Fuglar
1 2 3 4 5 6 7 … 7 ›
Á löggustöð í úlpu með frosinn gogg Lögreglan á Suðurnesjum fann gæs með frosinn gogg á vappi í gær og bauð henni að hlýja sér í úlpu á lögreglustöðinni. Lífið 15.1.2023 10:24
Fjórar hænur drápust í eldsvoða Eldur kom upp í hænsnakofa á Sauðárkróki rétt eftir miðnætti í nótt. Átta hænur voru í kofanum og drápust fjórar þeirra. Vegfarendur komu í veg fyrir að tjónið varð ekki meira. Innlent 16.11.2022 12:09
Segja fuglaflensuna hafa borist til Bandaríkjanna um Ísland og Grænland Talið er víst að fuglaflensan hafi borist frá Norður-Evrópu til Norður-Ameríku um Ísland. Þetta kemur fram í grein sem birtist í vísindatímaritinu Emerging Infectious Diseases en höfundar hennar eru vísindamenn á Íslandi og í Þýskalandi. Innlent 15.11.2022 06:57
Tveir ernir drepist úr fuglaflensu Tveir ungir ernir hafa drepist úr fuglaflensu hér á landi. Annar þeirra drapst síðasta haust en hinn á þessu ári. Innlent 11.11.2022 15:34
Skæð fuglaflensa gengur enn Skæð fuglaflensa gengur og greinist enn í villtum fuglum hér á landi. Meira en hálft ár er liðið síðan flensan fór að greinast í villtum fuglum hér á Íslandi en Matvælastofnun telur ekki tímabært að aflétta sóttvarnaaðgerðum sem eru í gildi vegna flensunnar. Innlent 24.10.2022 10:01
Álftir éta og éta upp kornakra bænda Álftir eru verulegt vandamál þegar kornrækt er annars vegar því fuglarnir éta upp heilu hektarana frá bændum á örskotsstund. Kornbóndi á Suðurlandi segir að þó að þær séu reknar upp af ökrunum koma þær jafn harðan aftur, það verði að fækka fuglinum en í dag eru álftir friðaðar. Innlent 22.10.2022 13:06
Segir sjálfstæðismenn lýsa yfir stríði við máva Borgarfulltrúi Vinstri grænna, Líf Magneudóttir gagnrýnir framgang Sjálfstæðisflokksins hvað máva í Reykjavík varðar en hún segir flokkinn hafa lýst yfir stríði við fuglinn. Hún hvetur kjörna fulltrúa til þess að fella tillögu Sjálfstæðisflokksins sem vilji drepa unga mávana. Innlent 30.8.2022 22:15
Fuglaflensusmit viðvarandi í villtum fuglum Matvælastofnun (MAST) segir fuglaflensusmit enn vera viðvarandi í villtum fuglum og enn sé hætta á að smit berist yfir í alifugla. Dregið hefur úr tilkynningum um smit síðustu mánuði sem er þó ekki merki um að fuglaflensan sé að hverfa. Innlent 22.8.2022 13:48
Dagur fetar ekki í fótspor Garðbæinga Eru mávar hatursefni? Samfélagið skiptist í fylkingar yfir þessu eins og borgarstjóri Reykjavíkur bendir á og sitt sýnist hverjum. Ólíkt öðrum sveitarfélögum, kemur þó ekki til greina í Reykjavík að fara að skjóta máva eða stinga á egg þeirra. Innlent 12.8.2022 20:01
Ekkert bendi til þess að mávar séu árásargjarnari nú en áður Engin breyting er á hegðun máva og ekkert sem bendir til þess að þeir séu árásargjarnari nú en áður. Fuglafræðingur segir að ef bæjarfélög vilji hafa græn svæði í byggð verði þeir að lifa með mávnum. Innlent 11.8.2022 12:30
Vill fá að stinga á egg máva sem trufli svefnfrið og ráðist á Garðbæinga Garðabær mun fara markvisst í aðgerðir til þess að halda mávastofninum í skefjum. Bæjarstjórinn vill fá leyfi til þess að stinga á mávaegg á friðlýstum svæðum en svefnvana íbúar kvarta undan stanslausu áreiti frá fuglunum. Innlent 10.8.2022 21:00
„Það sem er mikilvægt er að þetta má ekki gleymast“ Súgfirðingar gengu í gær til minningar þeirra fjölmörgu æðarfugla sem þurfi að aflífa eftir olíuslys í þorpinu fyrr á árinu. Skipuleggjandi segir mikilvægt að atvikið gleymist ekki og að lærdómur verði dreginn af því. Innlent 7.8.2022 09:00
Dauðir fuglar eins og hráviði á vegum úti Þeir sem fara um þjóðvegi landsins komast ekki hjá því að taka eftir fuglum sem liggja steindauðir víðsvegar við vegi landsins. Árlega drepst óhemju mikið af fuglum eftir að á þá hefur verið keyrt, ekki síst á þessum tíma ársins. Innlent 6.8.2022 09:07
Heiðra minningu æðarfugla sem drápust í olíuslysi Á laugardaginn munu Súgfirðingar ganga minningargöngu til heiðurs minningar fjölmargra æðarfugla sem þurfti að aflífa eftir olíuslys á Suðureyri í mars síðastliðnum. Innlent 4.8.2022 08:24
