Fótbolti á Norðurlöndum

Rúrik skoraði í jafnteflisleik
Landsliðsmaðurinn Rúrik Gíslason skoraði fyrra mark danska liðsins OB er það gerði jafntefli við Midtjylland, 2-2, í dönsku úrvalsdeildinni.

Ragnar Sigurðsson orðaður við Blackburn
Ragnar Sigurðsson, miðvörður Gautaborgar í sænska boltanum, er nú orðaður við enska úrvalsdeildarliðið Blackburn.

Björn Bergmann skoraði fyrir Lilleström í kvöld
Björn Bergmann Sigurðarson kom inn á sem varamaður og skoraði þriðja mark Lilleström í 3-2 sigri á Zenit St Petersburg á La Manga æfingamótinu á Spáni. Björn Bergmann kom norska liðinu í 3-1 aðeins tíu mínútum eftir að hann hafði komið inn á sem varamaður.

Sölva hlakkar til að mæta Danmörku
„Við förum í þessa undankeppni með þá trú að við getum tekið stig af öllum þessum liðum," segir Sölvi Geir Ottesen, leikmaður SønderjyskE í Danmörku og íslenska landsliðsins í viðtali við dönsku síðuna bold.dk.

Guðrún Sóley fer ekki til Chicago Red Stars - hafnaði tilboðinu
Guðrún Sóley Gunnarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, mun ekki spila í bandarísku atvinnumannadeildinni þrátt fyrir að hafa fengið tilboð frá Chicago Red Stars. Guðrún Sóley hefur hafnað tilboðinu en þetta kom fram í Morgunblaðinu í morgun.

Garðar lengur hjá Hansa Rostock
Landsliðsframherjinn Garðar Jóhannsson hefur verið við æfingar hjá þýska félaginu Hansa Rostock síðustu daga og hefur augljóslega gengið ágætlega því félagið vill skoða hann betur.

Kristján Örn samdi við Hönefoss
Kristján Örn Sigurðsson hefur ákveðið að ganga að tilboði nýliða Hönefoss í norsku úrvalsdeildinni og samdi hann við liðið til næstu tveggja ára.

Milljónasamningur fyrir Kristján Örn
Kristjáni Erni Sigurðssyni stendur til boða að ganga til liðs við nýliða Hönefoss í norsku úrvalsdeildinni og þiggja fyrir það rúmar 44 milljónir króna í árslaun.

Guðmann til Nybergsund
Guðmann Þórisson skrifaði í gær undir tveggja ára samning við norska B-deildarliðið Nybergsund en hann hefur verið að æfa með liðinu að undanförnu.

Margrét Lára, Guðný og Erla áfram hjá Kristianstad
Sænska félagið Kristianstad greindi frá því á heimasíðu sinni í gær að Íslendingarnir Margrét Lára Viðarsdóttir, Erla Steina Arnardóttir og Guðný Björk Óðinsdóttir hefðu framlengt samninga sína við félagið til loka tímabilsins 2011.

Rúnar spilaði með Lilleström á ný - myndband
Rúnar Kristinsson, yfirmaður knattspyrnumála hjá KR, spilaði með Stjörnuliði Lilleström í sýningarleik í gær fyrir fram 1800 áhorfendur í LSK-höllinni. Rúnar og félagar mættu A-liðinu og töpuðu leiknum 2-4.

Henke Larsson orðinn þjálfari Landskrona
Henrik Larsson, fyrrum framherji Celtic, Barcelona og Manchester United, er orðinn þjálfari sænska 2. deildarliðsins Landskrona Bois. Hinn 38 ára gamli larsson lagði skóna á hilluna í vetur eftir að hafa klárað ferillinn hjá Helsingborg.

Sölvi bestur hjá Ekstra Bladet
Sölvi Geir Ottesen er með bestu meðaleinkunn allra leikmanna hjá danska blaðinu Ekstra Bladet þegar tímabilið í Danmörku er hálfnað.

SønderjyskE hélt upp á komu Ólafs með góðum 2-0 sigri
SønderjyskE, hélt upp á komu Íslendingsins Ólafs Inga Skúlasonar, með því að vinna 2-0 heimasigur á Aalborg BK í dönsku úrvalsdeildinni í dag en sigurinn kom SønderjyskE upp um tvö sæti og í 8. sæti deildarinnar þremur stigum á eftir Aalborg sem erí 7. sætinu.

