Eldgos og jarðhræringar
118 119 120 121 122 123 124 125 126 … 131 ›
Öskuský á leið til Danmerkur Öll flugumferð frá Íslandi hefur verið samkvæmt áætlun í morgun en svo gæti farið að flugvöllum yrði lokað í Danmörku í kvöld. Innlent 22.4.2010 12:07
Áfram virkni í jarðskorpunni Á upplýsingafundum sérfræðinga í Skógarhlíð og á Hvolsvelli í morgun kom fram að lítil aska féll úr gosinu í Eyjafjallajökli í gær og gosvirkni var róleg á yfirborðinu. Þóranna Pálsdóttir, veðurfræðingur, og Steinunn Jakobsdóttir, jarðeðlisfræðingur, voru í Skógarhlíð og greindu frá stöðunni og útskýrðu veður- og öskudreifingarspá en á annan tug erlendra blaðamanna auk fulltrúa erlendra sendiráða sátu fundinn. Fram kom að yfirborð eldstöðvarinnar er rólegt og þar sem vatn virðist lítið hefur sprengivirkni farið minnkandi. Órói kemur áfram fram á mælum Veðurstofunnar sem þýðir að virkni er áfram í jarðskorpunni. Innlent 22.4.2010 11:55
Vegfarendur sýni aðgát á öskusvæðinu Suðurlandsvegur er opinn almennri umferð en vegfarendur eru engu að síður beðnir að sýna fyllstu aðgát, bæði vegna ösku og vegna þess að aðeins er um bráðabirgðaviðgerð á veginum að ræða. Vegagerðin biður vegfarendur um að sýna aðgát á öskusvæðinu. Ef blotnar í ösku á yfirborði vegar getur myndast hálka eða jafnvel fljúgandi hálka. Innlent 22.4.2010 11:02
Stjórnvöld í Evrópu undirbúi sig fyrir Kötlugos Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hvetur stjórnvöld í Evrópu og flugmálayfirvöld alls staðar í heiminum að hefja undirbúning vegna hugsanlegs Kötlugoss. Hættan væri ekki liðin hjá og en það gætu liðið 5-15 ár þangað til gos hæfist í Kötlu. Þetta kom fram í máli forsetans í sjónvarpsviðtali í BBC, breska ríkisútvarpinu, í gærkvöldi. Innlent 22.4.2010 10:43
Flugumferð frá Íslandi samkvæmt áætlun Öll flugumferð frá Íslandi er samkvæmt áætlun og er flogið til Kaupmannahafnar, Oslóar og Stokkhólms. Að öllu óbreyttu verður flogið á alla áfangastaði íslensku flugfélaganna í dag. Vélarnar þurfa þó að fara lengri leiðir í sumum tilfellum vegna öskufalls. Innlent 22.4.2010 10:01
Róleg nótt í grennd við gosstöðvarnar Að sögn vettvangsstjórnar á Hvolsvelli hefur nóttin verið mjög róleg í grennd við gosstöðvarnar. Rétt fyrir klukkan eitt í nótt varð örlítil aukning á vatnsrennsli í Markarfljóti og barst nokkur krapi með en þegar leið að morgni hafði vatnsmagn ekki aukist frekar í ánni. Frá eldstöðvunum má þó enn finna markvissan takt umbrotanna. Innlent 22.4.2010 09:49
Spáð að askan falli vestan við jökulinn á föstudag Búast má við öskufalli í grennd við eldstöðina og vestur af henni á morgun, samkvæmt spá Veðurstofunnar sem birt var klukkan tíu i kvöld á vef Veðurstofunnar. Innlent 21.4.2010 23:29
Fjölskyldan á Þorvaldseyri gerir hlé á búskap um óákveðinn tíma Byggðin undir Eyjafjöllum varð fyrir miklu áfalli í dag þegar oddviti héraðsins, bóndinn á Þorvaldseyri, játaði sig sigraðan gagnvart náttúruöflunum og lýsti því yfir að hlé yrði á búskap um óákveðinn tíma á þessu eina glæsilegasta býli landsins. Innlent 21.4.2010 19:19
Gosmökkur og öskumyndun minnkar verulega í Eyjafjallajökli Samkvæmt upplýsingum frá Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands hefur þeytigosið minnkað samkvæmt tilkynningu frá almannavörnum. Gosmökkur og öskumyndun hafa minnkað verulega. Innlent 21.4.2010 13:57
