
Fíkniefnabrot

„Ég tek alveg á mig það sem ég gerði, en hitt er ekki ég“
Jón Ingi Sveinsson, grunaður höfuðpaur Sólheimajökulsmálsins svokallaða, gaf sína þriðju skýrslu í aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Þar viðurkenndi hann að hafa átt þátt í innflutningi á fíkniefnum sem voru flutt til landsins með skemmtiferðaskipinu AIDAsol. Hann segist þó ekki kannast við að hafa skipulagt innflutninginn.

Sakborningur á áttræðisaldri segist hafa fengið greiðslur frá syni sínum
Karlmaður á áttræðisaldri sem er einn sakborninga Sólheimajökulsmálsins svokallaða gaf skýrslu í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Hann er ákærður fyrir að hafa haft í vörslu sinni 170 grömm af amfetamíni og 667 grömm af kókaíni.

Segist aldrei hafa skoðað í poka sem innihélt sextán milljónir
Maður á fimmtugsaldri sem er ákærður fyrir peningaþvætti í tengslum við umfangsmikið fíkniefnamál, Sólheimajökulsmálið svokallaða, kannast við að hafa geymt hluti fyrir vin sinn sem er ákærður fyrir skipulagða brotastarfsemi í málinu.

„Ég veit ekki af hverju hann segir ósatt“
Jón Ingi Sveinsson, grunaður höfuðpaur í umfangsmiklu fíkniefnamáli, gaf skýrslu í annað sinn á tveimur dögum í aðalmeðferð Sólheimajökulsmálsins svokallaða. Áætlað er að hann muni gefa skýrslu aftur.

„Það var annað hvort þetta eða vændi“
Mæðgur sem eru sakborningar í umfangsmiklu fíkniefnamáli báru vitni fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Móðirin, sem er á sjötugsaldri, er grunuð um að hafa haft umtalsvert magn fíkniefna á heimili sínu í Reykjavík. Dóttirin, sem er á fertugsaldri, er ákærð fyrir að hafa staðið í umfangsmikilli skipulagðri brotastarfsemi.

„Er það ekki það sem fíkniefnasali gerir? Selur fíkniefni?“
Skýrslutökur í aðalmeðferð umfangsmikils fíkniefnamáls sem hefur farið fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag hefur einkennst af því að sakborningar neiti sök hvað varðar meint brot sem varða skipulagða brotastarfsemi. Þá neita þeir að tjá sig út í ýmis gögn í lögregluskýrslum.

„Getum við verið sammála um að vera ósammála?“
„Ég veit ekki alveg hvað ég á að segja með þetta. Ég allavega neita sök í þessu og hef ekki vitneskju um þessi fíkniefni,“ sagði Jón Ingi Sveinsson, grunaður höfuðpaur í umfangsmiku fíkniefnamáli, í upphafi aðalmeðferðar málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Þröng á þingi í umfangsmiklu fíkniefnamáli
Það er þröng á þingi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag þar sem aðalmeðferð í stóra fíkniefnamálinu svokallaða fer fram. Átján eru talin tengjast þaulskipulögðum innflutningi á fíkniefnum til landsins með skemmtiferðaskipum. Verjandi fylgir hverjum sakborningi, blaðamenn eru þónokkrir og vegna fjöldans er aðalmeðferðinni streymt í annan dómsal.

Fjórtán ára ráðinn til að hefna fyrir morðið á fimmtán ára
Yfirvöld í Marseille á Frakklandi segja átök glæpahópa um fíkniefnamarkaðinn í borginni vera að ná til afar ungra einstaklinga, sem séu ráðnir af hópunum til að fremja ofbeldisbrot.

Þrír í haldi í fíkniefnamáli
Þrír voru í dag úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald í héraðsdómi Reykjavíkur, grunaðir um aðild að fíkniefnamáli sem lögregla hefur til rannsóknar.

