Framhaldsskólar Eydís nýr skólameistari Verkmenntaskóla Austurlands Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Eydísi Ásbjörnsdóttur í embætti skólameistara Verkmenntaskóla Austurlands til fimm ára frá 1. desember. Innlent 30.11.2022 21:03 Fóru hörðum orðum um MR Fjallað var um stöðu íslenskra framhaldsskóla í Íslandi í dag sem sjá má hér að ofan, en þar lýstu Verzlingar ætluðum yfirburðum síns skóla samanborið við Menntaskólann í Reykjavík. Sögulega séð hafa þessir tveir skólar í vissum skilningi notið stöðu turnanna tveggja í íslenskum framhaldsskólum, en á síðari árum hefur Verzló reynst margfalt eftirsóttari. Lífið 30.11.2022 09:02 „Það er alveg ljóst að við fórum offari“ Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, segir ljóst að Íslendingar hafi farið offari í aðgerðum til að stemma stigu við útbreiðslu Covid-19 á sínum tíma. Innlent 26.11.2022 10:00 Verzlingar leggjast gegn ályktun Sjálfstæðisflokks um námstíma: „Ekki séns, bara nei“ Á nýlegum landsfundi Sjálfstæðisflokksins var ályktað um að stytta skólaár í íslensku menntakerfi um eitt enn, þannig að heildarnámstími ungmenna yrði fram að átján ára. Síðasta stytting gekk í gegn 2015, þegar framhaldsskóli varð að þriggja ára námi, og skólagangan þar með fram að nítján ára aldri. Innlent 24.11.2022 09:15 Lokun Stjörnutorgs sögð aðför að æsku menntskælinga Landsmenn kvöddu Stjörnutorg í dag eftir 23 ára starfsemi og lýstu sumir fastagestir torgsins brotthvarfinu sem aðför að æskunni. Merki Stjörnutorgs verður selt á uppboði. Lífið 23.11.2022 20:15 Árásarmálið í Borgarholtsskóla þingfest Mál fimmmenninganna sem ákærðir eru fyrir vopnuð slagsmál í Borgarholtsskóla var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur síðdegis í dag. Sakborningarnir eru allir ákærðir fyrir brot gegn vopnalögum. Innlent 23.11.2022 16:40 Ákærðir fyrir brot á vopnalögum eftir átök í Borgarholtsskóla Fimm hafa verið ákærðir fyrir sinn þátt í vopnuðum slagsmálum sem áttu sér stað í og við Borgarholtsskóla þann 13. janúar í fyrra. Hnífur, hafnaboltakylfa og ljósapera voru meðal þess sem beitt var í átökunum. Innlent 21.11.2022 19:11 Góð ráð í jólaprófunum Desembermánuður nálgast óðfluga og eru margir sem tengja hann við kertaljós, bakstur, jólatónlist og almenn huggulegheit. Lífið 20.11.2022 09:01 Kennarar leigja íbúð fyrir fjölskylduna og halda námi systranna gangandi Hópur kennara við Fjölbrautarskólann við Ármúla hefur tekið á leigu Airbnb íbúð í Aþenu fyrir Hussein fjölskylduna sem var vísað til Grikklands í síðustu viku. Kennararnir vona að systur í fjölskyldunni sem stunduðu nám við skólann mæti aftur á vorönn og leita því leiða til þess að aðstoða þær við að klára önnina í fjarnámi. Innlent 11.11.2022 14:41 Fjölbreytt verkefni hlutu Menntaverðlaunin í ár Íslensku menntaverðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær. Fjórar menntastofnanir og einn kennari hlutu verðlaun. Innlent 4.11.2022 12:27 Grátbáðu um að fá að vera eftir: „Svo ómannúðleg framkoma að það er engu lagi líkt“ Skólastjóri Fjölbrautarskólans við Ármúla segir framkomu stjórnvalda við tvo íraska nemendur skólans svo ómannúðlega að það er engu lagi líkt. Nemendurnir voru teknir höndum af lögreglu á leið heim úr skólanum í gær og svo sendir úr landi, líkt og fjöldi annarra í umdeildri brottvísunarhrinu á hælisleitendum. Innlent 3.11.2022 19:33 „Er mjög stolt af því að geta gefið fyndnum konum pláss“ „Okkur fannst mikilvægt að búa til pláss fyrir fyndnar kvenpersónur og ég held að það hafi tekist mjög vel hjá okkur,“ segir Kolbrún María Másdóttir, annar handritshöfundur og leikstjóri sýningarinnar Það sem gerist í Verzló. Lífið 30.10.2022 14:00 Einelti hafi tilhneigingu til að fara úr sviðsljósinu Innlent 23.10.2022 12:41
