Vegagerð
7 8 9 10 11 12 13 14 … 14 ›
Rannsóknarvinna fyrir fyrstu lotu Borgarlínu hafin Vegagerðin vinnur nú að jarðvegsrannsóknum og burðarþolsmælingum á höfuðborgarsvæðinu á þeim stöðum þar sem sérrými fyrstu lotu Borgarlínunnar kemur til með að liggja. Innlent 15.7.2022 11:36
Fjarðarheiði gleypir öll framlög og veggjöld til jarðganga í sautján ár Svo fjárfrek verða Fjarðarheiðargöng að öll framlög á fimmtán ára jarðgangaáætlun ásamt gjaldtöku af öllum göngum duga ekki til að greiða kostnaðinn. Rými til að grafa næstu göng í landinu skapast vart fyrr en í kringum árið 2040. Innlent 14.7.2022 22:30
Telur innviðaráðherra draga Austfirðinga á asnaeyrunum Þingmaður Miðflokksins segir innviðaráðherra á villigötum vegna gjaldtöku í jarðgöngum landsins til að fjármagna Fjarðarheiðargöng. Ríkisstjórnin þurfi að hugsa málið til enda í stað þess að draga Austfirðinga á asnaeyrunum, að mati þingmannsins. Innlent 14.7.2022 12:16
Óttast ekki að umræða um gjaldtöku spilli áformum um Fjarðarheiðargöng Áform ríkisstjórnarinnar um að hefja gjaldtöku í öllum jarðgöngum landsins gætu orðið eitt helsta þrætumál samfélagsins á næstu misserum. Formaður byggðaráðs Múlaþings óttast ekki að umræða um jarðgangatoll spilli áformum um Fjarðarheiðargöng. Innlent 13.7.2022 22:20
Ráðherra boðar gjaldtöku í öllum jarðgöngum landsins Gjaldtaka verður tekin upp í öllum jarðgöngum landsins á næsta eða þarnæsta ári. Innviðaráðherra boðar frumvarp um málið en tekjunum er ætlað að standa undir kostnaði við Fjarðarheiðargöng sem og önnur jarðgöng í framtíðinni. Innlent 12.7.2022 22:04
Ný jarðgangagjöld áformuð til að greiða Fjarðarheiðargöng Ríkið áformar að mæta ríflega helmingi 45 milljarða króna kostnaðar vegna Fjarðarheiðarganga með nýrri gjaldtöku af umferð um önnur jarðgöng í landinu. Samgöngufélagið segir að þetta gangi tæpast upp og að óforsvaranlegt sé að ráðast í útboð nema fyrir liggi með ótvíræðum hætti hvernig staðið verði að gjaldtökunni. Innlent 11.7.2022 22:10
Mikill stuðningur við færslu hringvegar út úr Borgarnesi Verulegur stuðningur er við þá tillögu að hringvegurinn um Borgarnes verður færður út á vegfyllingu utan við byggðina, samkvæmt könnun sem Samgöngufélagið lét gera. Þá er allnokkur stuðningur við að hringvegurinn milli Akraness og Borgarness liggi í framtíðinni yfir mynni Grunnafjarðar norðan Akrafjalls. Innlent 9.7.2022 08:25
Suðurverk átti lægsta boð í næsta áfanga vegarins yfir Dynjandisheiði Suðurverk hf. í Kópavogi átti lægsta tilboð í nýbyggingu Vestfjarðavegar á 12,6 kílómetra kafla á Dynjandisheiði. Tilboð Suðurverks hljóðar upp á 2.455 milljónir króna sem var 1,8 prósent, eða 42 milljónum króna, yfir áætluðum verktakakostnaði upp á 2.412 milljónir króna. Viðskipti innlent 5.7.2022 14:41
Kosningaloforðið uppfyllt átta árum eftir að Betra Sigtún bauð fram Þau tíðindi urðu á Vopnafirði í vikunni að gatan Sigtún var malbikuð. Árið 2014 bauð framboðið Betra Sigtún þar sem malbikun götunnar var eitt helsta stefnumálið. Innlent 30.6.2022 12:56
Steinkast stútar sumrinu Slitlagsviðgerðir á vegum landsins eru framkvæmdar með þeim hætti að harpaðri möl er dreift yfir olíu sem ökumenn og umferð eru látin vinna við að þjappa og veldur þannig gríðarlegu tjóni á ökutækjum sökum steinkasts. Skoðun 30.6.2022 07:01