Tekinn með efni eftir að vinur sló sig í höfuðið með skiptilykli
Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa haft amfetamín og nokkrar töflur af róandi og kvíðastillandi lyfi í fórum sínum. Lögregla framkvæmdi húsleit heima hjá honum eftir að hann hafði hringt á lögreglu vegna þess að vinur hans hafi slegið sjálfan sig í höfuðið með skiptilykli.

Varla komist í kast við lögin fyrr en hann flutti kókaín til landsins
Albert Lleshi hefur hlotið tveggja ára og átta mánaða langan fangelsisdóm fyrir að flytja rétt rúm tvö kíló af kókaíni til landsins.

Eiturlyf og vopn fundust á heimili hins handtekna á Bakkafirði
Sveitastjóri í Langanesbyggð segist hafa rætt við íbúa á Bakkafirði sem er ósáttur við aðgerðir sérsveitarinnar á mánudag og afskiptasemi og neikvæðni í samfélaginu. Pólskt par var handtekið grunað um fíkniefnaframleiðslu og er karlmaðurinn eftirlýstur í heimalandinu fyrir fjársvik. Sveitastjórinn vonast til að öldur lægi. Ríkislögreglustjóri segir aðgerðir sérsveitar erfiðar fyrir alla.

Tveir hafa játað sök í stóra fíkniefnamálinu sem fer ekki fet
Aðalmeðferð umfangsmikils fíkniefnamáls, sem hefur verið kennt við skemmtiferðaskip en líka verið kallað stóra fíkniefnamálið, mun fara fram í sal 101 í Héraðsdómi Reykjavíkur dagana 28. október til 6. nóvember.

Máttu vita að eiturlyfjasalinn þeirra væri að flytja inn eiturlyf
Fjórir hlutu heldur þunga fangelsisdóma á dögunum fyrir innflutning mikils magns amfetamínsbasa. Höfuðpaurinn í málinu fékk viðskiptavini sína til þess að sækja fyrir sig flöskur sem innihéldu efnin. Fólkið var talið hafa mátt vita að flöskurnar innihéldu eiturlyf, enda hafi maðurinn verið eiturlyfjasali þess.

Í gæsluvarðhald vegna kókaínsendingar
Tveir menn voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna kókaínsinnflutnings í póstsendingu í vikunni. Öðrum þeirra var sleppt úr haldi í dag.

Með tvær ferðatöskur af fíkniefnum
Knattspyrnumaðurinn Jay Emmanuel-Thomas, fyrrverandi leikmaður Arsenal, var handtekinn og ákærður fyrir að flytja inn fíkniefni til Bretlands.

Á þriðja hundrað kíló tekin á landamærunum
Ríflega 230 kíló, tæpir tíu lítrar og 40 þúsund töflur af ólöglegum fíkniefnum hafa verið haldlögð á landamærum Íslands það sem af er þessu ári. Alls hefur verið lagt hald á 21 tegund fíkniefna, þar á meðal rúmlega 22,5 kíló af kókaíni, yfir 140 kíló af marijúana og tæplega nítján þúsund töflur af MDMA. Í heildina er um að ræða nokkuð meira magn fíkniefna en haldlagt var á sama tímabili í fyrra, að undantöldum fíkniefnum í vökvaformi sem haldlögð voru í meira magni á síðasta ári.

Yfir áttatíu milljónir í reiðufé haldlagðar á landamærum
Tollayfirvöld hafa það sem af er þessu ári lagt hald á tæplega 82,5 milljónir í reiðufé á landamærum Íslands. Það er meira fjármagn en haldlagt var á landamærum allt árið í fyrra þegar lagt var hald á rúmar 75 milljónir króna.

Íslensk kona ákærð fyrir fíkniefnainnflutning í Færeyjum
Íslensk kona er meðal fimm ákærðra í stóru fíkniefnamáli í Færeyjum. Þau eru ákærð fyrir að hafa smyglað 23 kílóum af hassi og 3,8 kílóum af amfetamíni til eyjanna.