6 7 8 9 10 11 12 13 14 … 15 ›
Eydís nýr skólameistari Verkmenntaskóla Austurlands Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Eydísi Ásbjörnsdóttur í embætti skólameistara Verkmenntaskóla Austurlands til fimm ára frá 1. desember. Innlent 30.11.2022 21:03
Fóru hörðum orðum um MR Fjallað var um stöðu íslenskra framhaldsskóla í Íslandi í dag sem sjá má hér að ofan, en þar lýstu Verzlingar ætluðum yfirburðum síns skóla samanborið við Menntaskólann í Reykjavík. Sögulega séð hafa þessir tveir skólar í vissum skilningi notið stöðu turnanna tveggja í íslenskum framhaldsskólum, en á síðari árum hefur Verzló reynst margfalt eftirsóttari. Lífið 30.11.2022 09:02
„Það er alveg ljóst að við fórum offari“ Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, segir ljóst að Íslendingar hafi farið offari í aðgerðum til að stemma stigu við útbreiðslu Covid-19 á sínum tíma. Innlent 26.11.2022 10:00
Verzlingar leggjast gegn ályktun Sjálfstæðisflokks um námstíma: „Ekki séns, bara nei“ Á nýlegum landsfundi Sjálfstæðisflokksins var ályktað um að stytta skólaár í íslensku menntakerfi um eitt enn, þannig að heildarnámstími ungmenna yrði fram að átján ára. Síðasta stytting gekk í gegn 2015, þegar framhaldsskóli varð að þriggja ára námi, og skólagangan þar með fram að nítján ára aldri. Innlent 24.11.2022 09:15
Lokun Stjörnutorgs sögð aðför að æsku menntskælinga Landsmenn kvöddu Stjörnutorg í dag eftir 23 ára starfsemi og lýstu sumir fastagestir torgsins brotthvarfinu sem aðför að æskunni. Merki Stjörnutorgs verður selt á uppboði. Lífið 23.11.2022 20:15
Árásarmálið í Borgarholtsskóla þingfest Mál fimmmenninganna sem ákærðir eru fyrir vopnuð slagsmál í Borgarholtsskóla var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur síðdegis í dag. Sakborningarnir eru allir ákærðir fyrir brot gegn vopnalögum. Innlent 23.11.2022 16:40
Ákærðir fyrir brot á vopnalögum eftir átök í Borgarholtsskóla Fimm hafa verið ákærðir fyrir sinn þátt í vopnuðum slagsmálum sem áttu sér stað í og við Borgarholtsskóla þann 13. janúar í fyrra. Hnífur, hafnaboltakylfa og ljósapera voru meðal þess sem beitt var í átökunum. Innlent 21.11.2022 19:11
Góð ráð í jólaprófunum Desembermánuður nálgast óðfluga og eru margir sem tengja hann við kertaljós, bakstur, jólatónlist og almenn huggulegheit. Lífið 20.11.2022 09:01
Kennarar leigja íbúð fyrir fjölskylduna og halda námi systranna gangandi Hópur kennara við Fjölbrautarskólann við Ármúla hefur tekið á leigu Airbnb íbúð í Aþenu fyrir Hussein fjölskylduna sem var vísað til Grikklands í síðustu viku. Kennararnir vona að systur í fjölskyldunni sem stunduðu nám við skólann mæti aftur á vorönn og leita því leiða til þess að aðstoða þær við að klára önnina í fjarnámi. Innlent 11.11.2022 14:41
Fjölbreytt verkefni hlutu Menntaverðlaunin í ár Íslensku menntaverðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær. Fjórar menntastofnanir og einn kennari hlutu verðlaun. Innlent 4.11.2022 12:27
