
Evrópudeild UEFA

Mourinho: „Dómarinn var algjörlega ótrúlegur“
José Mourinho stal sviðljósinu þegar lið hans, Fenerbahce, gerði 1-1 jafntefli við gamla liðið hans, Manchester United, í Evrópudeildinni í gær. Hann var rekinn af velli og var kaldhæðinn í svörum er hann var spurður út í dómarann Clement Turpin eftir leik.

Tottenham menn rifust um það hvor tæki vítið sem tryggði svo sigurinn
Tottenham fagnaði sigri í þriðja leik sínum í röð í Evrópudeildinni þegar liðið vann nauman 1-0 sigur á hollenska liðinu AZ Alkmaar.

Mourinho fékk rautt spjald en liðið hans tók stig af Man. Utd
Jose Mourinho var að sjálfsögðu í sviðsljósinu þegar lið hans mætti gömlum lærisveinum Portúgalsans í Evrópudeildinni í kvöld.

Elías Rafn með stórleik í Evrópudeildinni
Elías Rafn Ólafsson hélt marki sínu hreinu í kvöld þegar danska félagið FC Midtjylland vann 1-0 sigur á belgíska félaginu Union St.Gilloise í Evrópudeildinni.

Mourinho vonast eftir bónus og medalíu fyrir að „vinna“ deildina með United
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Fenerbahce, mætir sínu gamla félagi í Evrópudeildinni á morgun þegar Manchester United spilar við tyrkneska liðið. Mourinho var að sjálfsögðu spurður út í sitt gamla félag á blaðamannafundi fyrir leikinn.

Andri Fannar lagði upp í Istanbúl
Galatasaray komst á topp Evrópudeildarinnar í fótbolta með sigri á Elfsborg, 4-3, í Tyrklandi í dag.

Sakaður um að öskra „Frjáls Palestína, ég vona að þið deyið“
Aral Şimşir, leikmaður Midtjylland í Danmörku, hefur verið sakaður um að öskra „Frjáls Palestína, ég vona að þið deyið“ í átt að leikmönnum ísraelska félagsins Maccabi Tel Aviv þegar liðin mættust í Evrópudeild karla í knattspyrnu á dögunum.

Trúir ekki skýringum og tippar á rifrildi við Rashford
Það vakti furðu margra að Marcus Rashford skyldi ekki mæta til leiks í seinni hálfleik, með Manchester United gegn Porto í Portúgal í gær, eftir að hafa skorað fyrsta mark leiksins. Erik ten Hag segir ekki um meiðsli að ræða.

Ten Hag útskýrir af hverju hann tók Rashford út af í hálfleik
Þrátt fyrir að Marcus Rashford hafi skorað og lagt upp í 3-3 jafntefli Manchester United og Porto í Evrópudeildinni í gær var Erik ten Hag, knattspyrnustjóri enska liðsins, ekki alls kostar sáttur við frammistöðu hans og tók hann út af í hálfleik.

Bruno sá aftur rautt en Maguire bjargaði stigi í uppbótartíma
Tíu menn Manchester United rétt björguðu stigi í uppbótartíma á útivelli gegn Porto. Allt stefndi í tap þrátt fyrir að gestirnir hafi tekið tveggja marka forystu í fyrri hálfleik. Fyrirliðinn Bruno Fernandes sá rautt annan leikinn í röð.

Kristian meiddist | Elías hélt marki Midtjylland hreinu
Níu leikir fóru fram síðdegis í annarri umferð Evrópudeildarinnar. Kristian Hlynsson fór meiddur af velli, Elías Ólafsson hélt hreinu og Orri Steinn Óskarsson var í byrjunarliðinu.

Finnur til með Ten Hag og býður honum í glas
Vitor Bruno, þjálfari Porto, hefur boðið kollega sínum hjá Manchester United, Erik Ten Hag, upp á vínglas eftir leik liðanna í Evrópudeildinni í kvöld. Staða beggja þjálfara þykir ótrygg.

Virtist ætla að vaða í samherja sinn
Jordan Henderson, samherji Kristians Nökkva Hlynssonar hjá Ajax, virtist ætla að vaða í framherja liðsins Bertrand Traoré þegar Ajax vann Besiktas örugglega í Evrópudeildinni í knattspyrnu á fimmtudag.

Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn
Tottenham Hotspur fékk Qarabag frá Aserbaísjan í heimsókn í Evrópudeild karla í knattspyrnu. Þrátt fyrir að vera manni færri frá 8. mínútu þá vann Tottenham samt sannfærandi 3-0 sigur.

Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið
Ekki er hægt að segja að Manchester United hafi gengið vel í síðustu Evrópuleikjum liðsins undir stjórn Eriks ten Hag.

Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar
Leikmenn Bodö/Glimt neyddust til að ferðast með rútu í heimaleik sinn við Porto í Evrópudeildinni í fótbolta í gær. Ferðalagið tók eina mínútu.

Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið
Erik ten Hag, þjálfari Manchester United, var eðlilega ósáttur með sína menn eftir 1-1 jafntefli á heimavelli gegn Twente í Evrópudeildinni. Hann segir sína menn hafa gefið jöfnunarmarkið.

Bragðdauft á Old Trafford
Manchester United gerði 1-1 jafntefli við Twente frá Hollandi í 1. umferð Evrópudeildar karla í fótbolta. Leikur kvöldsins var gríðarlega bragðdaufur og heimamenn með bakið upp við vegg eftir slaka byrjun á tímabilinu.

Eggert og Andri mæta Roma og Tottenham
Dregið var í nýja deildarkeppni Evrópudeildarinnar í fótbolta í dag, í beinni útsendingu á Vísi. Lið á borð við Manchester United, Tottenham og Roma, ásamt nokkrum Íslendingaliðum, voru með í drættinum.

Fjögur Íslendingalið unnu sín einvígi
Fjögur lið með Íslendinga innanborðs tryggðu sér sæti í Sambands- eða Evrópudeildinni í kvöld.

„Við erum fokking leiðir yfir því“
Landsliðsmarkvörðurinn Elías Rafn Ólafsson leyndi ekki vonbrigðum sínum eftir að hafa misst af tækifæri til að spila í sjálfri Meistaradeild Evrópu í fótbolta í vetur, með grátlegum hætti.

Valgeir lagði upp en Orri fagnaði sigri
Lið íslensku landsliðsmannanna Valgeirs Lunddal Friðrikssonar og Orra Steins Óskarssonar áttu ólíku gengi að fagna í umspili um sæti í Sambandsdeild Evrópu í kvöld.

Ótrúleg 34 skota vítakeppni í slag Íslendingaliða
Sumir leikmenn þurftu að taka tvær vítaspyrnur, svo löng var vítaspyrnukeppnin á milli Ajax og Panathinaikos í Amsterdam í kvöld þegar Ajax komst áfram í umspil Evrópudeildarinnar í fótbolta.

Mark og titill í fyrsta leik Mbappé með Real
Frumraun Kylians Mbappé með Real Madrid gekk eins og í sögu í kvöld þegar liðið vann 2-0 sigur á Atalanta í Ofurbikar UEFA í fótbolta.

Víkingar eiga góða möguleika á að komast í riðlakeppnina
Víkingur á góða möguleika á að komast í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu en dregið var í umspil um sæti í henni í dag.

Sverrir og Kristian mætast í næstu umferð
Sverrir Ingi Ingason stóð vaktina í vörn Panathinaikos sem rúllaði yfir Botev Plovdiv frá Búlgaríu, 0-4, í 2. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar í kvöld.

Orri skoraði tvö eftir að hafa komið inn á en Rúnar Alex með slæm mistök
Íslenski landsliðsframherjinn Orri Steinn Óskarsson skoraði tvö mörk eftir að hafa komið inn á sem varamaður í 5-1 sigri FC Kaupmannahafnar á Magpies frá Gíbraltar í seinni leik liðanna í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildar Evrópu.

Andri Fannar skoraði og nældi sér í gult þegar Elfsborg flaug áfram
Sænska knattspyrnufélagið Elfsborg flaug áfram í aðra umferð forkeppni Evrópudeildar karla í knattspyrnu með 5-2 útisigri á Paphos frá Kýpur. Elfsborg vann einvígið samtals 8-2.

Meistaradeild Evrópu áfram á Stöð 2 Sport næstu árin
Sýn hf. og Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hafa undirritað samning um sýningarrétt á leikjum Meistaradeildar Evrópu, Evrópudeildar og Sambandsdeildar á Íslandi til næstu þriggja keppnistímabila.

UEFA gæti fært United í Sambandsdeildina
Yfirmenn hjá Ineos sem fer með stjórn Manchester United eftir kaup Jim Ratcliffe á stórum hluta í félaginu eru þess fullvissir að félagið geti keppt í Evrópudeildinni á næstu leiktíð. Nice frá Frakklandi, sem einnig er í eigu Ineos, er í sömu keppni.