Malarköflum fækkar um tvo á hringleiðinni um Vestfirði Fyrsti kaflinn á Dynjandisheiði sem lagður er bundnu slitlagi var opnaður umferð um helgina og hefur malarköflum á Vestfjarðahringnum núna fækkað um átta kílómetra. Innlent 27.6.2022 23:22
Búið að opna veginn inn í Landmannalaugar Vegagerðin opnaði í morgun leiðina inn í Landmannalaugar um Sigölduvirkjun. Þá styttist í opnun Landmannaleiðar og búist við að hún verði jeppafær um helgina, samkvæmt upplýsingum Magnúsar Inga Jónssonar hjá umferðarþjónustu Vegagerðarinnar. Innlent 23.6.2022 12:20
Klæðning lögð um Pennudal áleiðis upp á Dynjandisheiði Klæðningarflokkur frá Borgarverki, undirverktaka ÍAV, hóf í morgun að leggja fyrri umferð bundins slitlags á kafla Vestfjarðavegar um Pennudal, eða Penningsdal, ofan Flókalundar í Vatnsfirði. Þetta er vegarkafli sem opnaður var umferð í nóvember en ekki náðist þá að klæða hann fyrir veturinn vegna óhagstæðs veðurs. Innlent 14.6.2022 15:40
Stefnir í metár í umferðinni á hringveginum Vegagerðin reiknar með að árið í ár verði metár þegar kemur að umferð á hringveginum Aldrei hefur mælst meiri umferð í maí en í síðastliðnum maí-mánuði. Innlent 12.6.2022 09:34
Innviðaráðherra segir aðgerðir gegn þenslu ekki bitna á framkvæmdum Ríkisstjórnin boðar aðgerðir til að mæta þenslu í hagkerfinu. Innviðaráðherra segir að þetta muni ekki bitna á neinum framkvæmdum. Innlent 8.6.2022 22:20
Kannar hug fólks til breytinga á tveimur köflum hringvegarins Samgöngufélagið leitar eftir afstöðu almennings til þess hvort breyta eigi legu hringvegarins á tveimur köflum á Vesturlandi. Frestur til að taka þátt í skoðanakönnun félagsins rennur út 10. júní. Innlent 7.6.2022 22:30
Hyggjast klára brúargólfið í Þorskafirði fyrir veturinn Smíði Þorskafjarðarbrúar, sem styttir Vestfjarðaveg um níu kílómetra, er komin vel á veg og er stefnt að því að brúargólfið verði tilbúið í haust. Verktakinn hefur leigt Bjarkalund undir vinnubúðir og verður hótelið lokað ferðamönnum næstu tvö árin. Innlent 6.6.2022 22:26
Að minnsta kosti bið fram á haust eftir forgangsröðun jarðganga Það ætti að koma í ljós á næsta löggjafarþingi hvaða jarðgangakostum verður forgangsraðað. Þá mun þingið taka fyrir þingsályktunartillögu um nýja samgönguáætlun fyrir árin 2023-2037 þar sem jarðgangakostum verður forgangsraðað Innlent 3.6.2022 11:10
Vegagerðin býður út langan vegarkafla á Dynjandisheiði Þrettán kílómetra langur vegarkafli á hæsta hluta Dynjandisheiðar verður boðinn út á morgun. Samtímis er Vegagerðin að skoða málamiðlun að nýju vegstæði við fossinn Dynjanda til að hlífa sem mest bæði landslagi og fornminjum. Innlent 1.6.2022 22:44
Þingmannssonur frá Akureyri sem hóf að ryðja Teigsskóg Ungur akureyskur þingmannssonur á trjákurlara er í raun sá sem byrjaði á því að ryðja Teigsskóg. Hann er langt kominn með að hreinsa burt allt það skóglendi sem þarf að víkja vegna vegagerðarinnar. Innlent 31.5.2022 22:30
Gröfustjórinn segir að passa verði hverja þúfu í Teigsskógi Ein umdeildasta vegagerð landsins, lagning vegar um Teigsskóg, hófst í dag, nítján árum eftir að tillaga um þessa veglínu var fyrst kynnt. Þessi ellefu kílómetra vegarkafli á að verða tilbúinn í október á næsta ári. Innlent 30.5.2022 23:23