Grátbáðu um að fá að vera eftir: „Svo ómannúðleg framkoma að það er engu lagi líkt“ Skólastjóri Fjölbrautarskólans við Ármúla segir framkomu stjórnvalda við tvo íraska nemendur skólans svo ómannúðlega að það er engu lagi líkt. Nemendurnir voru teknir höndum af lögreglu á leið heim úr skólanum í gær og svo sendir úr landi, líkt og fjöldi annarra í umdeildri brottvísunarhrinu á hælisleitendum. Innlent 3.11.2022 19:33
„Er mjög stolt af því að geta gefið fyndnum konum pláss“ „Okkur fannst mikilvægt að búa til pláss fyrir fyndnar kvenpersónur og ég held að það hafi tekist mjög vel hjá okkur,“ segir Kolbrún María Másdóttir, annar handritshöfundur og leikstjóri sýningarinnar Það sem gerist í Verzló. Lífið 30.10.2022 14:00
Sími barna, netið og foreldrahlutverkið Hömrum járnið á meðan það er heitt. Bendum foreldrum á skyldu sína að ala upp barnið sitt, fylgjast með umferð þess í síma og á samfélagsmiðlum. Skoðun 23.10.2022 08:30
Öllu starfsfólki sagt upp Menntamálastofnun verður lögð niður og öllu starfsfólki þar sagt upp í viðamiklum breytingum sem Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hefur boðað. Samhæfing og ný verkfæri í skólakerfi eru meðal annars ástæður breytingarinnar. Innlent 17.10.2022 12:00
MH verður fyrsti skólinn til að innleiða aðgerðaáætlun í kynferðisbrotamálum Þolendur í menntaskólum munu fá meiri sveigjanleika í námi og aukið utanumhald þegar ný aðgerðaáætlun um einelti, kynferðislega áreitni og kynferðislegt ofbeldi verður innleidd. Menntaskólinn við Hamrahlíð verður fyrsti framhaldsskólinn til að innleiða áætlunina en þar var gerð bylting í byrjun mánaðar vegna óánægju nemenda með viðbrögð skólans í slíkum málum. Innlent 13.10.2022 06:54
„Það er kominn tími til að hlustað sé á þolendur" Um þúsund manns söfnuðust saman við Menntaskólann í Hamrahlíð í dag til að sýna þolendum kynferðisofbeldis stuðning og krefjast þess að tekið sé af slíkum málum sem upp koma innan skóla af festu. Mótmælendur söfnuðust saman víðar um landið. Innlent 6.10.2022 21:01
Gríðarlegur fjöldi mótmælti um allt land og ráðherra baðst afsökunar Framhaldsskólanemendur víðs vegar um landið yfirgáfu skólastofur sínar klukkan ellefu í dag. Fleiri hundruð ef ekki þúsund söfnuðust saman á skólalóð Menntaskólans við Hamrahlíð og mótmæltu viðbragðsleysi skólastjórnenda í kynferðisbrotamálum innan veggja framhaldsskólanna. Menntamálaráðherra biðst afsökunar á að ekki hafi verið hlustað á nemendur. Innlent 6.10.2022 14:01
Nokkur hundruð nemenda mótmæla við MH Nemendur við Menntaskólann við Hamrahlíð og öðrum framhaldsskólum krefjast þess að tekið verði af sömu alvöru, ef ekki meiri, á kynferðisbrotum og öðrum ofbeldisbrotum í skólum hér á landi. Allir nemendur eigi rétt á því að vera í öruggu umhverfi. Innlent 6.10.2022 11:01
Biðja nemendur afsökunar Stjórn Menntaskólans við Hamrahlíð harmar að núverandi og fyrrverandi nemendur hafi upplifað vanlíðan vegna kynferðislegs ofbeldis. Ekki hafi verið tekið á þeim málum með viðeigandi hætti en stjórnendur biðjast afsökunar á viðbrgögðum í opnu bréfi til nemenda. Innlent 5.10.2022 18:53
Boðar skólastjórnendur á fund vegna umræðu um kynferðisbrot Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra hefur boðað skólastjórnendur á fund um viðbrögð við kynferðisofbeldi í framhaldsskólum. Á fundinum verður farið yfir stöðuna á innleiðingu viðbragðsáætlana og kynningu þeirra í skólunum. Innlent 5.10.2022 17:47