Ótrúlegur páfagaukur í Breiðholti getur ekki hætt að tala Fyrir um ári síðan byrjaði lítill en óvenjulegur páfagaukur í Breiðholti að tala, eiganda sínum að óvörum. Fuglinn býr nú yfir fjölbreyttum orðaforða, eins og sjá má í meðfylgjandi frétt. Lífið 24.7.2022 19:42
Sléttuúlfar átu páfugla Martha Stewart Sléttuúlfar brutu sér leið inn að búgarði sjónvarpskonunnar Martha Stewart í dag og átu þar sex af páfuglum hennar. Atvikið átti sér stað um hábjartan dag. Lífið 23.7.2022 20:31
Takmarka eigi lausagöngu katta til að hlífa fuglum Varptími smáfugla stendur yfir þessa dagana og bendir Fuglavernd kattaeigendum því á að halda köttum sínum inni á næturnar. Undanfarin ár hefur dýravinur í Vesturbæ vakið athygli á fuglaveiðum katta í nær árlegri færslu á Facebook. Hún segir kattaeigendur í nágrenninu orðna meðvitaðri um ábyrgðarhlutverk sitt af því í ár hafi ungar komist á legg í fyrsta skipti í hverfinu. Innlent 11.7.2022 13:31
Áttavilltur lundi í Suðurhlíðunum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um áttavilltan lunda á vappi í Suðurhlíðunum. Hann var hinn gæfasti í höndum lögreglu sem kom honum til dýrahirðis í Húsdýragarðinum. Innlent 8.7.2022 13:14
Eins og þruma úr heiðskíru lofti Óvænt árás mávs á rottu á Kársnesi náðist á myndband í dag. Mávurinn steypti sér úr loftinu á miklum hraða og greip rottuna í gogginum. Rottan féll skömmu síðar aftur til jarðar. Lífið 5.7.2022 20:44
Haförn sást í Mjóafirði Fjölskylda sá til hafarnar í Mjóafirði á leið þeirra til Þingeyrar. Ljósmyndarinn Helen María Björnsdóttir náði nokkrum frábærum myndum af fuglinum. Innlent 3.7.2022 15:00
Hafa byggt upp stærsta æðarvarp landsins í 22 ár Fuglaþorpið Sævarendi er í Loðmundarfirði en þar er sennilega stærsta æðarvarp á Íslandi, með um sexþúsund hreiður og tólfþúsund fugla. Hjónin Ólafur Aðalsteinsson og Jóhanna Óladóttir eru æðarbændur af lífi og sál og hafa byggt upp æðarvarpið í Sævarenda í 22 ár. Ljósmyndarinn Rax heimsótti hjónin og tók myndir af æðarvarpinu og íbúum þess. Menning 3.7.2022 07:29
Byggja hagkvæmt húsnæði í Reykjavík, fyrir fugla Tólf fuglahúsum hefur verið komið fyrir við göngugötur, græn svæði og torg í miðborg Reykjavíkur. Staðsetning húsanna er hugsuð til að skapa sýnileika fyrir almenning og vekja athygli á fuglum í umhverfinu. Innlent 15.6.2022 17:05
Fjöldi tilkynninga vegna dauðra fugla Matvælastofnun eru enn að berast fjölmargar tilkynningar um dauða villtra fugla vegna fuglaflensunnar. Innlent 13.6.2022 13:59
Hrafn gæðir sér á þresti fyrir framan Seðlabankann Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri náði einstöku myndskeiði þar sem hrafn nokkur er að háma í sig þröst fyrir utan Seðlabankann. Innlent 3.6.2022 13:59
Sláttur hafinn á Suðurlandi – Álftunum um að kenna Sláttur er hafinn á bænum Ártúnum á Rangárvöllum á Suðurlandi óvenjulega snemma. Ástæðan kemur ekki til af góðu. Innlent 29.5.2022 11:16
Önd varð fyrir bíl á Miklubrautinni Miskunnsamur borgari reyndi sitt besta í dag til að koma í veg fyrir að andafjölskylda yrði síðdegisumferðinni á Miklubrautinni að bráð. Innlent 26.5.2022 18:09
Taka raflínu til Eyja úr rekstri vegna hrafnsunga Landsnet hefur ákveðið að taka Vestmannaeyjalínu 1 úr rekstri næstu vikurnar vegna „óvæntra leigjenda“. Hrafnapar hefur búið sér til laup á endastæðu línunnar við Rimakot. Innlent 18.5.2022 15:23
Ein elsta íslenska álftin felld í Wales Í byrjun apríl fannst tæplega þrítug íslensk álft í Pembroke-héraði í Wales. Álftin var særð og þurftu dýraverndunarsamtök að fella hana. Erlent 10.5.2022 19:37
Súla drapst við Kasthústjörn Íbúi á Álftanesi telur ekki ólíklegt að súlan hafi verið smituð af hinni skæðu fuglaflensu sem nú geisar og vonar að smit berist ekki í hundruð fugla sem þarna koma. Innlent 9.5.2022 10:04
Staðfest að um hið skæða afbrigði fuglaflensu er að ræða Fuglaflensuveirur sem greinst hafa að undanförnu hér á landi eru af hinu skæða afbrigði H5N1 sem geisar í nágrannalöndunum um þessar mundir. Innlent 3.5.2022 16:54