Ólafur Ingi gengin til liðs við SønderjyskE
Ólafur Ingi Skúlason, landsliðsmiðjumaður og fyrrum leikmaður sænska liðsins Helsingborg, hefur gert þriggja ára samning við danska úrvalsdeildarliðið SønderjyskE en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins í kvöld.

Sigurður: Sama starf og ég var með hjá Djurgården
Sigurður Jónsson var í dag kynntur sem næsti þjálfari sænska C-deildarliðsins Enköping. Sigurður tekur við starfinu af fyrrum leikmanni Manchester United, Jesper Blomqvist, sem var rekinn eftir að liðið féll úr sænsku 1. deildinni í haust.

Sigurður Jónsson verður næsti þjálfari Enköping
Sigurður Jónsson verður þjálfari sænska C-deildarliðsins Enköping samkvæmt frétt á Aftonbladet. Sigrurður tekur við starfinu af Jesper Blomqvist. Sigurður hefur ekki þjálfað síðan hann var rekinn frá Djurgården fyrir rétt rúmu ári síðan.

Davíð Þór gerði þriggja ára samning við Öster
Davíð Þór Viðarsson, fyrirliði FH, gerði í dag þriggja ára samning við sænska B-deildarfélagið Öster.

Danir verða með tvö lið í Meistaradeildinni frá 2011
Danir fögnuðu í gær úrslitunum úr leik Hamburger SV og Rapid Vín í Evrópudeild UEFA en þó af óvenjulegri ástæðu. Hamburger SV vann leikinn 2-0 sem þýddi að skoska liðið Celtic var úr leik í keppninni og Skotar missa annað Meistaradeildarsæti sitt til Dana.

Besta jólagjöfin fyrir alla hjá Stabæk - Veigar kominn heim
Veigar Páll Gunnarsson er kominn heim samkvæmt norskum fjölmiðlum en hann var kynntur sem nýr leikmaður Stabæk á blaðamannafundi í dag eftir að hafa eytt einu og hálfu tímabili í herbúðum franska liðsins Nancy.

Markalaust hjá Sölva og félögum
Sölvi Geir Ottesen og félagar í SönderjyskE gerðu í dag markalaust jafntefli við botnlið Randers í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Veigar sagður aftur á leið til Stabæk
Veigar Páll Gunnarsson var sagður í norskum fjölmiðlum í gærkvöldi aftur á leið til norska úrvalsdeildarfélagsins Stabæk þar sem hann lék í fimm ár.

Davíð: Ber ekki mikið á milli
Davíð Þór Viðarsson segir að það beri ekki mikið á milli hans og sænska B-deildarfélagsins Norrköping sem hefur þegar gert honum tilboð.

Elísabet áfram með Kristianstad
Elísabet Gunnarsdóttir mun skrifa undir nýjan tveggja ára samning við sænska úrvalsdeildarfélagið Kristianstad um helgina.

Bendtner leikmaður ársins í Danmörku
Nicklas Bendtner, leikmaður Arsenal, var valinn knattspyrnumaður ársins 2009 í Danmörku. Bendtner fékk verðlaunin afhent í Kaupmannahöfn í gær.

Þóra best í Noregi og á leið til Svíþjóðar
Helgin var heldur betur viðburðarrík hjá landsliðsmarkverðinum Þóru B. Helgadóttur. Þóra var í gærkvöldi valinn besti leikmaður norsku úrvalsdeildarinnar og svo greinir Morgunblaðið frá því í dag að hún sé búin að semja við sænska félagið Ldb Malmö til þriggja ára.

OB enn á toppnum eftir sigur
Rúrik Gíslason spilaði allan leikinn fyrir OB sem vann góðan 1-0 sigur á Silkeborg á útivelli í dag.

AIK tvöfaldur sænskur meistari
AIK vann í dag 2-0 sigur á IFK Gautaborg í úrslitaleik sænsku bikarkeppninnar og vann því tvöfalt í ár.

Hólmfríður kvaddi með tveimur mörkum
Hólmfríður Magnúsdóttir lék í dag kveðjuleik sinn með Kristianstad er lokaumferð sænsku úrvalsdeildarinnar fór fram í dag.

Fredrikstad fallið úr úrvalsdeildinni
Fredrikstad, félag Garðars Jóhannssonar, féll í kvöld úr norsku úrvalsdeildinni í fótbolta.