttatilkynningu sem Eyjamenn sendu út nú rétt í þessu.

Misjafnt eftir félögum hvort bæði karlar og konur megi æfa vegna nýju reglnanna
Breytingar á sóttvarnareglum leggjast misvel í íþróttahreyfinguna. Hjá sumum félögum má meistaraflokkur karla æfa en ekki meistaraflokkur kvenna, og öfugt.

Æfingabanni aflétt í efstu deildum
Íþróttafólk í efstu deildum fékk góðar fréttir eftir ríkisstjórnarfund í dag.

Arnar um að Kári verði áfram: Jákvætt fyrir mig, klúbbinn og hann sjálfan
Miðvörðurinn Kári Árnason skrifaði undir nýjan samning við Víking í dag. Svava Kristín Grétarsdóttir ræddi við Kára sem og Arnar Gunnlaugsson, þjálfara Víkinga.

Hefði verið skelfilegt og skilið eftir óbragð í munninum að enda þetta svona
Kári Árnason skrifaði í dag undir framlengingu á samningi sínum við Víking. Varnarjaxl íslenska landsliðsins og Víkings gat ekki látið þetta vonbrigða ár verið sitt síðasta á ferlinum.

Rakel hefur leikið sinn síðasta landsleik
Síðasti landsleikur Rakelar Hönnudóttur var leikurinn sem tryggði Íslandi sæti á EM 2022.

Varnarmaður KR eftirsóttur af liðum í Svíþjóð
Finnur Tómas Pálmason, miðvörður KR, er á óskalista tveggja liða í sænsku úrvalsdeildinni.

Axel Freyr til liðs við Víkinga
Knattspyrnudeild Víkings Reykjavíkur hefur samið við Axel Frey Harðarson um að leika með liðinu næstu tvö árin, en hann kemur til félagsins frá Gróttu.