PISA-könnun

Vonbrigði að tillögu um símabann og samræmd próf hafi verið vísað frá
Tillögu Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn um fimm aðgerðir í menntamálum var vísað frá af borgarstjórnarmeirihlutanum á fundi borgarstjórnar í dag. Hildur Björnsdóttir, oddviti flokksins, segir það mikil vonbrigði að ekki hafi verið hægt að greiða atkvæði um tillögurnar hverja fyrir sig. Umræða um tillöguna varði í um fjórar klukkustundir.

Alvarlegt hversu mörg börn skorti samkennd
Vanda Sigurgeirsdóttir lektor í tómstunda- og félagsmálafræði við menntavísindasvið Háskóla Íslands og fyrrum formaður Knattspyrnusambands Íslands, segir meira agaleysi meðal barna og minni samkennd. Það hafi alvarleg áhrif á möguleika þeirra til að læra.

Kópavogsbær tekur aftur upp samræmd próf
Nemendum í grunnskólum Kópavogsbæjar verður skylt að taka samræmt námspróf frá og með vorinu 2026 að sögn bæjarstjóra. Aðgerðin er ein af sextán umbótatillögum sem svara eiga ákalli kennara, nemenda og foreldra í málefnum grunnskóla.

Hver á að fá súrefnisgrímuna fyrst?
Já, ég hef verið að velta þessu töluvert fyrir mér að undanförnu, það vantar víða súrefni í kerfin okkar. Það er nóg af taka þegar það kemur að því að forgangsraða verkefnum.

Segir gömlu samræmdu prófin ekki hafa mælt það sem þurfti
Skólastjóri Hörðuvallaskóla segir að endurskoða þurfi kennaranámið og að skortur sé á kennurum með sérþekkingu. Hún segir þó gömlu samræmdu prófin ekki hafa mælt það sem þurfti.

Segir íslenska nemendur og skóla fljúga blindflug án samræmds námsmats
Höfundur PISA-prófanna segir íslenska skóla fljúga blindflug án samræmds námsmats og segir að læra þurfi að nýta tæknina á skapandi hátt. Þetta kom fram í erindi hans á ráðstefnu á vegum Menntavísindasviðs Háskóla Íslands sem haldin var í Veröld - húsi Vigdísar á dögunum.

Bein útsending: Skóli og nám í víðum skilningi - breytt heimsmynd
„Skóli og nám í víðum skilningi - breytt heimsmynd“ er yfirskrift málstofu á vegum Menntavísindasviðs Háskóla Íslands sem hefst klukkan 15 og stendur til klukkan 16:30.

Því miður hefur lítið breyst
Árangur íslenskra nemenda í PISA er verri en nokkru sinni áður og er undir meðaltali OECD og Norðurlanda í öllum þáttum. Helmingur drengja útskrifast úr grunnskóla án þess að hafa náð grunnfærni í læsi. Námsgögn eru úrelt og standast ekki kröfur samtímans.

Lélegur árangur í PISA vegna símanotkunar og einkunnaverðbólgu
Yfirmaður menntamála hjá OECD og höfundur Pisa-könnunar segir íslenska menntakerfið mega vera metnaðarfyllra í garð nemenda. Akademísk frammistaða íslenskra barna verði sífellt lakari þó þau standi sig betur á sumum sviðum.

Gæti aukin einkavæðing og skólaval í grunnskólakerfinu bætt námsárangur og aukið jafnrétti?
Í fyrstu grein okkar minntumst við á hvernig íslenskum skólum hefur að mati OECD gengið vel að tryggja jöfn tækifæri til náms – þau meta íslenska kerfið þannig að félags- og efnahagslegir þættir hafi ekki sterk tengsl við frammistöðu nemenda í PISA-könnunum.

Hvers vegna hefur frammistöðu íslenskra nemenda í PISA farið hrakandi?
Hér er önnur grein af þremur um íslensk ungmenni, skólana þeirra og alþjóðlegan samanburð. Fyrsta greinin fjallaði um styrkleika íslensku grunnskólanna. Þessi grein fjallar um PISA og mögulegar skýringar á versnandi frammistöðu Íslands. Í þriðju grein verður fjallað um möguleg áhrif aukins einkareksturs og skólavals á námsárangur og samfélag.

Styrkleiki íslensku grunnskólanna
Það hefur gustað eilítið um grunnskólann síðustu mánuði. Gagnrýnisraddir hafa þó flestar blásið úr sömu áttinni sem hefur skapað frekar einsleita mynd af íslenskum ungmennum, af námslegri getu þeirra og af gæðum grunnskólastarfs.

Samkaup koma inn á bókamarkaðinn með látum
Úrval á bókum í verslunum Samkaupa (Nettó, Kjörbúðum og völdum Krambúðum utan höfuðborgarsvæðisins) verður meira en nokkru sinni fyrr í aðdraganda jóla.

Íslensku menntaverðlaunin og vandi íslenska skólakerfisins
Hinn 5. nóvember síðastliðinn voru Íslensku menntaverðlaunin svonefndu veitt í sjötta sinn eftir að þau voru endurvakin frá fyrri tíð. Tilnefningarnar báru vott um metnaðarfullt og skapandi skólastarf, sem vonandi hafði ræktað hjá íslenskum ungmennum þá mannkosti, er forseti Íslands tiltók í lokaræðu sinni við verðlaunaafhendinguna: „Mennsku, samkennd, seiglu, virðingu, hugrekki, auðmýkt og kærleika“.

