Lögreglumál
108 109 110 111 112 113 114 115 116 … 274 ›
Rotaðist við að aka á grindverk Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út eftir að tilkynnt var um umferðarslys í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi. Upp úr klukkan 23 hafði ökumaður rafhlaupahjóls ekið á grindverk og fallið í jörðina með þeim afleiðingum að hann hlaut áverka á höfði og er talinn hafa rotast. Innlent 2.6.2022 07:49
Fjögurra bíla árekstur við Leifsstöð Árekstur varð við Leifsstöð nú á fjórða tímanum. Fjórir bílar eru nokkuð skemmdir, lítil rúta og þrír fólksbílar. Innlent 1.6.2022 15:34
Árásarmaður í Grafarholti þarf að afplána níu hundruð daga af fyrri dómi Maðurinn sem grunaður er um tilraun til manndráps í tengslum við skotárás á bílastæði í Grafarholti í Reykjavík í febrúar síðastliðnum þarf að afplána 900 daga eftirstöðvar af fimm ára fangelsisdómi sem hann hlaut árið 2018. Innlent 1.6.2022 13:35
Olli skemmdum á lögreglubíl eftir berserksgang Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók í nótt mann sem hafði gengið berserksgang við hótel í miðborg Reykjavíkur og veist að fólki og farartækjum. Innlent 1.6.2022 12:10
Nokkuð um hávaðaútköll hjá lögreglu í nótt Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var nokkrum sinnum kölluð út vegna hávaða í nótt. Innlent 1.6.2022 07:43
Leigubílstjórinn undrast upptöku fimmtíu ára gamals máls Skýrslur voru ekki teknar af ökumanni og farþega í bíl, sem valt á Óshlíðarvegi árið 1973 með þeim afleiðingum að annar farþeginn lést, fyrr en tveimur og þremur mánuðum eftir slysið. Þetta kemur fram í gögnum lögreglu sem fréttastofa hefur undir höndum. Bílstjórinn segir það ekki standast, ekki hafi liðið nema nokkrir dagar þar til skýrsla hafi verið tekin af honum. Innlent 31.5.2022 12:00
Grófu upp líkamsleifar til að skoða fimmtíu ára mál Líkamsleifar sem Lögreglan á Vestfjörðum gróf upp fyrir helgi eru af manni sem mun hafa farist í bílslysi á Óshlíðarvegi árið 1973. Hinn nítján ára gamli Kristinn Haukur Jóhannesson fannst látinn við bíl sem átti að hafa oltið niður af veginum en verið er að rannsaka hvort Kristinn hafi mögulega dáið með öðrum hætti. Innlent 30.5.2022 23:13
Nagladekk kostuðu ökumenn um fjórar milljónir króna um helgina Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur byrjað að sekta ökumenn sem hafa trassað að taka nagladekk undan bílum sínum. Lögreglan sektaði um fimmtíu ökumenn um helgina sem skilar um fjórum milljónum króna í ríkissjóð. Innlent 30.5.2022 17:48
Grófu upp líkamsleifar þar sem banaslysið var ekki talið nægjanlega upplýst Líkamsleifar voru grafnar upp úr kirkjugarði á Vestfjörðum síðastliðinn föstudag. Ráðist var í uppgröftinn eftir að lögreglunni á Vestfjörðum barst ábending um að slysaatvikið sem leiddi til andláts mannsins hafi ekki verið upplýst nægjanlega á sínum tíma. Innlent 30.5.2022 12:57
Stálu vörum úr matvöruverslun í miðbænum Lögregla á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af tveimur konum sem voru að stela vörum úr matvöruverslun í miðborg Reykjavíkur. Innlent 30.5.2022 07:49
Konan er fundin Konan, sem lögregla á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir fyrr í kvöld, er fundin. Innlent 29.5.2022 18:32
„Fjandinn laus þessa nóttina“ „Eftir rólega föstudagsnótt varð fjandinn laus þessa nóttina.“ Svona hefst dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem send var út á sunnudagsmorgun en hundrað mál voru skráð hjá lögreglunni frá klukkan 17 til 5. Gistu tíu manns fangaklefa eftir nóttina. Innlent 29.5.2022 07:20
Óttast að vinnumansal aukist samhliða fjölgun flóttamanna Margar ábendingar hafa borist um vinnumansal flóttafólks hér á landi undanfarið og er lögregla með slík mál til rannsóknar. Forseti ASÍ segir mikilvægt að allir séu á varðbergi og ítrekar mikilvægi þess að aukinn straumur flóttamanna sé ekki á kostnað réttinda. Innlent 28.5.2022 11:15
Staðfesti gæsluvarðhald vegna brota gegn sextán stúlkum Landsréttur hefur staðfest úrskurð um áframhaldandi gæsluvarðhald manns á sjötugsaldri sem ákærður hefur verið fyrir kynferðisbrot gegn sextán stúlkum. Sú yngsta er aðeins ellefu ára gömul. Innlent 27.5.2022 19:09
Fjöldi bíla skemmdist þegar dýnamít sprakk á vinnusvæði Snemma í morgun varð sprenging í Hafnarfirði sem olli skemmdum á um tug ökutækja. Skemmdir urðu einnig á vinnuvélum. Innlent 27.5.2022 17:51
Styttan aftur á stall við hátíðlega athöfn á morgun Styttan af Guðríði Þorbjarnardóttur verður sett aftur á sinn stall við hátíðlega athöfn á morgun. Henni var stolið í vor og komið fyrir í öðru listaverki. Kristinn Jónasson bæjarstjóri í Snæfellsbæ segir gjörninginn hafa vakið meiri áhuga á sögu Guðríðar. Innlent 27.5.2022 13:35