Topp 50 atriði í eldgosinu Eldgosið í Eyjafjallajökli hefur sett hluta af heiminum á aðra hliðina. Við tókum saman nokkrar af þeim fréttum sem hafa verið efst á baugi síðustu daga. Lífið 21.4.2010 13:31
Ekkert bendir til þess að gosið sé í rénun Íbúafundir verða haldnir í dag á Goðalandi í Fljótshlíð kl. 14.00, í grunnskólanum á Hellu kl. 17.00 og í félagsheimilinu Hvoli á Hvolsvelli kl. 20.00. Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavörnum. Innlent 21.4.2010 11:41
Rólegra á gosstöðvunum Rólegt var á gosstöðvunum í Eyjafjallafjökli í nótt og er talið að kraftur gossins sé nú aðeins brot af því sem var á fyrstu dögum þess. Þá bendir allt til þess að nú gjósi aðeins úr einum gíg. Innlent 21.4.2010 07:17
Opnað á milli Markarfljóts og Skóga Þjóðvegurinn á milli Markarfljóts og Skóga var opnaður í gærkvöldi, en hann hefur verið lokaður síðan gosið hófst í Eyjafjallajökli og vegurinn var rofinn við Markarfljótsbrú. Innlent 20.4.2010 08:04
Flug að komast í samt lag - blikur þó á lofti Fyrstu farþegaflugvélarnar í Norður-Evrópu hófu sig til flugs í morgun eftir nær algert fimm daga flugbann vegna Eldgossins í Eyjafjallajökli. Erlent 20.4.2010 07:46
Öskufallið dreifist umhverfis jökulinn Búist er við að öskufall úr Eyjafjallajökli dreifist umhverfis jökulinn í dag, en ekki aðeins til suðurs og suðausturs, eins og verið hefur. Nú er réttur mánuður síðan gos hófst í Fimmvörðuhálsi, sem flutti sig svo í Eyjafjallajökulinn. Innlent 20.4.2010 07:36
Flugumferð í eðlilegt horf á fimmtudaginn Gera má ráð fyrir að flugumferð geti verið komið í eðlilegt horf á fimmtudaginn eftir gríðarlega röskun frá því í síðustu viku. Þetta er mat Loftferðaeftirlits Evrópu, eða Eurocontrol, að því er AFP greinir frá. Erlent 19.4.2010 21:13
Þjóðvegurinn opnaður aftur milli Markarfljóts og Skóga Lögreglan á Hvolsvelli hefur ákveðið að hleypa þeim, sem eiga brýnt erindi, áfram veginn milli Markarfljóts og Skóga fram til klukkan 10 í kvöld. Tekið skal fram að skyggni er slæmt undir Eyjafjöllum og á Mýrdalssandi og þar er nú mjög hvasst. Innlent 19.4.2010 19:10
Rauði krossinn veitir áfallahjálp á gossvæðinu Rauði kross Íslands vinnur nú að því í samvinnu við heimamenn að veita íbúum og þeim sem orðið hafa fyrir áhrifum af völdum eldgossins sálrænan stuðning. Innlent 19.4.2010 15:58
Gosið að breytast í hraungos Gosmökkurinn yfir Eyjafjallajökli er talsvert lægri en hann hefur verið að undanförnu, sem talið er vita á að farið sé að draga úr öskugosinu og að gosið sé að verða hraungos. Gosvirkni jókst i gærkvköldi, dalaði aðeins í nótt en óx aftur í morgun. Innlent 19.4.2010 11:59
Fundað með íbúum á áhrifasvæði gossins Íbúafundir verða haldnir á næstunni með íbúum, sem hafa orðið fyrir búsifjum vegna eldgossins. Sá fyrsti verður að Gunnarshólma klukkan hálf ellefu í dag. Þar munu almannavarnanefndir í héraði, dýralæknar, jarðvísindamenn og fleiri sérfærðingar, ásamt fulltrúum frá stofnunum, fara yfir stöðuna og fjalla um aðgerðir. Innlent 19.4.2010 08:27