Fær þitt barn kennslu í fjármálalæsi?
Í sumar birti OECD ráðleggingar samhliða niðurstöðum PISA prófs í fjármálalæsi meðal 15 ára ungmenna í tuttugu löndum víða um heim. Þar benti OECD á að of algengt sé að börn og ungmenni á þessum aldri byrji að feta sig á sviði sinna persónulegu fjármála án þess að hafa grunnskilning á hvað felst í fjármálum einstaklingsins, t.d. með verslun á netinu og þátttöku á vinnumarkaði. Þá séu aðstæður á heimilum til að fá þessa fræðslu misjafnar.

Bein útsending: Menntaþing 2024 – Aðgerðir í menntaumbótum og viðbrögð við PISA
Mennta- og barnamálaráðuneytið stendur fyrir Menntaþingi 2024 í þar sem til stendur að kynna 2. aðgerðaáætlun menntastefnu stjórnvalda, þar með talið viðbrögð við niðurstöðum PISA.

Hvar er grunnskólinn?
Á hvaða leið hefur íslenski grunnskólinn verið undanfarin ár? er í raun spurningin sem fyrirsögnin að ofan felur í sér. Og þá um leið: hvert ætlar hann?

Það versta er að bíða og gera ekki neitt
Fulltrúi Flokks fólksins hefur lagt inn fyrirspurnir til Reykjavíkurborgar og skóla og frístundaráðs hvort verið sé að bíða eftir hvaða skref ráðherra barnamála taki í lestrarkennslumálum eða hvort sviðið ætli að leggja fram sínar hugmyndir um t.d. hvernig hægt er að styðja börn enn frekar í lestrarnámi með það að markmiði að auka lesskilning?

„Teljum okkur vera að færa skólasamfélagið fram um marga áratugi“
Matsferill og aðrar þær breytingar sem til stendur að innleiða í menntakerfinu munu færa skólasamfélagið fram um marga áratugi. Þetta segir forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu. Hún segir matsferil munu nýtast kennurum og nemendum mun betur en gömlu samræmdu prófin gerðu.

Viðskiptaráð biður ráðuneytið um niðurstöður námsmats
Viðskiptaráð hefur sent mennta- og barnamálaráðuneytinu upplýsingabeiðni um niðurstöður námsmats í grunnskólum. Í beiðninni er óskað eftir PISA-einkunnum, niðurstöðum samræmdra könnunarprófa og skólaeinkunnum sundurgreindum eftir grunnskólum.

Ragnar Þór kennir Pawel eitt og annað í kennslufræðum
Upp er sprottin athyglisverð ritdeila milli þeirra Ragnars Þórs Péturssonar kennara og Pawels Bartoszek, stærðfræðings og varaborgarfulltrúa um námsárangur og námsmat.

Staða drengja kolsvört og versnar enn
Tryggvi Hjaltason, greinandi hjá CCP var fenginn til að vinna skýrslu um stöðu drengja í skólakerfinu fyrir barna- og menntamálaráðuneytið. Niðurstöður skýrslunnar eru sláandi.

Íslenskir unglingar undir pari í skapandi hugsun hins daglega lífs
Hæfni 15 ára nemenda á Íslandi í skapandi hugsun var undir meðaltali OECD og var frammistaða drengja lakari en stúlkna. Þetta eru meðal niðurstaðna úr könnun PISA á skapandi hugsun sem birtar voru í dag. Íslenskir nemendur hafa þó góða trú á eigin getu.

Vill stjórnvöld í lið með sér frá fyrsta degi
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu tekur formlega til starfa í dag en hjá stofnuninni starfa um fjörutíu manns. Forstjóri miðstöðvarinnar segir að nýrri stofnun sé ætlað það lykilhlutverk að vera bakland skólastarfs á Íslandi og að miðlægt í öllu starfinu sé þjónustumiðuð nálgun.

Námsefnisgerð stendur höllum fæti
Öll getum við verið sammála um að með góðu námsefni er stuðlað að aukinni þekkingu, skilningi, hæfni og þroska nemenda. Gæði námsefnis hefur samkvæmt öllum rannsóknum mikil áhrif á árangur og menntun.

Val milli lestrar eða hlustunar námsefnis
Undanfarna mánuði hefur umræða um íslenskt skólastarf verið óvægin. Sótt hefur verið að kerfinu og jafnvel starfsfólki vegna alþjóðlegs samanburðar PISA. Víst má margt bæta en einnig er mikilvægt að benda á það sem vel hefur verið gert. Sláum skjaldborg um skólakerfið, kennara og stjórnendur og hvetjum þá til góðra verka.

Börnin okkar allra
Börnin á Íslandi eru að mínu mati á ábyrgð okkar allra. Þau eru framtíðin og við þurfum sem foreldrar og samfélag, sveitarfélög og ríkið, að veita þeim sem allra bestan og frjóastan jarðveg til að þroskast svo þau njóti sín til fulls.

„Hornsteinar menntakerfisins eru ekki á góðum stað“
Aðstoðarskólastjóri Réttarholtsskóla segir að í stað þess að menntakerfið, skólastjórnendur og kennarar fari í vörn þurfi menn að horfa inn á við, viðurkenna að það verði að gera betur.

PISA og þróun íslenskunnar
Seint á níundu öld numu hér land Norðmenn. Töluðu þeir tungumál sem kallast fornnorræna (e. Old Norse). Sú íslenska sem töluð er nú til dags er því í sínu upprunalega formi fornnorræna. Meðal helstu einkenna hennar er flókin málfræði og skringilegur orðaforði sem rekja má til bænda og sjómanna á víkingaöld.

Norðurland vill ísbirnina heim
Ísbirnir hafa borið á góma á sveitarstjórnarfundum tveggja sveitarfélaga á Norðurlandi á síðustu dögum. Í Skagafirði óskaði Náttúrustofa Norðurlands vestra eftir því að fá uppstoppaðan ísbjörn, sem hefur safnað ryki í geymslu sveitarfélagsins, til sín og hafa hann til sýnis.