
Landslið karla í fótbolta

„Einstaklingsmistök að kosta okkur stigin og við þurfum að hætta því“
„Mjög stór mistök sem kosta okkur leikinn,“ sagði landsliðsþjálfarinn Åge Hareide rétt eftir að hann sussaði á Tyrki sem fögnuðu 4-2 sigri gegn Íslandi.

„Þegar maður skorar tvö mörk vill maður fá eitthvað úr leiknum“
„Þetta er ógeðslega svekkjandi. Við unnum svo ótrúlega hart að okkur og mér fannst við ekki eiga skilið að tapa 4-2 í dag,“ sagði Andri Lucas Guðjohnsen eftir tap Íslands gegn Tyrkjum í Þjóðadeildinni í kvöld.

„Eins og ég hef verið að segja í langan tíma þá erum við á réttri leið“
Fyrirliðinn Jóhann Berg Guðmundsson var eðlilega ekki sáttur eftir tveggja marka tap Íslands gegn Tyrklandi í Þjóðadeild karla í fótbolta.

Samfélagsmiðlarnir: „Skrípaleikur í lægsta gæðaflokki“
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu mátti þola 4-2 tap er liðið tók á móti Tyrkjum í Þjóðadeild UEFA á Laugardalsvelli í kvöld.

Einkunnir Íslands: Orri bar af í tapi gegn Tyrkjum
Ísland tapaði 2-4 gegn Tyrklandi á Laugardalsvelli í kvöld. Orri Steinn Óskarsson kom Íslandi yfir snemma og var valinn maður leiksins.

Sjáðu allt það helsta frá súru tapi á Laugardalsvelli
Ísland mátti þola tap gegn Tyrklandi á Laugardalsvelli í Þjóðadeild karla eftir að komast 1-0 yfir snemma leiks. Lokatölur 2-4 en tapið heldur betur súrt eftir vítaspyrnufíaskó á báðum endum vallarins. Mörkin má sjá hér að neðan.

Kristall Máni ekki meira með á þessu ári
Kristall Máni Ingason, markahæsti leikmaður í sögu íslenska U-21 árs landsliðsins í fótbolta, mun ekki bæta við markafjölda sinn þegar liðið lýkur keppni í undankeppni EM 2025 gegn Danmörku á morgun. Hann er meiddur og spilar ekki meira á þessu ári.

Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 2-4 | Grasið kvatt með gjöf til Tyrkja
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta kvaddi, vonandi, grasið á Laugardalsvelli í kvöld með 4-2 tapi gegn Tyrkjum sem þar með sóttu í fyrsta sinn í sögunni þrjú stig til Íslands.

Byrjunarliðið gegn Tyrkjum: Hetjan Logi kemur inn og þrjár aðrar breytingar
Åge Hareide gerir fjórar breytingar á byrjunarliði Íslands fyrir leikinn gegn Tyrklandi í Þjóðadeildinni í kvöld. Hetja leiksins gegn Wales, Logi Tómasson, er meðal þeirra sem kemur inn í byrjunarliðið.

Åge bjartsýnn: „Verðum að stöðva Aktürkoglu“
Åge Hareide vonast til að íslenska karlalandsliðið í fótbolta nýti meðbyrinn frá því í seinni hálfleik gegn Wales í leiknum gegn Tyrklandi í Þjóðadeildinni á Laugardalsvelli í kvöld.

Landsleikurinn fer fram í kvöld
Leikur Íslands og Tyrklands í Þjóðadeildinni fer fram í kvöld. Laugardalsvöllurinn var metinn leikhæfur af dómurum leiksins.

Logi fær sviðsljósið á miðlum UEFA
Logi Tómasson var maður föstudagskvöldsins og fær væntanlega sæti í byrjunarliði íslenska landsliðsins í leiknum á móti Tyrkjum á Laugardalsvellinum í kvöld.

Dómararnir ákveða eftir hádegi hvort Tyrkjaleiknum verði frestað
Klukkan 14:00 munu dómarar leiks Íslands og Tyrklands í Þjóðadeildinni meta ástand Laugardalsvallar og hvort hann sé leikhæfur. Í kjölfarið ákveða þeir hvort leikurinn fari fram í kvöld eða verði frestað til morguns.

„Við eigum harma að hefna eftir síðasta leik á móti þeim“
Jóhann Berg Guðmundsson er í hefndarhug fyrir heimaleikinn á móti Tyrkjum eftir að það fór ekki nógu vel úti í Tyrklandi á dögunum.

Eiður var óviss um Andra: „Hann var lítill og feitlaginn strákur“
Eiður Smári Guðjohnsen segir að sonur sinn, Andri Lucas, sé hreinræktaður framherji sem eigi bjarta framtíð fyrir höndum og sé föðurbetrungur á ákveðnum sviðum. Hann hafi þó ekki verið alveg viss í byrjun um að það yrði atvinnumaður í fótbolta úr honum.