Verktakinn býr sig undir að hefjast handa í Teigsskógi Borgarverk er byrjað að flytja tæki sín og tól að væntanlegu vinnusvæði í Teigsskógi. Fyrir helgi mátti sjá að grafa frá verktakanum var komin í Þorskafjörð og gerð klár til að hefja gröftinn í landi Þórisstaða þar sem núliggjandi Vestfjarðavegur hlykkjast upp á Hjallaháls. Innlent 29.5.2022 07:54
Breytt fjármögnun lækkaði tilboð í Hornafjörð um 2,2 milljarða króna Lægsta boð í lagningu nýs hringvegar um Hornafjörð lækkaði um 2,2 milljarða króna við það að langtímafjármögnun var undanskilin. Þrátt fyrir hökt í þessu fyrsta útboði verkefna í einkafjármögnun telur innviðaráðherra að annað verk í ferlinu, ný Ölfusárbrú, verði á áætlun og tilbúin árið 2025. Viðskipti innlent 19.5.2022 21:25
Aðeins eitt sem kemst að hjá Súðvíkingum fyrir kosningar Það er aðeins eitt sem Súðvíkingar vilja á næsta kjörtímabili - göng. Sveitarfélagið segir skilið við flokkakerfið og velur í kosningum þá fimm í sveitarfélaginu sem eru best til þess fallnir að stjórna bænum og fá ríkið til að leggja göngin. Innlent 10.5.2022 18:25
Skrifað undir verksamning um vegagerð í Teigsskógi Vegagerðin og Borgarverk undirrituðu í gær verksamning um lagningu ellefu kílómetra kafla um Teigsskóg. Borgarverk átti lægsta boð í verkið, upp á 1.235 milljónir króna, sem reyndist um tvöhundruð milljónum króna undir kostnaðaráætlun. Viðskipti innlent 10.5.2022 14:00
Svona vill Vegagerðin tvöfalda Suðurlandsveg við Rauðavatn Vegagerðin undirbýr breikkun Suðurlandsvegar á fimm kílómetra kafla við bæjardyr Reykjavíkur, milli Rauðavatns og Hólmsár. Stefnt er að því að hönnun verksins verði boðin út á næstu vikum. Innlent 8.5.2022 22:02
Samgöngur á hjólum Átakið Hjólað í vinnuna stendur nú yfir og margir hafa skráð sig til leiks. Hjólreiðar hafa marga kosti. Þær sameina hreyfingu og útivist og stuðla þannig að bættri heilsu. Sem ferðamáti eru hjólreiðar bæði skemmtilegar og hagkvæmar, enda njóta þær sífellt meiri vinsælda meðal fólks á öllum aldri. Skoðun 7.5.2022 07:31
Auglýst eftir tilboðum í hönnun Miklubrautar í stokk eða göng Vegagerðin hefur formlega auglýst útboð í hönnun vegna Miklubrautarstokks. Óskað er eftir tilboði í vinnu við frumdrög á breytingum á Nesbraut, eins og Miklabrautin heitir í þjóðvegaskrá Vegagerðarinnar, frá Snorrabraut í vestri og austur fyrir Kringlu. Viðskipti innlent 3.5.2022 17:28
Komast ekki til strandveiða vegna þungatakmarkana á þjóðveginum Strandveiðarnar hófust í morgun og er búist við að um og yfir sjöhundruð bátar stundi veiðarnar þetta sumarið. Í Norðurfirði á Ströndum, einni aflahæstu höfninni, neyddust sjómenn þó til að fresta brottför þar sem þungatakmarkanir á þjóðveginum norður í Árneshrepp meina flutningabílum að sækja aflann. Innlent 2.5.2022 12:41
Ljúka breikkun Reykjanesbrautar milli Hafnarfjarðar og Njarðvíkur Langþráð breikkun Reykjanesbrautar milli Straumsvíkur og Hvassahrauns er á leið í útboð og stefnt að því að fimm milljarða króna framkvæmdir hefjist um mitt sumar. Með verkinu lýkur tvöföldun leiðarinnar milli Reykjavíkur og Suðurnesja. Innlent 27.4.2022 22:22