Framburður lykilvitnis fyrir dómi ekki talinn trúverðugur
Héraðsdómur Reykjavíkur telur að framburður Péturs Jökuls Jónassonar í stóra kókaínmálinu hafi í öllum aðalatriðum verið ótrúverðugur. Hið sama megi segja um framburð lykilvitnis í málinu sem hafi um langt skeið verið útsettur fyrir verulegri hættu á eftirmálum ef hann tengdi Pétur Jökul við málið.

Kortleggja brotamenn með tengsl við Suður-Ameríku
Aðstoðaryfirlögregluþjónn í greiningardeild ríkislögreglustjóra segir um fimmtán til tuttugu brotahópa starfa með skipulögðum hætti hérlendis. Um fjölþjóðlega hópa sé að ræða, en nýlega hafi lögregla fengið upplýsingar um brotamenn hér á landi með tengsl við Suður-Ameríku.

Fluttu kókaín til landsins í kaffikönnu og útvarpstæki
Þrír menn hafa verið dæmdir til fangelsisvistar fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot eftir að hafa reynt að smygla kókaíni til landsins. Annars vegar voru efnin flutt í kaffikönnu frá Frakklandi, og hins vegar í útvarpstæki frá Sviss.

Fær Amsterdam-reiðuféð ekki til baka frá lögreglu
Landsréttur hefur hafnað kröfu manns um afhendingu reiðufjár upp á sex þúsund evrur, sem lögregla lagði hald á í Leifsstöð. Peninginn hafði maðurinn meðferðis á leið til Amsterdam með félögunum.

Sagði Pétri Jökli að skipta um síma í snarheitum
Verjandi Péturs Jökuls Jónassonar í stóra kókaínmálinu telur lögreglu hafa farið fram úr sér þegar hún dró þá ályktun að huldumaður sem skipulagði innflutninginn héti Pétur. Í framhaldi hefði allt verið gert til að tengja Pétur Jökul við málið. Hann hafi ráðlagt Pétri Jökli að losa sig við símann sinn í Taílandi svo yfirvöld þar gætu ekki haft uppi á honum.

Pétur Jökull hljóti að vera einstaklega óheppinn
Saksóknari í stóra kókaínmálinu segir að Pétur Jökull Jónasson sé býsna óheppinn einstaklingur sé það algjör tilviljun hve margt bendi til þess að hann hafi verið viðriðinn innflutning á tæplega hundrað kílóum af kókaíni. Horfa verði til þess að lykilvitni í málinu sé stöðu sinnar vegna ekki stætt að staðfesta að hann hafi verið í samskiptum við Pétur Jökul.

Krefst að lágmarki sex og hálfs árs fangelsis yfir Pétri Jökli
Saksóknari gerir þá kröfu að Pétur Jökull Jónasson fái að lágmarki sex og hálfs árs fangelsisdóm fyrir aðild sína að stóra kókaínmálinu. Verjandi hans segir mikinn galla á rannsókn lögreglu þar sem dregið hafi verið stórar ályktanir án beinna sönnunargagna. Aðalmeðferð málsins lýkur í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Hlé vegna gagna frá ChatGPT
Gera þurfti stutt hlé á aðalmeðferð í þætti Péturs Jökuls Jónassonar í stóra kókaínmálinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun eftir að verjandi Péturs Jökuls lagði fram ný gögn í málinu. Gögnin voru fengin af gervigreindarsíðunni ChatGPT.

Gísla Pálma refsað fyrir akstur undir áhrifum
Rapparinn Gísli Pálmi Sigurðsson hefur verið dæmdur til að greiða 420 þúsund krónur í sekt fyrir að aka án ökuleyfis og undir áhrifum. Þetta er í annað sinn sem Gísli Pálmi er gripinn við akstur undir áhrifum á hálfu ári.

Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn
Lögreglufulltrúi segir Sverri Þór Gunnarsson, betur þekktan sem Svedda tönn, hafa rætt um fíkniefnaviðskipti við notanda sem lögregla telur ljóst að sé Pétur Jökull Jónasson. Pétur Jökull sætir ákæru fyrir aðild að stóra kókaínmálinu sem kom upp sumarið 2022. Lögreglufulltrúinn kafaði ofan í samskipti Sverris Þórs á Signal.