Erlent

Kæra á­kvörðun Trumps: „Hann getur ekki breytt stjórnar­skránni með einu penna­striki“

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Donald Trump með eina af fjölmörgum tilskipunum sem hann undirritaði í gær.
Donald Trump með eina af fjölmörgum tilskipunum sem hann undirritaði í gær. AP/Matt Rourke

Ríkissaksóknarar í 22 fylkjum í Bandaríkjunum hafa lagt fram ákæru til að koma í veg fyrir tilskipun Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, um neitun á ríkisborgararétti barna ólöglegra innflytjenda.

Eins og kveður á í fjórtándu grein stjórnarskrá Bandaríkjanna fá börn sem fæðast í landinu sjálfkrafa bandarískan ríkisborgararétt við fæðingu, óháð því hvort foreldrar þeirra séu með ríkisborgararétt. Í gær, á öðrum fyrsta degi sínum sem forseti, skrifaði Trump undir tilskipun sem segir að börn ólöglegra innflytjenda fædd í Bandaríkjunum yrðu ekki álitin bandarískir ríkisborgarar.

Ríkissaksóknarar átján fylkja stefndu forsetanum en þau eru New Jersey, Massachusetts, Kalifornía, Colorado, Connecticut, Delaware, Hawaii, Maine, Maryland, Michigan, Minnesota, Nevada, New Mexcio, New York, Norður-Karólína, Rhode Island, Vermont og Wisconsin. Einnig tóku ríkissaksóknarar borganna San Francisco og Washington DC þátt.

Þá stefndu ríkissaksóknarar ríkjanna Washington, Arizona, Illinois og Oregon einnig ákvörðuninni í annari kæru.

Matthew J. Platkin, ríkissaksóknari New Jersey kallar ákvörðun Trump „einstaka og róttæka.“ Hann sagði forseta vera valdamikla en þeir séu ekki kóngar. „Hann getur ekki breytt stjórnarskránni með einu pennastriki,“ segir Platkin í umfjöllun New York Times.

Samkvæmt Nick Brown, ríkissaksóknara Washington fylkis eru um 150 þúsund börn sem fæðast á hverju ári í landinu og fá sjálfkrafa ríkisborgararéttinn.  Brown ætlar að halda áfram að fylgjast með tilskipunum Trump og býst við fleiri málaferlum. Ríkið myndi því ekki höfða mál vegna hneykslanlegra ákvarðana sem eru löglegar. Brown tekur sem dæmi ákvörðun Trump um að náða þá sem ákærðir vegna árásarinnar á þinghús Bandaríkjanna 6. janúar 2021.

„Ég hef engan áhuga á því að halda áfram að kæra forseta Bandaríkjanna, hvort það sé Donald Trump eða hver það er sem verður næsti forseti, en það er eiður minn að verja stjórnarskrána,“ sagði Brown.

Tilskipunin tekur gildi eftir þrjátíu daga.

Í kvöldfréttum Stöðvar 2 var farið yfir nokkrar af tuga tilskipana sem Trump undirritaði í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×