

Þakkarorða íslenskrar tónlistar var afhent þann 1. desember á Degi íslenskrar tónlistar á sérstökum hátíðartónleikum til heiðurs tónlistarmanninum Magnúsi Eiríkssyni. Tónleikarnir fóru fram fyrir fullum Eldborgarsal í Hörpu og var þjóðinni boðið að sækja sér miða sem ruku út á nokkrum mínútum. Tónleikarnir voru einnig teknir upp og verða sýndir á RÚV 26. desember.
Í dag klukkan tíu klukkan 10:00 verður formleg dagskrá í Hörpu vegna Dags íslenskrar tónlistar sem er á sunnudag. Þá mun íslenskt tónlistarfólk verðlauna fólk og hópa sem myndar eiginlegt stoðkerfi íslensks tónlistarlífs.
Tuttugu hljómsveitir og listamenn hafa verið tilnefndir til Kraumsverðlauna, sem eru árleg verðlaun á Degi íslenskrar tónlistar. Verðlaunin verða afhent í sextánda sinn síðar í þessum mánuði.
Dagur íslenskrar tónlistar verður haldinn hátíðlegur á morgun, föstudaginn 1. desember. Dagurinn markar einnig önnur tónlistartengd tímamót því á morgun fær Tónlistarmiðstöð Íslands afhent framtíðarheimili sitt við Austurstræti 5, í miðborg Reykjavíkur.
Alls sótti íslenskt tónlistarfólk um 22.8 milljónir í Útflutningssjóð íslenskrar tónlistar bara í nóvember, en það er hærri upphæð en stærð sjóðsins hefur verið árlega fram að þessu. Alls hefur verið sótt um 145 milljónir á árinu, og enn er ein úthlutun eftir.
Dagur íslenskrar tónlistar var haldinn hátíðlegur í Hörpu í gær 1. desember. Sýnt var frá viðburðinum í beinni útsendingu hér á Vísi og á sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Vísi.
Auður Jónsdóttir rithöfundur segist það lengsta sem hún hafi komist með að vera frægur tónlistarmaður vera þegar hún, þá 17 ára gömul á Akureyri passaði Bryndísi Jakobsdóttur fyrir Röggu Gísla og Jakob Frímann. Þau buðu barnapíunni með í Húnaver þar sem hún fékk baksviðspassa. En einhvernveginn æxlaðist það fljótt þannig að barnapían varð kófdrukkin, móðgaði einhvern í Todmobile og týndi barninu í þvögu poppara og rokkara.
Dagur íslenskrar tónlistar er haldinn hátíðlegur í dag. Íslensk tónlist sem og tónlistarfólk í forgrunni og íslenskir tónar fá þá vonandi að heyrast sem víðast.
Tilkynnt var um tilnefningar til Kraumsverðlaunanna á Degi íslenskrar tónlistar,1. desember.
Dagur íslenskrar tónlistar var haldinn hátíðlegur víða um land í dag með ýmsum hætti en í Iðnó við tjörnina var haldin stutt hátíðarsamkoma að þessu tilefni þar sem veittar voru viðurkenningar tileinkaðar deginum og heiðursverðlaun dagsins, kennd við Lítinn fugl.
Dagur íslenskrar tónlistar verður haldinn hátíðlegur á miðvikudag. Á fjölum Iðnó við tjörnina verður efnt til dagskrár í tilefni dagsins, þar sem veittar verða viðurkenningar þeim verkefnum sem þótt hafa staðið upp úr síðustu misseri - auk heiðursverðlauna dagsins, sem kennd eru við Lítinn fugl.
Jónatan Garðarsson fjölmiðlamaður og útvarpsstöðin Íslenska bylgjan voru á meðal verðlaunahafa á Degi íslenskrar tónlistar sem haldinn var hátíðlegur í dag.
Gerður G. Bjarklind hlaut heiðursverðlaun SAMTÓNS á Degi íslenskrar tónlistar í Iðnó í dag en sérstök athöfn var í beinni á Vísi klukkan hálf tólf fyrir hádegi.
Í tilefni af Degi íslenskrar tónlistar sem haldin verður hátíðlegur í dag mun Samtón, samtök tónlistarréttahafa, standa fyrir sérstökum leik sem vinnur með nýjan lagabanka íslenskrar tónlistar á Instagram.
Dagur íslenskrar tónlistar er haldinn hátíðlegur í dag með dagskrá í hádeginu í Iðnó. Samtónn, samtök rétthafa íslenskrar tónlistar, standa fyrir deginum og líkt og undanfarin ár hefur faghópur valið þrjú íslensk lög sem sérstök athygli er vakin á, meðal annars með samsöng í grunnskólum landsins.
Pétur Grétarsson hlaut heiðursverðlaun Dags íslenskrar tónlistar við hátíðlega athöfn á Skelfiskmarkaðnum í dag.
Hossahossa með Amabadama og B.O.B.A með Jóipé X Króli munu heyrast um allt land.
Nú er Dagur íslenskrar tónlistar nýliðinn og við tekur aðventan þar sem tónlistin hljómar úti um allt. Íslendingar eru stoltir af tónlistarfólkinu sínu og flykkjast nú í tónleikahallir og á samkomustaði þar sem tónlistin er aðalatriðið.
Svanhildi Jakobsdóttur var veitt verðlaunin Lítill fugl á Degi íslenskrar tónlistar sem haldinn var hátíðlegur í dag.
Hér geturðu hlustað á og lesið textana við lögin sem þjóðin syngur saman á Degi íslenskrar tónlistar sem er haldinn hátíðlegur í dag.
Kurr er í tónlistarsenu landsins vegna ákvörðunar aðstandenda Dags íslenskrar tónlistar að hafa einungis lög eftir karla á efnisskránni. Skipuleggjandi segir skýringarnar eiga sér sögulegar rætur.
Dagur íslenskrar tónlistar verður haldinn á morgun.
Dagur íslenskrar tónlistar er á morgun og líkt og í fyrra verður margt um dýrðir að því tilefni.
Spekingurinn Arnar Eggert Thoroddsen gefur út nýja bók með blaðagreinum.
Dagur íslenskrar tónlistar er haldinn hátíðlegur í dag og af því tilefni hefur verið ákveðið að leika þrjú íslensk lög samtímis á öllum útvarpsstöðvum landsins. Fyrsta lagið fer í loftið klukkan 11:15.
„Við þurfum svolítið að fagna saman,“ segir Sigtryggur Baldursson tónlistarmaður. Sigtryggur er einn skipuleggjenda Dags íslenskrar tónlistar sem haldinn verður hátíðlegur á morgun, á sjálfan fullveldisdaginn.