Askan gæti kæft allan hagvöxt í Evrópu á þessu ári Efnahagsleg áhrif öskunnar úr gosinu í Eyjafjallajökli gætu orðið víðtæk í Evrópu. Hagfræðingar telja að ef gosið stendur mánuðum saman muni það valda samdrætti í hagvexti um 1-2% í álfunni. Áður en gosið hófst var því spáð að hagöxtur í Evrópu yrði á bilinu 1-1,5% í ár. Viðskipti erlent 19.4.2010 08:20
Búið að gera við veginn við Markarfljót - enn lokað þó Það snjóaði víða á norðan- og austanverðu landinu í nótt og er víða hálka, einkum á fjallvegum. Það var til dæmis al hvít jörð og hálka á Akureyri í morgunsárið. Innlent 19.4.2010 08:20
Enn kraftur í gosinu Gosórói jókst í Eyjafjallajökli í gærkvöldi og er enn kraftur í gosinu. Gosmökkurinn er hinsvegar margfalt lægri en áður, hann stígur rétt upp fyrir jökulinn. Þetta staðfesta ratsjár og myndir úr gerfihnöttum. Innlent 19.4.2010 07:16
Flogið til Noregs, Svíþjóðar og Finnlands Staðan á flugi frá Íslandi er sú að flug Icelandair til Kaupmannahafnar sem fara átti í dag hefur verið fellt niður en í stað þess er boðið upp á aukaflug til Osló. Einnig hefur flugi sem fara átti til Helsinki verið breytt og verður nú flogið til Tampere þess í stað. Innlent 19.4.2010 07:08
Askan í Evrópu: Útlitið aðeins bjartara Askan úr eyjafjallajökli heldur áfram að hrella evrópubúa og lama flugsamgöngur. Þó hafa flugvellir verið opnaði í Noregi og Svíþjóð þótt það gæti verið tímabundið. Erlent 19.4.2010 06:59
Allt á kafi í grárri drullu „Það er leiðindalykt og allt á kafi í grári drullu,“ segir Berglind Hilmarsdóttir, ábúandi á Núpi undir Eyjafjöllum. Í gær birti til eftir að öskunni hafði kyngt niður og skildi eftir sig svart teppi yfir sveitinni. Berglind finnur til í öndunarfærunu og segir þungt að anda. „Eins og maður sé alltaf með ryk í nefinu. Fólk er eflaust misviðkvæmt fyrir þessu, ég get ekki ímyndað mér að þetta sér gott fyrir viðkvæma og börn.“ Innlent 18.4.2010 22:39
Ferðalangar fengu ekki að fara inn í Fljótshlíð Mikill fjöldi lagði leið sína austur á Hvolsvöll á laugardag til að berja gosstrókinn úr Eyjafjallajökli augum. Ökumenn fengu ekki að fara inn í Fljótshlíð eða að Markarfljóti samkvæmt fyrirmælum frá Almannavörnum. „Ég held að fólk hafi almennt sýnt því skilning,“ segir Smári Sigurbjörnsson, formaður björgunarsveitarinnar Dagrenningar á Hvolsvelli. Innlent 18.4.2010 22:39
Flugvélin er bylting í gosrannsóknum Ný eftirlits- og björgunarflugvél Landhelgisgæslunnar hefur leikið aðalhlutverk við gagnaöflun við gosstöðvarnar á Suðurlandi. Upplýsingarnar hafa gagnast við hættumat og veitt jarðvísindamönnum ómetanleg tækifæri til rannsókna. Innlent 18.4.2010 22:39
Spá Veðurstofu Íslands um öskufall Sunnudagur: Vestanátt beinir gosmekki yfir Mýrdalsjökul. Búast má við öskufalli í Meðallandi og á Mýrdalssandi. Snýst í norðanátt í nótt, með öskufalli suður af Mýrdalsjökli. Innlent 18.4.2010 22:39
Gosstrókurinn er lægri en óróinn eykst Gosvirkni í eldstöðinni á Eyjafjallajökli var minni í gær en áður og fór gosmökkurinn ekki jafn hátt og síðustu daga. Gosóróinn óx hins vegar, og er mjög erfitt að ráða í þýðingu þessara breytinga, segir Páll Einarsson, prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands. Innlent 18.4.2010 22:39
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent