Orkumál

Framtíðin felst í grænni orku og nýsköpun
Ábyrg auðlindanýting er grunnur að velsæld okkar á Íslandi.

Vísar á bug fullyrðingum um baktjaldamakk vegna fyrirhugaðrar sölu á hlut í HS Veitum
Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, vísar á bug fullyrðingu Samtaka um íbúalýðræði um að baktjaldamakk hafi átt sér stað vegna fyrirhugaðrar sölu á 15,42 prósenta eignarhlut Hafnarfjarðarbæjar í HS Veitum.

Segir skammvinnan gróða fólginn í sölu á hlut Hafnarfjarðar í HS Veitum
Ábyrgðarmaður undirskriftasöfnunar um að knýja fram íbúakosningu í Hafnarfjarðarbæ vegna fyrirhugaðrar sölu á hlut bæjarins í HS Veitum segir það ekki vekja traust að meirihluti bæjarstjórnarinnar hafi hafið undirbúning á sölunni áður en samþykkt var í bæjarráði að fara í söluna.

Afköst Sultartangavirkjunar skert eftir skriðu
Önnur vél Sultartangavirkjunar gengur ekki og hin er á hálfum hraða eftir að vatn gekk inn í virkjunina þegar skriða féll í afrennslisskurð fyrir neðan hana síðdegis í gær.

Rio Tinto biður starfsmenn um frið meðan verið sé að klára samning við Landsvirkjun
Starfsmenn álversins í Straumsvík hafa verið beðnir um mánaðar friðarskyldu þar sem nýr raforkusamningur sé í burðarliðnum milli Rio Tinto og Landsvirkjunar.

Taka sér einn mánuð til viðbótar til að meta hvort álverinu verði lokað
Rio Tinto, eigandi álversins í Straumsvík, nær ekki að ljúka endurskoðun á starfsemi ISAL fyrir þessi mánaðamót, eins og fyrirtækið hafði stefnt að, og vonast nú eftir niðurstöðu fyrir lok júlímánaðar. Einn af möguleikunum sem eru til skoðunar er að loka álverinu.

Næst á dagskrá: Hringrásarhagkerfið
Kórónuveirufaraldurinn verður því miður ekki eina krísan sem mannkyn mun þurfa að kljást við á tuttugustu og fyrstu öldinni.

Vordís kjörin formaður Jarðhitafélags Íslands
Vordís Eiríksdóttir forstöðumaður hjá Landsvirkjun var kjörin formaður Jarðhitafélags Íslands á aðalfundi félagsins í gær.

Loka bæjarmiðlinum í mótmælaskyni
Staðarmiðlinum Búðardalur.is hefur verið lokað í mótmælaskyni vegna breytingu á aðalskipulagi sem heimilar að vindmyllur verði reistar á hluta jarða Sólheima og Hróðnýjarstaða í Laxárdal.

Fá 43,8 milljónir til rafvæðingar Akureyrarhafnar
Ríkisstjórnin mun veita Akureyrarhöfn styrk að upphæð 43,8 milljónir króna til þess að stuðla að rafvæðingu hafnarinnar.

Afkastageta hraðhleðslustöðva þrefaldast
Orka náttúrunnar tók í dag í notkun nýja kynslóð hraðhleðslustöðva fyrirtækisins með 150 kW hleðslugetu og er hún þrefalt meiri en þær hleðslustöðvar sem fyrir eru.

Dalabyggð ekki að „keyra í gegn“ breytingar vegna vindmyllugarðs
Fyrirhugaður vindmyllugarður í landi Hróðnýjarstaða í Dalabyggð myndi skapa tekjur fyrir sveitarfélagið segir Eyjólfur Ingvi Bjarnason oddviti sveitastjórnar Dalabyggðar í viðtali við þá Heimi og Gulla í Bítinu á Bylgjunni á morgun.

Spáir því að Íslendingar fljúgi á rafmagni innan 7 til 8 ára
Rafmagnsbylting er framundan í flugsamgöngum, að mati flugáhugamannsins Friðriks Pálssonar, sem spáir því að rafknúnar flugvélar verði farnar að fljúga í innanlandsfluginu innan sjö til átta ára.

Samþykkja ekki þjóðgarð við Dynjanda nema búið sé að tryggja veg og raforku
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar hefur einróma ákveðið að fresta um óákveðinn tíma að afgreiða tillögu um að landsvæði í kringum fossinn Dynjanda verði friðlýst sem þjóðgarður. Bæjarfulltrúar vilja fyrst fá vegagerð og raforkuöryggi á Vestfjörðum.

Hin fullkomna hringrás geti náðst með líforkuveri
Hugmyndir eru uppi um að koma á fót sérstöku líforkuveri á Norðurlandi sem geti tekið á móti öllum lífrænum úrgangi á svæðinu og framleitt úr honum vörur.

Alfreð Þorsteinsson er látinn
Alfreð Þorsteinsson, fyrrverandi borgarfulltrúi og stjórnarformaður Orkuveitunnar, er látinn, 76 ára að aldri.

Segir haförninn geta orðið illa úti í vindmyllugörðum
Fuglaverndarfélag Íslands varar við því að vindmyllugarðar verði leyfðir á farleiðum fugla og á búsvæðum hafarna og hvetur til varfærni og vandaðs umhverfismats.

Skoða hvort friða eigi svæði gagnvart vindmyllugörðum
Umhverfisráðherra segir til skoðunar hvort útiloka eigi vindmyllugarða á friðlýstum svæðum og viðkvæmum fuglasvæðum og telur alveg klárt að vindorka heyri undir rammaáætlun um virkjanakosti.

Sundköppum vísað frá affallinu stórhættulega
Lögreglan á Suðurnesjum fylgdi í gærkvöldi fjórum sundköppum frá útfallinu við Reykjanesvirkjun þar sem þeir voru að baða sig. Stórhættulegt getur verið að baða sig í útfallinu, líkt og komið hefur fram í fréttum.

Segir rammaáætlun í tómri þvælu og óheimilt að fjalla um vindorku
Aðilar sem áforma vindmyllur við Búðardal telja að vindorka falli ekki undir rammaáætlun og segja verkefnisstjórn óheimilt að fjalla um vind sem orkukost. Ferlið sé komið í tóma þvælu, valdi miklum töfum og geti skapað ríkinu bótaskyldu.

Árni Magnússon nýr forstjóri ÍSOR
Árni Magnússon, fyrrverandi Alþingismaður og ráðherra, hefur verið ráðinn sem fortjóri Íslenskra orkurannsókna, ÍSOR.

Koma með ferðaþjónustureynslu inn í stjórn Orku náttúrunnar
Tómas Ingason og Magnús Már Einarsson eru nýir stjórnarmenn hjá Orku náttúrunnar.

Eru innviðir Íslands tilbúnir fyrir fjórðu iðnbyltinguna?
Eins og við vitum hefur aðgangur að vinnustöðum verið takmarkaður að undanförnu vegna COVID-19 veirufaraldursins sem haft hefur mikil áhrif á líf okkar allra síðustu vikur og mánuði.

Rafvæðingunni ætlað að draga úr núverandi losun um 20 prósent
Viljayfirlýsing um að taka í notkun háspennibúnað fyrir flutningaskip við Sundabakka og Vogabakka í Reykjavík var undirrituð við Skarfabakka í hádeginu í dag.

210 milljónir til rafvæðingar hafna víðs vegar um land
Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur úthlutað styrkjum til rafvæðingar hafna víðs vegar um land.

Landsvirkjun býst við sterkri eftirspurn þegar kreppu lýkur
Forstjóri Landsvirkjunar spáir því að sterk eftirspurn verði eftir íslenskri orku þegar kreppunni lýkur og skoðar fyrirtækið núna hvort hægt verði að taka ákvörðun síðar á árinu um að hefja undirbúningsframkvæmdir við næstu stórvirkjun.

Skálaði í kampavín og fagnaði því að Hvalárvirkjun var slegið á frest
Tómas Guðbjartsson, hjartaskurðlæknir og náttúruverndarsinni, skálaði í kampavíni í gærkvöldi og fagnaði þeim fregnum sem bárust síðdegis í gær um að Hvalárvirkjun á Ströndum hefði verið slegið á frest um óákveðinn tíma.

Hvalárvirkjun slegið á frest um óákveðinn tíma
VesturVerk, orkufyrirtæki á Ísafirði í eigu HS Orku, sem fyrirhugar að reisa Hvalárvirkjun á Ströndum hefur lokað skrifstofu sinni á Ísafirði. Báðir starfsmenn missa vinnuna að sögn framkvæmdastjórans.

Þeir sem böðuðu sig upp úr affalli Reykjanesvirkjunar böðuðu sig einnig upp úr affalli fiskeldisstöðvar
Fjöldi svalaði sundlaugaþorsta sínum í affalli Reykjanesvirkjunnar í blíðviðrinu um helgina. Um stórhættulegt athæfi er að ræða og ekki beint hreinlegt.

Vara við baðferðum í „stórhættulegu“ affalli eftir sprengingu á samfélagsmiðlum
HS Orka varar við því að stórhættulegt getur verið að baða sig í affalli Reykjanesvirkjunar á Reykjanesi. Endurteknar tilkynningar og birtingar á samfélagsmiðlum bendi til þess að það sé að færast í aukana að fólk sé að baða sig í affallinu.