Önd varð fyrir bíl á Miklubrautinni Miskunnsamur borgari reyndi sitt besta í dag til að koma í veg fyrir að andafjölskylda yrði síðdegisumferðinni á Miklubrautinni að bráð. Innlent 26.5.2022 18:09
Lögreglan skutlaði manni í strætó sem gekk síðan í skrokk á bílstjóranum Maður sem var skilinn eftir af strætó á bensínstöð á Blönduósi fékk far með lögreglunni að Varmahlíð þar sem hann fór aftur í vagninn. Þegar komið var að endastöð gekk hann í skrokk á strætóbílstjóranum ásamt félaga sínum. Innlent 26.5.2022 08:11
Ók rafhlaupahjóli á kyrrstæða bifreið Klukkan rétt rúmlega tvö í nótt voru tvö rafhlaupaslys í miðbænum tilkynnt til lögreglu. Í því fyrra hafði rafhlaupahjóli verið ekið á kyrrstæða bifreið og í því seinna hafði ökumaður misst stjórn á farartækinu þegar hann var með farþega á hjólinu. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Innlent 26.5.2022 07:16
Höfuðpaurinn úr Stóra fíkniefnamálinu meðal sakborninga Höfuðpaurinn úr Stóra fíkniefnamálinu frá því um aldamót situr nú í gæsluvarðhaldi, grunaður um umfangsmikil fíkniefnabrot sem lögreglan hefur rannsakað síðustu mánuði. Innlent 24.5.2022 10:00
Fimm í gæsluvarðhald í aðgerðum gegn skipulagðri glæpastarfsemi Fimm sitja í gæsluvarðhaldi eftir aðgerðir lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu gegn skipulagðri brotastarfsemi, sem ráðist var í fyrir helgina. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 23.5.2022 16:30
Hjólahvíslarinn hættur og kominn í rúturnar Bjartmar Leósson, sem betur er þekktur sem Hjólahvíslarinn vegna vasklegrar framgöngu sinnar undanfarnar vikur og mánuði, við að endurheimta reiðhjól úr ræningjahöndum, er kominn í rúturnar. Innlent 23.5.2022 14:00
Höfðu afskipti af manni sem sagðist vera í sólbaði Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um að grjóti hefði verið kastað í rúðu þannig að hún brotnaði og flugelda í kjölfarið hent inn um gluggann. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu en að hennar sögn er ekki vitað hver framdi verknaðinn. Innlent 23.5.2022 08:22
Eftirför í Hafnarfirði Um hádegisbilið í dag var tilkynnt um árekstur í Hafnarfirði og hafði sökudólgurinn stungið af á ökutæki sínu. Lögreglan gat staðsett bifreiðina og gaf manninum merki um að stöðva akstur en hann sinnti ekki stöðvunarmerkjum. Við það hófst eftirför þar sem maðurinn ók meðal annars gegn rauðu ljósi, rásaði milli akreina og ók á öfugum vegarhelming. Lögregla náði að lokum að stöðva akstur mannsins og var hann handtekinn. Hann er grunaður um ölvunarakstur. Innlent 22.5.2022 18:00
Tekinn ölvaður með tvö börn í aftursætinu Karlmaður var handtekinn í miðborg Reykjavíkur í nótt vegna gruns um ölvunarakstur. Hann reyndist vera með tvö ungbörn í bílnum, sem var í kjölfarið komið í hendur barnaverndaryfirvalda. Innlent 22.5.2022 10:16
Hvað hefði lögreglan átt að gera? Í miðjum aprílmánuði síðastliðnum höfðu lögregla og sérsveitin afskipti af saklausum sextán ára dreng í tvígang. Sérsveitarmenn veittust að drengnum þar sem hann sat í Strætó í fyrra skiptið, og lögregluþjónar undu sér upp að drengnum þar sem hann sat í bakaríi með móður sinni í síðara skiptið. Skoðun 22.5.2022 09:01
Gekk um með þráðlausan hátalara í botni og angraði íbúa Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í morgun afskipti af ölvuðum manni í Reykjavík sem gekk um með þráðlausan hátalara og tónlist í botni. Tónlistin var svo há að hún vakti íbúa hverfisins sem maðurinn gekk um. Innlent 21.5.2022 11:44
Kaldar sturtur í Árbæjarlaug eftir innbrot og eignaspjöll Sundlaugargestir sem mættu í Árbæjarlaug við opnun klukkan níu í morgun máttu sætta sig við ískaldar sturtur. Innbrotsþjófur hafði framið þar ýmis eignaspjöll um nóttina, meðal annars farið um tækjakjallara laugarinnar og tekið þar leiðslur í sundur með þeim afleiðingum að ekkert heitt vatn rann í sturturnar. Innlent 21.5.2022 11:22
Hjólahvíslarinn lenti á vegg og tekur sér langþráða pásu Bjartmar Leósson, oft kallaður hjólahvíslarinn, hefur undanfarin þrjú ár einbeitt sér að því að koma stolnum hjólum aftur í hendur réttmætra eigenda. Nú ætlar hann þó að taka sér frí um óákveðinn tíma. Innlent 21.5.2022 10:13
Ætlar ekki að hætta fyrr en öll börn í Laugardalnum eru óhult Maður sem hefur ítrekað berað sig fyrir framan börn í Laugardalnum var í gær hnepptur í gæsluvarðhald. Móðir stelpu sem lenti í manninum segir það vera mikinn létti. Innlent 20.5.2022 20:26