Fékk afsökunarbeiðni frá rektor í morgunsárið Rektor Menntaskólans í Hamrahlíð hefur beðið fyrrverandi nemenda afsökunar á því hvernig tekið var á málinu þegar henni var nauðgað af samnemanda fyrir áratug. Henni hefur verið boðið á fund með skólastjórnendum til að ræða hvað megi betur fara en hún segir dýrmætt að henni sé loksins trúað og að skólinn viðurkenni að það hafi ekki verið brugðist rétt við á sínum tíma. Innlent 5.10.2022 13:01
Hugleiðing um skóla á alþjóðadegi kennara Börnin verða fullorðin í framhaldsskóla. Nemendur í framhaldsskólum innritast sem börn en við útskrift eru þau orðin fullorðin, a.m.k. samkvæmt laganna bókstaf. Verkefni framhaldsskólastigsins er að bjóða hverjum nemanda nám við sitt hæfi á þroskaferðalagi sínu til virkrar þátttöku í lýðræðisþjóðfélagi, til frekara náms og farsældar á atvinnumarkaði. Skoðun 5.10.2022 10:31
Rektor MH „eins og kúkur“ í miðri byltingu Þessa dagana ólgar bylting innan veggja Menntaskólans við Hamrahlið, þar sem ég á systur og mágkonu meðal nemenda, þar sem barnsmóðir mín og unnusta, hún Brynhildur mín, var í námi þegar henni var nauðgað fyrir meira en tíu árum. Skoðun 5.10.2022 10:01
MeToo bylgja framhaldsskólanema: Tímabært að rödd þeirra fái að heyrast Talskona Stígamóta telur að MeToo-bylgja framhaldsskólanema sé að hefjast. 70 prósent þeirra sem leiti til samtakanna hafi verið beitt kynferðisofbeldi fyrir 18 ára aldur. Mikilvægt sé að skólastjórnendur í framhaldsskólum hlusti á nemendur og tilbúnir með viðbragðsáætlanir. Innlent 4.10.2022 22:06
Óttast að enginn hlusti á menntaskólanema sem verði fyrir ofbeldi Nemendur í Menntaskólanum við Hamrahlíð hafa mótmælt því í dag og í gær að nemendur við skólann, sem eru þolendur kynferðisofbeldis, þurfi að mæta gerendum sínum á göngum skólans. Fyrrverandi nemandi segir lítið hafa breyst frá því að hann var í þessari sömu stöðu fyrir áratug. Innlent 4.10.2022 20:30
Skólastjórnendur MH segja fagaðila hafa verið kallaða til Skólastjórnendur Menntaskólans við Hamrahlíð hafa sent frá sér tilkynningu vegna umfjöllunar fjölmiðla um mótmæli nemenda vegna kynferðisofbeldis. Nemendurnir mótmæltu því í gær að þurfa að mæta gerendum á göngum skólans. Innlent 4.10.2022 14:00
Bylting í MH: Vilja ekki mæta nauðgurum sínum á göngunum Nemendur í Menntaskólanum við Hamrahlíð mótmæltu því í gær að nemendur skólans sem eru þolendur kynferðisofbeldis þurfi að mæta gerendum sínum á göngum skólans. Þeir segja viðbrögð skólans vera ófullnægjandi. Fyrrverandi nemandi við skólann segir söguna vera að endurtaka sig. Fyrir tíu árum hafi henni verið nauðgað af samnemanda sínum. Innlent 4.10.2022 12:00
MH klúðrar málunum enn þá á kostnað þolenda Þegar ég var sautján ára nemandi í MH var mér nauðgað af vini mínum og skólabróður. Þegar ég safnaði loksins kjarki til að segja skólayfirvöldum frá því mættu mér lokaðar dyr. Kvíðaköst, ótti og áfallastreita breyttu því ekki að ég hafði aldrei kært atvikið til lögreglu og skólastjórnendur gátu ekki boðið mér betur en að skipta um skóla. Draumaskólinn MH var í baksýnisspeglinum og fljótlega hætti ég að mæta í MK, þar sem ég þekkti engan, og flosnaði upp úr námi. Skoðun 4.10.2022 11:30
„Gera þetta alveg jafn vel og karlarnir, kannski betur“ Ung kona í málaraiðnnámi segist finna fyrir fordómum þegar hún fer að kaupa málningu. Þrátt fyrir töluverða fjölgun kvenna í iðngreinum telur hún aðeins hægt að uppræta fordóma með enn frekari fjölgun. Lífið 25.9.2022 07:00
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent