
Landslið karla í fótbolta

Hareide: „Við gerðum skelfileg mistök“
„Ég er mjög vonsvikinn því við spiluðum ekki eins og til stóð í fyrri hálfleiknum. Við gerðum skelfileg mistök sem eiga ekki að sjást í alþjóðlegum fótbolta,“ sagði Åge Hareide, þjálfari Íslands, eftir 2-2 jafnteflið við Wales í Þjóðadeildinni í kvöld.

Logi í vímu eftir leik: Ég er vanur að skora góð mörk
Logi Tómasson var hetja íslenska fótboltalandsliðsins í kvöld þegar liðið gerði 2-2 jafntefli á móti Wales í Þjóðadeildinni á Laugardalsvellinum.

Einkunnir Íslands gegn Wales: Varamaðurinn Logi maður leiksins eftir ótrúlega innkomu
Ísland gerði 2-2 jafntefli við Wales á Laugardalsvelli. Kolbeinn Finnsson bar ábyrgð á báðum mörkum gestanna, honum var skipt út af í hálfleik fyrir Loga Tómasson sem skoraði bæði mörk Íslands og var valinn maður leiksins.

Twitter um leikinn: Haltu bara áfram að skína Logi
Líkt og áður þegar íslenska landsliðið í knattspyrnu spilar höfðu stuðningsmenn liðsins mikið að segja á samfélagsmiðlum. Þetta hafði þjóðin að segja um leik Íslands og Wales.

Kári sagði að Kolbeinn ætti að biðja um skiptingu í hálfleik
Íslenska landsliðið fékk á sig tvö mörk á fyrsta hálftímanum á móti Wales í Þjóðadeildinni í kvöld og fyrrum miðverðir íslenska landsliðsins voru allt annað en sáttir með varnarleikinn í mörkum Wales.

Logi jafnar með tveimur mörkum á þremur mínútum: Sjáðu mörkin
Íslenska landsliðið bryjaði ekki vel á móti Wales á Laugardalsvellinum í Þjóðadeildinni í kvöld en íslensku strákarnir eru að spila miklu betur í seinni hálfleiknum og það hefur skilað liðinu tveimur mörkum og jafnri stöðu.

Uppgjörið: Ísland - Wales 2-2 | Logi sem þarf að verða að báli
Varamaðurinn Logi Tómasson sá til þess að Ísland næði þó að minnsta kosti í stig gegn Wales í kvöld, þegar liðin gerðu 2-2 jafntefli í Þjóðadeildinni í fótbolta, í leik tveggja gjörólíkra hálfleika.

Byrjunarlið Íslands: Gylfi á bekknum og Orri og Andri Lucas frammi
Åge Hareide hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands sem mætir Wales á Laugardalsvelli í kvöld, í mikilvægum slag í Þjóðadeildinni í fótbolta.

Ben Davies: Synd að hafa ekki spilað með Gylfa
„Við reiknum með erfiðum leik. Það eru margir erfiðir útivellir í Evrópu og þetta er einn af þeim,“ segir Tottenham-maðurinn Ben Davies sem verður fyrirliði Wales gegn Íslandi á Laugardalsvelli í kvöld, í Þjóðadeildinni í fótbolta.

„Draumur frá því ég var lítill“
Orri Steinn Óskarsson kemur inn í landsliðsverkefni Íslands með rólegri huga en í síðasta mánuði. Það hefur gengið á ýmsu hjá framherjanum unga síðustu vikur.

Bellamy: Jói lyklakippan en kann alveg að tuða
„Því meira sem ég sé af íslenska landsliðinu því hrifnari er ég,“ segir Craig Bellamy, þjálfari velska landsliðsins í fótbolta, sem ætlar með þrjú stig heim af Laugardalsvelli í kvöld. Hann þekkir fyrirliða íslenska liðsins, Jóhann Berg Guðmundsson, ansi vel.

Vandasamt að greina velska liðið: „Við erum á betri stað núna“
Åge Hareide, landsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, er bjartsýnn á að sitt lið geti sýnt fram á góða frammistöðu gegn Wales á heimavelli í kvöld í Þjóðadeild UEFA. Hann segir liðið á betri stað núna samanborið við síðasta landsliðsverkefni.

„Vonandi getum við nýtt okkur mína kunnáttu“
„Hann er frábær þjálfari sem veit nákvæmlega hvernig hann vill spila fótbolta," segir Jóhann Berg Guðmundsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, sem þekkir vel til þjálfara Wales sem Ísland mætir í Þjóðadeild UEFA í kvöld. Hann vonast til að fólk fjölmenni á leik kvöldsins og að Laugardalsvöllur verði aftur að því vígi sem hann var á sínum tíma.

Möguleiki á að Albert komi til móts við landsliðið: „Verðum bara að bíða og sjá“
Möguleiki er á því að Albert Guðmundsson komi til móts við íslenska landsliðið í yfirstandandi landsliðsverkefni. Þetta segir Age Hareide landsliðsþjálfari Íslands.

„Þrjú skot á markið og tvö af þeim fara inn“
Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari íslenska U-21 árs landsliðsins í fótbolta karla, var vitanlega vonsvikinn eftir 2-0 tap liðsins gegn Litáen í undankeppni EM 2025 á Víkingsvelli í dag. Úrslitin þýða að íslenska liðið á ekki lengur möguleika á að komast í lokakeppnina.

Uppgjörið: Ísland - Litháen 0-2 | Vonir íslenska liðsins orðnar að engu
Íslenska U-21 árs landsliðið í fótbolta karla kastaði frá sér möguleikanum á því að komast í lokakeppni Evrópumótsins sem fram fer árið 2025 með því að lúta í lægra haldi fyrir Litáen þegar liðin mættust í næstsíðustu umferð í undankeppni mótsins á Víkingsvelli í dag.

Yfirlýsing Alberts: Ákveðinn léttir eftir erfitt ár
Fótboltamaðurinn Albert Guðmundsson hefur sent frá sér yfirlýsingu í kjölfar þess að hann var í dag sýknaður af ákæru um nauðgun. Honum er létt eftir erfitt ár, og kveðst afar þakklátur fjölskyldu og vinum.

Åge óviss varðandi Albert: „Gæti verið ómögulegt“
Landsliðsþjálfarinn Åge Hareide svaraði því ekki hvort reynt yrði að freista þess að fá Albert Guðmundsson inn í landsliðshópinn sem mætir Wales á morgun og Tyrklandi á mánudag, í Þjóðadeildinni í fótbolta.

Åge ræður hvort kallað verði í Albert
Eftir að landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson var í dag sýknaður af ákæru um nauðgun er það í höndum landsliðsþjálfarans Åge Hareide að ákveða hvort hann taki þátt í leikjunum við Wales og Tyrkland, í Þjóðadeildinni.

Svona var fundur KSÍ fyrir leikinn við Wales
Åge Hareide landsliðsþjálfari og Jóhann Berg Guðmundsson fyrirliði sátu fyrir svörum á blaðamannafundi á Laugardalsvelli í dag, fyrir leikinn mikilvæga við Wales í Þjóðadeildinni í fótbolta annað kvöld.

Tekst að búa til úrslitaleik við Dani?
Íslenska U21-landsliðið í fótbolta karla mætir Litáen í Víkinni í dag, í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport, og getur með sigri búið sér til úrslitaleik við Danmörku næsta þriðjudag.

„Við þurfum að taka okkar sénsa“
„Við þurfum að taka okkar sénsa þegar að við fáum þá,“ segir landsliðsmaðurinn í fótbolta. Sverrir Ingi Ingason sem mætti í góðu formi og sáttur með lífið til móts við íslenska landsliðið sem á framundan tvo mikilvæga leiki í Þjóðadeild UEFA.

Miklar líkur á vandræðalegri stöðu fyrir Ísland
Tölfræðiveita telur áttatíu prósent líkur á því að íslenska karlalandsliðið í fótbolta spili umspilsleiki í Þjóðadeild UEFA í mars á næsta ári. Ekki yrði hægt að spila á Laugardalsvelli og því góð ráð dýr.

Arnór Ingvi skoðar sín mál í janúar
Íslenski landsliðsmaðurinn í fótbolta, Arnór Ingvi Traustason, segir liðið hafa fundið ákveðnar leiðir í gegnum næsta mótherja sinn í Þjóðadeild UEFA sem það mun reyna nýta sér til sigurs. Arnór hefur verið að ganga í gegnum krefjandi tíma með félagsliði í Svíþjóð og segir landsliðsverkefnið koma á fullkomnum tímapunkti.

„Verð að líta á sjálfan mig sem KR-ing“
„Það er alltaf geggjað að koma til Íslands, finna kuldann í beinunum og hitta fjölskylduna og strákana aftur,“ segir Orri Steinn Óskarsson, landsliðsmaður í fótbolta.

Draumur að rætast hjá bræðrunum
Bræðurnir Brynjólfur og Willum Þór Willumssynir eru báðir í landsliðshópi Íslands fyrir komandi leiki í Þjóðadeildinni. Draumurinn er að fá að spila saman fyrir íslenska landsliðið.

„Getur ekki stjórnað áliti annarra“
Knattspyrnumaðurinn Davíð Kristján Ólafsson segist kitla í puttana að fá aftur tækifæri með íslenska landsliðinu í knattspyrnu. Hann hefur ekki verið valinn undanfarin ár.

Myndasyrpa: Hulin andlit en líka bros á blönduðu grasi FH-inga
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta æfði á hybrid grasvelli FH í Kaplakrika í dag, í undirbúningi fyrir næstu tvo leiki í Þjóðadeild UEFA.

Gylfi Þór ekki í hóp Vals í gær en á landsliðsæfingu í dag
Gylfi Þór Sigurðsson var ekki með Val í leiknum gegn Breiðabliki í Bestu deild karla í fótbolta á sunnudag en var hins vegar mættur á æfingu A-landsliðs Íslands sem undirbýr sig nú fyrir leik gegn Wales í Þjóðadeildinni síðar í vikunni.

Kallað í Óskar vegna óvissu um Kristian
Óskar Borgþórsson, leikmaður Sogndal í Noregi, hefur verið kallaður inn í U21-landsliðið í fótbolta fyrir leikina mikilvægu við Litháen og Danmörku í undankeppni EM.