Sýndu Kolbeini hve góður hann hefur verið: „Er með marga vini í kringum sig“
Landsliðsþjálfarinn Åge Hareide segir að bakvörðurinn Kolbeinn Finnsson hafi fengið góðan stuðning frá reyndum liðsfélögum eftir að hafa átt slæman dag í leiknum við Wales í Þjóðadeildinni á föstudaginn.

Frostið veldur óvissu og leiknum við Tyrki mögulega frestað
Til greina kemur að fresta leik Íslands og Tyrklands í Þjóðadeildinni í fótbolta, vegna frosts í jörðu, en enn stendur þó til að leikurinn fari fram á Laugardalsvelli annað kvöld.

KSÍ vildi fá Albert sem bað um hvíld
Åge Hareide sagði á blaðamannafundi fyrir landsleik Íslands og Tyrklands á morgun að KSÍ hefði rætt við Albert Guðmundsson um að koma til liðs við landsliðshópinn fyrir leikinn annað kvöld.

Svona var blaðamannafundur Íslands fyrir leikinn gegn Tyrkjum
Vísir var með beina útsendingu frá blaðamannafundi KSÍ fyrir leik karlalandsliðsins gegn Tyrklandi í B-deild Þjóðadeildarinnar annað kvöld.

Hareide kallar Sævar Atla inn
Åge Hareide landsliðsþjálfari karla í fótbolta hefur bætt sóknarmanninum Sævari Atla Magnússyni í hópinn sem mætir Tyrklandi á mánudagskvöld.

Kári sagði Kolbein steinsofandi: Það versta er að þeir vissu þetta
Kári Árnason og Lárus Orri Sigurðsson voru hundóánægðir með varnarleik Íslands í mörkunum sem Wales skoraði í gær, í 2-2 jafntefli liðanna í Þjóðadeildinni.

Hareide um Orra hjá Sociedad: „Þeir eru góðir í að sjá um Skandinavana“
Åge Hareide landsliðsþjálfari Íslands er ánægður með að Orri Steinn Óskarsson hafi valið að ganga til liðs við Real Sociedad á Spáni í sumar. Orri Steinn hefur skorað tvö mörk fyrir spænska liðið á tímabilinu.

Myndaveisla frá tveimur gjörólíkum hálfleikjum hjá íslensku strákunum
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta fékk heldur betur færin til að tryggja sér sigur á móti Wales í Þjóðadeildinni á Laugardalsvellinum í gærkvöldi en slakur fyrri hálfleikur þýddi að íslensku strákarnir voru tveimur mörkum undir í hálfleik.

Sagan endalausa hjá Åge: „Þetta er frekar sjokkerandi“
Kára Árnasyni er sjálfsagt farið að líða eins og rispaðri plötu í gagnrýni sinni á íslenska landsliðið í fótbolta því hann segir vandamálið sífellt það sama; gríðarlegan mun á milli hálfleikja.

Bellamy skammaði blaðamenn eftir leik
Craig Bellamy þjálfari landsliðs Wales var ekki alls kostar sáttur með þá bresku blaðamenn sem mættir voru á blaðamannfund eftir jafntefli Íslands og Wales í gær. Bellamy hrósaði íslenska liðinu í hástert á fundinum.

Stefán Teitur og Jón Dagur á leið í bann
Tveir leikmenn íslenska liðsins sem máttu ekki fá gult spjald fengu spjald í jafnteflinu á móti Wales í Þjóðadeildinni í kvöld.

Albert verður ekki kallaður inn í íslenska hópinn
Albert Guðmundsson mun ekki spila með íslenska landsliðinu á móti Tyrkjum á mánudagskvöldið þrátt fyrir að Åge Hareide, landsliðsþjálfari Íslands, hafi nú leyfi til að velja hann á ný.

Logi fær ekki seinna markið skráð á sig
Logi Tómasson gerði tilkall til að hafa skorað tvö mörk á þremur mínútum í 2-2 jafnteflinu við Wales í Þjóðadeildinni en hann fær bara annað markið skráð á sig.

„Við munum læra margt af þessu“
„Þið pressuðuð bara hærra,“ sagði Craig Bellamy, þjálfari Wales, aðspurður hverju íslenska liðið hefði breytt í hálfleik til að snúa leiknum sér í vil. Wales var tveimur mörkum yfir og hafði verið mun hættulegri aðilinn þegar flautað var til hálfleiks, en Ísland jafnaði leikinn og komst grátlega nálægt því að setja sigurmarkið undir lokin.

„Við hefðum átt að skora fleiri mörk í seinni hálfleik“
„Svart og hvítt hjá okkur þessir tveir hálfleikar. Í fyrri hálfleik ná þeir að spila sig út úr pressunni, við náðum ekki að klukka þá og okkur vantaði kraft í pressuna. Töluðum um það í hálfleik og gerðum töluvert betur í seinni hálfleik, allt annað að sjá liðið,“ sagði landsliðsfyrirliðinn Jóhann Berg Guðmundsson eftir 2-2 endurkomujafntefli gegn Wales á Laugardalsvelli.